Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1992, Síða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1992, Síða 51
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992. 63 Hvemig bregst fólk við tugmilljóna happdrættisvinningum? Héldum áfram að lifa venjulegu lífi - segir Emil Þór Guðbjömsson, Stykkishólmi, sem fékk þann stóra fyrir 12 árum „Umboðsmaðurinn kom og sagði mér frá vinningnum þar sem ég stóð á kafi í húsbyggingu. Manni leið óneitanlega svolítið undarlega í fyrstu og það tók nokkra daga að átta sig á þessu skyndilega ríki- dæmi. En við flippuðum alls ekki út. Við héldum okkar venjulega lífi áfram og tókum engin aukafrí í viimu, héldum okkar striki. Það hef- ur kannski hjálpað okkur meira en annað til aö átta okkur á þvi að vera skyndilega orðin milljónamæring- ar,“ sagði Emil Þór Guðbjömsson, sjómaður og flmm barna faðir í Stykkishólmi, í samtali við DV. Emil datt heldur betur í lukkupott- inn í desember 1979. Þá fékk hann hæsta mögulega vinning hjá Happ- drætti Háskóla íslands, 5 milljónir króna á nífaldan miða eða samtals 45 milljónir. Á þessum tíma var gamla krónan enn við lýði og bull- andi verðbólga, nokkuð sem gerir mönnum erfitt fyrir þegar reikna á hve hár þessi vinningur er að nú- viröi. Reiknimeisturum brá því held- ur hetur þegar framreikningar þeirra fæddu af sér töluna 14,2 milij- ónir. Hæsti vinningur í sama happ- drætti fyrir áramót var einmitt 45 milljónir króna, þrisvar sinnum hærri að raunvirði en fyrir 12 árum. Margurverður af aurum api Hvað sem reiknikúnstum líður voru 45 miUjónir mikill peningur 1979 og varla eru þeir til í dag sem myndu segja nei takk við tæpum 16 milljónum króna, sömu upphæð og ung, einstæð móðir vann í lottóinu fyrir viku. Margur verður af aurum api, segir máltækið og vist er að í því felast einhver sannleikskom. Þegar fólk fær stóra peningavinninga í happ- drættum, lottói eða getraunum velta margir fyrir sér hvort það flippi ekki út, missi hreinlega vitið og eyöi öllu saman í einhveija vitleysu. Fyrir fá- einum árum gekk saga um hjón er unnu yfir 10 milljónir og misstu jarð- sambandið. Eftir mikla eyðslu og læti fór hjónabandið út um þúfur og tómahljóðið ómaði í peningakassan- um. En svo virðist ekki fara hjá eins mörgum og maður kynni að halda. Gamlir stórvinningshafar vom reyndar heldur tregir að tjá sig við DV um hvemig þeim hefði famast eftir að hafa fengið þann stóra en í öllum tilvikum mátti ráða að fólk hefði haldið jarðsambandi, verið sæmilega skynsamt. Kláraði húsið og skuldimar „Á þessum tíma var gífurleg verð- bólga og peningamir brunnu nema maður eyddi þeim sem fyrst. Það var sagt að best væri að setja peningana í steinsteypu eða íbúðarhús. Ég var langt kominn með húsið mitt og var auðvitað skuldugur upp fyrir haus eins og aðrir húsbyggjendur. Ég ákvað að greiða mínar skuldir strax að fullu og kláraði húsið. Afganginn reyndi ég síðan að ávaxta að mestu leyti og þeir peningar hafa komið sér vel síðan. Ég bý enn að því að hafa fengið þennan vinning og mun gera það alia mína ævi. Ég er aila vega laus við aö borga skuldir," sagði Emil. Emil heldur sínu striki í vinnu eins og hann hefur alla tíð gert. Hann vasast í trilluútgerð á sumrin en Emil Þór Guðbjörnsson heldur þarna á happdrættismiðanum góða sem gaf 45 milljónir fyrir 12 árum. Á myndinni eru einnig kona hans, Hrafnhild- ur Jónsdóttir, og börnin, f.v.: Dagur, Guðbjörn og Bjarndís. Á myndina vantar Jón Sindra, 3 ára. DV-mynd Kristján Sigurðsson Frétt Dagblaðsins þar sem sagt er frá nýbökuðum margmilljónara í Stykkis- hólmi og viðbrögðum hans þegar umboðsmaður happdrættisins sagöi hon- um tíðindin. ræður sig á stærri báta yfir veturinn. „Við reyndum að láta milljónimar ekki hafa nein áhrif á okkur og mér sýnist okkur hafa tekist það bæri- lega.“ - Fólk hefur kannski átt von á að þið munduð springa í eyðslusemi? „Það áttu sjálfsagt flestir von á því þar sem 45 milljónir vom ansi mikil upphæð í þá daga. En ég man að á þessum árum ókum við um á lélegri bfldmslu eins og aðrir skuldum vafnir húsbyggjendur. Ég var reynd- ar ekki með neina bíladellu en ákvað þó að fara suður og kaupa mér nýjan bfl. Við höfðum satt að segja næga peninga til að kaupa þann bfl sem okkur langaði í. Nú, við hjónin örk- uðum úr einu bílaumboði í annað. Okkur leist ekki sérlega vel á neinn bíl sem við skoðuðum og vorum orð- in ansi þreytt á þessu rápi þegar viö vorum stödd fýrir framan Löduum- boðið. Tfl að gera langa sögu stutta varð rápiö ekki lengra. Ég held að ég hafi hneykslað marga þegar ég kom akandi heim í Stykkishólm á Lödu sport. Menn áttu von á Range Rover eða þvflíku en slíkur bfll kost- aði þá um 17 mflljónir." - Fómð þiö ekki í ferðalög? „Nei, og ég hef ekki enn komið tfl sólarlanda. Við fórum í vikuferð tfl London fimm árum seinna en sú ferð stóð ekki í neinum tengslum við vinninginn.“ Dagblaðið með fréttina Á þessum tíma áttu Emfl og Hrafh- hfldur tvö böm. Þau vom þá svo ung aö stóri vinningurinn hafði engin áhrif á þau og hefur ekki haft. Emfl forðaðist mjög allt umtal á sínum tíma en slapp þó ekki undan blaðamönnum Dagblaðsins sem höfðu upp á honum og birtu frétt um Emfl á forsíðu daginn eftir aö dregiö var. „Þeir vom fljótir að þvi,“ sagði hann. í fréttinni er rætt viö umboðs- mann happdrættisins í Stykkishólmi og segir hann meðal annars: „Þau hjón hafa verið með þessa röð og sagði Hrafnhildur að hún hefði verið að reyna að fá Emfl tfl þess að hætta við miðana en hann sagðist fá þann stóra næst.“ - Þó langt sé um hðið hlýtur gamall mflli að geta gefið þeim sem vinna þann stóra í dag einhver ráð. „Ég veit það nú ekki. Það er þá helst að fólk á að láta líða dágóðan tíma áður en það tekur ákvörðun um hvað gera á við peningana. Annars er miklu auðveldara að tryggja pen- ingana sína í dag en það var árið 1979. Nú er hægt að setja peninga í alls kyns bréf og fleira svo þeir verði ekki að neinu. 1979 brunnu pening- amir hins vegar upp í óðaverðbólgu. Það er auðveldara að vera happ- drættismUli í dag en það var fyrir 12 árum.“ Datt aftur í lukkupottinn Emil á gamla númerið ennþá, 51.931, en bara trompmiðann. Gömul vinkona Emils vildi endflega eignast hlut í númerinu og keypti einfoldu miðana. Enginn vinningur hefur komið á miðann síöan en það er ekki þar með sagt að Emfl hafi ekki dottiö í lukkupottinn aftur. „Okkur var boðið suður á vegum Happdrættis Háskólans, í samkvæmi og til að skoða húsakynni og aðstöðu happdrættisins. Þá keypti ég mér nífaldan miða og fékk kvittun fyrir að hafa endumýjaö út árið. Eftir að heim kom týndi ég kvittuninni og gleymdi öllu um miðann. Ári síðar, í desember, fékk ég skyndflega 900 þúsund króna ávísun með póstinum. Þá hafði komið 100 þúsund króna vinningur á númerið. Þessi vinning- ur kom mér eigmlega meira á óvart en fyrsti vinningurinn. Reyndar hætti ég fljótt með þetta númer og á bara trompmiðann í dag.“ - Þérhefurþáekkilitistáaðmilljón- imum færi beinlínis að rigna yfir þig? „Æ nei, það gat ekki gengið," segir Emfl Þór Guðbjömsson og hlær við. Tvisvar 5 milljónir í lottói „Ég sleppti mér ekki neitt og var kirfilega fastur með báöa fætur á jörðinni eins og ég var vanur. Og er það enn. Þetta var náttúrlega mikil upphæð. í seinna skiptið var fyrsti klukkutíminn eftir að dregið hafði verið mér erfiður og þutu margar hugsanir um huga mér. Ég óskaði þess að fleiri yrðu með fimm réttar tölur en ég. Ég hef ekkert við 29 millj- ónir að gera,“ sagði Guðmundur Skúlason, bifreiðarstjóri á Hellu. 1990 var sannkallað happaár fyrir Guðmund. Hann vann tæpar 5 millj- ónir í lottóinu 21. júlí það ár og svo aftur rúmar 5 milljónir 29. desember. í seinni drættinum vom um 29 millj- ónir í pottinum og var Guðmundi ekki farið aö htast á blikuna. Mflljón- imar urðu 5 þegar upp var staðið. Þrátt fyrir 10 mflljónir á 5 mánuðum hélt hann ró sinni. „Þessir peningar hafa ekki breytt manni neitt. Eg hef haldið mínu striki, fer daglega til vinnu og læt hvem dag hða eins og dagamir vom vanir að hða áður en peningamii komu til sögunnar. Ég held bara utan um mitt og er ánægður með tilveruna eins og hún er.“ - Hefurðu einhver ráð tfl þeirra sem verða skyndflega ofsaríkir? „Það er best að leyfa fólki að átta sig á svona hlutum. Númer eitt er að halda ró sinni og gera sér grein fyrir að maður getur ekki boðið öh- um heiminum birginn." -hlh í l2/VL£ A Ð A L S T AOAISTRÆTI ló • 101 REYKJAVÍK • SÍMI Ó2 15 20 LAUGARDAGUR 18.1.’92 Kl. 08 AÐALATRIÐIN OG KOLAPORTIÐ Umsjón Hrafnhildur. Kl. 13 REYKJAVÍKUR- RÚNTURINN Umsjón Pétur Pétursson. Kl. 15 GULLÖLDIN Umsjón Sveinn Guðjóns- son. Kl. 17 BANDARÍSKI SVEITA- SÖNGVALISTINN Umsjón Baldur Bragason. -Á MORGUN - Kl. 13 SUNNUDAGUR MEÐ JÓNI Umsjón Jón Ólafsson. Kl. 22 í EINLÆGNI Umsjón Jónína Benedikts- dóttir. Aðalstöðin þín RODD FOLKSINS - GEGN SIBYLJU Veður Fram eftir morgni verður sunnan stinningskaldi og rigning eða súld viða um land. Smám saman lægir og dregur úr úrkomu og víða verður þurrt siðdegis. I kvöld og nðtt fer aftur að rigna með heldur vax- andi suðaustanátt, fyrst suðvestanlands. Hlýtt verður um mestallt land. Akureyri súld 8 Egilsstaðir skýjað 6 Keflavikurflugvöllur súld 8 Kirkjubæjarklaustur rigning 4 Raufarhöfn rigning 2 Reykjavík súld 8 Vestmannaeyjar súld 7 Amsterdam skýjað 6 Barcelona léttskýjað 1 Chicago alskýjað -3 Feneyjar þoka -2 Frankfurt rigning 3 Glasgow skýjað 5 London þoka 0 LosAngeles hálfskýjað 14 Lúxemborg þokumóða 2 Malaga léttskýjað 7 Mallorca þokumóða 1 New York alskýjað -8 Nuuk rigning 1 Orlando heiðskírt 3 París skýjað 4 Valencia þokumóða 4 Winnipeg skafrenning- -19 Gengið Gengisskráning nr. 11. -17. janúar 1992 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 58,690 58,850 55,770 Pund 102.825 103,105 104,432 Kan. dollar 50,847 50,985 48,109 Dönsk kr. 9,2871 9,3124 9,4326 Norsk kr. 9,1560 9,1810 9.3183 Sænsk kr. 9,8838 9,9107 10,0441 Fi. mark 13,2140 13,2500 13,4386 Fra. franki 10,5558 10,5845 10,7565 Belg. franki 1,7463 1,7511 1,7841 Sviss. franki 40,6159 40,7266 41,3111 Holl. gyllini 31,9488 32,0359 32,6236 Þýskt mark 35,9675 36,0656 36,7876 It. líra 0,04780 0,04793 0,04850 Aust. sch. 5.1096 5,1235 5,2219 Port. escudo 0,4162 0,4173 0.4131 Spá. peseti 0,5684 0,5700 0,5769 Fiskmarkaðimir Fiskmarkaðurinn Hafnarfirði 17. janúar seldust alls 28.173 tonn. Magn í Verð í krónum tonnum Meöal Lægsta Hæsta Steinbítur 0,201 68,00 68,00 68,00 Koli 0,056 91,00 120,00 1 55,00 Rauðm./Gr. 0,037 137,03 120.00 155,00 Hlýri 0,061 68,00 68,00 68.00 Ufsi.ósl. 0,026 42.00 42,00 42.00 Karfi 0,033 48,15 25,00 57,00 Ýsa, ósl. 4,790 103.3C 99,00 108.00 Smáýsa, ósl. 0,345 60,00 60,00 60.00 Smáþorskur, ósl 2,213 65,19 63.00 67,00 Þorskur, ósl. 6,598 95.89 76,00 100,00 Lýsa, ósl. 0,101 70,00 70,00 70,00 Langa, ósl. 0,247 64.00 54,00 80,00 Ýsa 0,596 118.16 74,00 121,00 Smáþorskur 0,601 70,64 70,00 71.00 Þorskur 9,819 113,76 108,00 114,00 Steinbltur, ósl. 0.986 78,02 78,00 80,00 Lúöa 0,238 463,84 415.00 500,00 Langa 0.288 80,00 80,00 80,00 Keila, ósl. 0,884 50,00 50,00 50,00 Hrogn 0,053 189,81 170.00 205,00 Faxamarkaðurinn 17. janúar seldust alls 51.491 tonn Blandað 0,389 39.00 39.00 39,00 Gellur 0,121 256,65 215,00 325,00 Hrogn 0,069 281,01 270,00 290.00 Karfi 2,351 69,81 20,00 71,00 Keila 1,114 57,80 54,00 59,00 Kinnar 0,124 50,00 50,00 50,00 Langa 3,551 81,53 77.00 82.00 Lúða 0,556 380,56 270.00 440,00 Sf. bland. 0,012 95,00 95,00 95,00 Skarkoli 0,509 70,00 70,00 70,00 Steinbítur 0,734 62,28 50,00 65,00 Steinbítur, ósl. 0,619 80,00 80,00 80,00 Þorskur, sl. 3,494 110,25 90,00 115.00 Þorskur, ósl. 23,687 90.10 70,00 110,00 Ufsi.ósl. 0,077 41,00 41,00 41,00 Undirrnálsfiskur 4,999 64,31 41,00 73,00 Ýsa.sl. 1,580 111.39 94,00 116,00 Ýsuflök 0,059 170,00 170,00 170,00 Ýsa, ósl. 7,444 104,15 100,00 111.00 Fiskmarkaðurinn í Þorlákshöfn 17. janúar seldust alls 137.342 tonn. Blandað 0,015 26,00 26,00 26,00 Hnýsa 0,048 9,00 9,00 9,00 Karfi 0,030 44.00 44,00 44,00 Keila 0,405 59,00 59.00 59,00 Langa 0,315 80,00 80,00 80,00 Lúða 0,013 313,85 270.00 330,00 Skata 0,036 95.00 95.00 95,00 Skötuselur 0,020 260,00 260,00 260,00 Steinbítur 0,165 55,73 20,00 64,00 Þorskur, ósl. 1,462 99,24 97,00 100,00 Ufsi.ósl. 0,078 46,00 46.00 46,00 Ýsa.ósl. 2,610 104,01 90,00 107,00 Slld 132,144 9,00 9,00 9,00 :iskmarkaður Suðurnesja 17. janúar seldust alls 54.813 tonn. Þorskur, sl. 0,558 80,50 80,00 80,00 Ýsa,sl. 0,017 102,50 102,00 102,00 Þorskur, ósl. 34,927 107,18 70,00 117,00 Ýsa, ósl. 7,971 107,27 95.00 110,00 Ufsi 0,416 51,50 51,00 51,00 Karfi 0,155 67.50 67,00 67,00 Langa 0,046 72,28 59,00 80,00 Keila 1,384 35,70 20.00 49,00 Steinbitur 2,119 49.46 45,00 73,00 Hlýri 0,162 51.98 48,00 60,00 Skötuselur 0,228 300,11 296,00 310,00 Skata 0,033 100.50 100,00 100,00 Lúöa 0.543 453,22 240,00 635,00 Skarkoli 0,154 100,50 100,00 100,00 Undirm þorskur 6,100 55,91 54,00 57,00 MARGFELDI 145 PÖNTUNARSÍMI - 653900

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.