Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1992, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 5. MARS 1392.
3
Fréttir
Neytendasamtökin um Þjóðlífsrukkanimar:
Hópur fólks í slæmum málum
- erfitt að verjast þegar dómur er fallinn
„Það hafa einhveijir leitað til okk-
ar vegna mála af þessu tagi. Það ligg-
ur fyrir að það er ákveðinn hópur
fólks í slæmum rnálurn," sagði Jó-
hannes Gunnarsson, forstöðumaður
Neytendasamtakanna, vegna síend-
urtekinna rukkana innheimtufyrir-
tækis á Þjóðlifsáskriftum.
Jóhannes sagði að viðkomandi ein-
staklingar hefðu á sínum tíma tekið
tilraunaáskrift að tímaritinu. í dag
hefðu þeir ekkert í höndunum um
að þeir hefðu sagt áskriftinni upp.
Svo fengju þessir einstakhngar dóm
og úr þvi væri orðið erfitt fyrir þá
að verjast.
Jóhannes sagði Neytendasamtökin
mæla með þvi af fenginni reynslu að
fólk segði áskriftum sem þessum upp
með ábyrgðarbréfi eða óskaði stað-
festingar á uppsögninni á annan hátt.
„Sem betur fer eru þessar Þjóðlífs-
innheimtur einsdæmi um svo harðar
aðgerðir að fólk lendi í dómi. Varð-
andi þetta mál, sem DV greindi frá í
gær, þá höfðum við samband við lög-
fræðistofuna sem reyndist vera með
fjárnámsbeiðnina frá fógeta. Við
bentum á að ef einhver skuldaöi ein-
hverjum þá væri það Þjóðlíf sem
skuldaði skjólstæðingum okkar því
að þeir væru búnir að þriborga sömu
áskriftina. Við óskuðum eftir því að
þar sem kvittanir væru fyrir.hendi
um greiðslur að fjárnámið yrði dreg-
ið til baka. Viö höfum það nú skrif-
legt að það hafl verið afturkallað."
Jóhannes sagði það undarlegt að
þeim sem hlytu dóm væri ekki birtur
dómurinn. Hann kvað Neytenda-
samtökin ætla að ræða það mál sér-
staklega við lögmenn sína. Það hlyti
að teljast mjög alvarlegt ef fólk væri
allt í einu komiö með dóm án þess
að hafa hugmynd um það. Viökom-
andi ættu meðal annars á hættu að
lenda á „svörtum lista“ í peninga-
stofnunum án þess aö hafa nokkuð
til þess unnið, eins og í umræddu til-
viki.
-JSS
Vaxtarræktar-
menn stef na
Pétri aftur
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Vaxtarræktarmennimir þrjátíu og
flmm, sem kærðu Pétur Pétursson
lækni fyrir Bæjarþingi Akureyrar
vegna ummæla hans um þá, hafa
stefnt honum aftur en fyrri kæm
þeirra var vísað frá dómnum.
Kröfur vaxtarræktarmannanna
vom m.a. að ummæh Péturs um þá
yrðu dæmd dauð og ómerk, að Pétur
sætti fangelsi og honum yrði gert að
greiða þeim miskabætur sem næmu
rúmlega 10 milljónum króna. Ásgeir
Pétur Ásgeirsson héraðsdómari á
Akureyri, sem fór með málið fyrir
héraðsdómi, vísaði hins vegar kær-
unni frá að kröfu lögmanns Péturs,
Sigurmars K. Albertssonar.
Olafur Sigurgeirsson, lögmaður
vaxtarræktarmannanna, lýsti því þá
strax yfir að hann ætlaði að koma
lögum yfir lækninn þótt svo hefði
farið og hann hefði um tvær leiðir
að velja, að áfrýja til Hæstaréttar eða
kæra aftur til héraðsdóms, og hefur
nú vahð síðari kostinn.
Ummæh Péturs voru m.a. efnislega
á þann veg að a.m.k. flestir þeir sem
næðu árangri í vaxtarrækt notuðu
til þess ólögleg lyf og fleira sagði
hann sem fór fyrir brjóstið á vaxtar-
ræktarmönnum, s.s. að eistun í þess-
um ræflum rýmuðu og yrðu ræfils-
leg. Vaxtarræktarmenn kæröu Pétur
m.a. til siðanefndar lækna á sínum
tíma en sú nefnd tók efnislega undir
ummæli læknisins en áminnti hann
þó vegna orðalagsins sem hann við-
hafði.
Vegagerð í Öxnadal:
Lægsta tilboðið
um helminguraf
kostnaðaráætlun
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Átján af 20 tilboðum í vegagerð í
Öxnadal, sem opnuð vom nú í vik-
unni, voru undir kostnaðaráætlun
og lægstu tilboðin námu reyndar
ekki nema um helmingi af kostnað-
aráætlun Vegagerðar ríkisins.
Um er að ræða tæplega 10 km lang-
an vegarkafla í Öxnadal, frá Engi-
mýri að Varmavatnshólum, en verk-
inu á aö vera lokið á miðju næsta
ári. Kostnaðaráætlun Vegagerðar-
innar nam tæplega 88 milljónum
króna.
Fyrirtækið Gunnar og Kjartan á
Egilsstöðum átti lægsta tilboðið og
nam þaö 45,7 milljónum króna, eða
aðeins 51,9% af kostnaðaráætlun.
Fyrirtækin Jarðefni hf. og Árvélar
sf. í Reykjavík buðu 49,4 mihjónir eða
56,2% af kostnaðaráætlun.
Sem fyrr sagöi vom aðeins tvö til-
boðanna yfir kostnaöaráætlun Vega-
gerðarinnar en þau komu frá Jó-
hanni Bjarnasyni á Hellu og ístaki
hf. í Hafnarfirði. Tilboö ístaks, sem
hljóðaði upp á 144 milljónir, var
þannig tæplega 100 mihjón krónum
hærra en lægsta tilboðiö.
NÝR 0G STÆRRI FJÖLSKYLOUBÍLL
LAuA
SAMARA
STALLBAKUR
2 LA0A SÝNING í DAG
Ármúla 13108 Reykjavík Símar 6812 00 & 312 36
BIFREHJAR & LANDBUNAÐARVÉLAR HF.
Við kynnum nýja útgáfu af Lada Samara (Lada Samara
stallbak). Þessi bíll er 20 cm lengri en hin hefðbundna
Samara og rúmbetri. Bíllinn hentar því vel fjölskyldufólki.
Lada Samara stallbakur er fimm manna og með lokaðri
farangursgeymslu (skotti).
Komið og skoðið nýja Samara bílinn ásamt fjölbreyttu
úrvali aföðrum Laöa bílum.
Við bjóðum upp á kaffi og með því og krakkar fá ís og gos.