Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1992, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1992.
7
Fréttir
Sigluíjörður:
Fyrstu loðnunni
var fagnað með
rjómatertum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Kristján Möller, forseti bæjar-
stjórnar Sigluíjaröar, og Bjöm Valdi-
marsson bæjarstjóri voru mættir á
bryggju Síldarverksmiðju ríkisins
þar í bæ í gær er loðnuskipið Víking-
ur EA-100 kom að landi með 1350
tonn af loðnu og fognuðu skipinu og
farmi þess með ijómatertum!
Siglfirðinar eru búnir að bíða eftir
loðnu alla vertíðina en hafa enga
loðnu fengið fyrr en í gær. í allan
vetur hefur Kristján Möller verið til-
búinn að gefa brauðgerðarmönnum
fyrirskipun um að baka rjómatertur
þegar fyrsta skipið „meldaði“ sig til
Sigló. Hann og aðrir Siglfirðingar
vom því kampakátir á bryggjunni í
gær.
Guðjón Bergþórsson, skipstjóri á
Víkingi, sagöi að aflinn hefði fengist
við Hrollaugseyjar en þaðan var um
sólarhrings sighng til Siglufiarðar og
frekar þungt í sjóinn. SR á Sigló
greiddi 4500 krónur fyrir tonnið og
sagði Guðjón að það væri algjört lág-
marksverð eftir svo langa siglingu.
Verksmiðja SR á Siglufirði er af-
kastamesta loðnubræðslan hér á
landi og getur brætt um 1500 tonn á
sólarhring. Afli Víkings, þótt góður
væri, endist því ekki lengi og í gær
var ekki ákveðið hvenær bræðsla
hæfist en ailt eins tahð líklegt aö
beðið yrði með að gangsetja verk-
smiðjuna þar til meiri loðna hefði
borist.
Hálft tonn af innfluttu kjöti brennt
Lögreglan lagði hald á rúmlega
hálft tonn af kjöti í togaranum Hof-
felh frá Fáskrúðsfirði við komu hans
til Eskifiarðar frá Bremerhaven á
þriðjudag. Kjötið var aht brennt í
sérstökum ofni að viðstöddum heil-
brigðisfuUtrúa á Reyðarfirði.
Kjötið var skráö á matarbirgðir
skipsins og var því framvísað við
komuna. Því var ekki um smygl að
ræða sem varðar við sektir. Kjötið
var geymt frosið í matvælageymsl-
um togarans. Lögreglan á Eskifirði,
sem annast tohgæslu í skipum, tók
kjötið í samræmi við svoköhuð sótt-
varnalög. Samtals var lagt hald á 550
kfió af svínakjöti, nautakjöti, öndum
ogkjúklingum. -ÓTT
fVe)komntr tll
-3i.igli.xfjorSo.T.
Forseti bæjarstjórnar og bæjarstjórinn á Siglufirði voru mættir á bryggjuna
með veglegar rjómatertur þegar Víkingur kom með fyrstu loðnu vertiðarinn-
ar þangað. DV-mynd gk
Fiskmarkaðir í jaf nvægi í Evrópu
Gámasölur í janúar 1992
Sundurliðun eftirtegundum: Selt magn kg Verð í erl. mynt Meðalverð kg Söluverðísl.kr. Kr. kg
Þorskur 1.129.183,73 1.546.143,39 1,37 160.160.949,48 141,84
Ýsa 338.144,46 603.348,54 1.78 62.398.489,85 184,53
Ufsi 57.014,39 48.014,56 0,84 4.972.437,41 87,21
Karfi 30.204,69 31.500,73 1,04 3.256.453,08 107,81
Koii 115.451,14 190,295,40 1,65 19.693.196,62 170,58
Grálúða 31.894,94 42.981,33 1,35 4.446.989,44 139,43
Blandað 250.427,77 264.877,68 1,06 27.386.920,33 109,36
Samtals: 1.952.321,12 2.727.161,07 1,40 282.315.378,51 144,60
Nú virðist ferskfiskmarkaðurinn í
Evrópu vera að komast í jafnvægi
og búist er við að hann verði á næstu
vikum svipaður og nú er. Erfitt er
þó að spá um hvemig markaðurinn
verður tíl lengri tíma. Þó má alltaf
búast við sveiflum og kæmi engum
á óvart þó einn og einn toppur kæmi.
En eins og ahtaf er það framboð og
eftirspurn sem ræður markaðnum
að mestu. í Bandaríkjunum eru
birgöir í meðahagi. Eftirspumin er
jafnan mest á föstunni svo enn er
ekki útséð hvaða staða verður þegar
fram á vorið kemur. Ekki er mikU
ásókn héðan í markaðinn í Banda-
ríkjunum vegna lágs gengis dohar-
ans.
MikU óvissa er enn um sölu á
loðnuhrognum og hrognafuhri
loðnu. En að þessu sinni buðu Norð-
menn að vera í samfloti með mark-
aðskönnun. Svo virðist sem Norð-
menn hafi ekki ætiað sér samvinnu
ef marka má þær fréttir sem heyrst
hafa að Norðmenn hafi tekið forskot
á samningana og boðið loðnuhrogn
á ágætu verði. Ekki er gott fyrir mig
að spá hvemig þessi samvinna geng-
ur en upphafið lofar ekki góðu. í
fyrra framleiddu Norðmenn of mikið
af loðnuafurðum fyrir Japani og
komust ekki að samkomuiagi inn-
byrðis hvað framleiða ætti mikið fyr-
ir markaðinn. -Verðið varð miitiu
lægra heldur en búast heföi mátt við,
eftir þeim horfum sem voru í upp-
hafi vertíðar.
Útflutningur á saltfiski hefur verið
í höndum eins aðha að því er heim-
hdir eru fyrir. Nú kemur það í ljós
að fleiri hafa flutt út saltfisk en SÍF.
Auðvitað eru margir óánægðir með
það að einkasala sé á útflutningnum.
Telur SÍF að þama sé á feröinni fisk-
ur sem fluttur sé út án þess að hafa
gæðavottorð. Svo virðist sem þama
hafi vérið fluttur út ágætur fiskur
því ekki hefur neitt komið fram sem
bendir th annars. Menn era ekki
ginnkeyptir fyrir einokunarfyrir-
tækjum lengur, sú tíð er hðin.
England
Ekkert skip landaði fiski í Englandi
þessa viku.
Gámasölur um mánaðamótin sl.
ahs 413 tonn sem seld vom fyrir 57,7
mihj. kr. Þorskur seldist á 133,69 kr.
kg, ýsa 178,01, ufsi 91,82, karfi 100,95,
koh 171,33, grálúða 129,69 og blandað
106,54 kr. kg.
AJls seldu skip 282 tonn fyrir 45,2
mhlj. kr. Þorskur seldist að meðal-
tah á 166,44 kr. kg, ýsa 222,92, ufsi
103,38, karfi 103,05, grálúöa 120,11 og
blandað 148,43 kr. kg.
Þýskaland
Bv. Hoffell seldi í Bremerhaven
31.1.1992 ahs 174 tonn fyrir 16,2 millj.
kr. Þorskur seldist á 100,36 kr. kg,
ýsa 138,72, ufsi 86,98, karfi 99,32, grá-
lúða 134,69 og blandað 21,04 kr. kg.
Bv. Vigri seldi í Bremerhaven ahs
239,9 tonn fyrir 25,8 mhlj. kr. Þorskur
seldist á 113,45 kr. kg, ýsa 184,68, af
þessum tveim tegundum vom aðeins
nokkur himdmð kg í boði, ufsi 94,86,
karfi 108,99, grálúða 173,96 kr. kg og
blandað 89,69 kr. kg.
Fiskur seldur úr gámum
íjanúar1992
Alls vom seld 1.017.283,00 kg sem
seldust fyrir 119,777 millj. kr. Meðal-
verð 119,74 kr. kg. Þorskúr seldist á
140,47 kr. kg, ýsa 126,10, ufsi 109,94,
karfi 120,71, grálúða 120,71 og bland-
að 86,09 kr. kg. Ahs seldu skipin
2.289.710,00 kg. Þorskur var að með-
altali á 146,72 kr. kg, ýsa 168,%, ufsi
115,46, karfi 137,84, grálúða 123,46 og
blandaö 74,84 kr. kg.
Frakkar auka fé til fiskeldis
í Norður-Frakklandi hefur tekið th
starfa fyrirtækið „Aquacultur du
Fiskmarkaður
Ingólfur Stefánsson
httoral Nord“ (ALN) með þv: að
leggja fram 21,7 mhlj. franskra
franka. Félagið Sépia á 32% af htuta-
fénu og hefur rekið eigið klak síðan
1988 og rekið eldisstöð frá sama tíma.
Eldisstöðin notar heitt vatn frá atóm-
stöð sem starfar í Gravehnes. Ahs
hafa verið lagðar 350 mih. FRF í fyr-
irtækið og gert er ráð fyrir að árið
1993 veröi framleiöslan 300 tonn.
Fiskurinn, sem framleiddur er
þama, er yfirleitt dýr fiskur á
franska markaðnum. Samhhða fisk-
eldinu verða framleiddar 4,5 mhl.
seiða. Tahð er að þetta verið stærsta
fiskeldisstöð í Frakklandi. í juní
•næstkomandi tekur ný eldisstöð th
starfa og er gert ráö fyrir að þá kosti
stöðvamar ahs 500 mih. FRF. Þá er
búist við að fyrirtækið verði eitt
stærsta eldisfyrirtæki í Evrópu. ALN
ætiar að fjárfesta í heitu löndunum
og verður þar einnig um sjóeldi að
ræða, aðallega verður íjárfest í
rækju- og styijueldi. Fyrirtækið á í
eldisstöðvum í ýmsum löndum víðs
vegar í heiminum, svo sem í Túnis,
Króatíu, Grikklandi, Ekvador, Indó-
nesíu, fyrir utan Frakkland. Fyrir-
tækið á mismunandi mikið í fyrir-
tækjunum, frá 10% th 40%. Fyrir-
tækið gerir ráð fyrir að árið 1995
verði hægt að fuhnægja rækjumark-
aönum en þá verður samsteypan
með um 7000 tonna framleiðslu af
rækju.
Fiskaren, blm. Grete Borgen, París.
Stytt og endursagt.
Eyðileggur laxamarkaðinn
Markaðsráðunautur Scandinavian
Trade Service í Japan, Geir Röe Aka-
aden, segir að fyrirhuguð sala á laxa-
íjallinu th Japans sé eyðhegging á
laxamarkaðnum í Japan. Samkomu-
lag bankans og ríkisstjómarinnar er
mjög slæmt framtak og allar líkur
era á því að þetta thtæki geti orðið
th þess að Norðmenn fái á sig kæru
fyrir undirboð á markaðnum. STS
er eina fyrirtækið sem vinnur að
markaðsmálum í Tokyo og er mjög
uggandi vegna þessa máls. Vegna
þeirrar ráðstöfunar, sem th stendur
að framfylgja, lætur hann fylgja að-
vörunarorð vegna þessarar fyrirhug-
uðu sölu. Fari svo að salan fari fram
eru ahar líkur á að Bandaríkin kæri
Noreg fyrir undirboð og byggi kær-
una á því aö ríkið greiði verðið nið-
ur. Og gæti það þýtt endalok sölu
Norðmanna á laxi til Japans og yrði
erfitt að koma viðskiptunum á á nýj-
an leik. Bendir umboðsmaðurinn á
að þessi viðskipti heföu átt aö fara
fram fyrir ári, áður en alaskaiaxinn
kom á markaðinn.
Undirstöðuvinna
Mönnum sýnist það athyglisvert
að BP geti ekki komið laxinum á
markað í gegnum hið mikla verslun-
amet sitt. BP vinnur mikið að mark-
aðsmálum fyrir framleiðslu sína á
laxi frá Chhe.
Það gæti hentað BP vel að fylgja
eftir þegar Norðmenn hafa ratt
brautina fyrir laxaflök og hefur verið
ýtt út af markaðnum. Þá gætu fram-
leiðumir í Chhe komiö á eftir og
notið góðs af starfi Norðmanna.
FATAMARKAÐURINN
STRANDGÖTU 26, HAFNARFIRÐI (GAMLA KAUPFÉLAGSHÚSIÐ)
NÝJAR VÖRUR AÐ KOMA
GJAFAÚTSALA
FÖT OG SKÓR Á ALLA FJÖLSKYLDUNA
Opið föstudag 10-19, laugardag 10-16, sunnudag 12-16.