Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1991, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1991.
Bridge
íslenskt landslið í fyrsta sinn með í úrslitum HM í bridge:
Líkamsformið skiptir
einna mestu máli
Landslið íslands i bridge ásamt fyrirliða sínum. sem er nú úti i Yokohama í Japan þar sem heimsmeistaramótið er haldið að þessu sinni. Frá vinstri,
Örn Arnþórsson, Guðmundur Páll Arnarson, Björn Eysteinsson fyrirliði, Þorlákur Jónsson, Jón Baldursson, Guðlaugur R. Jóhannsson og Aðalsteinn
Jörgensen.
DV-mynd GVA
„Raunhæfar vonir okkar byggjast
á því að verða einir af fjórum efstu
í fyrstu lotunni í riðiinum og komast
þar með í 96 spila einvígi við sveit
úr hinum riðlinum." sagði Guðlaug-
ur R. Jóhannsson i samtali við DV.
Hann er einn 6 landsliðsmanna í
landsliði íslands sem spilar næsta
hálfa mánuðinn í 16 landa úrslitum
á HM í bridge í Japan. Þetta er í
fyrsta sinn sem íslenskt landslið nær
svo langt að komast í úrslit á heims-
meistaramóti í bridge.
Árið 1950 komust tveir íslendingar
á HM sem fram fór á Bermúda. Tvö
sænsk pör og eitt íslenskt, voru fuil-
trúar Evrópu í þeirri keppni og spil-
uöu saman í sveit. Spilarar fyrir
hönd íslands þá voru Einar Þorfinns-
son og Gunnar Guðmundsson.
Landslið íslands á HM í Japan er
skipað þeim Jóni Baldurssyni-Aðal-
steini Jörgenssyni, Guðmundi Páli
Arnarsyni-Þorláki Jónssyni og Guð-
laugi R. Jóhannssyni-Erni Arnþórs-
syni. Björn Eysteinsson er 'fyrirliði
sveitarinnar, án spilamennsku.
Keppum um3.-5.
sæti í riðlinum
„Við búumst við að við munum
keppa um fjórða sætið í riðlinum viö
annaðhvort Argentínu eða Ástralíu.
Við teljum að Bretar og Bandaríkja-
menn séu nokkuð öruggir með að
komast áfram í okkar riðli. Síðan séu
það Argentína, Ástralía og ísland
sem berjist um þriðja og fjórða sætið
í riðlinum. Að auki eru með í riðlin-
um Venesúela, Egyptaland og gest-
gjafarnir Japan. Ég spái því að við
verðum í þriðja til fimmta sæti í riðl-
inum.
Ef við verðum númer 4 í riölinum,
spilum viö 96 spila leik við þá þjóð
sem verður númer 1 í hinum riðlin-
um, ef við verðum þriöju, þá spilum
við gegn þeirri sem verður númer
tvö. Mér þætti ekki ósennilegt að
núverandi heimsmeistarar, Brasilíu-
menn, verði efstir í hinum riðlinum.
Aö spila 96 spila leik við Brasilíu-
menn og vinna þá er erfitt verkefni.
Vel gæti þó verið að Svíar eða Pól-
verjar nái fyrsta sæti í hinum riðlin-
um en það eru mjög sterkar þjóðir.
Ef okkur tekst ekki að vera meðal
fjögurra efstu þjóða í riðlakeppninni,
fórum viö í sérstaka keppni sem köll-
uð er Yokohama Cup. Þar er spilað-
ur, að ég held, einhvers konar tví-
menningur með Butler-útreikningi,"
sagði Guðlaugur.
Með 17 ára
reynslu í landsliöi
- Nú eruð þið Örn leikreyndasta par-
ið í landsliðinu. Hversu oft hafið þið
spilað í landsliði íslands?
„Ég og Örn höfum tekið þátt í 6
Evrópumótum í bridge, þremur
ólympíumótum og tveimur Norður-
landamótum. Fyrsta mótið okkar var
EM í ísrael árið 1974.
Við Örn Arnþórsson byrjuðum að
spila saman árið 1973 og höfum spilað
saman óslitið síöan. Við spiluöum
Bláa laufs sagnkerfið fyrst í stað en
síðastliðin 5 ár höfum við spilað kerfl
sem er blanda af Bláa laufinu og
Precision," sagði Guðlaugur.
- En hvernig var þjálfun landsliðsins
háttað fyrir mótið?
„Sú nýlunda var tekin upp fyrir
Evrópumótið í Killamey að mikil
áhersla er lögð á líkamsrækt. Sama
gildir fyrir mótið nú. Við höfum
hlaupið reglulega tvisvar í viku, frá
4 og upp í 7 kílómetra. Við tókum
allir þátt í skemmtiskokkinu í
Reykjavikurmaraþoninu, höfum
gengið allir saman á Esjuna og sinnt
þrekinu á annan hátt.
Allar þessar stífu æfingar koma
niður á fjölskyldulífmu. Auk þess
þegar maður spilar í landsliði, þá
miðast öll sumarfrí við það. Ég er
nú svo heppinn að mín vinna (endur-
skoðun innsk.:) er þannig að ég ræð
mér sjálfur og tíminn núna er hent-
ugur til að taka sér frí,“ sagði Guð-
laugur að síðustu.
Tekur þátt í
þrekþjálfuninni
Björn Eysteinsson er fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í Japan og gegndi
einnig þeim starfa á EM í Killarney
í sumar þegar íslenska landsliöið
náði þeim frækna árangri að vera í
4. sæti. Það sæti tryggði þátttöku ís-
lands á heimsmeistaramótinu nú.
„Þaö fer geysilega mikill tími í
þjálfun landsliösins og það fer ekkert
sérstaklega vel saman við starf mitt
sem útibússtjóri. Það er ekki aðeins
sá tími sem fer í sjálfar æfingarnar,
heldur einnig undirbúningur, útbún-
ingur verkefna og skipulagning,"
sagði Björn.
„Það má segja það aö þegar menn
taka að sér verkefni meö miklum
metnaöi að þá fari alltaf heldur meiri
tími í það en menn áætluðu í upp-
hafi. Fjölskyldan hefur mátt bera
þann þunga kross aö hafa mig í £essu
embætti undanfarið hálft ár. Eg hef
mætt ágætis skilningi heima fyrir.
Ég hef algerlega gengið í gegnum
sömu þrekþjálfun og spilarar í liðinu.
Mér finnst það aö mörgu leyti gott
bæði þeirra vegna og mín vegna að
auki. Það er ekki bara það að maður
hafi gott af hreyfingunni, heldur
myndast einnig meiri samheldni þeg-
ar allir taka þátt í þessu saman. Ég
veit ekki hvernig þessu er háttað hjá
öðrum þjóðum en ég hef grun um að
aörar þjóðir hafi ekkert sinnt þrek-
þættinum í undirbúningi sinna liða.
Þess vegna gæti verið að viö höfum
þrek framyfir hinar þjóðirnar í úr-
sútunum. Það er engin spurning að
þrekþjálfunin hafði mikiö að segja á
Evrópumótinu í Killarney, við vor-
um mjög sterkir á endasprettinum
þar.
Vandasamt að
stilla upp liði
Hlutverk fyrirliða á mótinu sjálfu
er að vera viðstaddur óll uppgjör
liðsins, tilbúinn að taka ákvarðanir
á milli leikja um það hverjir eigi að
spila næsta hálfleik. Maður þarf að
vera búinn að mynda sér einhverja
grunnskoðun fyrir lok hálfleikja um
hvernig næsta uppstilling veröi því
hléin eru mjög stutt. Maður verður
að fylgjast grannt með því í hvernig
ástandi menn eru þegar þeir koma
úr leiknum, hvort að þeir séu í bar-
áttustuði til þess að halda áfram og
hvort þeir sem hvíldu séu í enn meira
stuði til þess að koma inn á.
Ég heyrði það á mínum mönnum
að þeim fannst margar innáskipting-
arnar á EM í Killarney væru öðru-
vísi en veriö hefur. Hingað til hefur
spilamennskunni verið jafnt skipt
yfir daginn á pörin, en ég fylgdi þeirri
stefnu ekki eins stíft eftir. Tilgangur-
inn meö þrekæfingunum er það að
geta lagt mikið á menn á skömmum
tíma. Menn eiga að geta setið í allt
að tvo daga í röð við stöðuga spila-
mennsku, 120 spil. Það á ekki að vera
nokkur vandi fyrir fullfrískan mann
að afkasta því. Best er auðvitað ef
menn eru með þrjú jafngóð pör allan
tímann sem alltaf eru í stuði og þá
þarf enga hugsun til innástillingar.
Þá gæti fyrirliðinn sett upp kerfl fyr-
irfram fyrir allt mótið og síðan eytt
tímanum í skoðunarferðir um ná-
grennið.
Á Evrópumótinu í Killarney orðaði
einn Bretinn, Ron Anderson að
nafni, þetta ágætlega. „When you are
hot - you are hot, when you are not
- you are not“. Þessi orð hans segja
ansi mikið. Þegar par er í stuði á að
reyna að nýta það stuð eins lengi og
hægt er. Ekki þar fyrir, þá á ekki
heldur alltaf að kippa pari út af sem
er í óstuöi. Stundum þurfa þeir upp-
örvun til þess að ná sér á strik aftur.
Fyrirliðinn verður að finna þennan
gullna meöalveg.
Aðlögum okkur
japönskum tíma
Við fljúgum til Kaupmannahafnar
miðvikudaginn 25. september og síð-
an í beinu flugi þaðan til Tokyo en
það er 12 tíma flug. Komutími er 17
tímum eftir brottför en klukkan er
26 tímum lengra komin því tímamis-
munurinn er 9 tímar. Við höfum síð-
ust dagana fyrir brottför reynt að
snúa sólahringnum við og miða
svefnvenjur við japanskan tíma til
þess að við lendum ekki í vandræð-
um vegna timamismunarins. Lik-
amsklukkan veröur að vera í lagi í
mótinu. Ég reyni að stjórna svefn-
venjum spilaranna á þessu langa
ferðalagi og menn verða svæfðir meö
gúmmíkylfum ef þeim tekst ekki að
sofna á eðlilegan háit á tilgreindum
tima,“ sagði Björn og hló við.
Það má segja það að velvilji allra
þeirra sem við erum búnir að tala
viö um stuðning við þátttöku okkar
í Japan hefur verið mikill í okkar
garð. Við höfum þegið aðstoð víöa
að, en stærstir eru ríkið og Reykja-
víkurborg. Önnur sveitarfélög í ná-
grannabyggðarlögum, Kópavogur,
Garðabær og Hafnarfjörður, hafa
einnig styrkt okkur. Fjöldi fyrir-
tækja að auki, bæði með beinum fjár-
framlögum og einng alls kyns annars
konar stuðningi. Fjölmargir ein-
staklingar hafa einnig lagt inn fé á
reikning okkar til að styðja við bakið
á landsliðinu," sagði Björn að lokum.
Evrópumótið í Killarney verður
spilaó dagana 29. september til 11
október þegar nýir heimsmeistarar
verða krýndir. Greint veröur daglega
frá úrslitum á HM í Japan í DV jafn-
óðum og þau berast. Keppni þessi um
heimsmeistaratitilinn er haldin ann-
að hvert ár. Næsta keppni verður í
Chile árið 1993, líkur eru á að árið
1995 verði spilað í Kína og síðan
hlotnist íslandi sá heiður að halda
keppnina árið 1997.
-ÍS