Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1992, Síða 3
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992.
3
Fréttir
30 málmiðnaðarmenn í Slippstöðinm með uppsagnarbréf:
Menn hálft í hvoru
skelf ingu lostnir
- segir formaður Félags málmiðnaðarmanna
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii
„Það er óhætt að segja að menn eru
hálft í hvoru skelfmgu lostnir yfir
því sem er að gerast í SUppstöðinni.
Verkefnastaðan hefur að vísu batnað
þar hægt og sígandi en er alls ekki
komin á það stig að menn hafi treyst
sér til að blása út af borðinu þessum
uppsögnum,1' segir Hákon Hákonar-
son, formaður Félags málmiðnaðar-
manna á Akureyri, en nú styttist
óðum sá tími sem um 30 málmiðnað-
armenn hjá Slippstöðinni hafa
trygga vinnu.
Uppsagnir málmiðnaðarmann-
anna áttu að koma til framkvæmda
um næstu mánaðamót, en vegna
óvenjumikilla verkefna í vetur var
uppsagnarfrestur þeirra framlengd-
ur um einn mánuð eða út febrúar.
Sigurður G. Ringsted, forstjóri Shpp-
stöðvarinnar, segir að allt sé gert sem
hægt er til að finna áframhaldandi
verkefni fyrir stöðina, það hafi tekist
eitthvað fram í marsmánuð en síðan
sé lítið fyrirsjáanlegt.
„Ef okkur tekst ekki að finna fleiri
verkefni þá koma þessar uppsagnir
einfaldlega til framkvæmda og ég vil
ekki gefa starfsmönnunum falskar
vonir um framhaldið. Það sem hefur
fyrst og fremst haldiö okkur gang-
andi í vetur er að óvenjumikið hefur
verið um shpptökur. Hins vegar er
staðreyndin sú að oft hafa verkefni
hrúgast hér inn á skömmum tíma
og auðvitað er ekki öll von úti enn,“
segir Sigurður.
„Því er ekki auösvarað hvað verð-
ur um þessa menn og þeirra verk-
þekkingu og reynslu ef uppsagnirnar
koma til framkvæmda eftir rúman
mánuð,“ segir Hákon Hákonarson.
„Málmiðnaðarmenn hafa í mörgum
tilfellum snúið sér að öðrum störfum
í svona erfiðleikum, í öðrum tilfell-
um hafa þeir beðið þess að ástandið
batnaði aftur, en þriðja leiðin og sú
alvarlegasta er að menn taki þá
ákvörðun aö flytja burt úr bænum.
Þessir möguleikar eru allir fyrir
hendi," sagði Hákon.
Hryssan Gjóska ásamt folaldi sínu sem hún kastaði 17. janúar siðastliðinn. Gjóska, sem er átján vetra, hefur
verið folaldslaus í þrjú ár og stóð til að lóga henni. DV-mynd JGA
Hryssa kastaði í janúar:
„Jafnvel einsdæmi"
„Þetta er mjög óvenjulegt og jafn-
vel einsdæmi að ég held að hryssa
kasti í janúar." Þetta segir Skúh Sig-
fússon, bóndi í Gröf í Víðidal, en átj-
án vetra hryssa hans, Gjóska, kastaði
þann 17. janúar síðasthðinn.
„Hún hefur verið folaldslaus í þrjú
ár og ég ætlaði að lóga henni en
hætti náttúrlega við það núna.“
Vegna veðurblíðunnar eru mæðgin-
in úti ásamt öðrum hrossum en þau
eru tekin heim að húsum þar sem
þeim er gefið. Sigurður segist hafa
það eftir dýralækni að hætta sé á lifr-
arbólgu ef hryssur, sem nýlega hafa
kastað, eru hafðar á húsi. Hann
kveðst þó verða að taka hana í skjól
ef veður versnar.
Það er venjulega ekki fyrr en upp
úr miðjum maí sem hryssur hjá
Skúla byrja að kasta. Hann veit þó
dæmi um það hjá öðrum að hryssa
hafi kastað í febrúar. „Ég haföi ekki
hugmynd um að Gjóska væri komin
að köstun. Ég var aö fara til hrossa
þegar ég kom auga á hana og var hún
þá nýbúin að kasta.“ -IBS
ÁSKMFTARSÍMINN
FYWIR IANPSBYOOIHNA:
99-6270
— talandí daemi um þjónustu
UPPSELT
KX-T 2386 BE Verð kr. 12.332 stgr.
Simi meö simsvara — Ljós i takkaboröi — Útfarandi skila-
boö upp í Vz mín. — Hver móttekin skilaboð geta veriö
upp I 2Vi mín. — Lesa má inn eigin minnisatriöi —
Gefur til kynna að 15 skilaboð hafa verið lesin inn —
Hægt að ákveða hvort sfmsvarinn svari á 3 eða 5
hringingu — Tónval/púlsval — 15 minni, þar af 3
númer fyrir hraðval — Endurhringing — Hægt að
geyma viðmælanda — Stillanleg hringing —
Hljóðstillir fyrir hátalara — Veggfesting.
KX-T 2365 E Verð kr. 10.849 stgr.
Skjásimi, sem sýnir klukku, símanúmer sem val-
ið er, tfmalengd simtals — Handfrjáls notkun —
28 beinvalsminni — Endurhringir sjálfkrafa 4
sinnum — Hægt að setja simanúmer i skamm
tlma endurvalsminni — Hægt að geyma við-
mælanda — Tónval — Stillanleg hringing —
Hægt að setja símanúmer i minni á meðan
talað er — Veggfesting.
KX-T 2322 E
KX-T 2342 E Verð frá kr. 5.680 stgr.
KX-T 2342 E handfrjáls notkun - KX-T 2322 E hálf-
handfrjáls notkun — 26 númera minni, þar af 6
númer fyrir beinval — Endurhringing — Hægt er
að setja síðast valda númer i geymslu til endur-
hringingar, einnig er hægt að setja símanúmer í
skammtíma minni á meðan talað er — Tónval/
púlsval — Hljóðstillir fyrir hátalara — 3 stilling-
ar fyrir hringingu — Veggfesting.
PAIMAFAX UF 121
Verð kr. 64.562,-stgr.
Telefaxtæki með 10 númera skammvals-
minni — Allt frá stuttum orðsendingum til
Ijósmynda — Sendir A4 slðu á aðeins 17
sekúndum — í fyrirtækiö — Á heimilið.
HEKLA
LAUGAVEGI 174
S.695500/695550
FARSÍMI Verð frá kr. 96.775 stgr.
Panasonic farsíminn er léttur og meðfærilegur,
vegur aðeins 4,9 kg. og er þá rafhlaöan meðtalin.
Hægt er að flytja tækið með sér, hvenær og hvert
sem er, en einnig eru ótal möguleikar á að hafa
símtækið fast I bllnum, bátnum eða sumarbú-
staðnum.
» BOKAMARKAÐUR ARNAR OG ORLYGS « BOKAMARKAÐUR ARNAP. OG ORLYGS « BOKAMARKAÐUR ARNAR OG ORLYGS « BÓKAMARKAÐUR ARNAR OG ÖRLYGS •
BOKÍMARKAMR
sss ArnarogÖrlygs —
17. JANUAR TIL 1. FEBRUAR
NÚ tR TÆKIFÆRID TIL ÞtSS AD LíGGJA
GRUNN AÐ GÓDU HtlMILISBÓKASAFNI.
0PIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA KL. 9 -19
LAUGARDAGA KL. 10 -18 OGSUNNUDAGA KL.11-16
ORN OG MN ORLYGUR
SIÐUMULA 11 SIMI 684866
BÓKAMARKAÐUR ARNAR OG ÖRLYGS • BÓKAMARKAÐUR ARNAR OG ÖRLYGS • BÓKAMARKAÐUR ARNAR OG ÖRLYGS « BÓKAMARKAÐUR ARNAR OG ÖRLYGS