Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1991, Blaðsíða 35
MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ 1991.
47
Veiðivon
Veiðiámar í Vopnafirði:
Allar að koma til
eftir rólega byrjun
„Veiðin hérna í ánum í Vopnafirði
er öll að lifna við og síðustu daga
hefur sést þónokkuð af fiskum í
þeim,“ sagði Garðar H. Svavarsson í
gærdag en hann var staddur í næsta
nágrenni við Vesturdalsá.
„Hofsá hefur gefið 107 laxa og sá
stærsti er 16 pund. Veiðimenn hafa
verið að fá 12-14 laxa á vaktinni. í
Selá hefur veiðst 101 lax en þeir eru
tregir að taka, laxamir. í Selánni eru
Stefán Ágústsson og félagár. Þeir
voru komnir með 15 laxa þegar ég
síðast frétti. í Vesturdalsánni byrjaöi
veiðin seinna en í hinum og eru
komnir 40 laxar og 300 silungar.
Hann er 15 pund, sá stærsti, en mest
hefur veiðst af 9 til 13 punda löxum.
Bléikjuveiðin hefur verið feiknagóð
og er bleikjan fyrr á ferðinni en oft
áður. Veiðimenn, sem hættu á hádegi
á laugardaginn, voru með fulla sekki
af bleikjum og 17 laxa. Stærsti laxinn
hjá þeim var 14 pund. Þetta voru
Heimir Garðarsson og fleiri," sagði
Garðar ennfremur.
Voru við veiðar
í Langá á Fjallinu
'„Við vorum að koma af Fjallinu í
Langá og fengum einn lax en það var
sama hvað við kíktum í veiðibókina,
aðeins voru skráðir 6 laxar,“ sagði
Júlíus P. Guðjónsson sem sagði Fjall-
ið í Langá vera feikna skemmtilegan
veiðistað.
„Við sáum ekki marga laxa, reynd-
ar mjög fáa fiska. Við reyndum vel
en árangurinn lét á sér standa. Við
sáum enga 27 laxa í veiðibókinni,"
sagði Júlíus ennfremur.
Veiðin róleg í
Laxá í Aðaldal eins og er
„Við fengum 8 laxa, ég og Óli K.
Sigurðsson, fyrir neðan Æðarfoss-
ana,“ sagði Ingvi Jón Einarsson um
helgina en hann var að koma af
bökkum Laxár í Aðaldal.
Fyrir neðan Æðarfossa eru laxar
en það er ekki mikið af fiski í ánni.
Stærsti laxinn, sem við fengum, var
11 pund,“ sagði Ingvi Jón ennfremur.
-G.Bender
Óli K. Sigurðsson, forstjóri Olis, á bökkum Laxár í Aðaldal fyrir fáum dög-
um. 7 laxar og Æðarfossar í baksýn. í Laxá í Aðaldal hafa veiðst á milli
410 og 420 laxar. DV-mynd Ingvi Jón
Elliðaámar:
Enn vantar nokk-
uð upp á svipaða
veiði og í fyrra
Það eru ekki bara karlmenn sem renna fyrir lax í
Elliðaánum. Þessar stöllur voru við veiðar i ánum
i fyrradag og fengu 6,5 punda lax á flugu í efri Breið-
holtsstrengjum. Til vinstri er Margrét Pálsdóttir og
með henni á myndinni er Ingigerður Jónsdóttir.
DV-mynd SK
Veiðin í Elliðaánum er nokkru lakari nú en á
sama tíma í fyrra. í gær á hádegi voru komnir á
milli 310 og 320 laxar á land en á sama tíma í
fyrra var heildarveiðin yfir 400 laxar.
Það var samdóma álit þeirra veiðimanna sem
voru við veiðar að mjög mikið af laxi væri í ánum
þessa dagana en hann tæki mjög illa. Á því kunna
að vera margar skýringar. Mjög lítið og „dautt“
vatn er í Elliöaánum þessa dagana og hefur verið
lengi vegna langvarandi þurrka. Vatnshiti hefur
verið mjög mikill, mest 20,2 stig fyrr í sumar, en
í gær var hitastigið 15 stig.
Fyrir nokkrum dögum höfðu 599 laxar gengið
í gegnum teljarann í Elliðaánum. Síðustu daga
hefur verið mjög mikil ganga á ferðinni og á
hádegi í gær höfðu 1910 laxar smeygt sér í gegnum
teljarann.
Veiðimenn, sem eiga veiðileyfi í Elliðaánum,
ganga því að miklum fiski vísum í ánni en spurn-
ingin er hvort laxinn tekur betur en undanfarna
daga.
Ennþá hefur lítið veiðst í Elliðaánum á fluguna
en það stendur til bóta næstu vikurnar því veiði-
menn reyna æ meira marglitar flugur sínar, sem
þeir hafa hnýtt í vetur, og þá kemur margt
skemmtilegt í ljós.
-SK/G.Bender
Fjölmiðlar
Lygi auglýsinganna
Auglýsingar eru stór hluti af dag-
legu efni flestra fjölmiðla. Sumar
þessara auglýsinga eru vel úr garði
gerðar og í þeim koma fram nauð-
synlegar upplýsingar um þá vöru
eða þjónustu sem verið er að fal-
bjóða.
Feröaskrifstofur og flugfélög eru
fyrii-tæki sem gera mikið af því að
auglýsa þjónsutu sína og þá ferða-
möguleika sem eru i boði. Oftar en
ekki hafa þessar auglýsingar nálg-
ast það að vera hreinar og klárar
blekkingar, þó vissulega séu til heiö-
arlegar undantekningar á þvi.
Eitt fyrirtæki auglýsir til aö
mynda ferðir til tveggja erlendra
stórborga og ber ferðin heitið „flug
og bíll“ í tvær vikur og kostar að
manni sýnist rúmar tuttugu þúsund
krónur. Svo koma hefðbundnar
stjörnumerkingar og með finlegu
letri neðst í auglýsingunni má svo
sjá hvað ferðin kostar miðað við tvo
einstaklinga og hefur hún þá hækk-
að um 10.000 krónur eða annað er
varla hægt að skilja út frá textanum.
Efra verðið gildir bara fyrir fólk
með börn á heppilegum aldri.
Fiölmiðlar hafa á undanfórnum
vikum flutt fréttir af slíkum blekk-
ingarleikjum en þaö virðist litlum
árangri hafa skilað, alla vega ef
miðað er við þessa umræddu aug-
lýsingu. Verðlagsstofnun hafði í
sömu fj ölmiðlum boðað „aðgerðir“
en svo kom frétt um að málið hefði
verið látið niður falla meðan stofn-
unin semdi nýja reglugerð um
hvemig leyfilegt sé að auglýsa.
Hins vegar er málið brýnt neyt-
endamál sem að ósekju mætti
hamra endalaust á í fjölmiðlum og
reyna á þann hátt að vekja bæði
almenning og auglýsendur til vit-
undar um að auglýsingar eigi að
gefa nákvæma og rétta mynd af
þeirri vöru og þjónustu sem er verið
að selja hverju sinni.
-Jóhanna Maj-grét Einarsdóttir
BINGQ!
Hefst kl. 19.30 í kvöld
Aðalvinninqur að verðmeeti
__________100 bús. kr.________
Heildarveiðmæti vinninqa um
300 bús. kr.
TEMPLARAHÖLLIN
Eiri'ksgötu 5 — S. 20010
Veöur
Austan- og norðaustangola í fyrstu um allt land en
heldur vaxandi austan- og suðaustanátt þegar liður
á morguninn. Við suður- og suðausturströndina má
búast við að vindur nái að verða allhvass um tíma
með rigningu en annars staðar verður austan- og
suðaustanáttin mun hægari og að mestu úrkomu-
laust. Á vestanverðu landinu verður að öllum líkind-
um léttskýjað. Hiti 7-18 stig.
Akureyri alskýjað 7
Egilsstaðir skýjað 6
Keflavikurflugvöllur léttskýjað 11
Kirkjubæjarklaustur skýjað 9
Raufarhöfn súld 6
Reykjavík léttskýjað 12
Vestmannaeyjar skýjað 11
Helsinki rigning 16
Kaupmannahöfn skýjað 14
Ósló léttskýjað 16
Stokkhólmur skýjað 16
Amsterdam léttskýjað 14
Berlín skýjað 13
Frankfurt heiðskírt 14
Glasgow þokumóða 14
Hamborg skýjað 13
London þoka 14
LosAngeles alskýjað 18
Lúxemborg þokumóða 14
Madrid heiðskirt 16
Montreal léttskýjað 21
París skýjað 17
Valencia léttskýjað 21
Vín skýjað 18
Winnipeg skýjað 21
Gengið
Gengisskráning nr. 136. - 22. júlí 1991 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 61,450 61,610 63,050
Pund 103,387 103,656 102,516
Kan. dollar 53,040 53,179 55,198
Dönsk kr. 9,0481 9,0716 9,0265
Norsk kr. 8,9760 8,9994 8,9388
Sænsk kr. 9,6696 9,6947 9,6517
Fi. mark 14,5461 14,5840 14,7158
Fra. franki 10,3056 10,3325 10,2914
Belg. franki 1,7006 1,7050 1,6936
Sviss. franki 40,4729 40,5783 40,4750
Holl. gyllini 31,0550 31,1358 30,9562
Þýskt mark 34,9883 35,0794 34,8680
it. líra 0,04697 0,04709 0,04685
Aust. sch. 4,9719 4,9848 4,9558
Port. escudo 0,4083 0,4093 0,3998
Spá. peseti 0,5606 0,5621 0,5562
Jap. yen 0,44938 0,45055 0,45654
Irskt pund 93,542 93,786 93,330
SDR 81,9288 82,1421 82,9353
ECU 71,9119 72,0991 71,6563
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI • 653900
✓
N
eftít íolte
lamut IretnJ
v-------------/
SEKTIR
fyrir nokkur
umferöarlagabrot:
Umferðarráð
vekur athygli á nokkrum
neöangreindum sektarfjárhæðum,
sem eru samkvæmt leiöbeiningum
rikissaksóknara til lögreglustjóra
frá 22. febrúar 1991.
Akstur gegn rauðu Ijósi - allt að 7000 kr.
Biðskylda ekki virt " 7000 kr.
Ekið gegn einstefnu “ 7000 kr.
Ekið hraöar en leyfilegt er “ 9000 kr.
Framúrakstur við gangbraut “ 5000 kr.
Framúrakstur þar sem bannaö er “ 7000 kr.
„Hægri reglan” ekki virt “ 7000 kr.
Lógboöin ökuljós ekki kveikt 1500 kr.
Stóðvunarskyldubrot
Vanrækt að fara með ökutæki
til skoðunar
Öryggisbelti ekki notuð
-alltað 7000 kr.
4500 kr.
3000 kr.
MJÖG ALVARLEG OG ÍTREKUÐ BROT
SÆTA DÓMSMEÐFERÐ.
FYLGJUM REGLUM -
FORÐUMST SLYS!
UMFERÐAR ,
RÁÐ