Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1991, Page 28
28
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1991.
Menning
Leikritiö Sigrún Ástrós verður tekið aftur upp í vetur og er það þá þriðja
leikárið í röð sem það verður sýnt. Margrét Helga Jóhannsdóttir leikur
%ina hlutverkið i leikritinu. ">
Leikhópur og annað starfsfólk Leikfélags Reykjavíkur samankomið fyrir
framan Borgarleikhúsið í byrjun nýs leikárs.
Þriðja leikár LR í Borgarleikhúsinu hafið:
íslensk leikrit í fyrirrúmi
Nítugasta og fimmta starfsár Leik-
félags Reykjavíkur hófst með æfing-
um í síðustu viku og er það jafnframt
þriðja árið sem LR starfar í Borgar-
leikhúsinu. í vor tók nýr leikhús-
stjóri, Sigurður Hróarsson, við starfl
og er þetta því fyrsta leikárið sem
haim stendur fyrir.
Á verkefnaskranni í vetur eru
mörg leikrit og eru íslensk verk í
fyrirrúmi framan af leikárinu.
Fyrsta frumsýning vetrarins er
Dúfnaveislan eftir Halldór Laxness
en verkið var frumflutt í Iðnó 1966 á
vegum Leikfélagsins. Sonarsonur
skáldsins, Halldór E. Laxness, leik-
stýrir en Sigurjón Jóhannsson gerir
leikmynd. Frumsýnt verður 20. sept-
ember á stóra sviðinu.
Önnur frumsýning vetrarins er
einnig íslenskt verk, Þétting, sem er
nýtt leikriti eftir Sveinbjörn I. Bald-
vinsson sem er kunnur smásagna-
höfundur og ljóðskáld en hefur einn-
ig skrifaö leikrit sem sýnd hafa verið
í Bandaríkjunum. Þétting er frum-
raun hans í íslensku leikhúsi og
verður leikritið frumsýnt á litla svið-
inu í lok september undir stjórn
Hallmars Sigurðssonar en leikmynd
gerir Jón Þórisson.
Þá eru hafnar æfmgar á fyrsta leik-
riti Björns Th. Björnssonar sem birt-
ist á sviði. Það nefnist Ljón í síðbux-
um og er Ásdís Skúladóttir leik-
stjóri. Leikmynd gerir Hlín Gunnars-
dóttir. Frumsýning á Ljóni í síðbux-
um er áætluð í októberlok á stóra
sviðinu.
Ása Hlín Svavarsdóttir mun leiða
leikhóp sem frumsýnir barnaleikrit
á litla sviðinu í byrjun nóvember en
þá verða hafnar æfingar á Rugh í
ríminu eftir Johann Nestroy, meist-
ara gamanleikja Vínarborgar á síð-
ustu öld. Þrándur Thoroddsen þýðir
og semur leikgerð en Guðmundur
Ólafsson leikstýrir. Leikmynd ann-
ast Steinþór Sigurðsson. Frumsýn-
ing á Rugli í ríminu verður á stóra
sviðinu í janúar.
í febrúar mun svo Leikfélagiö
frumsýna viðamestu sýningu ársins,
Þrúgur reiðinnar eftir John
Steinbeck í leikstjóm Kjartans Ragn-
arssonar. Er hér um að ræða nýja
bandaríska leikgerð.
Tvær sýningar, sem gengu í fyrra,
munu verða teknar upp aftur. Eru
það Sigrún Ástrós, sem verður á litla
sviðinu þriðja leikárið í röð, og Á ég
hvergi heima sem frumsýnt var seint
á síðasta leikári. Það leikrit er rúss-
neskt og er eftir Alexander Galín.
-HK
Hvað gef ur
náttúran?
Jóhann Eyfells og Gunnar Örn eru
fulltrúar íslands í umfangsmikilli
samnorrænni nútímahstasýningu
sem norrænu bændasamtökin
standa fyrir. Yfirskrift sýningarinn-
ar er Hvað gefur náttúran?
Það var fyrir rúmu ári að fram kom
sú hugmynd hjá norrænu bænda-
samtökunum að efna til sýningar á
norrænni samtímalist þar sem þem-
að yrði Hvað gefur náttúran? Sam-
tökin fengu til liös við sig sérfræð-
inga frá nokkrum helstu listasöfnum
á Norðurlöndum til að koma með til-
lögur um val listamanna og úr-
vinnslu á sýningunni.
Frá Danmörku voru valin Anette
Holdensen myndhöggvari og John
Olsen málari, frá Finnlandi Jukka
Makela málari og Kain Tapper
myndhöggvari, frá Noregi Kjell Ny-
pen myndskeri og Bárd Breivik
myndhöggvari, frá Svíþjóð Hans Wi-
gert málari og Laris Strunke málari
og frá íslandi Jóhann Eyfells mynd-
höggvari og Gunnar Örn málari.
í tengslum við sýninguna er gefin
út vegleg sýningarskrá þar sem eru
meðal annars stuttar greinar um
tengsl náttúru og myndlistar í hverju
landi. Nú er sýningin í Svíþjóð en
þaðan liggur leiðin til Finnlands.
Ráðgert er að sýningin verði í
Reykjavík í byrjun árs 1993.
-HK
Kam ýctbfrn
Fellagörðum - Breiðholti III (í dansskóla Heiðars)
Ný námskeið að hefjast
I Almenn námskeið
KARON-skólinn kennir ykkur:
Rétta líkamsstöðu, rétt göngulag, fallegan fótaburð,
andlits- og handsnyrtingu, hárgreiðslu, fata-
og litaval, mataræði, hina ýmsu borðsiði
og alla almenna framkomu o.fl.
II Módelnámskeið
tískusýningar- og fyrirsætustörf:
Sviðsframkoma, göngulag,
hreyfingar, líkamsbeiting,
snyrting, hárgreiðsla o.fl.
Innritun og
upplýsingar
daglega frá
kl. 16-19
í síma 38126
Hanna Frímannsdóttir
Örverka-
samkeppni
í nóvember næstkomandi verð-
ur haldlð upp á eins árs afmæh
tímaritsins Bjartur og frú Emiha
og verður þeirra timamóta
minnst með því að efnt verður tíl
örverkasamkeppni og verða aðal-
verðlaurún 50.000 krónur. Mörg
örmur verðlaun verða veitt. Ör-
verk eru samkvæmt skilgrein-
ingu aðstandenda örleikrit og ör-
sögur, smáverk sem yfirleitt er
hugmyndin ein og sýna fremur
ástand en greina það. í öðru heft-
inu birtust tólf örleikrit eftir
þekkta erlenda höfunda og tíu
örsögur eftir Kristínu Ómars-
dóttur. í þriðja tölublaðinu birt-
ast svo örleikrit eftir Ulfhildi
Dagsdóttur. Fyrir væntanlega
þátttakendur er upplagt að kynna
sér örverkin í tímritinu en ör-
verkum í samkeppnina þarf að
vera búið að skila fyrir 1. október.
Nefndskipuðtil
aðendurskoða
kvikmyndalög
Skipuð hefur verið nefhd af
menntamálaráðherra til að end-
urskoða lög um kvikmyndamál.
Þrír kvikmyndagerðarmenn eiga
sæti í nefndinni og tveir starfs-
menn frá ráðuneytum. Knútur
Hahsson ráðuneytisstjóri er
formaður nefndarinnar. Aðrir
sem eiga sæti í nefndinni eru Ei-
ríkur Thorsteinsson, formaður
Félags kvikmyndagerðarmanna,
Hrafn Gunnlaugsson, formaður
Félags kvikmyndaframleiðanda,
Kristín Jóhannesdóttir, formað-
ur Félags kvikmyndaleíkstjóra
og Helgi Jóhannesson sem til-
nefndur er af fjármálaráðuneyt-
inu
Góðirtónleika-
dómarí
Þýskalandi
Sigurður Bragason barítón-
söngvari og Hjálmur Sighvatsson
píanóleikari héldu tónleika i
Bonn í Þýskalandi fyrir stuttu og
var þeim mjög vel tekið og hefur
þeim verið boðið að halda tón-
leika í Stuttgart, Köln og í Bonn
f október. Á tónleikunum fluttu
þeir félagar bæði þjóðleg lög og
lög eftír erlenda höfunda. í þýska
blaðinu General-Anzeigner segir
meðal annars um frammistöðu
þeirra aö með fínlegri raddbeit-
ingu hafi Sigurður töfrað fram
áhrifamikla stemningu og hafi
Hjálmur Sighvatsson stutt hann
eins og best varð á kosið og upp-
fyht sinn hluta með glæsibrag.
Þá segir einnig að þeir hafi verið
vaxnir því hlutverki að túlka
hina breiðu drætti í tónhst Ver-
dis, Bellinis og Donizettis.
„Bragason gat hér látið röddina
njóta sín bæði í sterkum þáttum
þar sem hún varð aldrei óþægileg
áheyrnar og í veikum þáttum þar
sem hún var yndislega Ijóðræn."
Þriðja Ijóðabók
AraGísla
Bragasonar
Ari Gisli Bragason hefur sent
frá sér nýja ljóðabók sem nefnist
f fjarska. Er þetta þriðja Ijóðabók
höfundar á stuttum tíma og inni-
heldur bókin þrjátíu ljóð. Ari
Gisli tileinkar bræðrum sínum
Ijóðabókina og kahar hana í
gamni fyrstu jólabókina í ár. Ari
Gísh Bragason hefur undaníárið
dvahð í Bandaríkjunum og bera
sum Ijóða hans það með sér. Til
að mynda er viöamesta ljóðið í
bókinni tileinkað New York og
ber nafn borgarinnar. Þá er hon-
um einnig hugleikiö í ljóðum sín-
um bæjarlífíð í Reykjavík fyrr og
nú.