Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1992, Page 7
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992.
7
Fréttir
Lendingargjöld flugvalla:
Kef lavík stenst
ekki samkeppni
Lendingargjöld flugvalla
dollarar á tonn —
~f%T
Shannon
Flugvöllurinn í Keflavík stenst
engan veginn samkeppni sem milli-
lendingarvöllur í vöruflugi vegna
hárra lendingargjalda.
í meðfylgjandi súluriti eru lending-
argjöld í Keflavík borin saman við
lendingargjöld á nokkrum þekktum
völlum í vöruflugi. Upplýsingar eru
fengnar úr skýrslu IATA. í ljós kem-
ur að af þessum völlum eru lending-
argjöld næsthæst í Keflavík.
Umræður hafa verið nokkrar um
framtíð Keflavíkurvallar sem milli-
lendingarvallar í vöruflugi vegna
staðsetningar hans. Hann er á stór-
baugslínu og yfir hann fljúga bæði
farþega- og vöruflutningavélar
þekktra flugfélaga á flugleiðinni frá
Evrópu til Asíu. Og svo auðvitað aft-
ur sömu leið til baka.
Nýlega gagnrýndi Þórarinn Kjart-
ansson, framkvæmdastjóri Nortran
og fyrrum framkvæmdastjóri Amer-
íkudeildar vöruflutningafélagsins
Cargolux, í DV að Keflavíkurflug-
völlur væri ekki nógu aðlaðandi fyr-
ir félög í vöruflutningum.
Hann nefndi meðal annars að lend-
ingargjöld hins opinbera væru allt
of há, verð Flugleiða fyrir afgreiðslu
flugvéla of hátt og hærra verð á elds-
neyti en á öðrum völium sem vilja
fá til sín vöruflutningavélar til að
millilenda.
Á meðfylgjandi grafl um lendingar-
gjöld sést að Keflavík er meira að
segja með hærri lendingargjöld en
þekktir velhr eins og John F.
Kennedy í New York og Lúxemborg-
arflugvöllur.
Á grafmu sést einnig að sam-
keppnisvellir eins og Anchorage í
Mjólkurfræöingar:
Enginn sátta-
fundurenn
„Menn eru að skoða hlutina en
engin ákvöröun hefur verið tekin um
framhaldið,“ sagði Kristján Larsen,
formaður Mjólkurfræðingafélags ís-
lands, við DV.
Enn hefur ekki verið haldinn sátta-
fundur í kjaradeilu mjólkurfræðinga
og viðsemjenda þeirra. Kristján sagði
að menn væru að leita ýmissa leiða.
„Það hefur einkum verið beðið eftir
því að gengið verði frá kaupauka-
kerfinu. Það hggur orðið nokkuð
ljóst fyrir núna hvað menn eru að
tala um í því sambandi." -JSS
Selfoss:
Útsöluráffullu
Kegína Thorarensen, DV, Selfossi:
Mikið er nú um útsölur hér á Sel-
fossi - í óvenjulega mörgum verslun-
um. Auðvitað er Kaupfélag Ámes-
inga með stærstu útsöluna að vanda,
með fatnað bæði á böm og fuhorðna,
enda er KA stærsta verslun hér á
Suðurlandi og þó víðar væri leitað,
mjög fullkomin verslun.
Fólkstreymirí
sumarbústaðina
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Það er ahtaf sama góða veðráttan
hér austanfjalls og flestir sumarbú-
staðimir fyhast af fólki frá fostudög-
um fram á sunnudagskvöld. Þá er
mikið verslað hér á Selfossi - mat-
vörur og áfengi th að hafa allar sort-
ir í bústöðunum ef veðráttan breyt-
ist, kólnar.
Alaska, Montreal í Kanada og Gand-
er á Nýfundnalandi eru með svo lág
lendingargjöld að flugfélög í vöru-
flutningum þurfa ekki lengi að velta
því fyrir sér hvar þau skuli milli-
lenda. Lendingargjöldin í Keflavík
fæla flugfélög augljóslega frá á með-
an hinir þrír flugvelhmir gera allt
hvað þeir geta th aö auka viðskiptin.
-JGH
Lendingargjöld i Keflavík eru 7,05 dollarar á tonnið en samkeppnisvellir
vöruflugi, eins og Gander, bjóða allt niður I 0,94 dollara.
VIÐSKIPTAVINIR
SPARISJÓÐANNA
HAFA VINNINGINN
HÆSTA
ÁRSÁVÖXTUN Á
INNLÁNSREIKNINGL
Hæsta ársávöxtun á innlánsreikningum hjá
bönkum og sparisjóðum kom í hlut þeirra sem
skipta við sparisjóðina.
Annað árið í röð hefur þannig
reynslan sýnt að þeir sem vilja
ávaxta sparifé á innláns-
reikningum geta borið mest úr
býtum hjá sparisjóðunum.
Hafðu þetta í huga árið 1992.
Komdu tíl okkar
-hjá sparisjóðunum.
SPARISJÓÐIRMR
fyrir þig og þína