Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1992, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 27. MARS 1992.
5
Fréttir
Alls hafa borist 335 Þjóðlífsmál til bæjarfógetaembætta um land allt:
Búið að gera 55 fjárnám
Samtals hefur 17 bæjarfógetaemb-
ættum um land allt borist 335 inn-
heimtumál vegna Þjóðlífs og í 55
þeirra hafa verið gerð fjárnám. Meö-
ferð málanna hefur verið misjöfn eft-
ir embættum og því hvort mál voru
tekin fyrir áður eða eftir að viðvör-
unarbréf Þjóðlífs, þar sem boðuð var
opinber rannsókn, barst embættum.
Sem dæmi má nefna að bæjarfó-
getaembættið í Keflavík frestaði 28
málum vegna bréfs Þjóðlífsmanna. í
Reykjavík voru 25 mál árituð en 35
frestað vegna bréfsins frá Þjóðlíf. Tii
Sauðárkróks bárust 14 mál en þar
sá fulltrúi embættisins ástæðu til að
skipa lögfræðing fyrir allan hópinn.
Tekið var til vama og málunum öll-
um frestað. Búist er við að þar verði
Innheimtur og ráðgjöf dæmd til
skaðabóta.
Til ísafjarðar bárust 27 mál. Þeim
sem ekki voru dregin til baka var
frestað vegna Þjóðlífsbréfsins. Emb-
ættið á Akranesi lét draga til baka 8
mál, embætti Rangárvallasýslu 20
mál og Dalasýslu 7 mál.
Þjóðlíf seldi Agnari Agnarssyni og
Útey hf. áskriftarkröfur sem námu 7
milljónum króna fyrir 2 milljónir.
Af þeim hefur Þjóðlíf fengið greiddar
um 1,2 milljónir. Stjórn Þjóðlífs segir
kaupendur krafnanna hafa brotið
allar greinar samnings sem átti að
tryggja að ekki yrði gengið að sak-
lausu fólki. Agnar þessi seldi Útey
kröfurnar sem seldi þær til Stein-
gríms Snorrasonar á Höfn í Horna-
firði. Steingrímur virðist aldrei hafa
greitt fyrir þær en formlega falið Inn-
heimtum og ráðgjöf að innheimta
þær.
í forsvari fyrir bæði Útey og Inn-
heimtur og ráðgjöf er Úlfar Nathan-
aelsson sem þó er hvergi skráður
eigandi. Segir stjórn Þjóðlífs að til-
færingarnar með kröfurnar hafi ver-
ið gerðar að undirlagi hans til að
forðast málsókn Þjóðlífs og vamir
þeirra einstakhnga sem fyrir inn-
heimtunum urðU.
-VD
Úlfar Nathanaelsson:
20 milljóna gjaldþrot
Úlfar Hildingur Nathanaelsson er
stofnandi Úteyjar hf. sem keypti
Þjóðlífskröfurnar og fiölskylda hans
stofnaði og á með öðrum Innheimtur
og ráðgjöf sem sjá um innheimtuað-
gerðimar. Milliliður fyrirtækjanna
er Steingrímur Snorrason á Höfn
sem samkvæmt heimildum DV er
skráður stefnandi í mun fleiri inn-
heimtumálum en Þjóðlífsmálunum.
Úlfar og fiölskylda hans stofnuðu
Útey með 25.000 króna hlutafé árið
1989. Fyrirtækið skipti um eigendur
í fyrra en heldur sama heimilisfangi
og fiölskyldan. Úlfar var lýstur gjald-
þrota 13. febrúar síðastliðinn og
nema kröfur 30 kröfuhafa rúmum 20
milljónum króna en bú hans er
eignalaust.
Úlfar býr í 260 fermetra einbýlis-
húsi á Arnarnesi sem metið er á tæp-
ar 14 milljónir króna en það er skráð
á eiginkonu hans.
Úlfar hefur tvisvar verið ákærður
fyrir okurbrot. í desember 1985 var
hann sýknaður af slíku broti en árið
1989 var hann dæmdur fyrir að hafa
veitt Hermanni Björgvinssyni í 18
skipti peningalán og áskilið sér hærri
vexti en löglegt var. Ákvörðun um
refsingu var hins vegar frestað og
skyldi hún falla niður að liðnu einu
ári frá birtingu dóms ef Úlfar héldi
almennt skilorð.
Fyrirtækið Útey stofnaði Úlfar
ásamt fiölskyldu sinni í sömu viku
og dómur var kveðinn upp í okur-
málinu. í fyrravor skipti Útey um
eigendur og eru tveir bræður í
Grindavík skráðir fyrir því en fyrir-
tækið með sama heimilisfang og Úlf-
ar á Arnarnesi.
Eiginkona og dóttir Úlfars stofnuðu
ásamt þremur öðrum Innheimtur og
ráðgjöf á sama tíma og aðrir í fiöl-
skyldunni stofnuðu Útey hf. Þær
mæðgur eiga 50% hlut í Innheimtum
og ráðgjöf. -VD
Bækistöðvar Þjóðlífs sáluga. Fjárnám hefur verið gert hjá 55 þeirra sem
gerðust áskrifendur tímaritsins. DV-mynd
Úlfar Nathanaelsson:
Persónuárásir
„Þetta eru ekkert annað en per-
sónuárásir," segir Úlfar Natiianaels-
son sem átti fyrirtækið Útey sem
keypti áskriftarkröfur af Þjóðlífi.
Úlfar segir að Þjóðlíf hafi rukkað
inn áskriftir eftir að hafa selt kröf-
urnar og ekki skilað inn greiðslunum
til Innheimtna og ráðgjafar sem er í
eigufjölskyldu Úlfars og Jóhannesar
Halldórssonar framkvæmdastjóra
þess. Úlfar þvertekur fyrir að hafa
nokkuð með fyrirtækin tvö að gera.
Úlfar sakar Þjóðlífsmenn um að
hafa bætt inn aukagrein í samning-
inn við Útey þar sem kveðið er á um
að ekki megi höfða innheimtumál
gegn áskrifendum.
„Gjaldþrot mitt er af því að ég skrif-
aði upp á víxla fyrir vini og kunn-
ingja. Eg er vinur vina minna,“ segir
hann. Kröfuhafarnir eru 30 talsins.
Eiginkona Úlfars er skráð fyrir 14
milljóna króna húseign og segist Úlf-
ar ekki sjá ástæðu til að setja hana
á götuna vegna þess að vinir sínir
hafisvikiðsig. -VD
Dómsvaldið brást borgurunum
- segir formaður Neytendafélags Akureyrar um Þjóðlifsmalin
„Það voru lagðar fram 29 kröfur
en allir sem mættu, átta manns, gátu
fært sönnur á að þær voru óréttmæt-
ar. Það hlýtur að sýna fram á að
málatilbúningi stefnanda er áfátt og
kröfurnar vafasamar í meira lagi,“
segir Vilhjálmur Ingi Árnason, for-
maður Neytendafélags Akureyrar,
um gang svokallaðra Þjóðlífsmála
hjá bæjarfógetaembættinu á Akur-
eyri.
Fógeti áritaði 21 mál sem aðfarar-
hæft gegn áskrifendum Þjóðlífs þar
sem enginn mætti fyrir aukadóm-
þing. Vilhjálmur Ingi segist telja að
eðlilegra hefði verið af dómaranum
að krefiast haldbetri gagna í stað
þess að gefa sér að þeir sem ekki
mættu væru vanskilamenn. Gert var
fiámám hjá 17 manns og segir Vil-
hjálmur að sér þyki undarlegt að
slíkt skuli gerast, hafi fulltrúi emb-
ættisins sinnt upplýsingaskyldu
sinni. „Dómsvaldið brást borgurun-
um,“ segir hann.
Björn Rögnvaldsson, aðalfulltrúi
embættisins, segist hafa sinnt skyld-
unni og bent fólkinu á að leita til lög-
fræðings og kanna um áfrýjunar-
hæfni. Það kveðst hann einnig hafa
bent syni Ingibjargar Einarsdóttur,
Einari Jóhannssyni, á þegar hann
mætti í fiárnám í september 1991 fyr-
ir hönd aldraðrar móður sinnar.
Björn segir lög kveða á um að dæma
útivist sé ekki mætt í dómþingi og
ekki sé lagaheimild til annarrar
málsmeðferðar. Hann kveðst ekki
túlka lagaákvæði þannig að embætt-
inu sé skylt að benda stefndum á að
hægt sé að sækja um undanþágu til
áfrýjunar heldur einungis að benda
fólki á að leita sér lögfræðiaðstoðar.
Hrannar B. Amarsson, í stjóm
Þjóðlífs, sakar embættið um að hafa
vísað fólki á að borga og krefia Þjóð-
líf um endurgreiðslur en það segist
Bjöm ekki kannast við. „Fulltrúinn
frá Innheimtum og ráðgjöf sagðist
ekki hafa áhuga á að innheimta
greiddar kröfur en sagði mér að fá
mér lögfræðing. Bæjarfógeti benti
mér ekki á að fá undanþágu til að
áfrýja til Hæstaréttar en sagði að ég
gæti hafnað að undirrita fiárnáms-
kröfuna sem ég og gerði,“ segir Ein-
ar. „Þetta sýnir að það er eitthvað
að hjá dómsvaldinu."
Hann kveðst síðan hafa leitað til
lögfræðings sem sagði honum ekki
heldur að hægt væri að fá undanþágu
til að áfrýja. Krafan var því greidd
daginn áður en bjóða átti upp bíl
Ingibjargar.
Einar segist búast við að undan-
þágan verði veitt sem og gjafsókn i
málinu fyrir Hæstarétti. Þess má
geta að Einar var einnig einn þeirra
er lentu í svokölluöu sófasettamáli
ogtapaðiþá 14.000 krónum. -VD
NÝR OG STÆRRi FJÖL SKYLDUBÍLL
Þessi bíll er 20 cm lengri en hin
hefðbundna SAMARA og rúmbetri.
Billinn hentarþví vel fjölskyldufólki. LADA
SAMARA stallbakur er fimm manna og
með lokaðri farangursgeymslu (skotti).
BIFREIÐAR & LANDBÚNADARVÉLAR HF.
Ármúla 13, 108 Reykjavík, símar 68 12 OO & 3 12 36