Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1992, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 27. MARS 1992.
7
dv Fréttir
Saltfiskurinn:
Rússafiskur
veldur verð-
fallinu
Ekkert skip hefur selt afla sinn í
Englandi í liðinni viku. Þorskveiðar
hafa glæðst síðustu viku þegar veðr-
ið lagaðist og aflabrögð verið góð.
Þegar aflabrögð skánuðu og meira
kom á markaðina féll verðið nokkuð,
þó sérstaklega á stórfiskinum.
Að undanfórnu hefur verið seldur
gámafiskur sem hér segir: Alls voru
seld 659,9 tonn fyrir 98,9 millj. kr.
Meðalverö 149,90 kr. kg. Þorskur
seldist á 154,65 kr. kg, ýsa 175,51, ufsi
77,44, karfi 81,11, koli 172,57, grálúða
161,61 og blandað 118,08 kr. kg.
Þýskaland
Bv. Jón Baldvinsson seldi 19. mars
sl. alls 201 tonn fyrir 17,4 millj. kr.
Meðalverð 86,62 kr. kg. Tæp 2 tonn
af þorski seldust á 162,54 kr. kg.
Nokkur hundruð kg af ýsu seldust á
188,72 kr. kg, ufsi 90,37, karfl 86,37
og blandaö 43,04 kr. kg.
Bv. Björgúlfur seldi afla sinn í
Bremerhaven 20. mars sl. alls 126,4
tonn fyrir 13,2 millj. kr. Meðalverð
var 104,43 kr. kg. Nokkur hundruð
kiló af þorski seldust á 176,15 kr.kg,
ufsi 83,58, karfi 96,44, grálúða 172,54
og blandað 117,25 kr. kg.
Fiskmarkaður
Ingólfur Stefánsson
Verðlækkun vegna Rússafisks
Bodö: Allt bendir til þess að Rússa-
fiskurinn eigi sök á verðfalli salt-
fisks. Allmikið var keypt af fiski af
rússneskum togurum á síðasta ári
og skipti það tugþúsundum tonna.
Mikið af þessum fiski hefur farið til
saltfiskframleiðslu. Nú er svo komið
að fiskkaupmenn sumir hverjir eru
hættir að kaupa fisk til söltunar.
Þetta kemur sér mjög illa fyrir báta
í Lofoten og Vesterálen. Almennt er
tahð að hér valdi Rússafiskurinn
miklú um. Fiskur, sem framleiddur
hefur verið úr þessum ódýra fiski,
hefur verið seldur á lægra verði á
aðalmarkaðssvæðunum, þ.e. Spáni
og Portúgal.
í ár hefur Rússafiskurinn valdið
meiri vanda en oftast áður, nú hefur
verið saltað meira af fiski, sem ekki
er fyrsta flokks, og mikið hefur verið
um slæman fisk frá Rússum á salt-
fiskmarkaðnum. Þetta á við jafnt í
Norður- og Suðm- Noregi. Þessi fisk-
ur er heilfrystur og hann þarf að þíða
áður en hann er flattur eða flakaður.
Yfirleitt eru menn sammála um að
herða þurfi eftirlit með þeim fiski
sem keyptur er af Rússum. Nú Uggja
miklar birgöir af Rússafiski í geymsl-
um hjá saltfiskframleiðendum. Talið
er að nokkur hluti þess afla sé mjög
slæmur fiskur.
1. mars var búið að hengja upp 4600
tonn af fiski en á sama tíma sl. ár
5900 tonn.
(Úr viðtali viö formann sölusam-
taka í saltfiski.)
ÍSLANDSMEISTARAMÓT
SHELL
í VÉLSLEÐAAKSTR11992
sunnudaginn 29. mars í Bláfjöllum
SONAX
BÓN Á VÉLSLEÐANN
Fyrsta keppnin til íslandsmeistara 1992 í vélsleðaakstri fer
fram n.k. sunnudag í nágrenni skíðasvæðisins í Bláfjöllum.
Allir kraftmestu vélsleðar landsins og bestu ökumennirnir mæt-
ast þar í þremur. keppnisgreinum. Fjallarall hefst klukkan
lO.OO, spyrna og brautarkeppni klukkan 12.00 og verður
ekið í samhliðabrautum. Komdu
og sjáðu ævintýraleg tilþrif
núverandi Islandsmeistara og
helstu keppinauta þeirra og
nýsmíðaða 150-200 hestafla
ofursleða í spennandi keppni.
Keppt verður í 6 flokkum og
keppnislið frá Arctic, Ski-Doo,
Polaris og Yamaha býtast um
gullið. Láttu þig ekki vanta á
líflega keppni.
Adgangseyrir er aðeins 500 krónur
(SHOEI)
KEPPNISHJÁLMAR
HJÓLAGALLERI
HREYSTI
JjsrM2
OO&El
VÉLSLEÐAVÖRUR
ARCTIC CAT YAMAHA ski-doo
Læríð þýsku ( Þýskalandi
Deutsch im Deutschland - D.I.D. ársskólar, sumarskólar víðs vegar um Þýska-
land fyrir fólk á öllum aldri, unga sem eldri. Gisting hjá þýskumælandi fjölskyld-
um. Hægt að taka próf til undirbúnings framhaldsnámi í þýskum skólum. Einnig
stutt endurmenntun fyrir þá, sem ætla sér að nota þýsku í viðskiptum. Flngið
með Flugleiðum til Frankfurt, Miinchen eða næstu flugvalla en síðan tekin jár-
brautarlest.
Verð i 4 vikur kr. 107.800, miðað við skóla i Mainz. Innifalið flug, gisting, hálft
fæði. Kennsla yfirleitt 25 tímar á viku. Verð miðað við gengi og flugverð í dag.
Þýska er tvímælalaust mikilvægt mál í Evrópu framtíðarinnar. Við veitum allar
nánari upplýsingar, sendum bæklinga, lánum videospólur.
Ferðaskrifstofa Kjartans Helgasonar
Gnoðarvogi 44, sími 686255