Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1992, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 27. MARS 1992.
Fréttir
DV
Georg Ólafsson verðlagsstj óri:
Skaðlegar samkeppnishöml-
ur sem binda verður enda á
- hafi MS boðið afslátt til að koma Bauluvörum út
Georg Ólafsson verölagsstjóri: hefur skipað nefnd til að kanna kostnaðarverð einstakra vara í mjólkurfram-
leiðslu. DV-mynd GVA
- Hvaðhefurverðlagsstjóriaðhafst
í máli Mjólkursamsölunnar og
Baulu þar sem fyrrnefnda fyrirtæk-
ið hefur boðið lægra verð á vöru
gegn því að kaupmenn hætti að
versla með vörur hins síðarnefnda?
Við erum að kanna það mál. Þegar
niðurstaða er fengin mun hún verða
lögð fyrir Verðlagsráð. Það er eðli-
legur gangur mála af þessu tagi. Ef
það er rétt að MS hafi sett þessi
skilyrði fyrir ákveðnum afslætti, að
Bauiuvörur væru settar út úr versl-
unum, þá flokkast það undir skað-
legar samkeppnishömlur og það
verður að binda enda á þær.
- Hvað hefur gerst í málinu, hafa
menn verið kallaðir fyrir, til dæmis
Sveinn bakari sem fullyrt hefur í
DV að hann hafi fengið tilboð frá
MS með umræddum skilyrðum?
Já, Sveinn bakari hefur verið
kallaður fyrir. En ég vil ekki ræða
frekar um smáatriði málsins á
þessu stigi. Viö munum einnig fá
greinargerðir frá öðrum aðilum.
Það er skylda okkar að kanna allar
hliðar málsins. Þó að það sé sérstök
fjölmiðlapressa á okkur núna mun-
um við ekki láta hana ráða ferð-
inni. Almennt má segja sem svo að
það sé ekkert óeðhlegt við að gefa
afslátt ef viðskiptalegar forsendur
eru fyrir hendi. Ef jógúrt er verð-
lögð þannig að hún standi ríflega
undir öllum kostnaði hennar vegna -
þarf ekki að vera neitt óeðlilegt við
það að veittur sé þriggja prósenta
afsláttur af heildarverði hennar.
En það er óeðlilegt ef sett eru þau
skilyrði að Bauluvörum sé hent út.
Ég vil taka það mjög skýrt fram að
markaðsyfirráð sem slík eru ekki
bönnuð heldur misbeiting á þeim.
- Hafið þið einnig rætt við kaup-
menn sem segjast hafa fengið slíkt
tilboð frá MS?
Já, við höfum rætt við kaup-
menn. En ég gef ekkert upp um
niðurstöður þeirra viðræðna. Ég
hef ekki heimild til þess því þetta
er trúnaðarmál. Þessar upplýs-
ingar fara fyrir Verðlagsráð fyrst
sem tekur sínar ákvarðanir. Við
reynum að flýta þessari rannsókn
eins og kostur er og ég vonast til
að henni ljúki mjög fljótlega.
Viðurlög Verðlagsráðs
- Hvaða viðurlögum hefur Verð-
lagsráð vald til að beita í málum
af þessu tagi?
Það kemur margt til greina. í
fyrsta lagi þarf að sýna fram á aö
um skaðlegar samkeppnishömlur
sé að ræða. Ef svo reynist vera er
það 1 verkahring Verðlagsráðs að
stöðva þær. Hingað til hefur Verð-
lagsráð ekki þurft að hafa áhyggjur
af því að fyrirtæki fari ekki að fyr-
irmælum þess og það er engin
ástæða til að ætla að annað yrði í
þessu tilviki. En ef raunin yrði sú,
að ekki yrði farið aö hugsanlegum
fyrirmælum, yrði aö fara með mál-
ið fyrir dómstóla. En það ákvæði
er enn ekki komið inn í okkar lög-
gjöf, sem er í löggjöf annars staðar
á Norðurlöndunum, að lagt sé mat
á hvaða skaöi hafi orðið af til-
teknum samkeppnishömlum, mælt
í peningum. Síðan eru sektir
ákveðnar af samkeppnisyfirvöld-
um í samræmi viö skaðann.
- Verðlagsstjóra hefur verið borið
á brýn að hann hafi tekið á ýmsum
málum með silkihönskum. Er þar
til að mynda nefnt samráð eggja-
bænda sem varð til þess að egg
hækkuðu verulega í verði. Er þetta
rétt?
Það er rétt að fyrir nokkru, eftir
mikið verðstríð á eggjum, höfðu
eggjabændur samráö um verð-
hækkun. Við gerðum þeim grein
fyrir því að slíkt samráð væri
bannaö. Þegar þeir áttuðu sig á þvi
óskuðu þeir eftir því að sex manna
nefnd sæi um verðlagningu á eggj-
um. Það varð úr og er enn. Eftir
þaö gat Verðlagsstofnun ekki leng-
ur haft afskipti af máhnu.
- Geta framleiðendur, með öðrum
orðum, flutt sig á milh nefnda til
að losna við afskipti verðlagsyfir-
valda hyggi þeir á samráð til að
hækka verð á eigin framleiðslu?
Eru skilin þarna á mihi ekki óljós?
Þetta er ekkert óljóst. Ef fram-
leiðendur í ákveðinni búgrein óska
eftir því að sex manna nefnd verð-
leggi afurðir þeirra verður sex
manna nefnd aö verða við þeirri
ósk. Um leið fehur verðlagningin
undan almennum verðlagslögum.
Þetta er ekkert óljóst. Hins vegar
má deila um það hvort fyrirkomu-
lagiö sé skynsamlegt.
Mál ganga ekki fyrir dóm-
stólum
- öðru hverju hafa skotið upp
kollinum auglýsingar þar sem bein-
línis er um villandi upplýsingar að
ræða til að fá neytandann til að bíta
á agnið. Þarf að koma til kæra til
að verðlagsstjóri taki á málinu?
Nei, síður en svo. En við leysum
þessi mál í kyrrþey ef kostur er.
Við bendum auglýsendum á að þeir
séu komnir út fyrir leyfileg mörk.
Oftast gengiu- það fljótt og vel fyrir
sig að fá menn th að fara að lögum
en stundum þarf að beita meiri
hörku. Ákveðin tegund auglýsinga
hefur verið erfiðari en aðrar og það
eru auglýsingar ferðaskrifstofa.
Við reynum ahtaf að leysa mál með
því að fá menn th þess að fara að
Yfirheyrsla
Jóhanna S.
Sigþórsdóttir
lögum vegna þeirrar reynslu okkar
að mál gangi ekki fyrir dómstólum.
Þaö er uppgjöf að taka á málum
með þeim hætti. Ég get nefnt að á
síðasta ári tókum við fyrir vel um
150 mál á grundvelh vhlandi upp-
lýsinga.
- Verðlagsstjóra hefur verið borið
á brýn að hann hafi ekki frum-
kvæði að rannsóknum og eftirhti á
verðmyndun og viðskiptaháttum
milliliða landbúnaðarins. Hvað
viltu segja um þetta?
Þetta er alrangt og á ekki við
nein rök að styðjast. Það hafa veriö
gerðar athuganir á þessum atrið-
um að frumkvæði okkar. Það hefur
verið gengið ríkt eftir því að menn
væru ekki að blanda saman ólíkum
rekstri. Við lögðum th dæmis drög
að því fyrir nokkru að hafa þessi
skh mjög greinheg í kindakjöts-
framleiðslu. Við gerðum öhum af-
urðastöðvmn að færa samkvæmt
kerfi sem við settum upp og fengum
lögghta endurskoðendur í hð með
okkur th að vinna það. í mjólkur-
iðnaðinum er þetta miklu hreinna.
Þar eru ákveðin mjólkursamlög
fyrir hendi.
- Hvernig kemur þetta heim við
Mjólkursamsöluna þar sem mjólk-
urvörur, ís, brauð og safi eru undir
einum hatti og framleiðslan ekki
lögformlega aðskilin?
Við höfum athugað mjög vel
hvemig MS hefur verölagt hhðar-
vörur, eins ogjógúrtog safa. Þessar
vörur eru verðlagðar þannig að
þær standa mjög ríflega imdir
kostnaði og eru raunar hátt verð-
lagðar. Þær hafa ekki verið baggi
á öðrum afurðum eins og sumir
hafa viljað halda fram heldur þvert
á móti. Ég vh taka það skýrt fram
aö það þarf að færa margt th betri
vegar í mjólkuriðnaðinum. En það
bætir hins vegar ekki neitt að vera
með rangar fuhyrðingar um að jóg-
úrt og safi séu greidd niður af
mjólk.
Nefnd í kostnaðarverðið
- Forsvarsmenn MS hafa ekki
gert athugasemdir við fullyrðingu
endurskoðanda í DV að þeir færi
íjármuni á milli deilda í Mjólkur-
samsölunni enda var hún höfð
beint eftir þeim. Er ekki kominn
tími til að verðlagsstjóri láti óhlut-
dræga aðila meta hver sé raunveru-
legur stofnkostnaður og rekstrar-
kostnaður við niðurgreiðsluvörur
annars vegar og samkeppnisvör-
urnar ís, brauð og safa hins vegar?
Við höfum nýlega sett á fót nefnd
til aö athuga þetta. Henni er ætlað
að athuga kostnaðarverð éinstakra
vara í mjólkurframleiðslu. Auðvit-
að er viss hætta á því að hlutir
blandist saman í svona rekstri. Við
höfum fyrst og fremst vhjað passa
að ekki væri verið að greiða niður
vörur eins og safa og jógúrt. Við
erum fuhvissir um að svo er ekki.
Við höfum margskoðað þetta og
það hefur verið skoðað af opinber-
um aðilum áður.
- Þú hefur, sem formaður fimm
manna nefndar, gagnrýnt skýrslu
verðjöfnunarnefndar harðlega. Þú
hefur talað um reikningsskekkjur,
aðdróttanir og rangtúlkanir. Hvers
vegna þessi hörðu viðbrögð?
Nefndin sendi frá sér rangar töl-
ur, meðal annars um hækkun á til-
teknum kostnaði sem flmm manna
nefnd hefur íjallað um. í skýrslu
nefndarinnar er meðal annars um
ranga útreikninga að ræða. Síðan
rangtúlkar nefndin ákveðin atriði,
að okkar mati, og er loks með órök-
studdar aðdróttanir. Ég get tekið
undir niðurstöður um vanda
mjólkuriðnaðarins. Hann er ærinn
og þar eru engin ný sánnindi á ferð.
En hvers vegna nefndin þarf að
gera þetta með slíkum hætti skil
ég ekki. Mér fannst það skylda mín
að koma athugasemdum á fram-
færi.
- Nú er verið að vinna að nýrri
verðlagslöggjöf. Hvaða breytinga
er helst að vænta?
Það er verið að vinna að því að
færa hana nær þeirri samkeppnis-
löggjöf sem ghdir í Evrópu. Sam-
kvæmt því verða tekin upp beittari
ákvæði og hert viöurlög. En þaö er
ekki mitt aö svara þessari spurn-
ingu heldur viðskiptaráðherra.
- Er Verðlagsstofnun orðin úrelt
miðað við þá þróun sem orðið hefur
í öðrum löndum?
Nei, þvert á móti. Samkeppnis-
reglur gegna í dag lykilhlutverki í
þróun efnahagssamvinnu í Evr-
ópu. Menn gera sér almennt betur
grein fyrir því að með því að skerpa
samkeppnisreglur og draga úr op-
inberum ákvæðum sé best hægt að
stuðla að hagkvæmri nýtingu
framleiðsluþátta og efnahagslegum
framförum. Þáttur samsvarandi
stofnana í nágrannalöndunum fer
sívaxandi.
- Að lokum, fer það yfir höfuð sam-
an að gegna embætti verðlagsstjóra
annars vegar og formanns fimm
manna nefndar hins vegar? Þarna
er sami aðilinn að verðleggja land-
búnaðarvörur og hafa eftirlit með
samkeppnishömlum og óréttmæt-
um viðskiptaháttum. Býður þetta
ekki upp á hagsmunaárekstra?
Ahs ekki. Á meðan við búum við
þetta fyrirkomulag í verðlagningu
landbúnaðarvara, sem ég tel raun-
ar ástæðu til að breyta í frjálsræði-
sátt, er eöhlegt að verölagsstjóri
komi að þessari verðlagningu. Ég
sit í flmm manna nefnd sem odda-
maður með fulltrúum neytenda og
afurðastöðva. Ég tel að í starfi minu
hafi ég veitt aðhald en sýnt sann-
gimi. Þegar tekist hefur verið á í
nefndinni hef ég oftar en ekki tekið
afstöðu með fulltrúum neytenda.