Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1992, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1992, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 12. MARS 1992. 11 Utlönd Skautadrottningin Katarina Witt hefur fengið morðhótanir og klámmyndir í pósti frá manni sem telur hana konuna sína. Witt segist óttast um líf sitt vegna hótananna og að myndirnar hafi vakið hrylling í brjósti hennar. Símamynd Reuter Skautadrottningln Katarina Witt 1 lífshættu: Fær klámmyndir og morðhótanir - hrellirinn dreginn fyrir dóm og vill aö Witt lýsi sendingunum „Eg vil að Witt lesi upp bréfin og lýsi því sem sést á myndunum. Álit hennar er það eina sem skiptir máli í augum guðs,“ segir Harry Veltman landbúnaðarverkamaður, sem dreg- inn hefur verið fyrir dóm vegna þess að hann sendi þýsku skautadrottn- ingunni Katarinu Witt klámmyndir af sjálfum sér og lét morðhótanir fylgja með. Veltman ver sjálfan sig fyrir réttin- um og er talið að hann fari flatt á því. Witt hefur búið í Kaliforníu frá því að hún gerðist atvinnumann- eskja í skautadansi. Hún sagði fyrir réttinum að hún óttaðist um líf sitt og að myndirnar hefðu vakið með henni hrylling. Dómarinn í máhnu vísaði frá kröfu Veltman um upplestur á bréfunum og lýsingu á myndunum. Witt sagði þó að í bréfunum kæmi fram að Velt- man liti á hana sem konuna sína og að morðhótanirnar stöfuðu af þvi að hann óttaðist að hún væri sér ótrú. Lögreglan í Santa Ana í Kaliforníu, þar sem Witt og Veltman búa, segir að hún hafi afhent 100 bréf og 10 klámmyndir af Veltman í nöktum í rúminu. Witt var ólympíumeistari í listhlaupi á skautum árin 1984 og 1988. Reuter liil»clihc/ SKEMMTILEG LEIKFÖNG OG LEIKTÆKI til sýnis í verslun okkar í Kringlunni, 2. hæð, dagana 5. - 14. mars Komið og leyffið krökkunum að skoða HAGKAUP Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum fer fram á eignunum sjálfum þriðjudaginn 17. mars 1992 á neðangreindum tíma: Búðavegur 6, Fáskrúðsfirði, þingl. eig. Reynir Jónsson, kl. 16.00. Uppboðs- beiðandi er Grétar Haraldsson hrl. Skál, ytri partur, Reyðarfirði, þingl. eig. Sigurður Guttormsson, kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er Tryggingastofnun ríkisins. BÆJARFÓGETINN Á ESKIFIRÐI SVSLUMAÐURINN í SUÐUR-MÚLASÝSLU BORGARAFUNDUR U BARNAVERNDARMÁ SAMTÖKIN FJÖLSKYLDUVERND efiia til almenns borgarafundar um bamavemdarmál í Safnaðarheimili Langholtskirkju laugardaginn 14. mars nk. kl. 14. Allir sem áhuga hafa á velferð barna hjartanlega vel- komnir. Stjórnin STJORNARKJÖR Vörubílstjórafélagið Þróttur auglýsir hér með eftir framboðslistum til kjörs stjórnar og trúnaðarmanna- ráðs í félaginu. Framboðslistar skulu berast á skrifstofu félagsins í síðasta lagi kl. 12 á hádegi miðvikudaginn 25. mars 1992 Kjörstjórn SKOMARKAÐUR í BREIDDINNI Góðir skór á góðu verði ATH. NÝJAR SKÓSENDINGAR Opið mánudaga - föstudaga kl. 12-18 Laugardaga kl. 10-14 Skemmuvegi 32-L, Kópavogi, sími 75777

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.