Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1991, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1991, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1991. DV Innsti hringurinn Mörgum fannst hinn ágæti rússnesW leikstjóri, Andrei Konchalovsky, taka niður fyrir sig þegar hann leikstýrði Tango & Cash enda fátt í þeirri mynd sem minnir á fyrri afrek hans. í nýjustu kvikmynd sinni, The Inner Circle, heldur hann sigenn við þrillera en sögusviðið er Kreml. Fjaliar myndin um reynslu sem kvikmyndasýning- armaður sem hefur atvinnu af því að sýna Stalín kvikmyndir. Konchalovsky segir aö hann hafi í raun eitt sinn kynnst hinum raunverulega sýningarmaimi Stalíns og sá hafi sagt honum ýmislegt sem hann notar í mynd- inni, meðal annars þaö að hann mátti ekki segja neinum hvað hann raunverulega geröi, ekki einu sinni eiginkonunni. Aðal- hlutverkin leika Tom Hulce og Bob Hoskins. JodieFoster Ieikstýrir Jodie Foster er aðeins tuttugu og átta ára gömul. Hún er samt með tuttugu og timm ára reynslu í kvikmyndabransanum. í dag er hún talin ein besta leikkonan vestanhafs og er mjög eftirsótt. Hún ákvað aö nýta sér reynslu sýna og leikstýra sjálf næstu kvikmynd sem hún léki í. TO þess valdi hún Little Man Tate, hand- rit sem fjallar um sjö ára dreng sem á erfítt með að umgangast aðra og gengur reglulega til sál- fræðings. Jodie Foster leikur sjálf í myndinni, en auk hennar leika Dianne Wiest og söngvarinn vin- sæli Harry Connick jr. Sá sem leikur drenginn heitir Adam Hann-Byrd. Streisand á rólegumnótum Lítið hefur fariö fyrir Barbra Streisand í kvikmyndaheiminum eftir hinar slæmu viðtökur sem Yentl fékk fyrir nokkrum árum. Streisand var mjög reið og kenndi öllum nema sjálfri sér um ófar- imar. Hún er nú búin að jafha sig á vonbrigðunum og hefur ný- lokið við að leikstýra og leika aðalhlutverkið í The Prince of Tides. Leikur hún sálfræðing sem fellur fyrir knattspymuþjálfara sem hún kynnist þegar systir hans reynir að fremja sjálfsmorð. Ólíkt Yentl er ekki hér um íburð- armikla kvikmynd að ræða. Myndin gerist að öllu leyti í litl- um bæ og er öll á rólegum nótum. Aðrir leikarar eru Nick Nolte, Kate Nelligan og Blythe Danner. Kvikmyndir Kúasmalarnir þrír, Bruno Kirby, Billy Crystal og Daniel Stern. Væntanleg kvikmynd - City Slickers: Vafasamir kúrekar Regnboginn mun bráðlega taka til sýningar gamanmyndina City Shck- ers eða Kjaftaskar úr kaupstaðnum eins og hún mun væntanlega heita á íslensku. Það er Billy Crystal sem leikur aðalhlutverkið. Hann er auk þess framleiðandi og hefur varla séð eftir peningum í myndina því að hún hefur gefið gull í aðra hönd og er meðal best sóttu kvikmynda vestan- hafs á þessu ári. í City Slickers leikur Billy Crystal ásamt Bruno Kirby og Daniel Stem þijá æskuvini sem takast á hendur ferðalag til að mannast og finna sjálfa sig. Þeir bregða sér á búgarð en eru ekki einu borgarbúarnir sem þar fá sér vinnu, tveir tannlæknar eru einnig mættir og fleiri ólíklegir kú- rekar. Öll þurfa þau að byrja á því að læra að sitja hross áður en farið er af stað með kúahjörð um 200 mílna leið. Fyrir hópnum fer Curly sem leikinn er af gömlu kempunni Jack Palance. Ekki nýtur hópurinn þó til- sagnar hans lengi og fljótt er hann Gamla kempan Jack Palance leik- ur rekstrastjórann. án leiðtoga og þekkingar og gengur á ýmsu hjá þeim félögum þremur sem í lokin em orðnir einir eftir með kúahjörðina. Billy Crystal byijaði feril sinn í skemmtibransanum sem grínisti og er talinn meðal betri slíkra sem troða upp einir á sviði. Hann hefur verið viðloðandi kvikmyndir síðasthðin tíu ár og hefur verið á mörkum þess að slá í gegn. En einhvem veginn hefur hann aldrei passað almenni- lega í þau hlutverk sem hann hefur fengið og er vinsælasta kvikmynd hans hingað til When Harry Met Sally engin undantekning. Crystal á sjálfur hugmyndina að City Slickers en hana fékk hann fyr- ir um það bil einu og hálfu ári og er mjög hissa á hve málin þróuðust hratt við gerð myndarinnar. Sjálfur segir hann að hlutverk sitt sé það sniðugasta sem hann hafi hingað til leikið. Það erfiðasta að dómi Crystal var að læra að sitja á hestbaki en það hafði hann aldrei áður gert. Það em tuttugu ár síðan Billy Crystal kom til Hollywood og segir hann að það hafi verið í fyrsta skipti sem hann hafi séð vesturhluta Bandaríkjanna og hafi hestar verið honum jafn- framandi og vemr úr öömm heimi. En eftir að hafa lært að sitja hest varð hann svo hrifinnað hann keypti hestinn sem hann situr á í myndinni. Leikstjóri City Slickers er Ron Underwood en hann á aðeins eina kvikmynd að baki, Tremors, sem fékk ágæta dóma fyrir tveimur ámm en htla aðsókn. Það þótti mörgum undarlegt að Ron Underwood skyldi vera fenginn til að leikstýra Tremors á sínum tíma sem á mikið skylt viö hryllingsmyndir því að hann hafði nær eingöngu starfað í sjónvarpi við gerð bamaþátta. Hann segir að eftir að Tremors kom á markaðinn hafi hann fengið fjölda tilboða um að leik- stýra kvikmyndum en litist best á City SUckers og aðalástæðan hafi verið BUly Crystal sem hann hafi ávallt dáðst að. -HK Kvikmyndahátíðin í Feneyjmn: Urga, rússnesk kvikmynd um Fyrirfram var búist við aö Glenn arri umdeildri kvikmynd, My Pri- ungan mongóliskan fjárbónda, Close fengi verðlaun sem besta vate Idaho, sem Gus Van Sant leik- hlaut aðalverðlaunin á kvik- leikkonan fyrir leik sinn í Meeting stýrir. Phoneix leikur ungan strák myndahátíðinni í Feneyjum sem Venus sem Istvan Szabo leikstýrir, sem selur sig á götunni. lauk fýrir stuttu. Leikstjóri mynd- en svo varö ekki. Þau verðlaun Tvær kvikmyndir fengu silfúr- arinnarereinnafþekktustukvik- féllu í hlut bresku leikkonunnar ljónið. Önnur þeirra er nýjasta myndagerðarraönnum Rússa í dag, Tildu Swinton fyrir leik hennar í kvikmynd Terrys Gihiam, The Nikita Michalkov. I Urga, sem þyk- einni umdeildustu kvikmyndinni á Fisher King, sem fjallar um fyrr- ir einstaklega fögur á að líta, segir hátíðinni, nýjustu mynd Dereks verandi söguprófessor sem finnur frá bóndanum sem fer í fyrsta Jarman, Edward IL Kvikmyndin, köllun hjá sér að lifa lífi flækings. skipti til fiarlægrar borgar og er gerö eftir samnefndu leikrití Jeff Bridges leikur einnig stórt heimkomu hans í þorpið sem er Christophers Marlowe. Jarman, hlutverk í myndinni. Hin myndin, mjög einangraö. sem er samkynhneigður og mikill sem fékk silfurljóniö, er kínversk, Serstök verðlaun dómnefhdar baráttumaður fyrir réttindum Dahong Denglong Gaogao Gua, fékk hinn áttatiu og tveggja ára samkynhneigöra, leggur í mynd sem Zhang Ymou leikstýrir. Mynd gamli portugalski leikstjóri, Manu- sinni áherslu á ást konungsins á þessi hefur veriö bönnuð í Kína. e) de01iveira,fyrirADivinaCome- ungum hirðmanni. -HK dia, kvikmynd sem gerist á geð- Besti karlleikarinn var valinn veikrahæU. River Phoenix fyrir leik sinn í ann- River Phoenix var valinn besti leikarinn fyrir ieik sinn í My Private Ida- ho. Keanu Reeves er með honum á myndinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.