Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1992, Qupperneq 26
34
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1992.
Afmæli
Jóhann S. Bjömsson
Jóhann S. Bjömsson framkvæmda-
stjóri, Markholti 18, Mosfellsbæ, er
fimmtugurídag.
Starfsferill
Jóhann fæddist á Hvammstanga
og ólst þar upp. Hann stundaði nám
við Héraðsskólann á Reykjum í
Hrútafirði og lauk þaðan gagn-
fræðaprófi 1960.
Jóhann starfaði síöan eitt ár við
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga á
Hvammstanga en flutti til Reykja-
víkur 1961 og stundaði þar verslun-
arstörf hjá Kjöt og fiski í nokkur ár.
Hann var síöan afgreiðslumaður hjá
Náttúrulækningabúðinni um skeið
en stofnaði ásamt öðrum Hunangs-
búðina 1966 og rak hana ásamt öðr-
um til 1970 en síðan einsamall til
1973.
Þá hóf Jóhann nám í húsasmíði
hjá mági sínum. Hann lauk sveins-
prófi 1976 en hafði eignast hlut í tré-
smiðjunni K14 í Mosfellsbæ sem
hann starfrækti með tveimur öðr-
um þar til á síðasta ári. Þá hóf Jó-
hann að vinna fyrir sóknarnefnd
Lágafellssóknar og starfar fyrir
hanaenn.
Fjölskylda
Jóhann kvæntist 10.6.1962 Svan-
hildi Þorkelsdóttur, f. 14.3.1943,
bæjargjaldkeraMosfellsbæjar. Hún
er dóttir Þorkels Einarssonar, bygg-
ingameistara í Reykjavík, og Ölfu
Ásgeirsdóttur húsmóður.
Böm Jóhanns og Svanhildar eru
Þorkell Ásgeir Jóhannsson, f. 27.4.
1963, bankastarfsmaður, búsettur í
Mosfellsbæ; Aifa Jóhannsdóttir, f.
3.3.1966, grunnskólakennari, búsett
í Mosfellsbæ, maki Steinar Ólafs-
son; Þorbjörn Jóhannsson, f. 4.1.
1969, lögreglumaður í Reykjavík,
búsettur í Mosfellsbæ.
Systkini Jóhanns: Trausti Björns-
son, f. 2.6.1932, verslunarmaður,
búsettur í Keflavík, kvæntur Ás-
laugu Hilmarsdóttur og eiga þau
tvær dætur; Ólafur Björnsson, f.
28.2.1937, starfsmaður við skrifstofu
Mjólkursamsölunnar í Reykjavík,
búsettur í Reykjavík, kvæntur Mjöll
Þórðardóttur.
Foreldrar Jóhanns voru Björn Kr.
Guðmundsson, f. 20.3.1906, d. 2.9.
1983, verkstjóri og síðar skrifstofu-
maður hjá Kaupfélagi Vestur-
Húnvetninga, og Þorbjörg Ólafs-
dóttir, f. 31.5.1901, d. 11.1.1981, hús-
móðir.
Ætt
Hálfsystir Björns, samfeðra, var
Ásta, móðir Sverris Ólafssonar
myndlistarmanns. Björn var sonur
Guðmundar, nuddlæknis á Eski-
firði, Péturssonar landfógetaskrif-
ara, Jónassonar. Móðir Bjöms var
Sigríður Bjarnadóttir, b. á Óspaks-
stöðum, Bjarnasonar, b. á Óspaks-
stöðum, Bjarnasonar, b. í Hrafna-
dal, Halldórssonar. Móðir Bjarna,
fóður Sigríðar, var Kristín Þorkels-
dóttir, b. i Geithóli, Þorkelssonar.
Móðir Sigríðar var Helga Jónsdótt-
ir.
Þorbjörg var dóttir Ólafs, b. á
Dúki í Sæmundarhlíð í Skagafirði,
bróður Margrétar, langömmu Vig-
dísar Grímsdóttur rithöfundar og
Sighvats Björgvinssonar heilbrigð-
isráöherra. Ólafur var sonur Sæ-
mundar, b. í Víkurkoti, bróður
Áma, frambýhngs á Sauðárkróki,
langafa Friðriks, fóður Friðriks, for-
stjóra og eiganda Pressunnar. Sæ-
mundur var einnig bróðir Magnús-
ar snikkara, afa Guðmundar Vignis
gjaldheimtustjóra og langafa Ásdís-
ar Kvaran lögfræðings. Sæmundur
var sonur Áma, Ijósfóður í Stokk-
hólma, Sigurðssonar og Margrétar,
systur Pálma í Valadal, langafa
Helga Hálfdánarsonar skálds,
Pálma rektors, Péturs, fóður Hann-
esar skálds, óg langafa Jóns á Hofi,
föður Pálma í Hagkaupi. Margrét
var dóttir Magnúsar, b. í Syðra-
Vallholti, Péturssonar og Ingunnar
Ólafsdóttur, systur Þuríðar, ömmu
Benedikts Gröndal yngra. Móðir
Ólafs í Dúki var Sigríður Jónsdóttir,
b. í Miðdalsgröf, Jónssonar og Ólaf-
ar Björnsdóttur, prests í Trölla-
tungu og ættföður Tröllatunguætt-
Jóhann S. Björnsson.
arinnar, Hjálmarssonar.
Móöir Þorbjargar voru Steinunn
Steinsdóttir, hreppstjóra í Stóru-
Gröf^ Vigfússonar, b. í Vík, Ólafs-
sonar. Móðir Steins var Guðrún
Jónsdóttir, hreppstjóra á Bessastöð-
um, Oddssonar. Móðir Steinunnar
var Helga Pétursdóttir, hagyrðings
á Vatnsleysu, Bjarnasonar og Krist-
ínar Jónsdóttur, b. á Sólheimum,
bróður Jóns á Bessastöðum.
Jón Guðjónsson
Jón Guðjónsson rafvirkjameistari,
Ofanleiti 7, Reykjavík, er sjötugur í
dag.
Starfsferill
Jón er fæddur í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann gekk í Austurbæjar-
skólaxm og var einn vetrn- í Iðnskól-
anum í Reykjavík. Hann dvaldi
nokkra mánuði í Noregi 1939 og
varð lærlingur hjá Jóhanni Rönning
eftirdvölinaþar.
Hjá Rönning var Jón m.a. sendur
til starfa í síldarverksmiðjunum á
Skagaströnd, Siglufirði, Raufarhöfn
og Djúpuvík. Jón starfaði hjá Flug-
félagi Islands 1946-49 við að breyta
Catalinu flugbátum í farþegavélar.
Hann kynnti sér nýjungar hjá Hird
Brown í Bolton á Englandi 1951 en
sama ár stofnaði hann eigið fyrir-
tæki, Rafvélar hf., að Hverfisgötu
50 í Reykjavík, sem hann rak í 24
ár. Jón haföi umsvif á Keflavíkur-
flugvelli fyrir Metcalf Hamilton
Bridge Corporation & District Eng-
ineers. Hann kenndi jafnframt í Iðn-
skólanum í Reykjavík 1951-56. Jón
hóf störf hjá Veðurstofu íslands 1975
og hefur starfað þar síðan. Starfs-
svið hans er umsjón með húseign,
lyftu og vararafstöð.
Jón starfaði með Rafvirkjafélagi
Reykjavíkur og Rafvirkjameistafé-
lagi Reykjavíkur. Hann stofnaði
Iðnsamtökin hf. ásamt niu öðmm
iðnmeisturum við framkvæmdir og
viðhald á Keflavíkurflugvelli. Jón
hefur verið formaður þeirra sam-
taka frá upphafi. Hann er einn
stofnenda Lionsklúbbsins Njarðar.
Jón starfaöi með Hestamannafélag-
inu Fáki.
Jón reisti sér hús fyrir heimili sitt
og fyrirtæki í gamla miðbænum að
Hverfisgötu 50 á lóð foreldra sinna.
Hann byggði síðar í Starmýri 4 í
Reykjavík en er nú búsettur í Ofan-
leiti 7.
Fjölskylda
Jón kvæntist 5.8.1944 Jóhönnu
Agnesi Pétursdóttur Honingsvog, f.
24.6.1923, d. 1984, frá Akureyri. For-
eldrar hennar vom Pétur Honings-
vog og María Þorvaldsdóttir.
Sambýliskona Jóns frá 1975 er
Anna Þóra Thoroddsen, f. 3.12.1930,
starfsmaður Landakotspítala. For-
eldrar hennar: Þorvaldur Thor-
oddsen og Ingunn Thoroddsen, lát-
in.
Börn Jóns og Jóhönnu Agnesar:
Þórhildur, f. 7.12.1944, skrifstofu-
maður, maki Victor Jacobsen, bif-
reiðarstjóri, þau eru búsett í Reykja-
vik og eiga tvö böm, Aðalheiöi
Jacobsen og Jón Kristján Jacobsen;
Guðjón, f. 6.3.1947, rafvirki og kenn-
ari, maki Þuríður Erlendsdóttir
húsmóöir, þau eru búsett í Reykja-
vík og eiga einn son, Guðjón Andra;
Sigríður, f. 27.12.1955, bifreiöar-
stjóri, maki Einar Sigurberg Sigur-
jónsson bifreiðastjóri, þau em bú-
sett í Reykjavík ogeiga tvo syni,
Jón Guöjónsson
Guttorm Inga og Jóhann Agnar;
'Anna María, f. 3.11.1959, afgreiðslu-
kona, maki ísleifur Karlsson, bif-
vélavirki og bílamálari, þau em
búsett í Reykjavík og eiga tvö börn,
KarlogAgnesi.
Systkini Jóns: Friða, f. 29.5.1924,
kennari, maki Stan Davids loft-
skeytamaður, þau eru búsett í Li-
verpool á Englandi og eiga tvær
dætur, Sigríði Dallimor og Ingrid
Burger; Pétur.f. 19.3.1926, d. 1983,
framkvæmdastjóri, hans kona var
Bára Sigurjónsdóttir verslunar-
maður, þau eignuðust tvo syni, Sig-
uijón og Guðjón Þór. Hálfsystir
Jóns, sammæðra: Vigdís, látin, rönt-
gentæknir, hún var búsett í Reykja-
vík.
Foreldrar Jóns voru Guðjón Jóns-
son verslunareigandi og Sigríður
Pétursdóttir húsmóðir.
90 ára 50ára
BjömÞórðarson, Oddagötu 5, Akureyri. Þorbjörg Grímsdóttir, HÖrðalandi 22, Reykjavík. Sigríður Magnúsdóttir,
85 ára Fossheiði 16, Selfossi.
Ragnheiður J ónsdóttir, Hólsvegi 10, Reykjavík.
40 ára
80 ára Guðiaug Konráðsdóttir, Öldutúni 18, Hafnarfirði.
Sigurður Brynj ólfsson, Garöavegi 8, Keflavík. Ey vindur Magnús Jónasson, Kjóastöðum I, Biskupstungna- hreppi.
70 ára Eygió Gunnarsdóttir, Brekkugötu 13, Hafnarfirði. HiJdur Maria Hansdóttir, Aðalstræti 10, Akureyri. Magnús Óskarsson, Reynigrund 41, Akranesi. Guðmundur Theódórsson, Réttarholti 11, Selfossi. Hermann Haraidsson,
Haildór Bjarnason, Heiöarbrún 29, Hveragerði. Béra Sigurjónsdóttir, Drápuhlíö36, Reykjavík. Sumarliði Lárusson, Túngötu 11, Sandgerði.
Furulundi lle, Akureyri.
60 ára
Bjamey Erlendsdóttir, Illugagötu21, Vestmannaeyjum.
Hjörtur Pjetursson
Hjörtur Pjetursson, löggiltur endur-
skoðandi, Hvassaleiti 58, Reykjavík,
verður sjötugur á morgun, föstu-
daginn21.febrúar.
Starfsferill
Hjörtur er fæddur í Reykjavík og
ólst þar upp í miðbænum. Hann
lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í ReyKjavík 1941 og viðskipta-
prófi frá Háskóla íslands íjórum
árum síðar. Hann stundaði nám hjá
Redovisningstekniska Byrán í
Stokkhólmi í Svíþjóð 1945-46. Hjört-
ur varð löggiltur endurskoðandi
1950 og lauk prófi í kerfis- og forrit-
un bókhaldsvéla við Burroughs Col-
lege í Detroit í Bandaríkjunum 1953.
Hjörtur hefur rekið eigin endur-
skoðarskrifstofu frá 1946. Hann var
stundakennari við viðskiptadeild
Háskóla íslands 1970-72, starfaði
sem sérfræðingur í Seðlabanka ís-
lands 1975-1990 og var m.a. í fram-
kvæmdanefnd vegna gjaldmiðils-
breytingar 1981.
Hjörtur var formaður Félags við-
skiptafræðinga 1948-50, er einn
stofnenda Lionsklúbbsins Fjölnis
(1955) og sat í fyrstu stjóm hans og
varð síöar formaður, eða 1964-65.
Hjörtur var í stjóm samtaka gegn
astma og ofnæmi, formaður þeirra
1979-81 og hefur verið fulltrúi á
sambandsþingum SÍBS frá 1980.
Fjölskylda
Hjörtur kvæntist 15.6.1945 Lauru
Fr. Claessen, f. 24.1.1925, fulltrúa á
Borgarspítalanum. Foreldrar henn-
ar vom Eggert Claessen, hæstarétt-
armálaflutningsmaður, og Soffia
Jónsdóttir Claessen, húsfreyja og
kennari, en þau bjuggu að Reynistað
í Skildinganesi. Eggert Claessen var
einn stofnenda Eimskipafélags ís-
lands, framkvæmdastjóri Vinnu-
veitendasambands íslands um langt
skeið og yfirmaður Oddfellowregl-
unnarínokkurár.
Börn Hjartar og Lauru: Soffía
Kristín, f. 9.5.1946, starfsmaöur á
endurskoðunarskrifstofu, maki
Hörður Barðdal, starfsmaður á end-
urskoðunarskrifstofu, þau em bú-
sett í Reykjavík, Soffía Kristín á
einn son, Þórð Vilberg Oddsson;
Hjörtur Hannes Reynir, f. 14.3.1949,
aðstoðardagskrárstjóri Bylgjunnar,
maki Kara Margrét Svafarsdóttir
flugfreyja, þau eru búsett í Reykja-
vík og eiga tvær dætur, Höllu Sig-
rúnu og Hildi Ömu; Halla, f. 24.7.
1955, starfsmaöur Flugleiða, maki
Kristinn Valtýsson, framkvæmda-
stjóri Bifreiða & landbúnaðarvéla,
þau eru búsett í Reykjavík og eiga
þrjár dætur, Eddu Hrönn, Evu
Hmnd og Ellen Hörpu; Jean Eggert,
f. 15.6.1961, rafvirki ogbmnavörö-
ur, maki Gríma Huld Blængsdóttir
læknir, þau em búsett í Reykjavík
og eiga eina dóttur, Láru Ósk, Jean
Eggert átti áður Arent Pjetur;
Laura, f. 2.4.1963, húsmóðir, maki
Walter Ragnar Kristjánsson flug-
virki, þau em búsett í Þýskalandi
og eiga tvo syni, Kristján Óla og
KáraBjöm.
Systkini Hjartar: Sigríður Guð-
finna, f. 5.9.1915, husmóðir, hennar
maður var Haraldur Blöndal, lát-
inn, skrifstofumaður og verslunar-
maður, þau eignuðust fimm börn,
Sigríður Guðfinna er búsett í
Reykjavík; Gunnar, f. 16.10.1919,
látinn, verslunarmaður, Gunnar
eignaðist tvö böm með Guðnýju
Kristjánsdóttur og tvö böm með
Þorbjörgu Guðnadóttur, Gunnar
var búsettur Reykjavík; Hjördís, f.
16.10.1919, látin, húsmóðir, hennar
maður var Bergur Sigurbjömsson
viðskiptafræðingur, þau eignuðust
fjögur böm, Hjördís var búsett í
Reykjavík.
Hjörtur Pjetursson.
Foreldrar Hjartar vora Pjetur
Þórhaili Júlíus Gunnarsson, f. 28.3.
1885, d. 1955, stórkaupmaður og end-
urskoðandi, og Svanfríður Hjartar-
dóttir, f. 5.12.1891, d. 1975, húsmóð-
ir, en þau bjuggu í Reykjavík.
Hjörtur tekur á móti gestum á af-
mælisdaginn í félagsmiðstöðinni
Hvassaleiti 56-58 í Reykjavík kl.
17-19.