Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1992, Síða 19
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992.
19
Það á margt eftir að gerast í nýrri áttatíu mynda seriu um Fjölskyldulíf á næstu vikum en Sjónvarpið hefur sýningu
á þáttunum á nýjan leik á þriðjudag.
Fjölskyldulíf á ný í Sjónvarpinu:
Fjölskylduvanda-
málin gerast stærri
- aðdáendur þáttanna fá 80 þátta skannnt
Pantanir í síma 91-22919
Fax 91-44919
H.E.K.A. auglýsingavörur
STAÐARNET
Innkaupastofnun ríkisins, Borgartúni 7, Reykjavík, fyrir hönd
dómsmálaráðuneytis, Arnarhvoli, Reykjavík, óskar eftir tilboðum
í staðarnet á fimm sýsluskrifstofum.
Verkið felst meðal annars I tengingu lagnakerfis með samtals um
190 úttökum, vélbúnaði lagnakerfis, netstjóra ásamt fylgibúnaði,
gátt, 20 eldri notendatölvum og prenturum, 50 nýjum notenda-
tölvum og prenturum, niðurtekt á núverandi tölvukerfum, kennslu,
handbókum og fleira. Verkkaupi útvegar notendabúnað og strengi
fyrir lagnakerfi.
Verkinu skal lokið fyrir 15. júni 1992, að meðtöldum 4 vikna
reynslutíma.
Einn af vinsælustu þáttum Sjón-
varpsins sl. vetur var án efa Fjöl-
skyldulíf. Þættimir, sem voru
hundrað og fjórir talsins, voru unnir
í samvinnu Astrala og Breta. Nú hef-
ur Sjónvarpið fengið annan skammt
af þessum þáttum og hefst sýning
þeirra á þriðjudag. Þættimir verða
sýndir þrisvar í viku, mánudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga, eins og í
fyrra klukkan sjö á kvöldin.
Fjölskyldulíf fjallar, eins og nafnið
gefur til kynna, um fjölskyldu.
Reyndar er það ekki aðeins ein held-
ttr tvær fölskyldur sem em í sviðs-
ljósinu. Önnur býr í Bretlandi en hin
í Ástralíu.
Breski eiginmaðurinn bamaði
unga ástralska stúlku fyrir tuttugu
árum án þess að vita um það. Hún
kom til Bretlands til að heimsækja
föður sinn á þeim tíma. Þegar erfið-
leikar koma upp hjá honum, bæði í
starfi og einkalífi, ákveður hann að
fara til Ástralíu og freista þess að
hitta gömlu kærustuna.
Síðasta þáttaröð fjallaði einmitt um
þær flækjur sem komu upp. Sonur
Bretans og áströlsku kæmstunnar
hafði hins vegar farið til Englands
þar sem hann varð ástfanginn af
hálfsystur sinni.
í lok síðasta þáttar í fyrravetur var
breski eiginmaðurinn myrtur af bróð-
ur sínum og var það sýnt á sínum
tíma. Hins vegar byija nýju þættimir
á gátunni um hver myrti manninn
þannig að segja má að sakamálasagan
verði allsráðandi til að byrja með.
Fjölskyldumar, sem leika hér aðal-
hlutverk, em millistéttarfólk og því
ekki mikill Dallas-glamúr í þáttum
þessum. Þeir þykja nokkuð raunsæir
og margir geta þekkt sjálfa sig í dag-
lega lífinu eins og það gerist hjá
þessu fólki.
Aðdáendur Fjölskyldulífs geta far-
ið að hlakka til vetrarins og fylgst
með fjölskylduflækjunum að loknum
kvöldverði.
Diana Stevens (Briony Behets) leik-
ur áströlsku eiginkonuna í þáttun-
um. Hún eignaðist bam með bresk-
um manni fyrir tuttugu árum og það
varð þeim afdrifaríkt.
Bróðirinn John Thompson kemur
mikið við sögu í næstu þáttum, enda
varð hann valdur að dauða bróður
sins.
Ástralskir þættir hafa notið mikílla
vinsælda hér á landi og er skemmst
að minnast Yngismeyjunnar sem
sýnd var fyrir nokkru. Auk þess mun
þessi sjónvarpstími vera vinsæll hér
á landi.
-ELA
Útboðsgögn eru afhent hjá Innkaupastofnun ríkisins, Borgartúni
7, Reykjavík, eftir kl. 13.00 mánudaginn 20. janúar 1992 gegn
10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð hjá Innkaupastofnun ríkisins kl. 11.00 þriðju-
daginn 11. febrúar 1992.
IIMIMKAUPASTOFNUN RIKISINS
_________BORGARJUNI 7 |()S^REYKJAVIK_
Hámarksgreiðslur
fyrir læknisþjónustu og heilsugæslu árið 1992 eru 12.000 kr.
Fyrir elli- og örorkulífeyrisþega er upphæðin 3000 kr.
Öll börn yngri en 16 ára í sömu fjölskyldu eru talin saman og er hámarksgreiðsla
fyrir læknis- og heilsugæsluþjónustu þeirra samtals 12.000 kr. á ári.
Munið að fá alltaf kvittun fyrir greiðslum
Á kvittuninni skal vera nafn útgefanda, tegund þjónustu, dagsetning og upphæð,
ásamt nafni og kennitölu sjúklings.
Fríkort
Þegar hámarksupphæð á ári er náð, skal framvísa kvittunum hjá Tryggingastofnun
ríkisins eða umboðum hennar utan Reykjavíkur. Þá fæst fríkort, sem undanþiggur
handhafa frekari greiðslum vegna læknisþjónustu til áramóta.
Þó þarf að greiða fyrir læknisvitjanir, en gjaldið lækkar við framvísun fríkorts.
Gjald fyrir læknisvitjun er þá 400 kr. á dagvinnutíma og 900 kr. utan dagvinnutíma.
Gegn framvísun fríkorts greiða elli- og örorkulífeyrisþegar 150 kr. á dagvinnutíma
og 300 kr. utan dagvinnutíma.
Börn undir 16 ára aldri í sömu fjölskyldu fá sameiginlegt fríkort, með nöfnum
þeirra allra.
í Reykjavík fást fríkortin í afgreiðslu Tryggingastofnunar ríkisins, Tryggvagötu 28.
Annars staðar eru þau afhent á skrifstofum sýslumanna og bæjarfógeta.
TRYGGINGASTOFNUN ^7 RÍKISINS
Geymið auglýsinguna