Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1992, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Ásk rift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1992.
r
Neyðarhjálpin:
Ekki kjöt
Ríkisstjóm íslands hefur enga
ákvörðun tekið um með hvaða hætti
hún treysti sér til að veita lýðveldum
fyrrum Sovétlýðvelda neyðaraðstoð.
Jón Sigurðssonar viðskiptaráðherra
segir að hún hafi að undanfórnu leitt
saman menn sem átt hafi skipti við
þessi ríki í því skyni að athuga hvort
um sameiginlegt átak geti orðið að
ræða hjá því opinbera og einkaaðil-
um. Enn sé þó of snemmt að tala um
fjárhæðir eða annað í því sambandi.
Aðspurður tekur Jón ólíklegt að
um matvælaðstoð verði að ræða, til
dæmis útflutning á kindakjöti. í
þessu sambandi segir hann að það
sérkennilega ástand sé í landinu
núna að ekki sé um óeðlilegar matar-
birgðir að ræða.
„Það er mjög brýnt að vestræn ríki
samræmi áform sín um neyðarhjálp
til þeirra lýðvelda sem áður mynd-
uðu Sovétríkin. Þessar þjóðir eru nú
að bijótast til lýðræðis og frelsis.
Þeim er því mikilvægt aö finna sér
stuðning í þeirri viðleitni. Fram und-
an eru mjög erfiðir tímar þarna enda
gamla kerfið hrunið og ekkert skipu-
lag risið úr rústunum sem getur
sinnt öllum þörfum fólks,“ segir Jón
Sigurðsson viðskiptaráðherra.
Jón heldur til Washington á þriðju-
daginn í næstu viku á ráðstefnu sem
Baker, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, hefur boðað til í nafni Banda-
ríkjaforseta. Á ráðstefnunni á að
ræða samræmingu á neyðaraðstoð
til fyrrum ríkja Sovétríkjanna og
hana munu sitja ráðherrar frá um
50 löndum.
Að sögn Jóns er ekki ætlunin að
einstök lönd leggi fram skuldbind-
andi loforð eða yfirlýsingar á ráð-
stefnunni. Ætlunin sé fyrst og fremst
að kanna til hvers þau treysti sér í
þessum efnum og í hvaða röö best
séaðveitahugsanlegaaðstoð. -kaa
Greiðfært um
helstu þjóðvegi
í Borgarfirðinum er nú hvergi
ófært en vegir eru enn mjög blautir.
Fært er oröið fyrir jeppa á milh síkis-
brúnna við Feijukot.
Þegar vatnið fór að sjatna þar var
hægt aö ná upp efni sem flaut út en
eftir er að keyra um eitt þúsund rúm-
metra af möl í veginn, að mati vega-
gerðarinnar í Borgarnesi. Þar giska
menn á að kostnaðurinn við viðgerð
á þessum vegarkafla geti numið
hálfri milljón. Enn hafa menn ekki
áætlað heildartjón.
Greiðfært um alla helstu þjóðvegi
landsins. Eftir er að gera við vegi í
Reykhólasveit og Gufudalssveit. -IBS
Hænsnfuglar
fundnir í fjöru við
salmonellubúið
Um eitt hundrað dauðir hænsn-
fuglar fundust i fjörunni í Saltvík
undir kvöld í gær. Fjaran er stutt
frá því kjúklingabúi sem hættuleg
salmonnellusýking fannst hjá ný-
lega. Menn frá heilbrigðiseftirliti
Kjalarness fóru á staðinn í birtingu
í morgun. HeilbrigðLseftirlitið fyr-
irskipaði tímabúndið söju- og dreif-
ingarbann á afurðum sem voru
með framleiðsiumerkingu frá
nefhdu búi i síðustu viku vegna
sýkingarhættu.
Á svæðinu við Saltvík á Kjalar-
nesi eru fleiri kjúklingabú. Þór-
hallur Halldórsson hjá Hollustu-
vemd ríkisins sagði við DV í morg-
un að málið yrði rannsakað og taldi
trúlegt að lögregla færi í málið með
hollustuverndarfulltrúa á svæðinu
í dag.
„Það eru fleiri kjúklingabú þama
rétt hjá. Ég mun biðja heilbrigðis-
eftirlitið á svæðinu að kanna mál-
ið,“ sagði Þórhallur í morgun.
- Hvaða áhrif hefur það á um-
hverfið aö henda dauðum og hugs-
anlega sýktum fuglum í fjöruna?
„Það fer eftir þvi hvemig þessir
fuglar hafa dáið af völdum sjúk-
dóms eða einhverra uppákoma í
búinu. Það er ekki mikið varið í
að láta þetta i fjöruna og hugsan-
lega einhverjir mávar fari aö rifa
þetta í sig og dreifa þessu.“
Þórhallur sagðist hafa fengið
upplýsingar um að sala á kjúkling-
um heföi ekki rainnkað eftir að til-
kynnt var í fjölmiðlum fyrir síð
ustu helgi að salmonellusýking
heföi fundist bjá einum kjúklinga-
framleiöanda. Hollustuvemd og
yfirdýralæknir beindu þeim til-
mælum til neytenda, sem keypt
höfðu alifuglaafuröir með merk-
ingu þessa ákveðna framleiðanda,
að skiia vörunni. Þetta var gert í
öryggisskyni vegna hættu á alvar-
legri matarsýkingu.
Rétt er aö taka fram að þó svo
að dauðu fuglamir hafi fundist í
fjörunni skammt frá umræddu búi
liggur ekki fyrir, a.m.k. ekki ennþá,
hvortþeirséuþaðankomnir. -ÓTT
Lögreglan í Breiðholti fann þennan stolna bíl sem falinn hafði verið á bílapartasölu i jarðhúsunum við Elliðaár í
gær. Bilnum var stolið við bílasöluna Bílaþing þann 14. desember. Þegar bíllinn fannst var búið að setja stóra
ábreiðu yfir hann. önnur skrásetningarnúmer voru komin á bílinn. Ekki er Ijóst hvort tryggingafélag hefur greitt
bætur vegna þjófnaðarins. Málið er i rannsókn. DV-mynd S
Sérkjarasamningar:
Gengiðfrá
aðalatriðum
Sérkjarasamningar fiksvinnslu-
fólks em á lokastigi. Sagðist Þórar-
inn V. Þórarinsson, framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambandsins,
búast við að þeim lyki i dag. Samn-
ingafundur stóð í allan gærdag og
fram á nótt þar sem gengið var frá
öllum stærri málunum.
Þar er um að ræða samræmingu,
eða ramma, vegna hóplaunakerfisins
í frystihúsum. Þar er um að ræða
hinar svo kölluðu flæðilínur og bón-
usgreiðslur þeim tengdar. Allmikiil
munur hefur verið á bónusgreiðslum
eftir frystihúsum en nú er verið að
samræma þær með þessum ramma-
samningi.
Þá hefur verið mikill munur á bón-
usgreiðslum í saltfiskvinnslu og
verða þær nú samræmdar eins og
hægt er.
Einnig hefur verið gengið frá fast-
ráðningarsamningum starfsfólks í
fyrstihúsum og kauptryggingu þess.
Þetta hefur verið ein aðalkrafa fisk-
vinnslufólks lengi.
Eftir er að ganga frá ýmsum minni-
háttar atriðum og er talið víst að því
verki ljúki í dag.
Fiskvinnslufólk er langstærsti
hópurinn sem verið er að gera
sérkjarasamninga við.
Eftir er að ganga frá sérkjarasamn-
ingum við Verkamannafélagið Dags-
brún en þeir samningar eru allfrá-
brugðnir sérkjarasamningum fisk-
vinnslufólks. Búist er við að þegar
sérkjarasamningar fiskvinnslufólks
eru í höfn hefjist samningar við
Dagsbrún.
Að þeim loknum er svo gert ráð
fyrir að samningar um gerð aðal-
kjarasamnings, þar sem Alþýðusam-
bandið kemur inn í samningavið-
ræðurnar, hefjist í næstu viku. Þór-
arinn V. Þórarinsson sagði í morgun
að hann vonast til að svo yrði.
Alþýðusambandið hefur enn ekki
lagt fram formlegar kröfur varðandi
gerð aðalkjarasamnings. Vitað er þó
að gerðar verða nokkrar kröfur á
hendur ríkisstjórninni svo sem
hækkun skattleysismarka og afnám
eða mildun á þeim aðgerðum sem
hún hefur boðað varðandi skerðingu
elli- og örorkulífeyris, skerðingu
bamabóta og fleira.
-S.dór
Á118 km hraða
Tveir ökumenn voru teknir fyrir
ölvun við akstur skömmu eftir að
veitingahús lokuðu í nótt. Þriðji öku-
maðurinn var tekinn á Sæbraut á 118
kílómetra hraða. Sá er þó ekki grun-
aður um ölvunarakstur en hann var
sviptur ökuréttindum til bráða-
birgða á lögreglustöðinni.
-ÓTT
ii..JPi ———SL~———
LOKI
Fuglinn í fjörunni, hann
heitirsalmonella!
Veðriö á morgun:
Hlýttog
rigning
Á morgun verður útkomu-
belti á leið austur af landinu og
annað nálgast úr suðvestri. A
morgun verður sunnan- og suð-
vestanátt og rigning um austan-
vert landið í fyrstu, annars
þurrt að mestu. Sunnan- og
vestanlands fer að rigna aftur
þegar líður á daginn. Áfram
verður hlýtt í veðri.
crmma
m
Brook
(rompton
J
RAFMOTORAR
HriMlxpti
SuAurlandabraut 10. S. 080489.