Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1991, Side 10
10
LAUGARDAGUR 28: SEPTEMBER1991.
Hættuleg kynni
THE COMFORT OF STRANGERS
Útgefandi: Skifan.
Leikstjóri Paul Schrader.
Aóalhlutverk: Christopher Walken, Ru-
pert Everett, Natasha Richardson og
Helen Mirren.
Bandarísk, sýningartími 100 min.
Bönnuö börnum innan 12 ára.
Það er mikið úrvalslið sem stend-
ur að baki The Comfort of Strang-
ers. Leikararnir Christopher Wak-
en. Rupert Everett, Natasha Ric-
hardson og Helen Mirren eru fyrsta
ílokks. Leikstjórinn Paul Schrader
hefur ávallt farið eigin leiðir og
gert nokkrar ágætar kvikmyndir
og handritið er skrifað af engum
öðrum en leikritaskáldinu þekkta,
Harold Pinter. Útkoman hefði átt
aö verða góð kvikmynd en því mið-
ur. Þrátt fyrir suðrænt andrúms-
loftið í Feneyjum og ágætan leik
nær myndin aldrei flugi, nema að-
eins í lokin, en þá er maður orðin
leiður á flóknum persónulýsingum
sem komast eríiðlega til skila.
A seductive story
of destroctive oiiNfission...
inc canropi
or ÍTRAMGCrCf
ÍmTkÍ'n íVHÚVÍ BltiilÍÖVlN MÍKKÍN
Mary og Colin eru ekki gift en eru
einmitt stödd í Feneyjum til að at-
huga hvort slíkt gæti komið til
greina. Þeim greinilega dauðleiðist
og verða því forvitin þegar þau
kynnast sérstökum manni sem
býður þeim næturgistingu í annað
skiptið er þau hitta hann. Á rík-
mannlegu heimili hans hitta þau
fyrir eiginkonu hans sem ekki er
síður dularfull. Þótt unga parið
gruni að það boðar ekkert gott að
þekkja þetta fólk getur það varla
slitið sig frá þessari furðuveröld
sem þau komast í kynni viö.
Það er í raun fátt áhugavert sem
skeður í The Comfort of Strangers.
Samtölin eru einstaka sinnum
spennandi en detta niður í meðal-
mennsku jafnóðum og þegar loks
eitthvað skeður þá fer maður að
krefjast skýringa sem aldrei koma.
Einstaka sinnum minnir The
Comfort of Strangers á aðra mynd
sem gerist í Feneyjum, Don’t Look
now en þá mögnuðu dulúð sem ein-
kenndi þá mynd er hvergi að finna
hér.
-HK
★★★
★ Vá I
• VERY RAUNCHV SCENtS... sexy and amusieg
BIHU MIG!
ELSKAÐU MIG!
* DOSiC LBVE STOR? FOR ÍHf. HI6HI.Y SÍHUHS
ÍÉOÉir
. «i
1 (1) Pacific Heights
2 (3) Look Who’s Talking too
3 (2) The Rookie
4 (6) PostcardsfromtheEdge
5 (4) Magnús
6 (-) Bittu mig, elskaðu mig
7 (-) Bonefire of Vanities
8(7) Rocky 5
9 (-) Going under
10 (5) Pump up the Voiume
11 (10) Reversal of Fortune
12 (11) Almost an Angel
13 (-) Deadly Surveiiance
14 (8) Flight of the Intruder
15 (9) Delta Force 2
HasaríHongKong
CRIME LORDS
Útgefandi: Bergvik hf.
Leikstjóri: Wayne Crawford.
Aðalhlutverk: Wayne Crawford, Martin
Hewitt og James Hong.
Bandarísk, 1990 - sýningartimi 92 mín.
Bönnuó börnum innan 16 ára.
Crime Lords er dæmigerð löggu-
mynd. Aðalpersónurnar eru tvær
New York löggur af harðari gerð-
inni sem sendar eru til Hong Kong
til að komast fyrir miklar eitur-
lyíjasendingar þaðan til Bandaríkj-
anna. í Hong Kong verða þeir til
að byrja með auðveld bráð fyrir
heimavana glæpamenn sem þar
ráða ríkjum. Ekki verður það til
að gera þeim stirt samstarf auð-
veldara og endar það með því að
þeir reyna fyrir sér hvor í sínu lagi.
Það er litið sem gleður augað við
að horfa á Glæpakóngana en hraði
er mikill í myndinni og kemur sá
hraöi oft í veg fyrir aö áhorfandinn
taki eftir slæmum leik og sundur-
lausri atburðarás.
DV-myndbandalistirm
Fjölskyldubönd
STAYING TOGETHER
Útgefandi: Kvikmynd.
Leikstjóri: Lee Grant.
Aðalhlutverk: Sean Astin, Stockard
Channing, Melinda Dillon, Tim Quill og
Daphne Zuniga.
Bandarísk, 1989-sýningartimi 90 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
Lee Grant hefur í mörg ár verið
virt leikkona vestan hafs og kann-
ast sjálfsagt margir við hana. Nú
hefur hún snúið við blaðinu og
hefur tekið til við leikstjórn og er
Staying together hennar fyrsta
mynd og er ekki annað hægt að
segja en að hún fari vel á stað.
Staying together er hugljúf mynd
sem segir frá fjölskyldu einni í
smábæ. Faðirinn hefur í mörg ár
rekið kjúklingastað en er oröinn
dauðleiður á kjúkhngum og selur
fyrirtækið án þess að ráðfæra sig
við þrjá syni sem allir starfa á
staðnum. Þegar þeir frétta þetta
veröur sprenging í fjölskyldunni
og elsti sonurinn flytur að heima.
•Við fylgjumst síðan með drengjun-
um í blíðu og stríðu. Allir eiga þeir
við erfileika að stríða sem þeir sigr-
ast að lokum á.
Staying together er virkilega vel
heppnuð og skemmtileg mynd. Það
fer ekki mikið fyrir mynd sem þess-
ari í troðfullum hillum á mynd-
bandaleigum en óhætt er að segja
að enginn verður fyrir vonbrigðum
með að fylgjast með lífshlaupi
McDermott fjölskyldunnar.
Fjórar nýjar myndir koma inn á myndbandalistann þessa vikuna.
Meðal þeirra er Bonefire of Vanities. Aðalhlutverkin i þeirri mynd
leika Tom Hanks, Bruce Willis og Melanie Griffilh og eru tveir fyrst-
nefndu á myndinni.
kVlk
■ ■:.
111}»
★l/2
BITTU MIG! ELSKAÐU MIG! (ATAME)
Útgefandi: Háskólabíó.
Leikstjóri: Pedro Almodovar.
Aðalhlutverk: Victoria Abril, Antonio
Banderas, Francisco Rabal og Loles
Leon.
Spönsk, 1990 - sýningartími 102 min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Spánski leikstjórinn Pedro
Almodovar hefur með myndunum
Kona á barmi taugaáfalls og Bittu
mig, elskaðu mig, skapað sér nafn
sem einn frumlegasti og eftirtekt-
arverðasti leikstjórinn í evrópskri
kvikmyndagerð í dag.
Almodovar hefur einstakt lag á
að koma frekar neikvæðum sögu-
þræði í skemmtilegt form þannig
að áhorfandinn sættir sig yfirleitt
við allt sem sýnt er þó sannarlega
sé Almodovar stundum á mörkun-
um í framsetningu atburða.
í Bittu mig, elskaðu mig kynn-
umst við tveimur persónum sem
þrætt hafa öngstræti lífsins. Ricky
hefur dvahð alla ævi á munaðar-
leysingjahælum og geðveikrahæl-
um og hefur oft strokið. Þar til fyr-
ir ári var honum nákvæmlega
sama um allt, eða þar til hann hitti
Marinu, fyrrverandi klámstjörnu
og eiturlyfjaneytanda. Kynni
þeirra eina næturstund breyta
honum. Þegar myndin hefst er
hann í fyrsta sinn laus af hæli
The Md)crmoU boys
art'ootbr a gtxxi örnt'...
.m<j ínSora shot.k?
★★
Njósnir í Kúvæt
THE COMPANY II - SACRIFICES
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Michael Fresco.
Aóalhlutverk: Anthony John Denison,
Linda Purl og John Rhys-Davis.
Bandarisk, 1991 -sýningartimi 89mín.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Þeir eru fljótir að taka við sér í
Hollywood. Persaflóastríðið hefur
sjálfsagt verið í dauðateygjunum
þegar The Company II - The Sacri-
fices hefur verið gerð. í myndinni
er sögð saga njósnara sem sendir
eru til Kúvæt og íraks rétt áður en
stríðið hófst.
Eins og svo oft um hraðsoðnar
myndir þá eru margir lausir endar
og öll er atburðarásin hin ótrúleg-
asta. Mynd þessi veldur töluverð-
um vonbrigðum. Stutt er síðan kom
út önnur mynd um njósnarana
þrjá, The Company, og gerist hún
að hluta til fyrir austan tjald. Var
þar um mun betri mynd að ræða.
En aðstandendur The Company II
geta allavega stært sig af því að
hafa verið fyrstir með mynd um
Persaflóastríðið.
vegna þess að hann vildi það sjálf-
ur.
Hann leitar uppi Marinu, en hún
man þá hvorki eftir honum eða
vill neitt með hann hafa. Ricky
bregður þá á það ráð að ræna henni
í hennar eigin íbúð og halda henni
þar gegn vilja hennar, segir að hún
muni læra síðar meir að elska
hann. „Ég vil aðeins að þú elskir
mig, giftist mér og eignist með mér
börn, segir Ricky og er alveg hissa
á að hún skuli mótmæla.
Það er mikill húmor í myndinni
þótt söguþráðurinn gefi lítið tilefni
til. Vill Marina láta bjarga sér eða
ekki? Þessu veltir áhorfandinn fyr-
ir sér allan tímann. Endirinn væri
dálítið væminn ef ekki kæmi til
stórskemmtilegt lokaatriði.
Antonio Banderos og Victoria
Abril fara vel með hlutverk sín.
Þau þurfa að stilla strengi sína á
allar tilflnningar mannskepnunn-
ar og gera það listilega vel.
Bittu mig, elskaðu mig er samt
kvikmynd sem er ekki fyrir alla,
hún er djörf á mörgum sviðum og
áleitin í frásagnarmáta.
-HK
SA.C
CES