Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991. Fréttir Halldór Blöndal: Utgjöld til landbúnaðarins munu aukast á næsta ári „Útgjöld til landbúnaðarmála munu aukast á næsta ári vegna skör- unar á nýja og gamla búvörusamn- ingnum. Beinn kostnaður vegna þessa er um tveir milljarðar. í stað- inn erum við hins vegar að reyna að draga úr öðrum kostnaði. Þaö er hins vegar mjög erfitt að nefna neinar tölur í þessu sambandi því enn er svo margt óljóst í þessu sambandi," segir Halldór Blöndal landbúnaðarráð- herra. Á flokksstjórnarfundi Alþýðu- - skörun tveggja búvörusamnlnga kallar á tvo milljarða flokksins um síðustu helgi fullyrti Jón Baldvin Hannibalsson að ríkis- stjórnin ætlaði sér að skera niður um 1,9 milljarða af framlögum til land- búnaðarins. Ljóst er þó að þessi nið- urskurður mun ekki minnka útgjöld ríkissjóðs til landbúnaðarins á næsta ári mjðað við fjárlög þessa árs. Þvert á móti má búast við einhverri aukn- ingu. Þess má geta að í fjárlögum þessa árs er gert ráð fyrir að 4,3 millj- arðar renni beint til landbúnaðar- ráöuneytisins og að auki er gert ráð fyrir tæplega 5,3 milljörðum í niður- greiðslur. „Þessar tölur miðast við upphafleg- ar áætlanir og tillögur sem bæði ég og viðskiptaráðherra vissum að væru of háar af sumu leyti,“ segir Halldór um þær 1900 milljónir sem Jón Baldvin segir ríkisstjórnina ætla að skera niður. Halldór kveðst ekki vilja ræöa í smáatriðum þær niðurskurðarað- gerðir sem séu framundan. Sem dæmi nefndi hann þó 350 milljóna króna niðurskurð á framlögum til Framleiðnisjóðs og sparnað í tengsl- um við geymslu- og vaxtakostnað á dilkakjöti. Varðandi skertar niður- greiðslur á landbúnaðarvörum sagði hann ákveðið að minnka þær um 50 milljónir á mjólkurdufti og aðrar 50 milijónir á kindakjöti. „Við höfum verið afskaplega róleg- ir í yfirlýsingum. Við erum að reyna að draga úr kostnaði við sölu og út- flutning á lambakjöti og mjólkuraf- urðum. í landbúnaðaráðuneytinu i höfðum við gert okkur vonir um að niðurgreiöslumar myndu falla undir það en svo verður þó ekki heldur heyra þær áfram undir viðskipta- ráðuneytið. Við Jón Sigurðsson höf- um ekki rætt um þessa framkvæmd niðurgreiðslna á næsta ári í einstök- um atriðum og því ógætilegt að tala mikið um það.“ -kaa Svona lítur endurskinsboröinn út sem skátarnir ætla aö senda öllum sjö óra börnum landsins. DV-mynd Hanna Bandalag íslenskra skáta: Öll sjö ára börn f á endurskinsborða „Við ætlum að senda öllum þeim börnum sem verða sjö ára á árinu endurskinsborða í neon-litum sem þau þurfa bara að fleygja yfir axhrn- ar og kemur í stað venjulegra end- urskinsmerkja. Með þvi viljum við leggja okkar af mörkum til að auka öryggi barnanna í umferðinni," sagði Sveinn Guð- mundsson, forstöðumaður sérstaks átaks sem Bandalag íslenskra skáta gengst nú fyrir undir nafninu „Lát- um ljós okkar skína". Borðarnir verða sendir til barn- anna í pósti þann 15. október næst- komandi og með þeim fylgir veglegt rit þar sem bent er á þær hættur sem leynast í umferðinni og ýmis öryggis- tæki eru kynnt. „Þetta er gert að svissneskri fyrir- mynd þar sem börnin líta orðið á borðana sem eins konar stöðutákn um að nú séu þau orðip nógu gömul til að fara í skóla. Við vonumst til að koma þessari jákvæðu ímynd inn hér á landi með tímanum," sagði Sveinn. Sveinn sagði að í kjölfarið ætluðu skátarnir að ganga í skólana og kynna börnunum enn frekar nauð- syn þessa átaks, og ítreka þannig notkun borðanna. Aðspurður sagði Sveinn að áætlað- ur kostnaður við átakið væri á fjórðu milljón króna. Skátarnir fjármagna það með aðstoð styrktaraðila, en öll ■vinna þessu samfara er unnin í sjálf- boðavinnu. -ingo Samþykkt fundar um loðnumælingar: Fjögur skip fari með rannsóknaskipi - leitað verður á stærra svæði en venjulega „Næsta skref verður að setjast niö- ur og leggja niður fyrir sér nánustu framtíð og hvenær farið verður að leita að og mæla veiöistofninn núna í haust og hvaða form verður haft á því. Samkvæmt okkar áætlun á Árni Friðriksson að fara til rannsókna 30. september og það er gert ráð fyrir því að um líkt leyti, í samræmi við samþykkt fundarins, fari með okkur fjögur loðnuskip að minnsta kosti,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson, fiski- fræðingur hjá Hafrannsóknastofn- un. Á fundi sem skipstjórnarmenn, út- gerðarmenn og fiskifræðingar héldu síðastliðinn föstudag var samþykkt að skora á fjárveitingavaldið að skapa grundvöll fyrir aukið úthald rannsóknaskipa Hafrannsókna- stofnunar til loðnuleitar og -rann- sókna þannig að úthaldið verði sam- fellt á loðnuvertíðinni fram í apríllok næstkomandi. Þá var samþykkt á fundinum að skipa sex manna nefnd sem í eru tveir fulltrúar frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, tveir frá Farmanna- og fiskimannasambandi íslands og tveir frá Hafrannsókna- stofnun. Nefndin á að athuga mögu- leika á því að setja nokkurs konar upphafskvóta. Hún hefur ekki tekið til starfa en mun væntanlega gera það mjög fljótlega, að sögn Hjálmars. Hjálmar segir að þegar farið veröi að leita veröi farið á hefðbundin leit- arsvæði og jafnvel víðar. „Það verður farið á milli Vestfjarða og Grænlands, milli islands og Jan Mayen og svo austur fyrir og norð- austur fyrir land. Og helst víðar en venjulega en það verður svo að koma í ljós hvað okkur er skammtað af plássi fyrir sakir íss og veðurs," seg- ir Hjálmar. -ns Trillan Homstrendlngur HF117 fórst út af Snæfellsnesi í gærmorgun: Stýrishúsið var orðið hálff ullt af sjó - sagði Kristján Albertsson sem bjargaðist eftir 4 klukkutíma í gúmbát „Ég fann þegar það kom högg á bátinn, stoppaði og fór fram á til að athuga hvað þetta væri en sá ekkert. Þegar ég kom í stýrishúsið aftur sá ég að það var orðið hálffullt af sjó. Ég setti þá gúmbátinn strax í sjóinn, blés hann upp og fór í hann. Báturinn hefur síðan verið um hálftíma að sökkva," sagði Kristján Albertsson úr Hafnarfirði sem var bjargað úr gúmbát skammt frá Öndverðarnesi um klukkan hálftíu í gærmorgun. Bátur hans, Hornstrendingur HF 117, sökk skammt norðan Dritvíkurt- anga, vestast á Snæfellsnesi, snemma í gærmorgun. Kristján náði ekki að senda neyðarkall um talstöð er hann yfirgaf trilluna. Hann var búinn aö vera í um 4 klukkustundir á reki í gúmbátnum er hjálp bárst. Skipveijar á vélbátnum Auðbjörgu SH 197 frá Ólafsvík björguðu Kristj- áni þá um borö. Kristján sagði aö myrkur hefði ver- ið þegar bátur hans skall á rekaldi 3-4 sjómiíur norður af Dritvíkur- töngum. Klukkan var þá um 5.30 um morguninn - myrkur en nánast logn. Kristján sagði við DV að hann gæti ímyndað sér að báturinn hefði rekist á rekaviðardrumb en kvaðst þó ekki vera viss í þeim efnum: „Ég var með fiugelda úr Horn- strendingi auk þess sem flugeldar voru líka í gúmbátnum. Ég skaut einu strax en svo beið ég bara eftir skipaferðum. Bátinn rak upp að landi en síðan stóð vindur frá og mig rak aftur út. Ég var ekkert mjög ugg- andi en mér var farið að kólna. Það eru alltaf einhverjar skipaferðir þarna þó það sé á mismunandi tím- um. Auðbjörgin kom svo fyrir Önd- verðarnesið um níuleytið og var aö koma suður meö,“ sagði Kristján. Hann gerði vart við sig með neyðar- flugeldi er hann sá Auðbjörgu. Þegar DV ræddi við Kristján í gær var hann orðinn talsvert þreyttur enda búinn að vaka mikið. Kristján lagði af stað frá Bolungarvík síðdegis á sunnudag og var ferðinni þá heitið til Hafnarfjarðar. Hann var ekki í flotgalla er óhappið varð. Kristján hafði að undanfórnu verið á hand- færaveiðum frá Bolungarvík. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.