Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1992, Blaðsíða 13
FIMMTUDA.GUR 5. MARS 1992,.
13
AÐALFUNDUR
SJOVA-ALMENNRA
TRYGGINGA HF.
VERÐUR HALDINN
20. MARS 1992
AÐ HÓTELSÖGU
Þær voru glæsilegar stúlkurnar sem tóku þátt í keppninni eins og myndin
ber með sér. DV-mynd GK
Ungfrú Norðurland:
Ung Tjömes-
stúlka kjörin
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Pálína Sigrún Halldórsdóttir, ung
stúlka frá Tjörnesi í Þingeyjarsýslu
var um helgina kjörin „ungfrú Norö-
urland" í Sjallanum á Akureyri.
Tólf stúlkur víös vegar af Noröur-
landi tóku þátt í keppninni og var
mikið um dýrðir í Sjallanum úrslita-
kvöldiö. Fjölbreytt skemmtiatriði
voru á dagskrá og ekkert til sparaö.
Pálína Sigrún verður fulltrúi Norð-
urlands í Fegurðarsamkeppni ís-
lands sem fer fram í Reykjavík, en
hún var í keppninni á Akureyri einn-
ig kjörin besta ljósmyndafyrirsætan.
Stúlkumar sjálfar sem tóku þátt í
keppninni völdu hins vegar vinsæl-
ustu stúlkuna úr sínum hópi og varð
Lovísa Sveinsdóttir fyrir valinu.
Pálína Sigrún Halldórsdóttir var val-
in fulltrúi Norðurlands.
SVFR
OPIÐ HÚS
Opið hús verður í félagsheimili SVFR
föstudaginn 6. mars.
Húsið opnað kl. 20.30.
Dagskrá: Sogið
* Helstu veiðistaðir:
Syðribrú, Ásgarði, Bíldsfelli og Alviðru.
Falleg litskyggnusýning eftir Rafn Hafnfjörð. Leið-
sögumaður Gylfi Pálsson.
* Glæsilegt happdrætti.
FRÆÐSLU- OG SKEMMTINEFND SVFR
Nína Gautadóttir myndlistarkona og
Edda Erlendsdóttir píanóleikari á
góðri stundu.
Okkar þjónusta
er nýjung hérlendis
TEPPAÞURRHREINSUN
host
Valin
hreinsiefni
fyrir
gólf og teppi
í úrvali
Skúfur notar þurrhreinsikerfið Host, sem
yfir 100 teppaframleiðendur mæla sér-
staklega með. Host leysir upp, dregur og
þerrar öll óhreinindi, alveg niður í botn
teppisins.
Það raunverulega djúphreinsar! Engin
bleyta, teppið er tilbúið til notkunar strax
að lokinni hreinsun.
Stór hluti lausra teppa er eingöngu hægt að hreinsa
með þurrhreinsun ef ekki á að skemma þau.
NÚ höfum við opnað mottu og teppahreinsunarstöð að Ármúla 42
Á
Athugið! Opið
mánduaga 10-18
þriðjud.-fimmtud. 16-18
Föstudaga 13-18
SKUFUR
Teppahreinsun
Ármúla 42 -Sími 67-88-12
Sviðsljós
Gisli Egill Hrafnsson, DV, París:
Hátt í 200 manns voru á þorrablóti
íslendinga í París sem haldið var fyr-
ir skömmu en hátíðin var óvenju-
vegleg að þessu sinni.
Dagskráin hófst með því að stofnað
var félag íslendinga í Frakklandi og
urðu allir samkomugestir stofnfélag-
ar um leið. Því næst var sest til borðs
og ósviknum þorramat skolað niður
með íslensku brennivíni.
Skemmtiatriði voru af ýmsum
toga. Ómar Ragnarsson fór með gam-
anmál og söng við góðar undirtektir
viðstaddra og að sjálfsögðu tók land-
inn lagið í fjöldasöng. Dansað var
fram eftir nóttu við undirleik hljóm-
sveitarinnar 14. september.
Var það mál manna að sérstaklega
vel hefði tekist til með framkvæmd
hátíðarinnar og var það ekki síst
þeim að þakka sem stóðu að undir-
búningi hennar, auk þess sem ís-
lensku fyrirtækin í Frakkiandi: ís-
lenskar sjávarafurðir, SÍF, SH og
Flugleiðir, sýndu velvilja sinn í verki
með styrkjum.
Albert Guðmundsson sendiherra og frú létu sig að sjálfsögðu ekki vanta.
F.v.: Katrín Jónsdóttir, Brynhildur Jóhannsdóttir, Albert, Una Margrét Jóns-
dóttirog Sigurður Jónsson. DV-myndirGísli
Undanúrslit
í freestyle
Fyrir nokkru var haldin undanúr-
shtakeppni í frjálsum dönsum í fé-
lagsmiðstöðinni Tónabæ þar sem
vahnn var fulltrúi Reykjavíkur og
Reykjaness til þátttöku í íslands-
meistarakeppnínni sem fram fer
næstu helgi.
Guðfinna Björnsdóttir varð hlut-
skörpust í einstaklingskeppninni og
í hópdansi urðu stúlkumar í
„Djásni“ í fyrsta sæti en Guðfmna
er líka ein þeirra. Sjálf íslandsmeist-
arakeppnin fer svo fram í Tónabæ á
fostudaginn.
Guðfinna Björnsdóttir vann einstakl-
ingskeppnina.
Fundurinn verður í Súlnasal
og hefst kl. 15.30 síðdegis.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
samkvæmt 17. grein félagssamþykkta.
2. Tillaga um arðgreiðslur.
3. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Aðgöngumiðar verða afhentir
á skrifstofu félagsins, Kringlunni 5,
frá 17. mars til kl. 12.00 á fundardag.
SJÓVÁ-ALMENNAR
KRINGLUNNl 5; 103 REYKJAVÍK, SÍMI 91-692500
Þorrablót í París