Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991. Andlát Ingólfur Eide Eyjólfsson, Garöbraut 74, Garði, lést aðfaranótt 7. septem- ber. Elín Ólafs lést á heimili sínu sunnu- daginn 8. september. Daníel Þórhallsson, fyrrverandi út- gerðarmaður frá Siglufírði, lést að- faranótt laugardagsins 7. september. Jarðarfarir Petrína Kristín Jakobsson, Fossöldu 5, Hellu, verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni fóstudaginn 13. september kl. 13.30. Sólborg Gunnarsdóttir frá Reyðar- firði, Einarsnesi 29, Reykjavík, verð- ur jarðsungin frá Fossvogskirkju fímmtudaginn 12. september kl. 15. Jón Daníelsson, fyrrv. skipstjóri frá Siglufirði, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. september kl. 13.30. Jón Pálsson, Seljalandi í Fljóts- hverfi, lést 26. ágúst. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hins látna. Steinar Magnússon, Akraseli 28, verður jarösunginn frá Dómkirkj- unni í Reykjavík fimmtudaginn 12. september kl. 13.30. Karítas S. Jónsdóttir, Réttarholts- vegi 93, lést í Landakotsspítala föstu- daginn 30. ágúst sl. Jarðarförin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Unnur Erlendsdóttir, Bólstaðarhlíð 10, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 11. september kl. 15. Útför Hannibals Valdimarssonar, fyrrv. ráðherra, verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðviku- daginn 11. september kl. 13.30. Samúel Jón Olafsson viðskiptafræð- ingur, sem andaðist í Uganda þann 2. september, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju, fimmtudaginn 12. september kl. 15. Sigriður Guðmundsdóttir, Hrafnistu, Hafnarfirði, áöur til heimilis í Fellsmúla 5, Reykjavík, andaðist mánudaginn 2. september sl. Jarðar- förin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Helga Sæmundsdóttir lést 2. sept- ember. Foreldrar hennar voru Guðný Jónsdóttir og Sæmundur Þor- valdsson. Helga var fædd á Norðfirði 5. október 1929 en ólst upp hjá móður sinni og stjúpföður, Ingimundi Bjamasyni, fyrst á Seyðisfirði en síð- ar að mestu leyti í Reykjavík og á Seltjarnarnesi. Helga var tvígift. Fyrri maður hennar var Kristján Pálsson, en hann lést árið 1965. Þau eignuðust sex böm. Eftirlifandi eig- inmaður Helgu er Karl Þórðarson. Útför Helgu veröur gerð frá Seltjarn- ameskirkju í dag kl. 15. Tilkyimingar Önnur bókin í bókaflokknum Galdrameistarinn Út er komin önnur bókin í bókaflokknum Galdrameistarinn eftir Margit Sandemo, og ber hún nafnið „Blikið i augum þín- um“. Söguþráður bókaflokksins liggur allt aftur til ársins 1648. Bókaflokkurinn hefur fengið mjög góðar viðtökur í Nor- egi og það sama virðist ætla aö verða hér heima ef marka má viðbrögö við fyrstu bókinni. Húnvetningafélagið Félagsvist nk. laugardag, 14. september, kl. 14 í Húnabúð, Skeifunni 17. Allir vel- komnir. Flóamarkaður Hjálpræðisherinn, Kirkjustræti 2, heldur flóamarkað í dag, þriðjudag og á mið- vikudag kl. 10-17. Mikið af góðum fatnaði. DANSINN IHNSINN IKNtatí iJrm MANSIXN i:k MfANUf USf lUSSlNN I K KOi.l. (K, (,Ói) H»Rón Dansinn, nýtt fréttabréf Nýtt fréttabréf, Dansinn, er komið út. Dansinn er upplýsingablað fyrir nemend- ur í Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar og aðra áhugamenn um dansmennt. í blað- inu eru viðtöl við danskennara og fréttir úr starfi skólans. í leiðara fréttabréfsins, sem Heiðar R. Ástvaldsson, skólastjóri DHÁ, skrifar, er vikiö að átaki sem opin- berir aðilar ætla að gangast fyrir á kom- andi skólaári, átaki sem ber yflrskriftina Dans gegn vímu. „Þetta veröur átak til þess að fá nemendur um land allt til að leggja stund á dansinn, en dans er einnig eitt besta vopnið sem við höfum gegn ofnotkun vímuefna", segir orðrétt í leið- ara skólastjórans. Fréttabréfið er gefið út af Skákprenti fyrir hönd Dansskóla Heiðars og af þessu fyrsta tölublaði eru gefin út fimm þúsund eintök. Ábyrgðar- maður fréttabréfsins er Heiðar R. Ást- valdsson, en ritstjóri Þórunn Gestsdóttir. Yngri flokkar handknatt- leiksdeildar Fram Æfmgar hjá yngri flokkum handknatt- leiksdeildar Fram eru hafnar og fara æfingar fram vikuna 9.-15. september í íþróttahúsi Álftamýraskóla, nema annaö sé tekið fram. 2. flokkur karla: Þriðjud. 10. sept. kl. 21.30 og fimmtud. 12. sept. kl. 21. 3. flokkur kvenna: fostudag 13. sept. kl. 17.15.3. flokkur karla: þriöjud. 10. sept. kl. 20 og fimmtudag 12. sept. kl. 19. 4. flokkur karla: föstud. 13. sept. kl. 20.15. 4. flokkur kvenna: þriðjud. 10. sept. kl. 17.15 og laugard. 14. sept. kl. 9.30 (Selja- sk.) Æfingar hjá 6. flokki karla, 5. flokki kvenna og byijendaflokkum hefiast vik- una 16.-22. september og verða nánar auglýstar síðar. Allir velkomnir. SMAAUGLÝSINGASlMINN FYRIB LANDSBVGGÐINA: 99-6272 ASKRIFENDASlMINN FYRIR LANDSBYGGÐINA: 99-6270 - talandi dæmi um þjónustu SMÁAUGLÝSINGADEILD er opin: virka daga kl. 9-22 laugardaga kl. 9-14 sunnudaga kl. 18-22 ATH. Smáauglýsing i helgarblað DV verður að berast okkur Fvrir kl. 17 ð föstudögum. Vilji ihúar landsbyggðarinnar gerast éskrifendur er slminn 9B-6270 og vegna sméauglýsinga er siminn 99-6272. Ekki þarf 91 fyrir framan simanúmerið, 99 gildir fyrir grsenu númerin hvar sem er é landtnu. Rétt er að benda é að tilkoma „grœnu slmanna"breytirengufvrirlesendur okkar é höfuðborgarsvæðmu. Þan hringja éfram l síma 27022. Síminn á höfuðborgarsvæðinu er 27022 Vetrarstarf borðtennis- deildar Víkings er haflð. Æfingar verða í TBR-húsinu, Gnoðarvogi 1, Reykjavík. Þjálfarar verða klnverski þjálfarinn Hu Dao Ben, Kristj- án Viðar Haraldsson og Englendingurinn Steve Green. Borðtennisdeild Víkings vann á sl. keppnistímabili til 19. íslands- meistaratitla. Innritun ungiinga er hafin. Uppl. í símum 35935, 36717 eða 43077 á dagin og á kvöldin í s. 36862. Kattavinafélagið minnir fólk sem týnt hefur eða fundið ketti á að hafa samband við Kattholt í síma 672909. Hjónaband Þann 6. júU voru gefm saman í hjónaband í Dómkirkjunni af séra Solveigu Láru Guðmundsdóttur Rakel Benediktsdóttir og Guðmundur Ingi Sigurvinsson. Heim- ili þeirra er að Dvergabakka 2, Reykjavik. Ljósm. Sigr. Bachmann. Þann 13. júU voru gefln saman í hjóna- band í Dómkirkjunni af séra Hjalta Guð- mundssyni Eva Sigurðardóttir og Guð- jón Guðjónsson. Heimili ungu hjónanna er í Suður-Frakklandi. Ljósmyndarinn Jóhannes Long. Tapað fundið Fress týnt í Hafnarfirði Svart og hvítt fress hvarf úr Norðurbæn- um í Hafnarfirði fyrir tæpri viku. Köttur- inn var merktur. Ef einhver hefur séð hann eða veit hvar hann er niðurkominn þá vinsamlegast hringið í síma 50327. Karlmannsúr tapaðist í Casablanca Sl. fóstudagskvöld tapaðist svart og gyUt Karl Lagerfeld úr í Casablanca. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 656233. Fund- arlaun. Myndgáta AW. EYþoR,—-i- y \ Myndgátan hér að ofan lýsir lýsingarorði og nafnorði. Lausngátunr. 124: Klófesting Fjailahjól tapaðist úr Norðurmýri Grænt Trek jazz voltage fjallahjól hvarf úr Norðurmýri fyrir ca 3 vikum. Finnandi vipsamlegast hringi i síma 13373. Fundarlaun. auk ijölmargra mima eru á sýningunni. Bjöldi manns hefur skoðað brúarsýning- una í Tryggvaskála meðan vikulöng há- tiðahöld hafa staðið yfir í tilefni afmæhs- ins. Sýningin verður framlengd til sunnudagsins 15. september. Opið er dag- lega kl. 16-19 en kl. 14-19 helgina 14. og 15. september. Drengjaúlpa fannst við Faxagarð Græn drengjaúlpa fannst í togaranum Drangey, sem lá við Faxagarð, í kringum 15.-20. júU sl. Nokkrir strákar voru að veiða um borð á þessum tíma og gleymdu þeir úlpunni. Upplýsingar í síma 41319 eða 985-36034 Reynir, eða sklljið eftir skilaboð. Sýningar Sýning í Tryggvaskála framlengd í tengslum við 100 ára afmæli ÖUusárbrú- ar 8. september sl. var sett upp vegleg sýning í Tryggvaskála á Selfossi. Er þar sögð saga brúarmannvirkjanna, sýndar teikningar af gömlu brúnni, nýju brúnni og jámbrautarbrúnni, sem aldrei var byggð. MikiU fjöldi ljósmynda er á sýn- ingunni og er elsta myndin eftir Sigfús Eymundsson ljósmyndara og sýnir hún ána óbrúaða. Ljósmyndir frá vígslunni 1891 og myndröð af faUi brúarinnar 1944 Námskeið Samskipti foreldra og barna Um miðjan september hefjast haustnám- skeið fyrir foreldra hjá Samskiptum: fræðslu og ráðgjöf sf. Námskeiö þessi byggjast á hugmyndum dr. Thomasar Gordons sálfræðings en hann er höfund- ur bókarinnar „Samskipti foreldra og barna, að ala upp ábyrga æsku“ sem kom út hjá Almenna bókafélaginu 1987. Nám- skeiðin eru haldin á kvöldin kl. 20-23 og standa í átta vikur, eitt kvöld í viku ( alls 24 stundip). Lögð er megináhersla á hvemig foreldrar geta aðstoðað börn sin þegar þau eiga í vanda og um leið kennt börnunum sjálfsstæði, frumkvæði og að taka ábyrgð á sínum eigin málum. FjaUað er um hvernig foreldrar geta kennt tilUts- semi og sjálfsábyrgð og á hvern hátt er hægt að leysa úr ágreiningi í sameiningu án þess að um sé að ræða að sá sterkari ráði. Leiðbeinendur á námskeiðunum em sálfræðingamir Hugo Þórisson og Wflhelm Norðfjörð. Skráning er hafm í símum 91-621132 og 626632. Leiörétting. - Þau leíðu mistök uröu í myndatexta undir mynd af systkina- brúðkaupi í blaðinu í gær, mánudag, að önnur brúðurin var ranglega nefnd. Hún var sögð heita Björg Hildur en hið rétta nafn hennar er Bjarghildur. Biðjum við Bjarghildi og Skúla og Helgu Svanlaugu og Gunnar velvirðingar á rnistökunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.