Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1992, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1992, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 12. MARS 1992. LífsstQl DV kannar verd í matvöruverslunum: íslenskar gúrkur á markað Neytendasíða DV kannaði að þessu sinni verð í eftirtöldum verslunum: Bónusi í Kópavogi, Fjarðarkaupi í Hafnarfirði, Hagkaupi við Laugaveg og Miklagarði við Sund. Kjötstöðin í Glæsibæ er hætt starfsemi og við tekur verslun 10-11 á vegum Bónuss og verður hún því ekki tekin með í könnun DV. Bónusbúðimar selja sitt grænmeti í stykkjatali á meðan hinar saman- burðarverslanirnar selja eftir vigt. Til þess að fá samanburð þar á milli er grænmeti í Bónusi vigtað og um- reiknað eftir meðalþyngd yfir í kíló- verð. Að þessu sinni var kannað verð á tómötum, gúrkum, bláum vínberj- um, grænni papriku, rauðum eplum, appelsínum, 2 kg af Pillsbury’s hveiti, 1 kg af nautahakki, Þvol upp- þvottalegi, 11 af Trópí appelsínusafa og 907 g af Hunt’s tómatsósu. Tómatar kosta 138 í Bónusi, þar sem þeir vom ódýrastir, 219 í Mikla- garði og Hagkaupi og 225 í Fjarðar- kaupi. Munur á hæsta og lægsta verði er 63 af hundraði. Gúrkur voru einnig ódýrastar í Bónusi þar sem kílóverðið var 186. Þær vom á 224 í Hagkaupi, 225 í Fjarðarkaupi og 387 í Miklagarði en það var eini staður- inn sem hafði íslenskar gúrkur til sölu. Munur er eðlilega nokkuð mik- ill, 108%, vegna þess að íslenska framleiðslan er dýrari. Blá vínber fengust að þessu sinni ekki í Bónusi en voru á 260 í Fjarðar- kaupi, 264 í Hagkaupi og 278 í Mikla- garði. Þar munar aöeins 7 af hundr- aði á hæsta og lægsta verði. Græn paprika reyndist vera á lægsta verð- íslenskar gúrkur eru nú að koma í verslanir en eina verslunin sem seldi þær að þessu sinni var Mikligarður. inu í Miklagarði að þessu sinni, 239 krónur kílóið. Næst kom Fjarðar- kaup með 249, Bónus 253 og Hagkaup 318 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði er 33 af hundraði. Hvítt greip kostar 59 krónur kílóið í Bónusi, 73 í Fjarðarkaupi, 79 í Miklagarði og 89 í Hagkaupi. Munur á hæsta og lægsta verði mæhst vera 51%. Rauð epli eru ódýrust í Bónusi og Miklagarði þar sem kílóverðið var 99 krónur. Næst kom Fjarðarkaup með 115 og Hagkaup með 145. Munur á hæsta og lægsta verði er 46 af hundraði. Appelsínur eru á svipuðu kílóverði í öhum verslunum að þessu sinni. í Bónusi er veröið 63, í Miklagaröi 68, í Fjarðarkaupi 69 og 79 í Hagkaupi. Munur á hæsta og lægsta verði er 25 af hundraði. Pihsbury’s hveiti fæst ekki í Bónusi en svo undarlega vildi til að sama verð var á tveggja kílóa pokanum í Fiarðarkaupi, Hag- kaupi og Miklagaröi, 145 krónur. Það munar heilum 38% á hæsta og lægsta verði á nautahakki. Það var á 537 krónur í Bónusi, 639 í Hag- kaupi, 724 í Fiarðarkaupi og 739 krónur í Miklagarði. Uppþvottalög- urinn Þvol fæst ekki í Bónusi en kostar 95 í Hagkaupi, 99 í Fíarðar- kaupi og 109 krónur í Miklagarði. Þar mælist munur á hæsta og lægsta verði vera 15 af hundraði. Ávaxtasafinn Trópí kostar 127 í Bónusir134 í Fiarðarkaupi, 137 í Hag- kaupi og 175 í Miklagarði. Þar er munur á hæsta og lægsta verði ansi mikill eða 38%. Hunt’s tómatsósa er á 117 krónur í Bónusi, 119 í Fjarðar- kaupi og 129 í Hagkaupi en fæst ekki í Miklagarði í þessari stærð. Munur á hæsta og lægsta verði er 10%. -ÍS Hæsta og lægsta verð Nautahakk 900 Verð á grænmeti og ávöxtum á niðurleið Hæst Lægst Hveiti 170 Trópí 190 Hæst Lægst Tómatsósa Svo virðist sem verðlag á græn- meti og ávöxtum sé almennt á niður- leið ef hnuritin fyrir þessa könnun eru tekin til viðmiðunar. Meðalverð tómata var á hraöri niðurleið í byrj- un þessa árs en hefur nú aðeins hækkað aftur. Það stendur nú í 200 krónum. Meðalverð grænnar papr- iku var á uppleið í lok síðasta árs en er nú farið að skríða niður á við. Meðalverð er nú 265 krónur. Meðalverð á gúrkum er á hraðri niðurleið en búast má við að það fari upp á við þegar íslenskar gúrkur koma á markaðinn. Þær hafa jafnan verið dýrari en þær innfluttu, enda kosta þær 387 krónur kílóið á eina staðnum þar sem þær eru fáanlegar. Meðalverð á hvítu greipi hefur lækkað um hehar 35 krónur á tveim- ur síðastliðnum mánuðum. Það var 110 krónur í byrjun janúar en er nú 75 krónur. Meðalverð á rauðum epl- um sveiflast upp og niður. Það var meira en 140 krónur í desember, fór niöur í rúmar 120 í lok mánaðarins, upp í tæpar 140 í febrúar og niður í 115 krónur nú. Blá vínber voru á rúmlega 200 króna kílóverði í des- ember og janúar, hækkaði um 100 krónur í febrúar en hefur nú tekið stefnuna niður á við á ný og er nú 267 krónur. -ÍS Appelsínur Þvol Hæst Lægst Sértilboð og afsláttur: Það kennir margra grasa í sértil- boðum Bónuss. Meðal þeirra má telja Guh-kaSI, 'A kg, sem selt er á 159 kr„ Maarud sticks, sem er nýtt á markaðnum, en 150 gramma poki kostar 141, Loreal Studio Line hársprey, 2 brúsar saman, sem kosta 349, og Alpia súkkulaöirúsín- ur sera kosta 99 krónur 200 gramma poki í Fiarðarkaupi er hreinlætisvara seld á 15% afsláttarveröi, kústar, mottur, þveglar og fleiri tæki. Burt- ons kex er á' sértilboði, fjórar bragðtegundir; kókoshnetu-, súkk- uiaði-, ávaxta- og hnetubragð, eru á 89 krónur, 200 gramma pakki. Einnig Jago kaffi, 'A kg, á 185 og Green Giant aspas, 297 g, á 92 og heill aspas, 425 g, á 223 krónur. í Hagkaupi byrja í dag tilboð á fjölmörgum vörum sera standa munu fram í næstu viku. Þar ber fyrst aö telja Humal fiskborgara, 4 í poka, á 125, Hunts niöursoðna tómata í dós, 425 g, á 29 krónur, Kogens bruður, 400 g, á 129 og 11 Sana appelsínudjús, sykurskertan, sem seldur er á 139 krónur. í Miklagarði við Sund eru Bambo maxi bleyjur, 45 stk., á afsláttar- verðinu 499 krónur pakkirn, Hy Top maískorn, 482 gramma dós kostar einungis 69 krónur, Nopa þvottaefni, 75 dl, er á 189 og kókó- mjólkin vinsæla er á tilboði, 18 x !4 1 á 689 krónur. -IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.