Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1992, Page 9
FÖSTUDAGUR 27. MARS 1992.
9
Utlönd
w MikeTysondæmdurísexárafangélsi:
Eg var trylltur en
meiddi hana ekki
- sagöihnefaleikakappinnþegarhannkomtildóms
Blaðamaður óskast
DV óskar eftir blaðamanni til að skrifa um viðskipta-
og efnahagsmál. Nauðsynlegt er að hann hafi einnig
þekkingu á notkun töflureikna og gagnagrunna.
Skriflegar umsóknir berist ritstjórum fyrir 4. apríl nk.
„Ég nauðgaði henni ekki en ég við-
urkenni að ég var alveg trylltur þeg-
ar við vorum saman. En þetta var
ekki nauögun, engin glóðaraugu og
engin beinbrot," sagði Mike Tyson
hnefaleikakappni í yíirlýsignu áður
en hann hlýddi á dóm í nauðgunar-
máli sínu.
Patricia Gifford dómari dæmdi
hann í sex ára skilorðsbundið fang-
elsi að viðbættum fjórum árum óskil-
orösbundið. Hagi Tyson sé illa í
fangavistinni má hann búast við að
sitja inni í 10 ár. Lagaspekingar sjá
þó möguleika á að hann sleppi eftir
þijú ár ef hann verður til friðs í fang-
elsinu.
Veijendur Tysons ætla að fá mál
hans tekið upp að nýju og segja að
úrskurður kviðdóms í málinu hafi
verið rangur. Kviðdómendur hafi
látið stjómast af illu umtali um Ty-
son enda hafi engar afgerandi sann-
anir komið fram um að hann hafi
nauðgað fegurðardrottningunni
Patriciu Washington.
Gifford dómari þykir hörð í horn
að taka, sérstaklega þegar nauðgun-
armál eru annars vegar. Þá hefur
hún á þrettán ára ferh sínum dæmt
fjóra menn tii dauða fyrir morð. Veij-
endur Tysons vildu fá hann lausan
gegn tryggingu þar til málið væri
tekið upp að nýju en Gifford neitaði.
Allt er nú í hers höndum hjá skipu-
leggjendum umhverfisráöstefnu
Sameinuðu þjóðanna í Rio de Janeiro
í sumar. Einn háttsettur brasilískur
embættismaður hefur sagt af sér í
kjölfar blaðafregna um að hann væri
viðriðinn hneykslismál, helsti um-
hverfissérfræðingur stjómarinnar
hefur verið rekinn og samningavið-
ræður í New York um mikilvægan
sáttmála um að stööva gróöurhúsa-
áhrif ganga treglega vegna andstöðu
bandarískra stjómvalda.
Umhverfissinnar segja hættu á að
ráöstefnan verði lítið annað en stór-
felld vonbrigði.
Geroge Bush Bandaríkjaforseti
skvetti köldu vatni á undirbúning
ráðstefnunnar á þriðjudag þegar
hann gaf í skyn að hann mundi ef til
vill ekki sitja leiðtogafundinn vegna
anna í kosningabaráttunni heima
fyrir. Bush lagði einnig áherslu á
andstöðu sína við sáttmála um tak-
markanir á losun lofttegunda sem
valda gróðurhúsaáhrifum.
Tyson er því kominn í fangelsi og
byrjaður að taka út refsingu sína.
Mörgum þótti sem hann sætti harka-
legri meðferð af hálfu fangavarðanna
þegar þeir hrundu honum út úr rétt-
arsalnum eftir að dómur féll. Tyson
var þó prúður að þessu sinni og veitti
enga mótspymu. Reuter
Verkstjórar
Aðalfundur Verkstjórafélags Reykjavíkur verður hald-
inn í fundarsal félagsins, Skipholti 3, laugardaginn
28. mars kl. 13.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin
Fangaverðir fóru ómjúkum höndum um Mike Tyson þegar þeir fluttu hann
til fangelsisins. Tyson hélt enn fram sakleysi sinu og lögmenn hans ætla
að fá málið tekið upp að nýju. Simamynd Reuter
Umhverfisráðstefna SÞ í Rio:
Allt í hers höndum
Carlo Ripa di Meana, yfirmaður
umhverfismála hjá Evrópubanda-
laginu, sakaði Bush þá um að reyna
að skemma fyrir ráðstefnunni.
En þetta er þó ekki eina deilan sem
setur svip sinn á undirbúninginn.
Þjóðir Asíu og Rómönsku Ameríku
óttast aö þær verði hafðar að blóra-
bögglum fyrir eyðileggingu um-
hverfisins sem þær segja að séu af-
leiðingar stefnu þróuðu ríkjanna.
Malasíumenn hafa t.d. hótað að sitja
heima ef hætta verður á því að ráð-
stefnan verði notuð til að gera árásir
á ríki þriðja heimsins.
Þá eru þjóðir íslamstrúarmanna
óhressar með að ráðstefnan rekst á
íslamska hátíðardaga og hafa fariö
fram á að fundartímanum verði
breytt. Brasiliumenn segja að þeir
búist við að ráðstefnan hefiist 3. júní,
tveimur dögum síðar en ætlað var í
upphafi. Það hefur þó ekki verið stað-
fest opinberlega.
Reuter
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1980-1 .fl. 15.04.92-15.04.93 kr. 312.732.03
*)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1 og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, mars 1992.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
AFMÆLIS
TILBOÐ
SÉRSTAKUR 5% AFMÆLIS-
AFSLÁTTUR AF FLESTUM
/ VÖRUM VERSLUNARINNAR
Sm /d 10% EF STAÐGREITT ER.
R I PPEN' SAMICK'HYUnDBI
PÍANO OG FLYGLAR • DINO BAFFETTI
HARMONIKUR • SAMICK -wmm
GÍTARAR • OFL. TILBOÐIÐ
STENDUR FRÁ OG MEÐ Mf
27.MARS TIL 5.APRÍL NK. JW mmOÍMa
VERIÐ VELKOMIN
H. MAGNUSSONAR
GULLTEIGI 6 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 91 - 688611