Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1992, Page 8
8
FIMMTUDAGUR 5. MARS 1992.
Lífsstfll
DV kannar verð í matvöruverslunum:
Mandarínur illfáanlegar
Neytendasíða DV kannaði að þessu
sinni verð í eftirtöldum verslunum:
Bónusi Hafnarfirði, Fjarðarkaupi
Hafnarfirði, Hagkaupi Eiðistorgi og
Miklagarði við Miðvang í Hafnar-
firði. Kjötstöðin Glæsibæ var ekki
tekin með að þessu sinni vegna þess
að verslunin var lokuð vegna eig-
endaskipta í gær.
Bónusbúðimar selja sitt grænmeti
í stykkjatali en hinar samanburðar-
verslanirnar selja eftir vigt. Til þess
Neytendur
að fá samanburð þar á milli er græn-
meti og ávextir í Bónusi vigtað og
umreiknað eftir meðalþyngd yfir í
kílóverð.
Að þessu sinni var kannað verð á
sveppum, gulri papriku, gullauga-
kartöflum, kínakáli, rófum, mandar-
ínum, gulrótum, molasykri, lamba-
kótilettum, Carefree dömubindum,
25 stk., Egils pilsner, 141, og á viðbit-
inu Klípu.
Sveppir fengust aðeins á þremur
samanburðarstaðanna að þessu
sinni og munur á hæsta og lægsta
verði er aðeins rúm 3%. Sveppir
kostuðu 566 í Miklagarði, 568 í Hag-
kaupi, 585 í Fjarðarkaupi en fengust
ekki í Bónusi. Öllu meiri munur er
á hæsta og lægsta verði á gulri papr-
iku eða 62 af hundraði. Hún kostar
246 í Miklagarði þar sem verðið var
■ ........................ " ■■
llIltfílS
DV-mynd Hanna
lægst, 249 í Fjarðarkaupi og 399 í
Hagkaupi.
Það munar 67% á hæsta og lægsta
verði á kartöflum. Verðið var lægst
í Bónusi, 45, en þær kostuðu 59 í
Fjarðarkaupi og 75 í Hagkaupi og
Miklagarði. Munur á hæsta og lægsta
verði á kínakáli er 38 af hundraði.
Lægsta verðið var í Bónusi, 144, en
síðan kom Mikligarður með 167,
Fjarðarkaup 169 og Hagkaup 199.
Rófur voru langódýrastar í Bónusi
á aðeins 17 krónur kílóið. Næst kom
Mikligarður með 49, Fjarðarkaup 56
og Hagkaup 59. Munur á hæsta og
lægsta verði er ansi mikill eða 247%.
Ekki er miklar sögur að segja af
mandarínum. Þær fengust aðeins í
einni verslun, Hagkaupi, en mjög
sjaldgæft er að grænmetis- eða
ávaxtategundir fáist ekki í Hag-
kaupi. Mandarínur kostuðu 225
krónur kílóið í Hagkaupi. Gulrætur
kostuðu 136 í Bónusi þar sem verðið
var hagstæðast. Næst kom Mikli-
garður með 223, Fjarðarkaup 225 og
Hagkaup 234. Munur á hæsta og
lægsta verði er 72%. Það vekur at-
hygh að í öllum tilfellum er Hagkaup
með hæsta verðið á grænmeti. Eru
þeir þar að sitja eftir í verðsam-
keppni á grænmeti og ávöxtum?
Molasykurinn finnski frá Sirku
kostar 85 í Bónusi, 89 í Miklagarði,
90 krónur í Fjarðarkaupi og 93 í Hag-
kaupi. Munur á hæsta og lægsta
verði er ekki mikill eða 9 af hundr-
aði. Lambakótilettur fengust ekki í
Bónusi en verðið var 727 krónur kíló-
ið í Miklagarði þar sem það var
lægst. í Hagkaupi er kíóið selt á 764
og 830 í Fjarðarkaupi. Carefree
dömubindi, 25 stk„ voru aðeins til í
2 verslunum í könnuninni. Þau kosta
189 í Miklagarði og 195 í Hagkaupi.
Munur á hæsta og lægsta verði er
5%.
Egils pilsner í hálfs litra dósum
kostar 54 í Bónusi, 64 í Hagkaupi og
Miklagarði en 74 í Fjarðarkaupi.
Munur á hæsta og lægsta verði er
þar 37%. Nýja viðbitið Klípa er á
svipuðu verði í verslunum. Þar sem
verðið var lægst, í Bónusi, var það
113 en 119 í Fjarðarkaupi, 125 í Hag-
kaupi og 129 í Miklagarði. Munur á
hæsta og lægsta verði er 14%.
Grænmeti
lækkar í verði
Ef línurit fyrir grænmeti er skoðað
sést að verðlag á grænmeti er al-
mennt á niðurleið. Kartöflur eru
undantekning þar sem um örlitla
hækkun er að ræða en ekki er hægt
að tala um meðalverð á mandarínum
þessa vikuna þar sem mandarínur
fengust ekki nema í einni saman-
burðarverslananna að þessu sinni.
Meðalverðið á mandarínum var í
kringum 140 krónur kílóið á síðustu
þremur mánuðum en nú bregöur svo
við að þær fást ekki nema í einni
verslun. Meðalverð á sveppum
hækkaði mjög upp úr miðjum febrú-
armánuði, úr 430 í 600 krónur. Meðal-
verðið virðist vera aftur á niðurleið
og vonandi að þar verði áframhald á.
Meðalverð gulrar papriku er hag-
stætt um þessar mundir, hefur farið
lækkandi frá því í lok janúar og hef-
ur lækkað um 100 krónur á því tíma-
bili. Meðalverðið er nú 298 krónur.
Meðalverð á kartöflum hefur verið
stöðugt frá áramótum en gæði eru á
niðurleið. Því miður er það svo í
nokkrum verslunum að kartöflur
eru á mörkum þess að teljast til 1.
flokks.
Meðalverð á rófum hélst stöðugt í
um 60 krónum frá nóvember á síð-
asta ári fram í febrúar. Meðalverðið
lækkaði um 15 krónur í könnuninni
nú og er nú 45 krónur. Töluverðar
sveiflur eru á verði kínakáls. Um
miðjan desembermánuð var það 170,
rauk upp í 225 krónur í miðjum jan-
úar en er nú komið niður í sama
meðalverð og áður, 170 krónur.
Sértilboð og afsláttur:
gúmmíi
Það kennir margra grasa að
venju í sértilboðum verslananna.
Bónusbúðimar bjóða barna-
sokka, sem eru styrktir með
gúmmíi á botninum, á sértilboði.
Parið er selt á 199 krónur. Meðal
annarra tilboðsvara þeirra eru
Nóa Síríus súkkulaðiplötur, 100
g, á 79 krónur, H-þvottaefni fyrir
uppþvott, 5 kg á 559 krónur, ög
Prama Ultra þvottaefni, 1,3 kg,
sem selt er á 339 kr.
í Fjarðarkaupi í Hafnarfirði eru
i gangi sérlega hagstæð tilboð á
Egils djús í eins lítra brúsum sem
selt er á 150 krónur og RC-kóla í
114 1 flöskum sem kosta 90 krón-
ur. einnig Samsölu pylsubrauð
sem seld eru á 65 krónur, 5 stykki
í poka, og Palacio túnfiskur í dós,
115 g, sem kostar aöeins 115 krón-
í Hagkaupi á Eiðistorgi er
nautahakk á mjög góöu verði, 549
krónur kílóiö. Appelsínur eru á
sértilboðsverði, 59, sömuleiöis
fisk-
bollur ftá Humli sem seldar eru
meö 20% afslætti Hvítlauks-
brauö, 2 saman frá Parisienne,
kosta 179 krónur.
1 Miklagarðsverslunum eru
Bambo maxi bleyjur, 45 stk., á
tilboðsverðinu 499 krónur, MS
skafís, 2 lítrar, kostar 398 og 18 x
'A 1 af kókómjólk kosta 684 sem
gerir aðeins 38 krónur á stykkið.
Cirkel kaffi í 'A kg umbúðum er
selt á afsláttarverði, 3 bragðteg-
undir, og kostar pakkinn 199
krónur.
Verslun Kjötstöðvarinnar var
lokuö og því engin sértilboð að
Iiafa á þeim bæ að þessu sinni.