Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1992, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1992.
Fréttir
DV
Landakotsspítali:
Engar ákvarðanir leknar um
endurráðningu starf sfólks
búið að rústa spítalann, segir framkvæmdastjórinn
Logi Guöbrandsson, fram-
kvæmdastjóri Landakotsspítala, seg-
ir engar ákvarðanir liggja fyrir varö-
andi endurráðningu starfsmanna
spítalans. Ljóst sé þó aö stór hluti
þeirra, eða allt að helmingur, fái ekki
endurráöningu. Hann segir að með
skertri fjárveitingu í ár sé í raun
búið að rústa spítalann.
Um mánaðamótin gengu í gildi
uppsagir um 600 starfsmanna
sjúkrahússins. Uppsagnarfrestur
flestra er 3 mánuðir. Óljóst er hvort
þeir starfsmenn, sem taka laun sam-
kvæmt kjarasamningum ríkisins,
hafi rétt til biðlauna en reynist svo
vera munu til dæmis hjúkrunar-
fræðingar og sjúkraliðar fá laun í 6
til 12 mánuði eftir starfslok. Framlag
ríkisins til spítalans á þessu ári er
950 milljónir
Logi vill ekki upplýsa hvort og þá
hversu margir starfsmenn eigi rétt á
biölaunum. Reynist rétturinn hins
vegar vera til staðar muni óhjá-
kvæmilega koma til enn harðari
samdráttar í starfsemi spítalans.
Hann segir að undir slikum kring-
umstæðum myndi hefðbundin starf-
semi í raun leggjast af. Aðspurður
neitar Logi að til uppsagna hafi verið
gripið til að skapa þrýsting á aukna
fjárveitingu.
Að sögn Loga eru engar hugmynd-
ir uppi um það að breyta deildum
Landakotsspítala í hjúkrunardeildir
fyrir aldraða. Þá hafi heldur ekki
komið til tals að læknar spítalans
taki hluta hans á leigu til aö selja
þjónustu sína á opnum markaöi.
Aðspurður útilokar hann ekki þessa
leið en bendir á að slík einkavæðing
væri pólitískt eldfimt mál og laga-
og reglugerðabreytingar þyrfti til.
Meðal starfsfólks spítalans ríkir
mikil óvissa um framtíöina og
gremju hefur orðið vart í garð stjórn-
enda hans. Þykir mörgum óeðlilegt
að ákvarðanir um framtíð spítalans
séu ekki teknar í samráði við starfs-
fólk. Að sögn Loga verður haft sam-
ráð við starfsfólkið þegar línur skýr-
ast en þangað til nær óvissan jafnt
til stjómenda sem annarra. Hann
segir engar viðræður enn hafa farið
fram við sfjómvöld um framtíð spít-
alans né varðandi auknar fjárveit-
ingar.
-kaa
Smári Garðarsson, „yfirtippari" Golfklúbbs Akureyrar, með vinningsmiðann sem færði golffélögum fyrir norðan
tæpar 11 milljónir króna.
Knattspymugetraunir:
GoH menn á Akureyri
fengu 10,8 milljónir
Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyii;
„Það gekk ýmislegt á meðan á leikj-
unum stóð og útlitið var ekki gott í
hálfleik. Þá var reyndar allt í rúst
hjá okkur, tryggðir leikir virtust ætla
að fara á annan veg en við héldum
og svo bárast líka rangar upplýs-
ingar mn stöðu í einhverjum leikj-
um. Mann langaði mest að hlaupa tíl
flalla og það var ekki fyrr en leikjun-
um var lokið og við fórum aö fara
yfir seðilinn í tölvunni að í Ijós kom
hvað hafði gerst," segir Smári Garð-
arsson, starfsmaður Golfklúbbs Ak-
ureyrar, en félagar í klúbbnum unnu
10,8 miHjónir króna í knattspymu-
getraunum um helgina. Alls komu
fram 10 raöir með alla 13 leiki seðils-
ins rétta, 8 þeirra vom í Svíþjóð, ein
kom á tölvuvalseöil í Reykjavík og
kylfingamir fyrir norðan áttu eina
röðina.
Þeir hafa „tippað“ saman síðan í
desémber og alltaf unnið einhveija
smávinninga. í síðustu viku var sent
dreifibréf til félaga klúbbsins þar
sem þeir vora hvattir til að mæta í
golfskálann og taka þátt í „tippinu".
„Stóri vinningurinn er á næsta leiti,“
sagði m.a. í dreifibréfinu.
Smári Garðarsson segir að um 50
manns hafi verið með um helgina
þegar stóri vinningurinn kom og
menn lögðu fram 1000-3000 krónur.
Niðurstaðan er sú að 1000 krónumar
gefa viðkomandi rúmlega 130 þúsund
krónur. Alls vora um 8000 raðir í
kerfinu en heildarsala Golfklúbbsins
þessa helgi nam tæplega 14 þúsund
röðum.
„Það er auðvitað gaman þegar
svona gengur og nú setjum við stefn-
una á að tvöfalda getraunamiðasölu
klúbbsins. Það verður ekkert gefið
eftír núna,“ sagði Smári Garðarsson
kampakátur, og hafði fulla ástæðu
tíl.
Mosfellsbær:
Róbert B. Aqnarsson næsti bæjarstjóri
Meirihluti bæjarstjómar Mosfells-
bæjar hefur tekiö ákvörðun um aö
ráöa Róbert B. Agnarsson í starf
bæjarstjóra. Róbert gegnir nú starfi
framkvæmdastjóra Kísiliðjunnar.
Aö sögn Þengils Oddssonar, forseta
bæjarstjómar, bárast alls 32 um-
sóknir um starf bæjarstjóra. Meiri-
hlutinn ákvaö að ganga tíl samninga
viö Róbert. Verður ráðning hans lögð
fyrir bæjarstjómarfund sem haldinn
verður á morgun, miðvikudag.
Páll Guðjónsson er fráfarandi bæj-
arstjóri. Hann sagöi starfi sínu lausu
fyrir nokkra. Þengill sagði ekki alveg
ljóst hvenær nýi bæjarstjórinn kæmi
til starfa. Það yrði eins fljótt og unnt
væri.
-JSS
Bifreiðatryggingar:
Höf um náð góð-
um árangri
- segirGísliLárusson,fors1jóriSkandia
„Það eru vel á annað þúsund bíl-
eigendur sem hafa tekið ákvörðun
um að tryggja hjá okkur. En það er
nijög stór hópur fólks sem hefur sagt
tryggingum sínum upp. Þetta fólk er
nú að vega og meta hvar verði hag-
stæðast aö tryggja og til þess hefur
það þennan mánuð svo það er ekki
endanlega komið í ljós hversu marg-
ir munu koma yfir til okkar,“ segir
Gísli Lárasson, framkvæmdastjóri
Skandia ísland. Hann nefnir sem
dæmi að síðastliöinn fostudag hafi
starfsmenn Skandia sagt upp nokkur
hundrað tryggingasamningum fyrir
fólk sem nú er að velta vöngum yfir
tryggingum sínum.
„Það hefur verið gífurlega mikil
ásókn til okkar. í fjölmiðlum á
sunnudagskvöld lýstu menn í for-
svari fyrir hin tryggingafélögin því
yfir að þetta hefði mistekist hjá okk-
ur. Það er út í hött að halda því fram
að okkur hafi mistekist, nema menn
vití hver okkar markmið vora. Viö
stefndum að þvi að ná í um 3.000 bif-
reiðatryggingar á öllu árinu. Nú þeg-
ar höfum viö fengið á annað þúsund
bifreiðar og allur mánuðurinn er eft-
ir sem viðbót og það getur varla tal-
ist slæmur árangur.
Það er ekki á dagskrá hjá okkur
að þjóna hinum tryggingafélögun-
um. Það sem vakti fyrir okkur var
að bijóta upp einokun hér á vátrygg-
ingamarkaðnum sem okkur hefur
tekist. Það sem hinn almenni neyt-
andi sér er að það var búið að boöa
30 prósent hækkun á tryggingum og
við forðuðum neytendum frá þessum
hækkunum. Við áttum ekki von á
svo jákvæðum viðbrögðum fólks við
tryggingartilboðum okkar. Þaö hlýt-
ur að vera staðfesting á því að við
séum að gera rétt því hin trygginga-
félögin hafa fylgt í fótspor okkar.
Áhrifin frá okkur eru þau að nánast
öll hin tryggingafélögin hafa farið út
í að bjóða upp á valkosti, nema Sjóvá
Almennar. Nú eram við aö huga að
fleiri nýjungum á tryggingamark-
aðnum og þær munum við kynna á
næstunni," segir Gísli.
-J.Mar/ÍS
Síldarsöltun fyrir Rússlandsmarkað:
Allt að komast í eindaga
- engir hafa saltað upp á von og óvon
Ef takast á að salta þær 30 þús-
und tunnur af síld fyrir Rússlands-
markað, sem verið er aö tala um
sölu á að þessu sinni, verður allt
að ganga upp í þessari viku. Ganga
verður frá endanlegum samning-
um strax og mokveiði verður að
vera af góðri sfld út þessa viku.
Strax í næstu viku er hætt við að
síldin verði komin úr söltunarhæfu
ástandi, þaö er að hún verði orðin
of horað.
Að sögn Gunnars Jóakimssonar
hjá Síldarútvegsnefnd hefur eng-
inn saltandi a landinu þoraö að
salta upp á von og óvon fyrir Rúss-
landsmarkað. Það er því ekkert til
í landinu af saltaðri síld fyrir Rúss-
landsmarkað.
Afkastageta allra söltunarstöðv-
anna er það mikil að náist samn-
ingar áður en síldin er oröin of
mögur og ef vel veiðist er hægt að
salta þessar 30 þúsund tunnur á
þremur til fjóram sólarhringum.
Til þess að svo megi verða þarf allt
aö ganga upp.
-S.dór
Fullur á stolnum bfl með
dagsgamalt ökuskírteini
Leigubílstjóri nokkur tilkynntí
lögreglu um bíl sem ók eftír Miklu-
braut frá Árbæ á fuliri ferð án þess
að stöðva á rauðu ljósi á gatnamótum
aðfaranótt laugardagsins. Lögreglan
stöðvaði bifreiðina á mótum Miklu-
brautar og Lönguhlíðar en þar hafði
hún fariö þversum vegna hálku.
Undir stýri sat ungur maöur áber-
andi ölvaður. Hann hafði tekið bíl
móður sinnar í óleyfi. Þegar lögregla
skoðaði ökuskírteinið kom í ljós að
það var dagsgamalt. Það má segja aö
reynsluakstur þessa nýja bílprófs-
hafa hafi endað á sorglegan hátt.
-ELA