Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1992, Qupperneq 11
r
11
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1992.
Sviðsljós
Ágúst Einarsson fertugur
Rúmlega þrjú hundruð manns
voru í afmælisveislu Ágústs Einars-
sonar, formanns bankaráðs Seðla-
bankans og samninganefndar ríkis-
ins, er hann hélt upp á fertugsaf-
mæh sitt í Félagsheimilinu á Sel-
tjamamesi um síðustu helgi.
Veislan tókst í aUa staði mjög vel.
Fluttar vom ræður og Ágústi færðar
margar góðar gjafir og blómvendir.
Þeir Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra og Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra vora á meðal veislu-
gesta en þar var einnig að finna
bankastjórn og bankaráð Seðlabank-
ans, samstarfsmenn Ágústs í samn-
inganefnd ríkisins, starfsmenn úr
Granda, Sölumiðstöðinni, Fiskifélag-
inu, prófessora og kennara við Há-
skólann, forystumenn í Alþýðu-
flokknum og forystumenn í sjávarút-
vegsmálum, auk vina og vanda-
manna.
Þeir Gisli J. Hermannsson, Gunnar Friðriksson, Þórhallur Helgason og Birgir Berndsen voru á meðal veislugesta
sem alls voru rúmlega 300 talsins. DV-myndir Hanna
Ágúst Einarsson ásamt eiginkonu sinni, Kolbrúnu Ingólfsdóttur.
Jóhannes Nordal seðlabankastjóri tekur hér í höndina á afmælisbarninu
og óskar því til hamingju.
Gestir virða fyrir sér myndirnar á fréttaljósmyndasýningunni sem nú stend-
ur yfir i Listasafni ASÍ. DV-myndir Hanna
ListasafnASÍ:
Sýning á fréttaljósmynduin
Um helgina var hin árlega frétta-
ljósmyndasýning, World Press
Photo, opnuð í Listasafni ASÍ.
Tilgangurinn með sýningimni er
sagður vera sá að vekja athygli al-
mennings á fréttaljósmyndum með
því að verðlauna það sem best hefur
verið gert á þeim vettvangi.
VaUn er fréttaljósmynd ársins, sú
ljósmynd sem túlkar best hugsjón
mannúðar og samband manns og
umhverfis og sú mynd sem sýnir já-
kvæðar aðgerðir til varðveislu lífs á
jörðinni.
Árið 1991 bárust hátt í tólf þúsund
myndir í keppnina frá fjórtán hundr-
uð ljósmyndurum víða um heim, svo
myndimar eru að vonum mjög fjöl-
breyttar og skemmtfiegar.
Þau Guðjón Einarsson og Þórdis
Guðjónsdóttir sýndu myndunum
mikinn áhuga en Guðjón er skrif-
stofustjóri Timans.
Sýningin, sem fer árlega um aUan
heim, hefur hvarvetna vakið mikla
athygU.
RENAULT 19 GTS
RENAULT 19 GTS - DV bíll janúarmánaðar
IVerður til sýnis og reynsluaksturs um helgina:
Föstudaginn 17. janúar kl. 13.00-18.00
Laugardaginn 18. janúar kl. 13.00-17.00
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1,110 Reykjavík, Sími 686633