Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1992, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1992, Page 12
12 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992. íslenskur strákur óvænt í sýningu með sænska þjóðleikhúsinu: Stóð skyndilega á sviðinu í stóru hlutverki „Leiðbeinandinn minn hjá ungl- ingaleikhúsinu hringdi í mig og spurði hvort ég vildi vera með þeg- ar hópur frá sænska þjóðleikhús- inu kæmi með sýningu kvöldið eft- ir. Hún sagði að ég fengi borgað fyrir. Mér leist strax vel á það. Hún sagði mér að mæta klukkustundu fyrir sýningu en þegar ég mætti fékk ég að vita að ég ætti reyndar að vera mættur tveimur klukku- stundum fyrir sýningu. Ég var sett- ur inn í hlutverkið í hvelli og áður en ég vissi af stóð ég á sviðinu í stóru hlutverki," segir Snorri Öm Clausen, 11 ára strákur, en hann lék í leikritinu Vojeck sem leikhóp- ur frá sænska þjóðleikhúsinu í Stokkhólmi, Rigsteatern, fór með um Svíþjóð í haust. Snorri býr ásamt foreldrum sín- um og yngri systur í bænum Skövde í Mið-Svíþjóð. Frá því í ág- úst hefur hann verið á námskeiði hjá unghngaleikhúsi sem tengist menningarmiðstöð bæjarins. Sænska þjóðleikhúsið fer reglulega með sýningar sínar í ferðalag um Svíþjóð. Þegar krakkar eru í sýn- ingunum er sá háttur hafður á að notast er við krakka á hverjum stað þar sem sýnt er. Ekki þykir ganga að láta krakka á skólaaldri þvælast með leikhópnum í marga mánuði. Hópur krakka í leikhópum víðs vegar um Svíþjóð er settur inn í leikritin sem eru væntanleg til heimabyggðar þeirra og síðan er vahð úr hópnum þegar þjóðleik- húshópurinn er á næsta leiti. Snorri var einmitt valinn þegar Rigsteatern sýndi leikritið Vojtsek eftir Þjóðverjann Georg Buchner tvo daga í nóvember síðastliðnum. Snorri lék þar son Vojtsek, aðalper- sónu leikritsins. Með fiðring í maganum „Ég hélt að ég ætti að standa ein- hvers staðar á bak við og gera ósköp lítið en lenti í stóru hlutverki og var mjög mikið á sviðinu ahan tímann, en leikritið stendur yfir í tvo tíma. Ég var náttúrlega með fiðring í maganum meðan við renndum yfir hlutverkið rétt fyrir sýningu. Ég átti ekki að segja svo mikið og aðaheikkonan, móðir mín í leikritinu, leiddi mig áfram svo þetta var ekki svo voðalega erfitt þegar ég var kominn inn á sviðið." Snorri Öm hefur búið ásamt for- eldrum sínum og systur í bænum Skövde í Mið-Svíþjóð, milli vatn- anna Vánen og Váttern, í bráðum þrjú ár. Skövde er 50 þúsund manna bær en þar búa um 20 ís- lenskar fjölskyldur. Þær tengjast flestar lénssjúkrahúsinu á staðn- um. Atvinnulíf í Skövde byggist á sjúkrahúsinu og bílvélaverskmiðj- um Volvo. Snorri Orn Clausen, 11 ára, lenti óvænt á leiksviði með leikhóp frá sænska þjóðleikhúsinu sem sýndi leikrit- ið Vojtsek í Svíþjóð í nóvember. Snorri hefur mikinn áhuga á leiklist og því óhætt að segja að blásið hafi byrlega fyrir pilti. Sænsku leikararnir voru mest hissa á að hann væri íslenskur, það var ekki hægt að heyra á framburði hans. DV-mynd Hanna Snorri i einu atriða leikritsins Vojtsek sem sænska þjóðleikhúsið kom með til heimabæjar hans í Svíþjóð. Er „móðir hans“ þarna á eintali við hann. Faðir Snorra, Mikael Clausen, er í framhaldsnámi í barnalækning- um á sjúkrahúsi bæjarins. Móðir hans, Elínborg Ragnarsdóttir, kennir rúmlega 20 íslenskum böm- um í bænum móðurmál. Misstu af leikritinu fyrir hlé Foreldrarnir mættu náttúrlega tíl að sjá son sinn á leiksviðinu og urðu heldur en ekki krossbit þegar þeir uppgötvuðu að hann var í svo stóm hlutverki. „Við héldum að hann ætti að standa einhvers staðar á bak við, vera aukapersóna sem sæist ekki mikið. Því var okkur aldeilis brugðið að sjá hann í miðju at- burðarásarinnar. Við vorum svo upptekin af að horfa á Snorra að við misstum eiginlega af sjálfu leik- ritinu fyrir hlé.“ - Hvernig var þér tekið, Snorri, og hvernig gekk? „Það gekk mjög vel og mér þótti þetta mjög skemmtilegt. Ég var með smáfiðring fyrir sýningarnar en losnaði fljótt við hann. Fólkið í leikhópnum tók mér hka mjög vel og var mjög hjálplegt. Þau voru ánægð með frammistöðuna hjá mér en urðu mjög hissa þegar ég sagði þeim að ég væri íslendingur. Þau ætluðu varla að trúa því þar sem ekki var hægt að heyra það á sænskunni minni.“ - Hvað fékkstu nú fyrir að leika í tveimur sýningum? „Ég fékk 2 þúsund sænskar krón- ur (um 20 þúsund íslenskar) og það þótti mér eiginlega merkilegast. Ég lagði hluta af peningunum fyrir en notaði þá líka í jólafríinu hérna á Islandi. Þó á ég enn þúsundkall í veskinu," sagði Snorri þar sem hann sat í stofunni heima hjá föð- urafa og ömmu í Kópavogi á sunnudaginn. Fjölskyldan hélt ut- an á mánudag og nokkuð víst þyk- ir að Snorri heldur áfram í leiklist- inni. Eru aö æfa Hamlet „Við erum að æfa Hamlet í ungl- ingaleikhúsinu en þar leik ég reyndar ekki stórt hlutverk. En það er mjög gaman að vera með.“ Snorri á ekki langt að sækja áhuga á leiklist en föðurbróðir hans, Andri Örn Clausen, og kona Andra, Elva Ósk Ólafsdóttir, eru leikarar og dvöldu þar til fyrir skemmstu í Svíþjóð. Snorri veit ekki hvort hann leggur leiklistina fyrir sig sem ævistarf en hann var þó á þeim buxunum fyrst eftir sýn- ingarnar með Rigstatern. Áhuginn er enn á sínum stað og ekki vantar hvatningu að heiman. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.