Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1992, Side 5
FIMMTUDAGUR 26. MARS 1992.
5
dv Fréttir
Tveirenní
gæslu vegna
innbrota
Tveir menn sítja enn í gæslu-
varðhaldi vegna innbrota sem
þeir eru grunaðir um aö hafa
framið í hðfuðborginni að und-
anfórnu. Þriðji aðilinn hefur þeg-
ar verið látinn laus og fór hann
í vímuefnameðferð.
Mennimir eru grunaðir um
aðild að innbrotum í fjölda fyrir-
tækja i Iðnaðarmannaltúsinu við
Hallveigarstíg. Þeir eru auk þess
taidir hafa brotist inn í Bergiðj-
una og haft á brott með sér pen-
ingaskáp, auk þess sem þeir eru
grunaðir um fleiri innbrot. Gert
er ráð fyrir að mennirnir losni
út á morgun. Annar þeirra sem
enn situr inni mun strax fara í
afþlánun vegna eins árs fangels-
isdóms sem hann á eftir að taka
útvegnaýmissaafbrota. -ÓTT
Músíktilraunir:
hljómsveitir
í kvöld hefjast Músíktilraunir
Tónabæjar og rásar 2 í Tónabæ.
Þetta er í 10. skipti sem þær eru
haldnar og að þessu sinni taka
24 hljómsveitir þátt.
Fyrstu átta hljómsveitirnar
koma fram í kvöld, næstu átta
þann 2. apríl og síðustu átta þann
9. apríl. Tvær til þrjár hljómsveit-
ir komast áfram í hvert sinn og
keppa síðan til úrshta að kvöldi
10. apríl. Sú hljómsveit sem end-
anlega vinnur fær í verðlaun 30
tíma í Stúdíó Sýrlandi.
Flestar þessara hljómsveita
leika svokallað dauöarokk enslík
tónhst á miklu fylgi að fagna á
meöal bílskúrshljómsveita um
þessar mundir.
Gestahljómsveit kvöldsins er
hljómsveitin Ham en næstu tvö
undanúrslitakvöld leika Sálin
hans Jóns mins og Todmobile
fyrir gesti. Dagskráin byrjar
klukkan átta öll kvöldin. Að-
gangseyrir er 400 krónur og er
öllum heimill aðgangur.
dómarar
Forseti Islands hefur skipað
þijá héraðsdómara í samræmi
við ný lög um aðskilnað umboðs-
valds og dómsvalds í héraðí frá
og með 1. júli 1992.
Jónas Jóhannsson var skipaður
héraðsdómari á Vestpörðum með
aðsetur á ísaflrði, Ólafur Ólafs-
son var skipaður héraðsdómari
við héraðsdóm Norðurlands
eystra raeð aðsetur á Akureyri
og Ólafur Börkur Þorvaldsson
var skipaður héraðsdómari við
héraðsdóm Austurlands meö aö-
setur á Egilsstöðum. Þremenn-
ingarnir gegna ahir nú þegar hér-
aðsdómarastöríum við framan-
greindembætti. -ÓTT
Leiðrétting:
Fæst hnífatil-
felli i fyrra
í frétt DV í gær, þar sem rætt
var við Ómar Smára Ármanns-
son, forvarnarfulltrúa lögregl- ■
unnar í Reykjavík, kom fram
mishermi sem stafaði af mis-
skilningi.
Sagt var að á síðustu þremur
árum hefði hnifum verið beitt í
5-12 skipti í höfuðborginni á
hverju ári - flest hefðu tilfellin
orðið á árinu 1991, eða 12. Hiö
rétta er að tilfellín voru fæst í
fyrra, eða 5, en flest árlð 1989 en
þá voru þau 12. Þannig heföi nei-
kvtfiðri þróun verið snúið við eins
og fréttin reyndar fjaílaði um.
Beðist er velviröingar á þessu
mishermi.
N0TAÐIR BÍLAR - BÍLAÞING - N0TAÐIR BÍLAR - BÍLAÞING - N0TAÐIR BÍLAR
N0TAÐIR BILAR - BILAÞING - N0TAÐIR BILAR - BILAÞING - N0TAÐIR BlLAR
VIÐ BJOÐUM TRAUST OG ORUGG VIÐSKIPTI
GREIÐSLUSKILMÁLAR AÐ ÓSKUM KAUPENDA
HEKLUHUSINU LAUGAVEGI 174
SÍMAR 695660 OG 695500
MMC LANCER GLX 1500 - árg. 1989, sjálfskiptur,
4 dyra, bleikur, ekinn 60 þ.km., verð.kr. 650.000. stgr.
T0Y0TA G0R0LLA T0URING 1600 4x4 - árg. 1990,
5 gíra,5 dyra, rauður, ekinn 33 þ.km., verð kr. 950.000.stgr.
MMC PAJER0 langur 2600 bensín - árg.1984,beinsk.
5 dyra, grábrúnn, ekinn 127 þ.km.,
verð kr. 700.000.stgr.
VW TRANSP0RTER 8 manna díesel - árgerð 1988,
4 gíra 4 dyra, hvítur, ekinn 80 þ.km.,
verð kr. 700.000. stgr.
MNFMN
N0TAÐIR BÍLAR
Á RAUNHÆFU MARKAÐSVERÐI
VW G0LF MEMPHIS 1600 - árg. 1989, 5 dyra, stein-
grár, ekinn 22 þ.km., verð kr. 650.000 stgr.
V0LV0 740 GL 2300 - árg. 1987, sjálfskiptur, 4 dyra,
blásans., ekinn 95 þ.km., verð kr. 850.000 stgr.