Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Side 17
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991.
17
í tilefni leikjametsins
3 Geirssonar þegar hann lék sinn 68. A-landsleik í knattspyrnu, gegn Tékkum í
í 1 viðtali við DV að hann myndi bjóða Marteini út að borða þegar metið félli og við
ir þeir hittust ásamt eiginkonum á Rauða sófanum. VS/DV-mynd S
Lattspyrnan:
í öðru sæti
um helgina. 2. deildin er mun erfiðari en
ég bjóst við en ég er annars bjartsýnn á
framhaldið hjá okkur,“ sagði Arnór
Guðjohnsen, í samtali við DV í gær.
Miklar breytingar hafa orðið á liðinu
eftir að það var dæmt til að leika í 2. deild
vegna íjárhagserfiðleika og sagði Arnór
að átta leikmenn hefðu verið seldir til
annarra félaga. Borgarbúar standa vel við
bakið á sínum mönnum og hafa að jafnaði
15-20 þúsund áhorfendur komið á heima-
leiki liðsins. - Arnór hefur skorað tvö
mörk fyrir Bordeaux í deildinni fram að
þessu. -JKS
Arnór Guðjohnsen.
ichael ingram, hinn nýi ieikmaður Þórs, sýnir
ir snilldartilþrif og treður í körfuna með glæsi-
Körfubolti:
Sterkur
Kam hja
Þórsurum
Gyifi Kristjánsscm, DV, Akureyii:
Eins og fram hefur komið
hefur úrvalsdeildarlið Þórs í
körfuknattleik fengið til sín
bandarískan leikmann sem
mun leika með liðinu í vetur.
Sá heitir Miehael Ingram, 24 ára
gamaU og 2,03 metrar á hæð.
Ingram lék í Tyrklandi á síðasta
keppnistímabili og þar skoraöi
hann að jafnaöi 35 stig í leik og
tók 20 fráköst.
Þórsarar binda mikiar vonir við
Ingram og þjálfara liðsins sem
er Bandaríkjamaðurinn Brad
Casey. Þá eru tveir ungir og
efnilegir leikmenn komnir til
félagsins,
Það eru Gunnar Örlygsson,
sem varð íslandsmeistari með
Njarövik í íyrra, og Georg Birg-
isson sem kemur einnig frá
Njarðvík. Georg lék ekki körfu-
knattleik í fyrra en hann lék
með unglingalandsliðinu og
verður leikstjómandí hjá Þórs-
urum í vetur.
Hann er einnig liðtækur
knattspymumaður og hefur
ieikið með Keflvíkingum 1 2.
-ag. deildinni i sumar.
íþróttir
Heimsmeistarakeppnl 21 árs og yngri í handbolta:
S-Kórea ekki
nein hindrun
- íslendingar sigraðu, 28-23, í Aþenu í gær
íslenska handknattleikslandsliðið
skipað leikmönnum 21 árs og yngri
heldur áfram sigurgöngu sinni á
heimsmeistaramótinu í Aþenu. ís-
lendingar léku gegn Suður-Kóreu í
fyrsta leiknum í millriðlakeppninni
í gærkvöldi og sigruöu með 28 mörk-
um gegn 23. I hálfleik höfðu íslend-
ingar forystu, 15-12.
Sigur íslenska liðsins var aldrei í
hættu allan leiktímann. Varnarleik-
urinn var sérlega góður með Patrek
Jóhannesson og Finn Jóhannsson
sem bestu menn. Eins varði Hall-
grímur Jónasson vel á mikilvægum
augnablikum. Kóreumenn hafa
teknísku og snöggu liði á að skipa
en það dugði skammt gegn sterku
íslensku liöi.
Góð nýting hjá Björgvini
Björgvin Rúnarsson úr Víkingi var
drjúgur í markaskoruninni, skoraði
sjö mörk úr horninu úr níu skottil-
raunum. Magnús Sigurðsson skoraði
einnig sjö mörk, Patrekur Jóhannes-
son fjögur, Dagur Sigurðsson þrjú
og Páll Þórólfsson tvö.
Næsti leikur íslendinga í milliriðl-
inum verður gegn Svíum í dag og á
fimmtudag verður leikið gegn Þjóð-
verjum og þá lýkur keppni í milli-
riðli. Úrslitakeppnin verður síðan á
föstudag og laugardag.
Úrslit í öðrum leikjum í riðlinum
sem íslendingar leika 1 urðu þau að
Danir og Svíar skildu jafnir, 24-24,
og Sovétmenn sigruðu Þjóðvetja,
24-23. íslendingar og Sovétmenn
standa jafnir að vígi, hvor þjóð hefur
fengið fimm stig og Svíar hafa fjög-
ur.
-JKS
Gunnar Einarsson þjálfari er að
gera góða hluti suður í Aþenu.
íslandsmótið 1 knattspyrnu -1. deild:
Eyjamenn óhressir
með frestunina
- síðustu leikirnir 117. umferð verða 1 dag
Tveir síðustu leikir 17. og næstsíð-
ustu umferðar 1. deildarinnar í
knattspyrnu fara fram í dag. KR og
Fram leika á KR-vellinum klukkan
17.30 og ÍBV mætir Stjörnunni á
malarvellinum í Vestmannaeyjum
klukkan 18.
Báðir leikir geta haft úrslitaþýðingu
í deildinni - takist Frömurum að sigra
KR, ná þeir tveggja stiga forskoti á
Víking fyrir síðustu umferöina. Með
jafntefli eða sigri KR, myndu Víking-
ar hins vegar standa betur að vígi.
Stjaman verður að sigra í Eyjum til
að eiga möguleika á að halda sæti sínu
í deildinni, og takist Garðbæingum
það verða fimm önnur lið í fallhættu
í síðustu umferðinni.
Eyjamenn óhressir
með frestunina
Eyjamenn eru mjög óhressir með til-
færsluna á leiknum viö Stjörnuna en
búið var að setja hann á klukkan 18
í gær, eftir að fresta þurfti honum
um helgina þar sem ekki var flug-
fært til Eyja.
„Um miðjan dag í dag (í gær) birt-
ust allt í einu tveir fulltrúar frá KSÍ,
án þess að gera boð á undan sér, til
að skoða Hásteinsvöllinn. Þeir úr-
skurðuðu hann óleikhæfan og til-
kynntu það til Reykjavíkur. Þá sögð-
um við að leikurinn yrði að fara fram
á möl og það var samþykkt að lokum.
En þá var vitnað í grein í reglugerð
KSÍ þar sem sagði aö um flutning
leiks á möl yrði að tilkynna með sól-
arhrings fyrirvara. Þar með var
leiknum frestað um einn sólarhring
þrátt fyrir að besta veður væri hér í
Eyjum og í lagi með flug,“ sagði Jó-
hannes Ólafsson, formaður knatt-
spyrnuráðs ÍBV, í samtaii við DV í
gær.
„Við skiljum ekki hvers vegna allt
þetta tilstand á sér stað nú. Völlurinn
hefur áður verið blautur og er ekkert
verri nú en oft áður. Okkur grunar
að einhverjar annarlegar ástæður
liggi að baki þessu og erum mjög
óhressir með framkomu mótanefnd-
ar KSÍ í þessu máli. Það er mjög illa
að þessu staðið og KSÍ til skamm-
ar,“ sagði Jóhannes.
Hann bætti því við að búið væri
að fara fram á það við Eyjamenn að
þeir kæmu til Reykjavíkur á fóstu-
dagskvöldið svo tryggt væri að þeir
gætu mætt Fram á tilsettum tíma í
lokaumferðinni á laugardaginn.
„Eftir það sem á undan er gengið,
sjáum við ekki ástæðu til þess,“ sagði
Jóhannes Ólafsson.
-VS
Yf irburðasigur Sigurðar
á golf móti á Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Sigurður Hafsteinsson úr Golf-
klúbbi Reykjavíkur, merktur Coca
Cola í bak og fyrir, vann yfirburða-
sigur í opna Coca Cola golfmótinu á
Akureyri um helgina. Sigurður lék
36 holur á 147 höggum og vann með
9 högga mun.
Eftir að Sigurður slapp við „bönk-
erinn“ við 1. flötina héldu honum
engin bönd. Hann lék á 75 höggum
fyrri daginn og á 72 höggum síðari
dag. Björn Axelsson, GA, varð í 2.
sæti á 156, þá kom Sverrir Þorvalds-
son, GA, á 157, Ólafur Gylfason, GA,
á 158 og Sigurður H. Ringsted, GA,
Helgi Eiríksson, GR, og Ómar Kristj-
ánsson, GR, á 159 höggum.
Síðasta stigamót
sumarsins
Mótið á Akureyri var síðasta stiga-
mót sumarsins og vakti það athygli
en ekki undrun hversu fáir hestu
kylfinga okkar sýndu sig nyrðra.
Sannaöist enn einu sinni hversu
miklu er lengra frá Reykjavík og
norður en öfugt.
Áslaug Stefánsdóttir
vann í kvennaflokki
í kvennaflokki vann Áslaug Stefáns-
dóttir, GA, óvæntan sigur, lék á 178
höggum, Jónína Pálsdóttir, GA, varð
önnur á 183 höggum og Bergljót Borg,
GA, þriðja á 188: Engin af okkar bestu
golfkonum syðra sá ástæðu til að
leggja í hið langa ferðalag norður.
Sveinn Bjarnason vann
í unglingaflokki
Þá er ógetið úrslita í unghngaflokki
en þar sigraði stórefnilegur piltur frá
Húsavfk, Sveinn Bjarnason. Hann
lék á 154 höggum og Guðjón Gunn-
arsson frá Sauðárkróki varð annar á
158 höggum.