Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1992, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1992, Blaðsíða 6
Mtll)JUI)A(iUR'l. FttimÚAK 1992. Viðskipti_________________________________________________ Davíð Oddsson um skoðanakönnun DV um einkarétt íslenskra aðalverktaka: Mjög athugandi að semja um af nám einkaréttarins - liins vegar er ekki hægt að rifta núverandi samningi við Islenska aðalverktaka ..Þetta kemur ekki á óvart i ljósi þeirra umræðna sem orðið hafa að undanfórnu um Sameinaða verktaka og einkarétt Aðalverktaka. Vanda- málið er luns vegar að íslenskir aðal- verktakar hafa einkaleyfi til fram- kvæmda fyrir varnarliðið i nokkurn tima. Það þarf að vinna að því að breyta þvi. ég tel að það sé nauösyn legt." segir Davið Oddsson forsætis- raðherra um niðurstöðu skoðana- könnunar DV um helgina þar sem mikill meirihluti þjóðarinnar vill láta afnema einkaleyfi íslenskra að- alverktaka og bjóða framkvæmdir út. - Er möguleiki á að rifta núverandi samningi við íslenska aðalverktaka sem gerður var á síðasta ári til fimm ára og gildir því til ársins 1996? „Það er ekki hægt að rifta honurn. Það er hins vegar möguleiki á að semja sig frá svona samningi þegar ríkið er jafnstór aðili að málinu og raun ber vitni." - Verður þaö gert á næstunni? „Þetta hefur ekki verið rætt í ríkis- sfjórninni og ég hef heldur ekki rætt það við utanríkisráðherra sem hefur með mál varnarliðsins að gera. Það hlýtur hins vegar að koma mjög til athugunar." -JGH Halldór Asgrímsson: Varnarliðsframkvæmdir lúti viðskiptavenjum Halldór Asgrimsson, varaformaður Framsóknarflokksins. „Fram- kvæmdir fyrir herinn lúti venjulegum viðskiptalögmálum með útboðum." „Eg tel að þessa afdráttarlausu nið- urstööu um afnám einkaréttar ís- lenskra aðalverktaka megi rekja til umræðnanna að undartfórnu hjá Sameinuðum verktökum. Fólki fmnst það aö sjálfsögðu óeðlilegt að einstakir einstaklingar hafl af þessu mjög mikinn hagnað," segir Halldór Ásgrímsson, um niðurstöðu könnun- ar DV um afnám einkaréttar ís- lenskra aðalverktaka á framkvæmd- um fyrir varnarhðið. Halldór segir ennfremur að raunar hafi sú breyting orðið á varðandi ís- lenska aðalverktaka að ríkið sé kom- ið með meirihlutaeign í fyrirtækinu þannig að stærsti hluti hagnaðarins af framkvæmdunum fyrir herinn renni til ríkisins. „Ég tel hins vegar eðlilegt að með þessar framkvæmdir sé farið eins og allar aðrar framkvæmdir hér á landi og að þær lúti venjulegum viðskipta- lögmálum með útboðum," segir Hall- dór Ásgrímsson, varaformaður Framsóknarflokksins. -JGH Steingrímur J. Sigfússon: Hagnaðinn ber að þjóðnýta „Við í Alþýðubandalaginu höfum allan timann verið andvígir því sjálf- tökufyrirkomuiagi nokkurra fjöl- skyldna með einkarétti á verktöku fyrir vamarliðið. Því er afstaða okk- ar aö þennan hagnað, sem hefur myndast, eigi að þjóðnýta enda hefur hann orðið til í skjóh einkaréttar frá ríkinu," segir Steingrímur J. Sigfús- son, varaformaðtu- Alþýðubanda- lagsins, um könnun DV á einkarétti íslenskra aðalverktaka fyrir herinn. „Ég tel eðlilegt aö ef um einhveija verktöku verður að ræða þama sé með einum eða öðrum hætti svo búið um hnútana að sá hagnaður sem kynni að myndast rynni til ríkisins.“ Steingrímur segir mikinn tvískinn- ung hafa verið um vem vamarliðs- Steingrimur J. Sigfússon, varafor- maður Alþýðubandalagsins, segist vilja láta athuga hvort ekki sé hægt að breyta strax núverandi fyrir- komulagi íslenskra aðalverktaka. ins. Menn hafi annars vegar þóst vera að leggja fram land undir vam- arliðið endurgjaldslaust en hins veg- ar búið út svona kerfi til að hafa veru vamarliðsins að féþúfu engu að síður. - Ert þú hlyntur útboðum? „Ég tel þau koma vel til greina. Ég er að minnsta kosti fús til að skoða þann möguleika fremur en að halda áfram því fyrirkomulagi að ákveðnir einstaklingar og fyrirtæki í einka- eigu geti gert sér þessa sérstöku stöðu að féþúfu. Aðalatriðið er samt að þarna myndist ekki óeðlilegur hagnaður. Sá hagnaður sem hins vegar kann að verða til á hiklaust að renna til ríkisins." -JGH Aberandi vaxtamunur á milli banka Áberandi vaxtamunur er nú á milli hátt í 3 prósentustigum á vöxtum á banka. Svo er komið að það munar almennum skuldabréfum Búnaðar- Nafnvextir af almennum skuldabréfum banka og sparisjóða frá þvi i haust. bankans og Landsbankans, • svo- nefndum B-flokki útlána. í meðfylgjandi grafi, sem DV hefur gert um vexti banka og sparisjóða á almennum skuldabréfum síðustu mánuði, sést vel að sparisjóðimir tóku forystu í lækkun vaxta á al- mennum skuldabréfum í október. Lengi vel voru þeir einir lægstir. í nóvember fór Búnaðarbankinn hins vegar fram úr sparisjóðunum í vaxtalækkunum og hefur verið með lægstu vexti á almennum skulda- bréfum og víxlum síðan. Vextir á almennum skuldabréfum Búnaðarbanka eru núna um 13,25 prósent og eru lægstir. Sparisjóðir og íslandsbanki eru með 15,25 pró- sent en Landsbanki hæstur með 16 prósent vexti. Ljóst er aö raunvextir em enn mjög háir þar sgm verðbólgan hefur haldið sig í kringum núliið undanfama mánuði. -JGH Davið Oddsson forsætisráðherra segist fylgjandi þvi aö rikið semji sig sem fyrst frá núverandi samningi viö meöeigendur sina i íslenskum aðalverktök- um. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst INNLÁN Overðtryqqð Sparisjódsbækur óbundnar 2,25 3 Landsbanki Sparireikningar 3ja mánaöa uppsögn /2.25 4 Sparisjóðirnir 6 mánada uppsögn 3,25 5 Sparisjóðirnir Tékkareikningar, almennir 1 Allir Sértékkareikningar 2,25 3 Landsbanki VlSITÖLUBUNONIR REIKNINGAR 6 mánaða uppsogn 3 Allir 1 5-24 mánaða 6.5 7,75 Sparisjóðirnir Orlofsreikningar 5.5 Allir Gengisbundnir reikningar í SDR 6,25 8 Landsbanki Gengisbundnir reikningar í ECU 9 9,25 Búnaðarbanki ÖBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3,25 3,5 Búnb., Landsb. óverðtryggð kjör, hreyfðir 5,0 6.5 Islandsbanki SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innan timabils) Vísitölubundnir reikningar 2,25-4 Landsb., Islb. Gengisbundir reikningar 2,254 Landsb., Islb. BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör 6,25-7 Búnaðarbanki . Óverðtryggð kjör 7,25-9 Búnaðarbanki INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadalir 2,75-3,25 Islandsbanki Sterlingspund 8,75-9,3 Sparisjóðirnir Þýsk mörk 7,75 8.3 Sparisjóðirnir Danskar krónur 7,75-8,3 Sparisjóðirnir ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst ÚTLAN ÓVERÐTRYGGÐ Almennir víxlar (forvextir) 14,5-1 5,5 Búnaðarbanki Viðskiptavíxlar (forvextir)1 kaupgengi Almenn skuldabréf B-flokkur 15,25-16.5 Búnaðarbanki Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdráttur) 17,75-18,5 Allir nema Landsb. ÚTLÁN verotryggð Almenn skuldabréf 9,75-10,25 Búnaðarbanki afurðalAn Islenskar krónur 14,75-16,5 Búnaðarbanki SDR 8,5-9,25 Landsbanki Bandaríkjadalir 6,25-7 Landsbanki Sterlingspund 1 2,6-13 Sparisjóðirnir Þýsk mörk 11,5-11,75 Allir nema Islb. Húsnaaðislán 4,9 Ufoyrtssjóðslán 5.3 Dráttarvextir 23.0 MEÐALVEXTIR Almenn skuldabréf janúar 16,3 Verðtryggð lán janúar 10,0 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala febrúar 31 98stig Lánskjaravísitala janúar 31 96 stig Byggingavísitala febrúar 599 stig Byggingavísitala febrúar 187,3 stig Framfærsluvísitala janúar 160,2 stig Húsaleiguvísitala 1,1% lækkun 1. janúar VEROBRÉFASJÓÐIR HLUTABRÉF Sölugengl bréfa verðbréfasjóöa Sölu- og kaupgengi að iokinni jöfnun: KAUP SALA Einingabréf 1 6,089 HÆST LÆGST Einingabréf 2 3,238 Sjóvá-Almennar hf. - 5,65 L Einingabréf 3 4,001 Armannsfell hf. r 2,40 V Skammtímabréf 2,027 Eimskip 5,05 K 5,80 V.S Kjarabréf 5,720 Flugleiðir 1,85 K 2,05 K Markbréf 3,071 Hampiðjan 1,50 K1.84 K,S Tekjubréf 2,126 Haraldur Böðvarsson 2,00 K 3,10 K Skyndibréf 1,773 Hlutabréfasjóður VlB 1,04 V 1,10 V Sjóösbréf 1 2,927 Hlutabréfasjóðurinn 1,73 V Sjóðsbréf 2 1,945 Islandsbanki hf. - 1,73 F Sjóðsbréf 3 2,020 Eignfél. Alþýðub. 1.25 K 1,70 K Sjóðsbréf 4 1,729 Eignfél. Iðnaöarb. 1,85 K 2,22 K Sjóösbréf 5 1,217 Eignfél. Verslb. 1,15 K 1,48 K Vaxtarbréf 2,0624 Grandi hf. 2,10 K 2,70 S Valbréf 1,9332 Oliufélagið hf. 4,50 K 5,00 V Islandsbréf 1,281 Olís 2,10 L 2,18 F Fjórðungsbréf 1,143 Skeljungur hf. 4,80 K 5,40 K Þingbréf 1,277 Skagstrendingur hf. 4,60 F 4,90 öndvegisbréf 1,257 Sæplast 6,80 K 7,20 K Sýslubréf 1,301 Tollvörugeymslan hf. 1,09 F 1,13 L Reiðubréf 1,235 Útgeröarfélag Ak. 4,50 K 4,80 L Launabréf 1,017 Fjárfestingarfélagið 1,18 F 1.35 F Heimsbréf 1,116 Almenni hlutabréfasj. 1,10 F 1,1 5 F,S Auölindarbréf 1,04 K 1,09 K,S Islenski hlutabréfasj. 1,15 L 1,20 L Síldarvinnslan, Neskaup. 3,10 L 3,50 L 1 Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi. K = Kaupþing, V = VlB, L= Landsbréf, F = Fjárfestingarfélagið, S = Verðbréfav. Sam- vinnubanka Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast í DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.