Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991. Afmæli DV Vigdís Einarsdóttir Vigdís Einarsdóttir húsmóðir, Fornastekk 11, Reykjavík, er sjötug ídag. Starfsferill Vigdís fæddist í Neðri-Hundadal í Miðdölum í Dalasýslu og ólst upp í Dölunum. Hún stundaði nám við Laugarvatnsskóla 1939-41 er hún lauk þaðan gagnfræðaprófi en stundaði síðan nám við Húsmæðra- skóla Reykjavíkur veturinn 1946-47 og nám við kvöldskóla. Vigdís kenndi börnum einn vetur vestur í Dölum. Hún gekk í ung- mennafélagið Æskuna í Miðdölum er hún var tólf ára og er einn af stofnendum Breiðfirðingafélagsins í Reykjavík. Þá er hún einn af stofn- endum Kvenfélags Breiðholts, hefur setið í stjórn þess, var formaður þess 1974-80 og er núverandi for- maður frá 1990. Hún hefur setið í stjórn Bandalags kvenna í Reykja- vík og starfað um árabil í fjölda nefnda á vegum þess. Þá hefur hún setið í stjórn Áhugamannafélags um Fjölbrautaskólann í Breiðholti, setið í byggingarnefnd Breiðholtskirkju og var varamaður í sóknarnefnd Breiðholtssafnaðar. Vigdís er einn af stofnendum Soroptimistaklúbbs Reykjavíkur III, hefur gegnt ýmsum störfum fyrir klúbbinn og fyrir Soroptimistasamband íslands. Fjölskylda Vigdís giftist 14.9.1946 Hirti F. Jónssyni, f. 10.9.1920, fyrrv. starfs- manni Vegagerðar ríkisins, en hann er sonur Jóns Gíslasonar, stein- smiðs og múrarameistara, og Sigur- veigar Jónsdóttur húsmóður. Synir Vigdísar og Hjartar eru Jón F. Hjartarson, f. 29.7.1947, skóla- meistari á Sauðárkróki, kvæntur Elísabetu Kemp hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvö börn, Áslaugu Birnu- og Hjört Friðberg, auk þess sem El- ísabet átti einn son frá því fyrir hjónaband, Stefán Kemp; Einar F. Hjartarson, f. 20.6.1949, múrara- meistari í Reykjavík, kvæntur Kristínu Þorgeirsdóttur lyfjatækni og eiga þau einn son, Kristin Frið- berg, en Einar átti áður tvær dætur, Ásdísi og Vigdísi, með fyrrv. sam- býliskonu sinni, Sigríði Stefánsdótt- ur; Stefán F. Hjartarson, f. 3.7.1956, doktor í sagnfræði, búsettur í Reykjavík, kvæntur Áslaugu Guð- mundsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau einn son, Stefán Friðberg; Ævar S. Hjartarson, f. 25.12.1960, bifvélavirkjameistari í Reykjavík en sambýliskona hans er Jóhanna Rannveig Skaptadóttir húsmóðir og eiga þau eina dóttur, Láru' Guðrúnu. Systkini Vigdísar eru Hjörtur Ein- arsson, f. 31.12.1918, b. í Neðri- Hundadal í Miðdölum, kvæntur Lilju Sveinsdóttur, kennara og skólastjóra og eiga þau fjögur börn; Guðmundur H. Einarsson, f. 20.5. 1926, læknir í Gautaborg, kvæntur Elísabetu Einarsson og eiga þau tvo syni auk þess sem hann á son frá því áður með Þóru Þórðardóttur; Kristin Einarsdóttir, f. 29.7.1928, húsmóðir í Reykjavík, gift Sigurði Þ. Guðmundssyni, stýrimanni og skipstjóra, og eiga þau fjögur börn; Áslaug Birna Einarsdóttir, f. 29.8. 1930, húsmóðir í Reykjavík, gift Björgvini Magnússyni vélstjóra og eiga þau fjögur börn. Foreldrar Vigdísar voru Einar Jónsson, f. 3.7.1886, d. 2.3.1966, b. að Neðri-Hundadal í Miðdölum, og kona hans, Lára Lýðsdóttir, f. 27.6. 1896, d. 25.3.1986, húsfreyja. Ætt Einar var sonur Jóns, b. í Neðri- Hundadal, Einarssonar, b. í Neðri- Hundadal, bróður Finns, afa Ás- mundar Sveinssonar myndhöggv- ara. Einar var einnig bróðir Mar- grétar, langömmu Kristjönu, ömmu Garðars Cortes óperusöngvara. Ein- ar var sonur Sveins, b. í Neðri- Hundadal, Finnssonar og Guðrúnar Guðmundsdóttur, systur Þórdísar, langömmu Ragnheiðar, móður Snorra skálds og Torfa, fyrrv. ríkis- sáttasemjara, Hjartarsona. Móðir Jóns í Neðri-Hundadal var Sesselja Jónsdóttir frá Ytri-Hrafnabjörgum, Magnússonar. Móðir Einars Jóns- sonar í Neðri-Hundadal var Vigdís Jónsdóttir, b. á Breiðabólstað, Jó- hannssonar, Péturs, b. á Smiðju- hólsveggjum á Mýrum, Einarsson- ar. Móðir Jóns á Breiðabólstað var Guðrún Jónsdóttir Hreggviössonar. Vigdts Einarsdóttir. Móðir Vigdísar var Guörún Sigríð- ardóttir. Lára, móðir afmælisbarnsins, var dóttir Lýðs Illugasonar, b. í Litla Langadal á Skógarströnd. Vigdís fagnar gestum í Ársal Hótel Sögu á afmælisdaginn milli klukkan 18.00 og 20.00. Jón Kristján Olsen Jón Kristján Olsen skrifstofumað- ur, Hátúni 34, Keflavík, er sjötugur ídag. Starfsferiil Jón Kristján fæddist í Visnes- Lingstad í Nordmöre í Noregi en ólst uppí Hrísey frá 1924-30 og á Siglufirði 1930-45. Hann lærði vél- virkjun við Vélsmiðju Siglufjarðar og Vélsmiðju 01. Olsen hf. hjá fóður ■ sínum og stundaði nám við Iðnskóla Siglufiarðar 1938-42 en vélstjóra- prófi lauk hann hjá Fiskifélagi ís- lands 1961. Jón Kristján starfaði við vélvirkj- un 1936-60 og 1965-68, auk þess sem hann var vélstjóri á bátum og við Hraðfrystihús Keflavíkur 1960-65 og 1967-68. Hann var formaður Vél- stjórafélags Suðurnesja 1968-91 og hefur verið starfsmaður félagsins frá 1972. Jón Kristján sat í stjórn Sjó- mannafélags íslands 1972-82 og var ritari þess 1976-82. Hann sat í kjara- samninganefnd Sjómannasam- bandsins 1970-88 og 1990. Fjölskylda Jón Kristján kvæntist 30.10.1943 Gunnlaugu F. Sigurðardóttur, f. 19.12.1923, húsmóður, en hún er dóttir Sigurðar sjómanns Jónssonar frá Syðri-Grenivík Eiríkssonar og Sigurbjargar húsmóður Pálsdóttur, frá Lónsgerði í Kræklingahlíð í Eyjafirði, Hallgrímssonar. Börn Jóns Kristjáns og Gunnlaug- ar eru Júlía Sigríður, f. 31.8.1942, búsett í Svíþjóð, og á hún fimm börn; Helga Rósa, f. 20.5.1944, húsmóðir í Myrtle Beach í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum, gift Jessie W. Tayl- or; Henry, f. 16.6.1946, hárskera- meistari í Njarðvík, og á hann tvö börn; Rut, f. 30.9.1954, húsmóðir í Keflavík, gift Sigurði Þorgeirssyni sjómanni og eiga þau tvö börn. Systkini Jóns Kristjáns: Ólöf Mar- ía, f. 3.7.1920, nú látin, húsmóðir, var gift John Turner sem einnig er látinn og eru börn þeirra þrjú, bú- sett á Englandi; Sverre Hartvig, f. 9.11.1925, var kvæntur Guðmundu M. Þorvaldsdóttur sem lést 1975 og eru börn þeirra fimm; Karl Hinrik, f. 29.10.1926, kvæntur Jakobínu Magnúsdóttur og eru börn þeirra níu; Bjarni Gísli, f. 5.9.1931, búsettur í Keflavík, kvæntur Arnbjörgu Snæbjörnsdóttur og á hann fimm börn og sex stjúpbörn; Henry, f. 17.6. 1936, d. 6.1.1938; Birgir, f. 22.3.1937, kvæntur Öldu Jónsdóttur og eru börnþeirrafiögur. Foreldrar Jóns Kristjáns voru Olav Ingvald Olsen, f. 6.9.1889, d. 27.8.1973, vélsmiður og vélstjóri í Hrísey, á Siglufirði og loks í Ytri- Njarðvik, og kona hans, Bjarnrún Magðalena Jónatansdóttir, f. 28.11. 1895, d. 2.5.1970, húsmóðir. Ætt Olav var sonur Audens Olsen, tré- smiðs og steinhöggvara í Lingstad í Nordmöre í Noregi, og konu hans, Jón Kristján Olsen. Anne Ingebritsdatter Olsen. Bjarnrún Magðalena var dóttir Jónatans, sjómanns, bókbindara og skósmiðs í Sigluvík á Svalbarðs- strönd í Eyjafirði, Jónatanssonar, b. í Hörgsdal, Jónssonar, b. í Hörgs- dal, Magnússonar Tómassonar, b. á Rauðá, Vigfússonar, b. á Víðivöll- um, Péturssonar. Móðir Jóns í Hörgsdal var Guðlaug Árnadóttir, b. á Hofsstöðum í Mývatnssveit, 111- ugasonar, b. í Saltvík, Helgasonar. Móðir Jónatans í Sigluvík var Krist- ín Tómasdóttir Magnússonar, bróð- ur Jóns Magnússonar í Hörgsdal. Móöir Bjarnrúnar var Kristjana Bjarnadóttir í Meðalheimi Gíslason- ar og Guðrúnar Davíðsdóttur. Jón Kristján verður aö heiman á afmælisdaginn. Valgerður Sigþora Þorðardottir Valgerður Sigþóra Þórðardóttir húsmóöir, Barðaströnd 31, Seltjarn- amesi, er fimmtug í dag. Fjölskylda Valgerður fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í vesturbænum. Hún giftist 15.10.1960 Runólfi Helga ís- akssyni, f. 18.1.1937, rafvirkja en hann er sonur ísaks Kjartans Vil- hjálmssonar, b. að Bjargi á Seltjarn- amesi, og Helgu Sigríðar Runólfs- dóttur húsmóöur. Böm Valgerðar Sigþóm og Run- ólfs Helga eru Sigurveig, f. 12.1.1961, hárgreiðslumeistari, búsett á Sel- tjarnarnesi, gift Jónasi Friðgeirs- syni bifreiðastjóra og eiga þau tvo syni, Runólf Helga, f. 1.12.1980 og Friðgeir Elí, f. 14.3.1988; Jóhanna, f. 28.8.1962, sjúkraliði, búsett á Sel- tjarnarnesi, gift Steinari Guðnasyni vélstjóra og eru synir þeirra Guðni, f. 8.6.1982 og Ægir, f. 18.1.1989; Helga Sigríður, f. 2.9.1963, skrif- stofutæknir, búsett á Seltjarnarnesi, gift Gunnlaugi Bjarnasyni bifreiða- smiö og eru synir þeirra Guðmund- ur, f. 10.8.1986, og Valgeir, f. 19.11. 1987; ísak Þórður, f. 15.2.1972, bak- aranemi, búsettur á Seltjamarnesi, kvæntur Andreu Þóru Asgeirsdótt- ur hárgreiðslunema og er sonur þeirra Runólfur Helgi, f. 5.6.1991. Bróðir Valgerðar Sigþóru er Guð- mundur Þórðarson, f. 26.4.1930, verkstjóri á Seltjamamesi, ókvænt- ur. Foreldrar Valgeröar Sigþóru voru Þórður Guðmundsson, f. 8.6.1901, d. 19.1.1972, stýrimaður í Réykjavík, og Sigurveig Ásgrímsdóttir, f. 26.6. 1908, d. 19.1.1970, húsmóðir. Valgeröur Sigþóra og Runólfur Valgerður Sigþóra Þórðardóttir. Helgi taka á móti gestum á heimili sínu laugardaginn 14.9. n.k. eftir klukkan 20.00. Til hamingju með afmælið 10. september 95 ára 50 ára Kristin Jónsdóttir, Sæviðarsundi 8, Reykjavík. Konrad Kulbikowski, Nesvegi 8, Grundarflrði. Steingerður Sigmundsdóttir, Baughóii 25, Húsavik. Kari E. Vcrnharðsson, Barðavogi 3, Reykjavík. 90 ára Þórunn Hallgrímsdóttir, Hjallaseli 55, Reykjavlk. 40 ára 75 ára Guðjón S. Guðjónsson, Eiriksgötu 25, Reykjavík. Agnar W. Agnarsson, Leifsgötu 14, Reykjavik. Þorsteinn Christensen, Móaflöt 8, Garðabæ. Þorgerður J. Guðlaugsdóttir, Flatasíðu 3, Akureyri. Helga Ágústsdóttir, Ásta Agnarsdóttir, Raftahlíð 11, Sauðárkróki. 70 ára Magnús Grímsson, Vestmannabraut 34, Vestmannaeyjum. Halldór Antonsson, Tumabrekku 1, Hofshreppi. Hrauntuni 51, Vestmannaeyjum. Hjalti Jörgensson, Hamraþlíð 28, Vopnafirði. Ólafur Óskar Lárusson, Drápuhlíð 40, Reykjavik. Gérður Hallsdóttir, 60 ára Sandvík, Bárödælahreppí. Guðrún Bernódusdóttir, Engjaseii 81, Reykjavík. Lilja Stefanía Mósesdóttir, Vesturbergi 48, Reykjavík. Flosi Jörgensson, Hamrahlíð 7, Vopnafirði. Guðjón Baldursson, Leifsgötu 17, Reykjavlk. Filip Þór Höskuldsson, Lindarflöt 38, Garðabae. Karl Guðmundsson, Ránargötu 36, Reykjavík. Bergþóra Gísladóttir, Espigerði 4, Reykjavík. Þorbjörg Vigfúsdóttir Þorbjörg Vigfúsdóttir húsmóðir, Kirkjuvegi 18, Selfossi, er fimmtug ídag. Fjölskylda Þorbjörg fæddist að Brekkum í Mýrdal og ólst upp í Mýrdalnum. Tvær skáldsögur hafa komið út eftir Þorbjörgu undir nafninu Þorbjörg frá Brekkum. Hún hefur átt við mikla vanheilsu að stríða mörg und- anfarin ár og hefur hún dvalist á nokkmm sjúkrastofnunum, nú síð- ustu ár á Sjúkrahúsi Suðurlands. Þorbjörg giftist 9.9.1961 Ólafi Eyj- ólfssyni, f. 30.5.1933, múrara, en hann er sonur Eyjólfs Þorsteinsson- ar, b. á Hrútafelli undir Eyjafiöllum, og Helgu Ólafsdóttur húsmóður. Þorbjörg og Óiafur eiga fiögur uppkomin börn, þrjá syni og eina dóttur. Þorbjörg Vigfúsdóttir. Foreldrar Þorbjargar: Vigfús Ól- afsson, b. í Brekkum, sem er látinn fyrir nokkrum árum, og Jóhanna Jóhannesdóttir. Gissur Karl Vilhjálmsson Gissur Karl Vilhjálmsson er fimmtugurídag. Kona hans er Bryndís Sigurðar- dóttir. Þau taka á móti gestum laugar- daginn 14.9. nk. milli klukkan 17.00 og 20.00 í félagsheimili Hauka við Flatahraun í Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.