Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1992, Page 13
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1992.
13
Sviðsljós
Pétur Kristjánsson fertugur:
25 ár í eldlínunni
„Þetta var rosaafmæli og verður
alveg ógleymanlegt," sagði Pétur
Wigelund Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri PS músíkur og gamal-
reyndur hljómlistarmaður, sem hélt
upp á fertugsafmæli sitt um helgina.
Teitið var haldið á Hótel íslandi á
föstudagskvöldið og mættu þar hátt
í fjögur hundruð manns.
Haldið var uppi stífri dagskrá alveg
til miðnættis, hæði sýnd skemmtiat-
riði og haldnar ræður Pétri til heið-
urs en þrír félagar Péturs, þeir Ómar
Valdimarsson, Óttar Felix Hauksson
og Jón Ólafsson, sáu um dagskrána.
Þeir fengu m.a. ýmsa söngvara til
að syngja lög sem Pétur hefur sungið
í gegnum tíðina og má þar fyrstan
nefna Valgeir Guðjónsson.
í kjölfarið tóku lagið þeir Stefán
Hilmarsson í Sálinni, Daníel Ágúst
Haraldsson úr Ný danskri, Karl Örv-
arsson, Richard Scobie og Páll Óskar
Hjálmtýsson. Loks tók nýja Stjórnin
lagið Seinna meir og Laddi sýndi
skemmtiatriði.
Svona til gamans fóru börn Kristj-
áns einnig upp á svið og hermdu eft-
ir laginu Wild Thing, upptöku með
Pops sem tekin var fyrir tíu árum,
og gerði það mikla lukku.
Þess má að lokum geta að félagar
Péturs og samferðamenn afhentu
honum bikar, svokallaðan íslenskan
rokk-Felix, fyrir „25 ár í eldlínunni".
Þau Karl Örvarsson, Sigríður Beinteinsdóttir og Guðmundur Jónsson voru á meðal veislugesta sem alls nálguð-
ust fjórða hundraðið. DV-myndir S
Afmælisbarnið heilsar hér upp á Rafn Jónsson vin sinn en eiginkona Pét-
urs, Anna Linda Skúladóttir, stendur fyrir aftan Pétur.
Hemmi Gunn og Richard Scobie höfðu margt að ræða Pétur hampar hér hinum íslenska rokk-Felix sem félag-
en Richard var einn þeirra fjölmörgu sem tróðu upp ar hans færðu honum fyrir 25 ár i eldlínunni.
um kvöldið.
Jodie Foster um árið 1991:
Besta árið
mitt til þessa
„Árið 1991 er besta árið mitt til
þessa. Það var eins konar saman-
tekt á öllu því sem ég hef verið að
vinna að um ævina," sagði leikkon-
an Jodie Foster sem auk þess að
vinna til verðlauna á leiklistarsvið-
inu varð vinsæll leikstjóri á árinu.
Jodie, sem er 29 ára, byijaði að
leika í kvikmyndum sem barn og
hefur að margra áliti stöðugt farið
fram. Síðasta afrek hennar var
kvikmyndin Lömbin þagna þar
sem hún fór á kostum.
„Ég reyni hvað ég get að fá þau
hlutverk sem mér líst vel á,“ sagði
Jodie en þannig fór hún einmitt að
því að fá hlutverk í Lömbin þagna.
Leikstjóri myndarinnar var á
höttunum eftir Michelle Pfeiffer í
hlutverkið en Jodie hætti ekki fyrr
en hún varð möguleiki hans númer
tvö og fékk því hlutverkið þegar
Michelle hafnaði því.
Jodie leikstýrði sinni fyrstu
mynd á árinu, Little Man Tate, sem
íjallar um unga móður sem á
óvenjulega vel gefinn son. Kvik-
myndin hefur fengið mjög góða
dóma og er talin benda til frekari
afreka leikkonunnar á þessu sviði.
Jodie Fosfer, fjölhæf leikkona og efnilegur leikstjóri.
Skilafrestur
launaskýrslna o.fl. gagna
Samkvæmt lokamálsgrein 93. gr.
laga nr. 75/1981 um tekju- og eignar-
skatt hefur skilafrestur eftirtalinna
gagna, sem skila ber á árinu 1992
vegna greiðslna o.fl. á árinu 1991,
verið ákveðinn sem hér segir.
1.77/ og með 21. janúar 1992
1. Launaframtal ásamt launamiðum.
2. Hlutafjármiðar ásamt
samtalningsblaði.
3. Stofnsjóðsmiðar ásamt
samtalningsblaði.
2. Til og með 20. febrúar 1992
1. Afurða- og innstæðumiðar ásamt
samtalningsblaði.
2. Sjávarafurðamiðar ásamt
samtalningsblaði.
3. Bifreiðahlunnindamiðar ásamt
samtalningsblaði.
3. Til og með síðasta
skiladegi skatt-
framtala 1992:
1. Greiðslumiðar yfir hvers konar
greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausa-
fé, fasteignum og fasteignaréttindum,
sbr. 1. og 2. tölul. C-liðar 7. gr. sömu
laga.
2. Gögn frá eignarleigufyrirtækjum þar
sem fram koma upplýsingar varðandi
samninga sem eignarleigufyrirtæki,
sbr. II. kafla laga nr. 19/1989, hafa gert
og í gildi voru á árinu 1991 vegna
fjármögnunarleigu eða kaupleigu á
fólksbifreiðum fyrirfærri en 9 manns.
M.a. skulu koma fram nöfn leigutaka
og kennitala, skráningarnúmer
bifreiðar, leigutímabil ásamt því verði
sem eignarleigufyrirtæki greiddi fyrir
bifreiðina.
rsk
RÍKISSKATTSTJÓRI