Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1992, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1992, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 26. MARS 1992. 11 Utlönd Sátu 17 ár í fangelsi fyrir morð sem þeir frömdu ekki: Þið eruð frjálsir Tveim mönnum, sem máttu dúsa í meira en sautján ár í fangelsi fyrir morð sem þeir frömdu ekki, var veitt frelsi í gær af dómara í Los Angeles sem bað þá innilega afsökunar. Florence-Marie Cooper dómari lauk dómsuppkvaðningu sinni með þessum orðum: „Powell og Chance, þið eruð nú frjálsir menn.“ Clarence Chance, 42 ára, og Benny Powell, 44 ára, voru dæmdir fyrir morðið á lögregluþjóninum David Andrews í miklu glæpahverfi í Los Angeles árið 1973. í úrskurði sínum sagði Cooper dómari að lögreglan í Los Angeles hefði vísvitandi leynt sönnunargögnum í málinu þegar það kom fyrir rétt árið 1975. Cooper bætti því við að málinu hefði verið vísað frá hefði kviðdóm- urinn haft vitneskju um þau. „Ég bið ykkur innilega fyrirgefn- ingar,“ sagði Cooper við mennina tvo sem báðir eru blökkumenn. Hún fyr- irskipaði þegar lögreglurannsókn á framferði lögregluþjónanna sem voru viðriðnir málið á sínum tíma en þeir eru aUir hvítir. Lögfræðingur Chances sagði að lögreglan hefði þvingað vitni tU að bendla Chance og Powell við máhð. Saksóknarinn Peter Bozanich, sem rannsakaði málið í tvö ár í frítíma sínum, sagði: „Við teljum að réttur- inn verði að úrskurða að sakborning- amir hafl verið í haldi að ósekju." Reuter ‘: - ..*■ ■• ÍS*;;' Clarence Chance og móðir hans, Lullean McBride, fagna úrskurði dómara í Los Angeles sem veitti Chance og öðrum manni frelsi eftir 17 ára fangels- isvist fyrir morð sem þeir frömdu ekki. Símamynd Reuter Lifnar yfir kosningabaráttunni 1 Bretlandi: Deilt um heilbrigðiskerfið Heldur er farið að hitna í kolunum í kosningabaráttunni í Bretlandi vegna deUna um heUbrigðiskerfið og getu þess tU að veita öUum lands- mönnum ókeypis þjónustu fljótt og vel frá vöggu til grafar. Stjómarflokkur íhaldsmanna hef- ur sakað Verkmannaflokkinn um að beita áróðursbrögðum í anda nasista með sjónvarpsauglýsingu um skóla- stúlku sem beið í ellefu mánuði eftir eyrnaaðgerð á ríkissjúkrahúsi. Önn- ur stúlka komst fljótt í aðgerð vegna þess að foreldrar hennar borguðu fyrir hana á einkasjúkrahúsi. „SUkir menn era ekki hæfir tU að stjórna. Slíkir menn mega aldrei stjórna," sagði John Major, forsætis- ráðherra Bretlands, og sakaði Verka- mannaflokkinn um að sverta heU- brigðiskerfl landsins. WUUam Waldegrave heilbrigðis- ráðherra sagði að aðferðir Verka- mannaflokksins hefðu verið við hæfi í Þýskalandi á áranum fyrir stríð. Verkamannaflokkurinn hefur sak- að íhaldsflokkinn um að hafa haldið sjúkrahúsum í fjársvelti á þrettán ára valdaferli sínum. Hann hefur heitið því að auka fjárveitingar til heUbrigðismála um eitt hundrað mUljarða króna. Reuter Verslunin Byggir hf. auglýsir tilboðsverð út marsmánuö á neóangr.: Úrvals parketi, austurlenskum gólfteppum, flaggstöngum, mexi-hleðslusteinum, fullþurrk- uóum harðviði, bóni, skóáburði o.fl. Byggir hf., Bíldshöfða 16, sími 677190 Lausar eru til umsóknar eftirtaldar rannsóknastöður við Raunvísindastofnun Háskólans sem veittar eru til 1-3 ára a) Ein staða sérfræðings við Eðlisfræðistofu. b) Tvær stöður sérfræðinga við Efnafræðistofu. Æskilegt er að annar sérfræðingurinn geti starfað á sviði kjarnarófsgreininga (NMR) á efnum, en hinn á sviði efnagreiningartækni. c) Tvær stöður sérfræðinga við Jarðfræðistofu. Öðr- um sérfræðingnum er ætlað að starfa á sviði gjóskulagafræði. Hinum sérfræðingnum er ætlað að vinna að jarðefnafræðilegum rannsóknum á köldu vatni, bæði úrkomu, yfirborðsvatni og grunnvatni. Rannsóknirnar skulu einkum beinast að því að skýrgreina hvaða þættir ráða efnainni- haldi kalds vatns og hvernig þeir hafa áhrif á gæði þess. Fastráðning í þessa stöðu kemur til greina. Gert er ráð fyrir að stöðurnar verði veittar frá 1. sept- ember nk. Laun eru samkvæmt launakerfi starfs- manna ríkisins. Umsækjendur skulu hafa lokið meist- araprófi eða tilsvarandi háskólanámi og starfað minnst eitt ár við rannsóknir. Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsóknastarfa, en kennsla þeirra við Háskóla íslands er háð samkomu- lagi milli deildarráðs raunvísindadeildar og stjórnar Raunvísindastofnunar Háskólans, og skal þá m.a. ákveðið hvort kennsla skuli teljast hluti af starfs- skyldu viðkomandi starfsmanns. Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum um menntun og vísindaleg störf, auk ítarlegrar lýsing- ar á fyrirhuguðum rannsóknum, skulu hafa borist Raunvísindastofnun Háskólans, Dunhaga 3-107 Reykjavík, fyrir 1. maí 1992. Æskilegt er að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dóm- bærum mönnum á vísindasviði umsækjanda um menntun hans og vísindaleg störf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðarmál. Raunvísindastofnun Háskólans. Bílvals I bílar á betra verði Mikið úr iral góðra jeppa og Æ * II bíla á staðnum Cherokee Laredo ’88, einn m/öllu, gullfallegur bíll. V. 1.750.000 sfgr. Dodge Aries stw. ’88. V. 610.000 stgr., rúmgóður fjölskyldubíll. Toyota LandCruiser, stuttur/disil, '86, ek. 160.000. V. 980.000 stgr., gott útlit. Fiat Uno 60S ’87, ek. 79.000. V. 220.000 stgr., góður i bæjarsnatt. Nissan Sunny SLX ’87. V. 350.000 stgr. Dodge Aries LE ’88. V. 650.000 stgr., ek. aðeins 41.000, góður bill. Isuzu Trooper stuttur '86. V. 790.000 stgr., góður bill. Skoda Favorit 136 L ’90. V. 280.000 stgr., nýlegur bíll á hreint frábæru verði. Citroén BX 16 TRS ’87. V. 460.000 stgr., sjálfsk., vökvast., raf. í rúðum, centrallæs. 0 JÖFUR HF Opið 9-18 virka daga 10-14 laugardaga Greiðslukjör við allra hæfi, Visa rað- greiðslur í 18 mán. 75% lánað í 24 mán. Ath. fyrsta afborgun í maí. BIIM. HF Skeljabrekku 4, 200 Kóp. Sími 642610 og 42600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.