Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1991, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1991, Blaðsíða 25
25 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1991. Hafliði Hallgrímsson: Skiptir mig miklu máli að vera ís- lenskt tónskáld - sex tónverk eftir hann verða flutt í Listasafni íslands Sex tónverk eftir Hafliða Hall- grímsson verða flutt í Listasafni ís- lands á morgun. Er um að ræða verk sem lítið eða ekkert hafa heyrst hér á landi. Frumflutt verða þrjú verk, þar á meðal Intarsía fyrir blásara- kvintett og flytur Blásarakvintett Reykjavíkur þetta umfangsmikla tónverk. Einleikarar á tónleikunum verða Pétur Jónasson, sem flytur Jakobsstigann, Kolbeinn Bjarnason, sem flytur Flug íkarusar, Gunnar Kvaran, Solitaire, Helga Ingólfsdótt- ir, Strönd og Guðný Guðmundsdóttir flytur Án titils. Til tónleikanna er stofnað vegna fimmtugsafmælis tón- skáldsins. Hafliði á að baki viðburðaríkan fer- il sem sellóleikari, tónskáld og kenn- ari. Eftir að hafa brautskráðst úr Tónlistarskólanum i Reykjavík 1962 hélt hann til framhaldnáms í Róm og Lundúnum. 1975 vann hann fyrstu verðlaun í alþjóðlegri tónsmíða- keppni sem kennd er við fiðlusnill- inginn og tónskáldið Viotti. 1986 hlaut Hafliði tónskáldaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir fiðlukonsert sinn. Sá konsert hafði raunar fengið önnur verðlaun í alþjóölegu Wien- iawskitónlistarkeppninni i Ponzan i Póllandi. Hafliði nýtur nú alþjóðlegr- ar viðurkenningar fyrir tónsmíðar en einnig hefur hann vakiö athygli fyrir að vera óvenju hæfileikaríkur og vandvirkur listamaður sem selló- leikari og stjórnandi. Hafliði býr í Edinborg. Hann er staddur hér á landi í tilefni tónleikanna og var hann fenginn til að segja aðeins nán- ar frá sjálfum sér og tónverkunum sem leikin verða í Listasafninu. Hafliði Hallgrimsson, tónskáld og sellóleikari. Eittverk heyrst áður í Reykjavík „Tilefni tónleikanna er fimmtugs- afmæli mitt en ástæðan er einnig sú að ég á í fórum mínum mikið af nýj- um verkum og fannst kominn tími til að þau heyrðust hér heima. Aöeins eitt verkið á tónleikunum hefur heyrst í Reykjavík áður, Jakobsstig- inn sem Pétur Jónasson hefur mikið flutt. Ég kynntist Pétri i Edinborg. Hann var að halda tónleika og við höföum ekki lengi rætt saman þegar um það var samið að ég skrifaði verk fyrir hann. Upphaflega hét verkið Fimm stúdíur fyrir gítar eða æflngar fyrir Jakobsstigann. Pétur hótaði að spila þetta og ég ákvað því núverandi titil sem átti í raun að vera titill á endanlegu verki sem ég hef ekki enn samið. Flug íkarusar er skrifað fyrir Kol- bein Bjarnason og tileinkað honum. Hugmyndin að verkinu fæddist í kaffistofu í Glasgow. Þar sat ég til borðs með einum mesta óbóleikara í heimi, Hanz Holliger, og þær sam- ræður enduðu með því að hann bað mig að senda sér verk sem aldrei varð þó af. Það liðu mörg ár þar til ég skrifaði flautuverkið og var það unnið upp úr skissum af óbóverkinu. Solitaire er fyrsta tónverkiö sem ég viðurkenni, mörg hafa farið í ruslakörfuna og önnur eru í öruggri geymslu. Það hefur ávallt verið mik- il þraut fyrir mig að leika þetta verk. Útgáfan af veikinu sem Gunnar Kvaran leikur er þriðja útgáfan. Nú er verkið orðið eins konar svíta. Áð- ur fyrr var þetta eins og safn af verk- um sem menn gátu valið úr og búið til sína eigin útgáfu. Strönd er verk fyrir sembal. Þetta er nokkurs konar kliður sem er orð- inn til vegna þess að ég hef oft komið til Helgu þar sem hún býr á Álftanes- inu og heyrt þennan flnlega hljóm í fjöruboröinu ásamt finlegum hljóm sembalsins og hef ég reynt að sam- eina þetta tvennt í verkinu. Án titils er tileiknað Guðnýju Guö- mundsdóttur fiðluleikara en er sam- ið i minningu Karls Kvarans listmál- ara sem ég kannaðist vel við og átti ánægjuleg kynni af. Þetta er fyrst og fremst fiðlumúsík en Karl er þarna einhvers staðar og laumast inn i á ýmsum stöðum. Má segja að hann hafi horft yfir öxlina á mér meðan ég var að skrifa það. Intarsía er nýjasta verkið á tónleik- unum. Þetta er fyrir blásarakvintett og pantað af Music Group of Scotland sem ég spilaði með í mörg ár. Þeir fluttu átta af þrettán stykkjum sem ég samdi. Síðan fækkaði ég þeim nið- ur í sjö. Ég leit síðan á verkið aftur í sumarfrínu á Akureyri og þétti það og felldi inn alls konar hluti sem pössuðu, þannig að úr urðu sex stykki og þess vegna notaði ég orðið Intarsía sem þýðir innfelling." Bók með teikningum - Er sellóleikarinn að víkja fyrir tón- skáldinu. „Ég starfa meir og meir sem tón- skáld en ég er ekki hættur að spila. Það hefur aftur á móti minnkað jafnt og þétt, má segja að þetta sé skipu- lagt undanhald eða færsla yfir á ann- aö svið í tónlistinni. Þetta má ekki vera of snöggt því maður er að fara úr svo dýrlegum heimi. Sellóið var eins og passi úti í hinum stóra heimi en ég hef ferðast mikið í sambandi viö tónlistina og búið erlendis fyrst og fremst vegna þess að markaður- inn er þar miklu stærri. En ég legg mikla áherslu á að koma reglulega heim og það skiptir mig miklu máli að vera íslenskt tónskáld." - Nú er að komin út bók með teikn- ingum eftir þig? „Teikningarnar hafa orðið til mest á ferðalögum og er oft góð hvíld frá músíkinni. Ég hef oft sagt í gríni frek- ar en alvöru að pappírinn sé eins og sálfræöingur sem hlustar á mann, hann hlustar og ég krota. Bókin er gefin út til styrktar tónleikunum og verður seld þar og einnig í búðum.“ - Er mikið um að pöntuð séu tónverk eftir þig. „Það koma pantanir en ég hef haft þá stefnu að taka aðeins við pöntun- um sem mér líst á. Kúnstin er aö láta panta hjá sér verk sem mann langar sjálfan til að skrifa. Næst hjá mér er verk sem ég sem fyrir Sinfón- íuhljómsveit íslands og verður lík- lega flutt á næsta starfsári. Ég mun vinna að því í vetur ásamt hljóðfæra- leik og alls konar öðrum störfum sem ég hef tekið að mér.“ - Þú ert ekkert á leiöinni heim? „Það er nú svo að maður vill alltaf vera einhvers staðar annars staðar en þar sem maður er. Draumurinn er að eignast einhvers konar sama- stað á íslandi í náinni framtíð. -HK RENNIBEKKIRNIR KOMNIR AFTUR -1METRI FRÁBÆRT VERÐ VINSAMLEGA STAÐFESTIÐ PÖNTUN IS: SROT Kaplahrauni 5, 220 Hafnarfjörður, s. 653090, Fax 650120 SÖLUAÐILI: STRAUMÁS SF. FURUVÖLLUM 1, AKUREYRI Leiðsögu- og öryggistæki athafnamannsins! KVH DataScope™ Fjölnota hágæðasjónauki frá USA. í bátinn, bílinn, flugvélina, veiöiferðina, fjallgönguna, skiðaferðina & m.fl. ÁTTAVITI FJARLÆGÐARMÆLIR KLUKKA Hágæða stækkun 100% vatnsheldur Mjúkur gúmmíhringur Ljósmögnun fyrir náttmyrkur einnar handar grip + /-20° sjálfvirk jafnvægisstilling Óðinsgata 7 101 Reykjavík Tel.: +1-626940 fax: +1-626941 REIKINÁMSKEIÐ Tilgangur reikinámskeiða er að hjálpa þér til að opna fyrir eiginleika sem við búum öll yfir, þ.e. að nýta þá orku sem við höf- um aðgang að fyrir okkur sjálf og aðra. Reiki hjálpar þér í baráttu þinni við streitu og sjúkdóma og til þess að öðlast líkam- legt og andleg jafnvægi. Eftir slíkt nám- skeið hefir þú aðgang að alheimsorkunni það sem eftir er iífs þíns. Á næstunni verða haldin námskeið sem hér segir: OKTÓBER 5.-6. okt. Akureyri - 1. stig (helgarnámskeið). 6.-8. okt. - 2. stig (3 kvöld). 12.-13. okt. Vestmannaeyjar- 1. stig (helgarnámskeið). 19.-20. okt. Egilsstaðir — 1. stig (helgarnámskeið). 21.-23. okt. Egilsstaðir - 2. stig (3 kvöld). 25.-26. okt. Neskaupstaður - 2. stig (kvöld/dagur). 27.-28. okt. Djúpivogur - 2. stig (kvöld/dagur). 29.-31. okt. Höfn - 1. stig (3 kvöld). Upplýsingar um námskeið veita: Akurcyri Jóhanna 96-21762 Akureyri Monika 96-27760 Vestmannaeyjar Linda 98-12387 Egilsstaðir Hclga 97-11114 Egilsstaðir Guðmundur 97-11980 Neskaupstaður Hermann 97-71719 Djúpivogur Auður 97-88835 Höfn Auður 97-88835 GUÐRÚN ÓLADÓTTIR REIKIMEISTARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.