Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1991, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1991.
Fréttir
Sjálfvirkur búnaður fyrir tilkynningaskyldu fullþróaður 1 Háskólanum:
Ekkert í veginum fyrir
því að koma kerfinu upp
- segir Hálfdan Henrýsson hjá Slysavamafélagi íslands
„Sjálfvirka tilkynningaskyldan er
stórmerkilegt mál og mestu öryggis-
tæki sem ég veit um. Háskóli íslands
hefur þróað þann búnaö og það er
ekkert fullkomnara til hvað snertir
íjarskipti í öryggismálum. Við erum
í viðræðum við Póst og síma um
hvernig hagkvæmast yrði að koma
búnaðinum upp. Það virkar þannig
að hægt er að ráða hve oft búnaður-
inn í hveijum bát tilkynnir sjálfur
upplýsingar til lands, til dæmis ná-
kvæma staðsetningu og annað á 15
mínútna fresti. Ef skipiö síðan sekk-
ur sendir búnaðurinn sjálíkrafa til-
kynningu í land. Þá sæist líka strax
hvaða skip eru næst slysstað," sagði
Hálfdan Henrýsson, hjá Slysavarna-
félagi íslands, aðspurður um búnað
sem
Slysavarnafélagið og nokkur íslensk
skip hafa gert tilraunir með á þessu
ári í samráði við alþjóðlega gervi-
hnattastofnun.
Eins og fram kom í DV í gær sökk
trillan Homstrendingur við Snæ-
fellsnes í vikunni og komst skipverj-
inn lífs af - án þess þó að ná að senda
neyðarkall i land. 1.883 opnir bátar
eru gerðir út á landinu, undir 30
tonnum að stærð og eru flestir þeirra
með aðeins einum á, það er trillu-
körlum. Hálfdan sagði við DV að
Homstrendingur hefði verið búinn
að tilkynna sig með hefðbundum
hætti nokkram klukkutímum áður
en báturinn sökk:
„Við heíðum ekki farið að óttast
um Hornstrending fyrr en hann átti
að tilkynna sig aftur mörgum tímum
eftir að hann bjargaðist og var hann
þá búinn að vera í gúmmíbátnum í
tæpa 4 tíma,“ sagði Hálfdan. Hann
segir að sjálfvirki tilkynningabúnað-
urinn hefði í þessu tilfelli komið að
góðu gagni, svo og í flestum öðram
slysatilfellum á sjó.
„Það stendur ekki á neinu sérstöku
að koma þessu kerfi upp og það hefur
gefið góða raun. Þjóðir Efnahags-
bandalagsins ætla að koma þessum
búnaði um borð í öll skip sem era
stærri en 12 metrar að lengd. Hér á
landi er þetta nú háð fjárveitinga-
valdinu. Kerfið myndi kosta um 100
milljónir, það er að koma fullbyggðri
miðstöð upp fyrir búnaðinn auk for-
ritunarvinnu," sagði Hálfdan.
Hálfdan sagði að sjálfvirkur til-
kynningaskyldubúnaður um borð í
hvern bát myndi kosta sem svarar
andvirði farsíma. 2-3 íslensk fyrir-
tæki hafa nú þegar bolmagn til að
standa að framleiðslu á búnaði sem
þessum fyrir fyrir skipaflotann:
„Það væri því blóðugt að þurfa að
kaupa þetta annars staðar frá eftir
5-10 ár,“ sagði Hálfdan.
-ÓTT
Starfsmaður hjá Toyota-umboðinu sýnir hvar pallbíll hefur verið lengdur
til að hann komist í hóp svokallaðra vask-bíla. DV-mynd GVA
Breytingar gerðar svo pallbílar verði vask-bílar:
Bílarnir lengdir
um 25 sentímetra
Tryggingastofnun ríkisins:
Ekkjur fá Ivfeyri
en ekki ekklar
- hlýtur að þurfa að breyta þessu segir Stefanía Traustadóttir hjá Jafnréttisráði
Konur, sem eru orðnar fimmtugar
og missa eiginmenn sína, geta sótt
um svokallaðan ekknalífeyri hjá
Tryggingastofnun ríkisins og fengið
hann greiddan til 67 ára aldurs. Karl-
ar hins vegar, sem missa eiginkonur
sínar, geta ekki sótt um slíkan lífeyri.
Samkvæmt upplýsingum frá
Tryggingastofnun eru aftur á móti
til bæði ekknabætur og ekklabætur.
Þá fá eftirlifandi makar bætur í 6
mánuði ef þeir era ekki komnir á
ellilífeyrisaldur. Og ef þeir eiga böm
innan 18 ára aldurs fá þeir bætur í
12 mánuði í viðbót.
Að sögn Fanneyjar Halldórsdóttur
hjá Tryggingastofnun fá ekklar ekki
ekklabætur vegna þess að karlmenn
hafi fleiri tækifæri til að vera á
vinnumarkaði heldur en konur.
„Líka vegna þess að þeir fá hærra
kaup og svo framvegis. Þetta var mér
sagt á sínum tíma þegar ég var að
spyrja um þetta,“ segir Fanney.
Stefanía Traustadóttir, félagsfræö-
ingur hjá Jafnréttisráði, segir að hún
viti til þess að hjá Tryggingastofnun
hafi í mörg ár verið í gangi endur-
skoðun á þessum lögum til aö reyna
að lagfæra svona hluti sem í raun séu
eingöngu orðalag.
„Þegar við hjá Jafnréttisráði höf-
um beðið um að orðalagi sem þessu
sé breytt fáum við alltaf þau svör að
verið sé að fara í gegnum allar reglu-
gerðir með þetta í huga en við höfum
ekki séð neinn árangur. Samkvæmt
lögum er þetta rangt því að það á
ekki að vera mismunun, hvorki
gagnvart körlum eða konum. Það
hlýtur að þurfa að breyta þessu og
þessi lög eru miðuð við .allt aðra tíma
heldur en eru í dag. Þetta er miðað
við þann gamla raunveruleika þegar
það voru karlar sem vora á vinnu-
markaðnum og eflaust er þetta hugs-
að til að tryggja konurnar sem aldrei
voru á vinnumarkaði. Og mér finnst
að slík lög eigi að vera til en hvernig
þau eru orðuð er annað mál. Það
ætti auðvitað að standa „eftirlifandi
maki“ en ekki eftirlifandi kona eða
rnaður," segir Stefanía.
-ns
Valur hindraöur í aö komast að bryggju 1 Hafnarfiröi:
- lengingin kostar um 140 þúsund krónur
Töluvert hefur verið um það að
fjögurra dyra pallbílar, sem bílaum-
boðin flytja töluvert inn af um þessar
mundir, fari í gegn um nokkuö um-
fangsmiklar breytingar sem gera
þessa bíla að svokölluðum vask-
bílum. Breytingin felst í því að pallur
bílanna er lengdur um eina 25 sentí-
metra. Eftir breytingu er bíllinn orö-
inn aö sendibíl samkvæmt skilgrein-
ingu reglugerðar um gerð og búnað
ökutækja. Reikningurinn frá bíla-
verkstæðinu hljóðar upp á um 140
þúsund en um leiö getur eigandinn
fengið virðisaukaskatt af verði bíls-
ins, mun hærri upphæð, aftur úr at-
vinnurekstri sínum.
Að sögn manna hjá bílaumboðun-
um kaupa margir sem eru með at-
vinnurekstur þessara pallbíla þar
sem þeir nýtast bæði sem fjölskyldu-
bíll og sendibíll. Þar sem þeir era
fjögurra dyra er húsið á þeim stærra
en á venjulegum pallbílum. Hlutfall
paUsins af lengd bílanna nær þá ekki
ákveðnum staðli sem nauðsynlegt er
að uppfylla til að bUarnir flokkist
sem vask-bílar. Til að fara í kring
um reglugerðina, uppfyUareglugerð-
arákvæði og fá virðisaukaskattinn tU
baka eru pallar bílanna einfaldlega
lengdir.
Aö sögn mun aðallega vera um að
ræða pallbíla frá japönsku framleið-
endunum Toyota, Isuzu og Mitsubis-
hi. , -hlh
Skagaströnd:
Auglýst eftir íþrótta-
kennara í Danmörku
Þórhatlur Ásmundason, DV, Sauðárkróki:
„Staðan er síst verri nú en undan-
farin ár þó verið sé að ráða kennara
á síðustu dögum. Að vísu eru málin
víða leyst með leiðbeinendum en mig
granar að hlutfall réttindakennara
hafi heldur skánað,“ sagði Guð-
mundur Ingi Leifsson, fræðslustjóri
í Noröurlandi vestra, um ástand í
kennaramálum í kjördæminu.
Mestur hefur verið skortur á
íþróttakennuram. Skagstrendingar
fóru út í aö auglýsa í Danmörku.
Fengu fimm umsóknir og hafa ráðið
danskan íþróttakennara. Á
Hvammstanga verður þýskur
íþróttakennari og um tíma vantaði
einnig íþróttakennara við Lauga-
bakkaskóla og á Hofsósi.
Munum hindra þá aftur
láti þeir sér ekki segjast
- segja Sjómannafélagsmenn sem mótmæla útlendingum í áhöfn
„Við vorum margbúnir að vara
þessa útgerð við. Núna fórum við út
í að hindra skipið þegar það kom að
bryggju og við munum halda því
áfram ef þeir láta sér ekki segjast -
þess vegna úti á landi. Núna er ný-
lega búið að segja upp einum íslensk-
um farmanni í viðbót á skipinu og
aðeins einn háseti er núna um borð
sem ekki er útlendur. Við ætlum
ekki að láta þetta halda svona
áfrarn," sagði Birgir Björgvinsson,
talsmaður Sjómannafélags Reykja-
víkur, í samtali við DV stuttu eftir
að félagsmenn höfðu hindrað Val,
skip Ness hf., í að komast upp að
bryggju í Hafnarfirði síðdegis í gær.
Sjómannafélagsmenn skáru á
kastlínu frá Val og tóku trossur úr
höndum hafnarvarðar sem hugðist
setja landfestar á bryggjupolla. Skip-
inu var þá siglt út í miðja höfn þar
sem látið var reka á meðan tollskoð-
un fór fram. Nokkru síðar kom það
upp að bryggju aftur en þá höfðu
Birgir og félagar ákveðið að hætta
aðgerðum að sinni.
Aðgerðir Sjómannafélagsmanna í
gær voru liður í mótmælum þeirra
gegn þeirri þróun að íslenskar far-
skipaútgerðir manni skip sín erlend-
umskipverjum. -ÓTT
Flutningaskipið Valur varð frá að hverfa er það lagðist að bryggju i Hafnar-
firði í gær. Menn frá Sjómannafélagi Reykjavíkur skáru á kastlínu og köst-
uðu landfestum til baka þegar reynt var að koma þeim í land. Á myndinni
fylgjast sjómenn af Hofsjökli með þegar Valur leggur að bryggju i annað
skiptið í gær. Þá höfðu Sjómannafélagsmenn ákveðið að hætta aðgerðum -
í bili. DV-mynd S