Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1992, Síða 3
FIMMTUDAGUR 12. MARS 1992.
3
PV______________________________________Fréttir
Dómur Hæstaréttar í máli bíleigenda sem fólsuðu tjónstilkynningar:
Hnekkti héraðsdómi
- dæmdi sakbominga 1 skilorðsbundið fangelsi fyrir flársvik
Hæstiréttur hefur dæmt tvo unga
menn til 3ja mánaða skilorsðbund-
innar fangelsisrefsingar hvorn fyrir
tryggingasvik. Ungu mennirnir urðu
uppvísir að því að fylla út rangar
tjónstilkynningar vegna bíla þeirra
og alhent þær tryggingafélögum sín-
um til að fá bætur fyrir þá. Annar
mannanna var dæmdur til að greiða
Tryggingamiðstöðinni 364 þúsund
krónur í skaðabætur. í október sýkn-
aði Sakadómur Reykjavíkur piltana
af fjársvikum en Ríkissaksóknari
áfrýjaði þá til Hæstaréttar.
Mennirnir, sem eru um tvítugt,
voru á bílum sínum við kvartmílu-
brautina við Hafnarfjörð að kvöldi
14. janúar 1991. Þeir sögðu báðir við
dómsyflrheyrslur að tjónið hefði orð-
ið þegar annar ökumaðurinn náði
ekki aö stöðva bíl sinn í hálku. Bíll-
inn heföi því runnið á hinn.
Þriðji maðurinn var á vettvangi um
kvöldið. í lögregluyflrheyrslu lýsti
hann 4 ákeyrslum á annan bílinn -
árekstrarnir hefðu því verið sviðsett-
ir. Vitnið sagðist sjálft hafa ekið öðr-
um bílnum tvisvar á hinn á 40-50 km
hraða. Hann sagði eigendur bílanna
báða hafa leikið sama leikinn eftir -
í annað skiptið á svipuðum hraða en
í hitt skiptið „var bensínið í botni".
3 dögum fyrir atvikið keypti mað-
urinn, sem átti ákeyrslubíhnn, ka-
skótryggingu og greiddi með inn-
stæðulausum tékka. Eftir atburðinn
skiluðu báðir eigendur bílanna tjóns-
tilkynningum inn til tryggingafélaga
sinna, Tryggingamiðstöðvarinnar og
Sjóvá-Almennra. í tilkynningunum
var sagt að tjónið hefði orðið á mót-
um Réttarholtsvegar og Sogavegar.
Tryggingamiðstöðin greiddi síðan
út 415 þúsund krónur til þess sem
átti bílinn sem ekið var á en Sjóvá-
Almennar greiddu ekki hinum eig-
andanum, handhafa kaskótrygging-
arinnar, bætur. Eftir lögreglurann-
sókn voru eigendur beggja bílanna
ákærðir en vitnið ekki.
Sakadómur sýknaði tvíinenning-
ana m.a. á þeim forsendum að ósann-
að hefði verið aö keyrt hr cöi verið á
aðra bifreiðina margsinnis og að vafa
bæri að skýra sökunautum í hag.
Hæstiréttur taldi hins vegar upp-
lýst að mennirnir hefðu skemmt bíla
sína viljandi. Dómurinn taldi fram-
burð mannanna um aðeins eina
ákeyrslu vera tilbúning með hliðsjón
af ljósmyndum og framburði mats-
manna. Auk þess var við sakfellingu
tekiö mið af reikuium framburði
annars sakborningsins og því að
hann hefði keypti kaskótryggingu
þremur dögum fyrir ákeyrsluna.
Báðir mennimir voru dæmdir fyrir
tryggingasvik en handhafi kaskó-
tryggingarinnar var eins og í saka-
dómi auk þess dæmdur fyrir tékka-
lagabrot með því að hafa greitt ið-
gjaldið með innstæðulausri ávísun.
Dóminn kváðu upp hæstaréttardóm-
ararnir Hjörtur Torfason og Garöar
Gíslason og Auður Þorbergsdóttir
borgardómari. -ÓTT
Raynor
bílskúrshurðir
FRABÆRT VERÐ
AMERÍSKAR HÁGÆÐA
STÁLHURÐIR, FALLEG ÁFERÐ,
EINANGRAÐAR, 5 CM ÞYKKAR.
BÍLSKÚRSOPNARAR.
VERKVER
Skúlagötu 62a
S. 621244/fax 629560
Opió 16.00-18.00
HÉR ERU ÞÆR ALLAR MEÐ TÖLU
Tilviljun ræður öllu um hvaða tölur koma upp í
lottóútdrætti hverju sinni.
Fólk hefur misjafna trú á einstökum tölum og eru
margvíslegar aðferðir notaðar við val talna.
Það er gaman að skoða hve oft hver lottótala hefur
komið upp og hver veit nema einhver
talnaspekingurinn geti fundið hinar einu sönnu
lukkutölur.
Vertu með
- draumurinn gæti orðið að veruleika!
□ LOTTÓTÖLUR □ BÓNUSTALA
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI: 681511 LUKKULÍNA: 991000