Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1992, Síða 8
8
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992.
FYLLINGAREFNI
Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæöu veröi.
Gott efni, lítil rýrnun, frostþoliö og þjappast
Ennfremur höfum viö fyrirliggjandi
sand og möl af ýmsum grófleika.
Sævarhöfða 13 - sími 681833
ALLSHERJARATKVÆÐAGREIÐSLA
Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við kjör
stjórnar, trúnaðarmannaráðs og endurskoðenda fyrir
næsta kjörtímabil.
Tillögur skulu vera samkvæmt B-lið 19. greinar í
lögum félagsins. Tillögum, ásamt meðmælum hundr-
að fullgildra félagsmanna, skal skila á skrifstofu fé-
lagsins, Skólavörðustíg 16, eigi síðar en kl. 11 fyrir
hádegi þriðjudaginn 28. janúar 1992.
Kjörstjórn Iðju
INTEONATlONAL STUDENT F.XCHANGE PBOGPAMS
LANGAfí ÞIG TIL AÐ VERA SKIPTINEMI?
Ef þú ert fædd/ur 1975 til 1976 getur þú sótt um
að fara til Ástralíu eða Nýja-Sjálands. Farið er út í
janúar 1993 og komið heim aftur í desember.
Umsóknarfrestur rennur út 1. april og það eru aðeins
örfá pláss laus.
Fáein pláss eru einnig laus til Bandaríkjanna, ensku-
og frönskumælandi Kanada, Þýskalands, Hollands
og Norðurlandanna. Sækja þarf um til þessara landa
fyrir 1. febrúar.
Állar nánari upplýsingar á skrifstofu ASSE í síma
621455 alla virka daga á milli kl. 13 og 17.
STYRKIR TIL UMHVERFISMÁLA
Á næstunni verður úthlutað styrkjum úr Pokasjóði
Landverndar.
1. Um styrk geta sótt: félög, samtök, stofnanir og
einstaklingar.
2. Úthlutun er bundin verkefnum á sviði umhverfis-
mála, svo sem landgræðslu, skógrækt, friðun,
verndun, fegrun og snyrtingu lands og til fræðslu
og rannsókna. Skilyrði er að verkefnin séu í þágu
almennings.
3. Verkefni, sem sótt er um styrk til, þurfa að vera
vel afmörkuð og skilgreind. Umsóknum ber að
skila á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á
skrifstofu Landverndar, Skólavörðustíg 25, 101
Reykjavík, sími 25242 og 625242.
4. Farið er fram á að styrkþegar leggi af mörkum
mótframlag sem getur falist í fjárframlögum, vél-
um, tækjum, efni eða vinnu.
5. Styrkþegar skuldbinda sig til að skila skýrslu um
framkvæmd og árangur verkefnisins fyrir lok út-
hlutunarárs.
6. Styrkumsóknir þurfa að berast skrifstofu Land-
verndar fyrir kl. 17.00 þann 29. febrúar 1992.
Þeir sem eiga eldri umsóknir í Pokasjóðinn þurfa að
endurnýja þær í samræmi við þessa auglýsingu.
Landvernd
Skólavörðustíg 25,
101 Reykjavík.
Sími: 25242 - Myndsendir: 625242
Matgæðingur vikunnar
Cannelloni
med grænmeti
Guðlaug Halldórsdóttir matgaeðingur vikunnar. DV-mynd GVA
„Þetta er minn uppáhaldsréttur
enda er hann léttur í maga. Maður
reynir að borða grænmeti," segir
Guðlaug Halldórsdóttir veitinga-
maður, eigandi Jónatans Living-
stone, sem er matgæðingur að
þessu sinni. Guðlaug er ekki lærð-
ur matreiðslumeistari en segist
hafa gaman af eldamennsku og
hjálpi iðulega til við samsetningu á
matseðli veitingahússins.
„Heima við elda ég yfirleitt og hef
gjarnan grænmeti," segir hún.
Guðlaug segir að rétturinn, sem
hún býður upp á, cannelloni með
grænmeti, sé einfaldur, fljótlagað-
ur, bragðgóður og ódýr. „Þetta er
ítalskur pastaréttur sem hefur ver-
ið vinsæll heima,“ segir Guðlaug.
Hún á tvo syni og segir að reyndar
finnist öðrum rétturinn frábær en
hinn vill hann síður. „Það er ekk-
ert að marka því hann vill helst
ekkert borða.“
Guðlaug segir að þessi ákjósan-
legi réttur skilji ekki eftir sig mikið
uppvask og ættu flestir að vera
fegnir því. Rétturinn, sem er fyrir
fjóra, lítur þá svona út.
Það sem þarf
12 lasagneplötur eða 150 g aðrar
makkarónur
2-3 msk. matarolía
salt, vatn
Fylling
300 g hraðfryst spínat
salt, pipar
múskat
100 g rjómaostur
Sósa
2 hvítlauksrif
2 laukar
1 dós niðursoðnir tómatar
1 lítil dós tómatþykkni
1 tsk. basilikum
salt, pipar
10 ólífur (má sleppa)
2 msk. rifinn ostur
Makkarónurnar eru soðnar í
saltvatni í tólf mínútur. Séu notuð
lasagneblöð er aðeins hægt að sjóða
nokkur í einu, svo þetta er öllu
fljótlegra með núðlum.
Spínatið látið þiðna alveg. Sett í
grænmetiskvörn og saxað smátt.
Kraumaö í olíu um stund. Kryddað
með salti, pipar og múskati. Rjóma-
ostinum blandað í.
Saxaður laukur og hvítlaukur
kraumaður um stund í olíu, söxuð-
um tómötum og tómatþykkni bætt
út í og kryddað. Sósan soðin í opn-
um potti í 10 mínútur.
Spínatjafningnum skipt á lasag-
neplöturnar en ef notaðar eru
makkarónur er helmingurinn lát-
inn í eldfast mót.
Plöturnar vafðar saman og lagðar
á sárið í eldfast mót. Annars er
spínatajafningnum hellt yfir
makkarónumar í mótinu og hinum
helmingnum dreift yfir.
Ólífumar skomar í sneiðar og
blandað saman við sósuna. Sós-
unni hellt jafnt yfir.
Osturinn rifmn yfir og bakað í
200 gráða heitum ofni í 20 mínútur.
Gott er að bera fram heitt hvit-
lauksbrauð með þessu. Verði ykk-
ur að góðu.
Guðlaug ætlar að skora á vin-
konu sína, Helgu Gísladóttur hús-
móður, sem hún segir aö sé mjög
sniðug matselja, að vera matgæð-
ingur næstu viku.
-ELA
Hinhliðin____________________________
Einu sinni með
fjórar réttar
- segir Gunnar Magnússon, deildarstjóri og lottóstjómandi
Þeir sem fylgjast meö útdrætti í
lottói á laugardagskvöldum hafa
væntanlega tekið eftir nýju andliti
í hópi þeirra sem stýra útdrættin-
um. Gunnar Magnússon byrjaði í
lottóþáttunum í nóvember og segir
starflð leggjast vel í sig. Þó sé óneit-
anlega sérstakt að standa frammi
fyrir 40-50 þúsund áhorfendum.
Gunnari kom svolítið á óvart um-
stangið í kringum svo stuttan þátt
og finnst öryggiskröfumar vera
miklar.
Gunnar er kerfisfræðingur og hóf
störf hjá tæknideild Ríkisútvarps-
ins fyrir um ári. Áður vann hann
hjá tölvudeild Kristjáns Skagfjörð.
Hann hefur einnig komið nálægt
pólitík, setið í flokksstjóm Alþýðu-
flokksins. Gunnar sýnir lesendum
á sér hina hliðina í dag.
Fullt nafn: Gunnar Magnússon.
Fæðingardagur og ár: 17. septemb-
er 1950.
Maki: Margrét Halldórsdóttir.
Börn: Margrét Rós 15 ára, Helga
Lilja 11 ára, Elísabet 6 ára og Re-
bekka Rut, rúmlega mánaðargöm-
ul.
Bifreið: Subaru skutbíll árgerð
1982.
Starf: Deildarstjóri í tölvudeild
Rikisútvarpsins.
Laun: Ættu að vera mun meiri.
Áhugamál: Leiklist og pólitík.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Fjölskyldan fékk
Gunnar Magnússon.
DV-mynd Brynjar Gauti
einu sinni fjórar tölur réttar og
tvisvar þrjár.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Maður segir nú ekki frá því
opinberlega.
Hvað fmnst þér leiðinlegast að
gera? Að hlusta á bölmóðinn.
Uppáhaldsmatur: Rjúpur.
Uppáhaldsdrykkur: Þýskættað öl.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Rúnar Krist-
insson í KR.
Uppáhaldstímarit: Gestgjafinn.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Ætli ég
segi ekki bara Linda Pétursdóttir.
Ertu hlynntur eða andvígur rikis-
stjórninni? Hlynntur (verð að
kannast við krógann).
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Paul Newman.
Uppáhaldsleikari: Gunnar Eyjólfs-
son.
Uppáhaldsleikkona: Edda Björg-
vinsdóttir.
Uppáhaldssöngvari: Mick Jagger.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Get
ekki gert upp á milli Jóns Baldvins
Hannibalssonar og Jóns Sigurðs-
sonar.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Högni hrekkvísi.
Uppáhaldssjónvarpsefni: ’92 á Stöð-
inni.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Pass.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás tvö.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Stefán
Jón Hafstein.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Kringlukráin.
Uppáhaldsfélag i íþróttum: KR.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtiðinni? Að lifa lífinu lifandi.
Hvað gerðir þú i sumarfríinu? Hélt
áfram aö byggja húsið mitt og æth
ég haldi ekki áfram á þeirri braut
næsta sumar.
-hlh