Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1992, Side 26
34
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1992.
Afmæli
♦
Ásgeir Thoroddsen
Ásgeir Thoroddsen hrl., Flókagötu
19, Reykjavík, er fimmtugur í dag
Starfsferill
Ásgeir fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
fr á MR1962, embættisprófi í lög-
fræði frá HÍ1967 og stundaði nám í
opinberri stjómsýslu við New
York-háskóla 1970-72.
Ásgeir var stundakennari við
Hagaskólann 1963-65, fulltrúibæj-
arfógetans í Keflavík l%7-68, full-
trúi í dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu 1968-69, starfsmaður SÞ í New
York 1970-71 og starfsmaður Flótta-
mannastofnunnar SÞ í Genf1971-72.
Hann var hagsýslustjóri Reykjavik-
urborgar 1972-77 en hefur rekið lög-
mannsstofu í Reykjavík með Ingólfi
Hjartarsyni frá 1977 og veriö stjóm-
arformaður Lögheimtunnar hf. Þá
kenndi Ásgeir opinbera stjórnsýslu
við lagadeild HÍ1974 og 1975.
Ásgeir sat í stjóm Heimdallar
1963-65 og var formaður Vöku, fé-
lags lýðræðissinnaðra stúdenta,
1964.
Fjölskylda
Ásgeir kvæntist 21.3.1964 Sigríði
Halidóru Svanbjömsdóttur Thor-
oddsen, f. 26.11.1944, húsmóður.
Hún er dóttir Svanbjöms Frímanns-
sonar, fyrrv. seðlabankastjóra, og
konu hans, Hólmfríðar Andrésdótt-
urhúsmóður.
Böm Ásgeirs og Sigríðar Halldóru
eru Svanbjörn, f. 3.9.1965, starfar
hjá Verðbréfamarkaði íslands-
banka, kvæntur Gunnhildi Sveins-
dóttur kennara og eiga þau einn
son, Ásgeir Skorra, f. 20.3.1990;
Gunnar, f. 30.10.1969, laganemi;
Ásgeir, f. 18.4.1971, stúdent; Fríða,
f.2.11.1980.,
Systkini Ásgeirs em Sigurður, f.
15.6.1944, hdl. og starfsmaður hjá
Ríkisábyrgðarsjóði, búsettur að
Steinum á Álftanesi, kvæntur Sig-
ríöi Karlsdóttur og eiga þau þrjú
börn, Karl, Völu og Gunnar; Dóra,
f. 13.9.1948, bókasafnsfræöingur hjá
Bústaðasafni Borgarbókasafns
Reykjavíkur, var áður gift Jóhann-
esi Herði Bragasyni en þau skildu
og er dóttir þeirra Vala; María Krist-
ín, f. 30.9.1954, kennari, gift Guð-
mundi Hólmsteinssyni markaðs-
fulltrúa og eru sonur þeirra Gunnar
Hólmsteinn.
Foreldrar Ásgeirs: dr. Gunnar
Thoroddsen, f. 29.12.1910, d. 25.9.
1983, prófessor, borgarstjóri og for-
sætisráðherra, og kona hans, Vala
Ásgeirsdóttir Thoroddsen, f. 8.6.
1921, húsmóöir.
Ætt
Föðursystkini Ásgeirs: Sigríður,
móðir Jóns Tómassonar borgarrit-
ara; Kristín, móðir Helgu Kress
lektors; Valgard rafmagnsveitu-
stjóri, faðir Sigurðar skipulags-
stjóra, og Margrét viðskiptafræð-
ingur, móðir Egils efnaverkfræð-
ings.
Gunnar var sonur Sigurðar Thor-
oddsen, verkfræðings og yfirkenn-
ara MR, bróður Þorvalds náttúru-
fræðing og Þórðar læknis, fóður
Emils tónskálds. Þriðji bróðir Sig-
urðar var Skúli, ritstjóri og alþingis-
maður, faðir Skúla alþingismanns,
Katrínar, yfirlæknis ogalþingis-
manns, Bolla borgarverkfræðings
og Unnar, móður Skúla Halldórs-
sonar tónskálds. Sigurður var sonur
Jóns Thoroddsen, skálds og sýslu-
manns, sem var sonur Þórðar, beyk-
is á Reykhólum og ættföður Thor-
oddsenættarinnar, Þóroddssonar.
Móðir Sigurðar var Kristín Ólína
Þorvaldsdóttir, umboðsmanns í
Hrappsey, Sívertsen.
Móðir Gunnars var María Kristín
Claessen, systir Ingibjargar, kopu
Jóns Þorlákssonar, forsætisráð-
herra og borgarstjóra. Bræður Mar-
íu Kristínar vom Gunnlaugur yfir-
læknir og Eggert hrl. og banka-
stjóri, faðir Kristínar Önnu hjúkr-
unarritara, móður Solveigar Lám
Guðmundsdóttur sóknarprests.
María Kristín var dóttir Valgards
Claessen landsféhirðis og Kristínar
Briem, systur Eiríks prestaskóla-
kennara, Páls amtmanns og Ólafs,
alþingismanns á Álfgeirsvöllum,
foður Þorsteins ráðherra. Kristín
var dóttir Eggerts Briem, sýslu-
manns á Reynisstað í Skagafirði,
Gunnlaugssonar Briem, sýslu-
manns á Gmnd og ættföður Briem-
ættarinnar, Guðbrandssonar.
Móðursystkini Ásgeirs: Þórhallur
ráðuneytisstjóri og Björg, móðir
Tryggva Pálssonar bankastjóra.
Vala er dóttir Ásgeirs forseta Ás-
geirssonar, kaupmanns í Reykjavík,
Eyþórssonar kaupmanns, bróður
Feldísar, langömmu Kára Amórs-
sonar, skólastjóra og formanns
Landssambands hestamanna. Móð-
Ásgeir Thoroddsen.
ir Ásgeirs forseta var Jensína Björg
Matthiasdóttir, trésmiðs í Reykja-
vík, Markússonar.
Móðir Völu var Dóra, systir
Tryggva forsætisráðherra, föður
bankastjóranna Þórhalls og Bjöms
og Klemensar, fyrrv. hagstofustjóra.
Dóra var dóttir Þórhalls biskups,
bróður Vilhjálms á Rauðará, lang-
afa Guðmundar Pál§, heimsmeist-
ara í bridge. Þórhallur var sonur
Bjöms, prófasts og skálds í Laufási,
Halldórssonar. Móðir Dóm var Val-
gerður Jónsdóttir, b. á Bjarnarstöð-
um í Bárðardal, Halldórssonar, b.
þar, Þorgrímssonar.
Ásgeir er erlendis um þessar
mundir.
Sveinn Vilhjálmsson
Sveinn Vilhjálmsson.
Sveinn Vilhjálmsson verkamað-
ur, Garðavegi 6C, Hafnarfirði, er
fertugurídag.
Starfsferill
Sveinn fæddist að Ljósafossi í
Grímsnesi en ólst upp í Reykjavík.
Hann flutti síðan til Hafnarfjarðar
1975 og hefur búið þar síðan.
Sveinn stundaði sjómennsku í
nokkur ár en fyrir tíu árum hóf
hann störf hjá íslenska álfélaginu
þar sem hann vinnur enn.
Fjölskylda
Sveinn kvæntist 30.7.1983 Jónínu
Björt Sveinsdóttur, f. 7.12.1957, hús-
móður. Hún er dóttir Sveins Ólafs
Sveinssonar, húsasmíðameistara í
Hafnarfirði, og Rebekku Helgu Að-
alsteinsdóttur, húsmóður og verka-
konu.
Dóttir Sveins frá fyrra hjónabandi
er Elín Rós Sveinsdóttir, f. 4.2.1974.
Böm Sveins og Jónínu Bjartar em
Rebekka Helga Sveinsdóttir, f. 5.5.
1978; Vilhjálmur Ámi Sveinsson, f.
30.1.1985; Ásta Björk Sveinsdóttir,
f. 29.6.1991.
Hálfbræður Sveins, sammæðra,
eru Markús Sigurgeir Kristjánsson,
f. 24.2.1947, starfsmaður hjá ís-
lenska álfélaginu, búsettur í Hafn-
arfirði, kvæntur Báru Magnúsdótt-
ur og eiga þau þrjú börn, og Þor-
steinn Ragnarsson, f. 1.3.1948, versl-
unarstjóri á Hellu, kvæntur Sigríði
Hannesdóttur og eiga þau tvö börn.
Alsystkini Sveins era Kristín Vil-
hjálmsdóttir, f. 9.7.1953, húsmóðir í
Reykjavík, og á hún þrjú böm; Lauf-
ey Vilhjálmsdóttir, f. 17.8.1954, hús-
móðir í Reykjavík, og á hún tvö
börn; Guðrún Vilhjálmsdóttir, f.
13.1.1957, húsmóðir og dagmóðir í
Kópavogi, gift Jóni Guðmari Hauks-
syni og eiga þau þrjú böm; Magnús
Vilhjálmsson, f. 30.9.1958, verka-
maður í Reykjavík, kvæntur Svövu
Hallgrímsdóttur og eiga þau sex
böm; Hólmfríöur Vilhjálmsdóttir, f.
20.8.1960, húsmóðir í Reykjavík, en
sambýlismaður hennar er Ásgeir
Jóhannes Kristjánsson verkamaður
og eiga þau þijú böm.
Foreldrar Sveins: Vilhjálmur
Sveinssön, f. 20.7.1924, d. 23.8.1987,
verkamaður í Reykjavík, og Val-
gerður Kristólína Árnadóttir, f. 30.6.
1924, húsmóðir í Reykjavík.
Bridge
Afmælismót Aðalsteins
Jónssonar í bridge
Emil Thorarensen, DV, F.qlnfirffi-
Bridgefélag Eskifjarðar og Reyðaríjarðar hélt afmælis-
mót þann 1. febrúar í tilefni 70 ára afmælis Aðalsteins
Jónssonar á Eskifirði. Aðalsteinn hefur í áraraðir verið
mikill bridgeáhugamaður og margoft keppt á íslandsmót-
um.
Átján pör mættu til leiks á afmælismótið. Til þess að
gera Aðalsteini þessa stund ennþá ógleymanlegri var
einn af heimsmeisturunum okkar í bridge, Jón Baldurs-
son, fenginn til þess áð vera spilafélagi Aðalsteins og
AIli vissi ekkert af því fyrr en mótið byrjaði. Kom þetta
því honum þægilega á óvart.
Spilaður var tvímenningur og fór svo að Eskfirðingam-
ir Haukur Bjömsson og Þorbergur Hauksson sigmðu
með 124 stig. í öðra sæti urðu Guðmundur Magnússon
og Hafsteinn Lámsson frá Reyðarfirði og í þriðja þeir
Friðjón Vigfússon og Kristján Kristjánsson einnig frá
Reyðarfirði. Heimsmeistannn og Aðalsteinn höfnuðu
hins vegar í 7. sæti.
Aðalsteinn var spurður að því hvemig stæði á þessum
lélega árangri þeirra Jóns. Aðalsteinn komst að þeirri
niöurstöðu eftir langa umhugsun að mótið heföi einfald-
lega verið of veikt fyrir þá og því fór sem fór. Elín Bjarna-
dóttir, framkvæmdastjóri Bridgesambandsins og eigin-
kona Jóns, var einnig meðal þátttakenda.
Vetrar-Mitchell BSÍ
Síðasta föstudag mættu hvorki meira né minna en 38 pör
í Vetrar-Mitchell BSÍ. Efstu skor í NS hlutu:
1. Sigtryggur Sigurösson-Anton Valgarðsson 509
2. Guðbrandur Guðjohnsen-Magnús Þorkelsson 492
3. Olafur H. Ólafsson-Jón Ingi Bjömsson 478
4. Ingibjörg Grímsdóttir-Þórður Bjömsson 475
- og efstu pör í AV urðu:
1. Magnús Sverrisson-Guðjón Jónsson 541
2. Þröstur Bergmann-Páll Þór Bergsson 519
Það kom Aðalsteini Jónssyni á óvart að fá Jón Baldurs-
son helmsmeistara sem spilafélaga í afmælismótinu.
DV-mynd Emil
3. Kjartan Jóhannsson-Helgi Hermannsson 474
4. Ebba Jónsdóttir-Erla Guðmundsdóttir 472
Þessi spilakvöld em öllum opin en hveiju. sinni er spil-
uð eins kvölds keppni. Spilað er í húsi BSÍ að Sigtúni 9
og spilamennskan hefst kl. 19.
-ÍS
80 ára
Héðinn Sveinsson,
: Engihlíð 14, Reykjavik. ■ V
Ingólfur Guðjónsson,
Hraunbúðum, Vestmamiaeyjum.
Hraunbæ89,Reykjavík. '
Pétur Guðmundsson,
Nökkvavogi 15, Reykjavík.
Hildur Magnúsdóttir,
Aðalgötu 29, Ólafsfirði.
Svavar Guðbjörnsson,: .
Hraunbæ 70, ReyKjavík.
Valdimar Jónsson,
Hólabergi48. Reykjavík.
Bjarnveig Valdimarsdóttir,
Hvammsgerði 13, Reykjavik.
70ára________________________
ÓlöfÁlfsdóttir,
Háagerði 37, Reykjavík.
60ára
Valdis Þorsteinsdóttir,
Brekkugötu 1, Hrísey.
Valdís verður stödd að Álftamýri ■
14, Reykjavík, á afmælisdaginn.
Oddgeir Sigurðsson,
Geitlandi 37, Reykjavík.
Jóhanna Valdey Jónsdóttir,
Móabaröi 25, HaíharfirðL
heimili sínu milli klukkan 17.00 og
19.00 á afinælisdaginn.
50 ára
Jóhann Ragnarsson,
Fögmsíðu 9 C, Akureyri.
JóhannH. Jónsson,
40 ára
Jónína Aðalsteinsdóttir,
Grundargötu 15, Dalvík.
Ingólfur S. Margeirsson,
Súluhólum 4, Reykjavík.
Ingólfur veröur að heiman á af-
mælisdaginn.
Sigurður Guðjónsson,
Borgargerði, Skarðshreppi.
Magnþór Jóhannsson,
Naustum 4, Akureyri.
Hrafnhildur Gestsdóttir,
: Múlavegi 37, Seyðisfiröi.
Ólafur Jónsson,
Jóruseli 22, Reykjavík.
Skúii Marteinsson,
Torfufelli 31, Reykjavík.
Guðni Þorleifur ölversson,
Varmagerði, Biskupstungna-
hreppi.
Anna Helgadóttir,
Brúnagerði, Hálshreppi.