Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1992, Page 16
16
FÖSTUDAGUR 27. MARS 1992.
FÖSTUDAGUR 27. MARS 1992.
25
fþróttir
Þorbergur Aðalsteinsson:
„ísland-ísrael
fer 27-17“
„Við vinnum ísrael með tíu marka mun, 27-17, og leikum síðan um
bronsverðlaunin gegn Sviss og vinnum þá 18-17 í dæmigerðum leik þess-
ara þjóða,“ sagði Þorbergur Aðalsteinsson landsliðsþjálfari í samtali við
DV í gær. „Það er engin spurning að menn verða aö rífa sig upp úr því
mótlætí sem hefur verið hér. Við þurfum að vinna ísrael meö svona 8-10
mörkum þá erum við búnir að gera okkar. Ég trúi því að Norðmenn séu
það miklir íþróttamenn að þeir sigri Dani en þrátt fyrir að Norðmenn
tapi með tveimur mörkum getur það verið eðlilegt. Stærra tap Noregs
gegn Danmörku er ekki eðlilegt." -SK/Innsbruck
Þórður Sigurðsson:
„Vinnum ísrael
með 6 mörkum“
„Við þurfum að vinna ísrael meö 8-10 mörkum. Ég spái því að ísland
vinni ísrael með sex marka mun, 24-18,“ sagði Þóröur Sigurðsson, einn
fararstjóra íslenska liðsins, í samtali viö DV í gær þegar hann var beðinn
um aö spá fyrir um gang mála tíl loka B-keppninnar.
„Við komumst síðan áfram í a-keppnina á því að Danir vinna ekki
Norðmenn með nema tveimur eða þremur mörkum. Við spilum síðan
um bronsverðlaunin gegn Sviss á sunnudaginn og vinnum þann leik
22-17," sagði Þórður Sigurðsson.
-SK/Innsbruck
W
NJARÐVIK
íslandsmeistari: 1981, 1982, 1984, 1985,
1986, 1987, 1991.
Bikarmeistari: 1987, 1988, 1989, 1990, 1992.
GÐ
Árangur heima
■ Töp
□ Sigrar
(3
Árangur úti
Stigahæstir:
Rondey Robinson
Teitur Örlygsson
Jóhannes Kristbj.
Kristinn Einarsson
ísak Tómasson
Friðrik Ragnarsson
Ástþór Ingason
Sturla Örlygsson
Gunnar Örlygsson
Agnar Olsen
Flest stig í leik:
Teitur Örlygsson 40
Meðalskor liðs: 95,0 -81,3
Vítanýting: ísak Tómasson 76,5%
Fráköst: Rondey Robinson 15,8
Njarðvík mætir Val í kvöld
Njarðvík og Valur mætast í úrslita-
keppni íslandsmótsins í körfuknatt-
leik í kvöld og hefst leikurinn í Njarð-
vík klukkan 20. Liöin mætast síðan
aftur að Hlíðarenda klukkan 20 á
sunnudagskvöldið og í þriðja sinn í
Njarðvík á þriðjudag ef með þarf.
Hér fyrir ofan og neðan eru ýmsar
upplýsingar um liðin tvö en Njarðvík
vann báðar viðureignir þeirra í Jap-
isdeildinni í vetur, 90-83 í Njarðvík
og 88-81 aðHlíðarenda. -VS
Valur
Islandsmeistari: 1980, 1983.
Bikarmeistari: 1980, 1981, 1983.
(3
Stigahæstir:
7 mm Frank Booker 820
IHf Magnús Matthíasson 539
Tómas Holton 259
Ragnar Þór Jónsson 208
Árangur heima Símon Ólafsson 182
Svali Björgvinsson 168
■ Töp Matthías Matthíass. 101
□ Sigrar Ari Gunnarsson 93
Gunnar Þorsteinsson 29
Lárus Pálsson 21
03
Árangur úti
Flest stig í leik:
Frank Booker 45
Meðalskor liðs: 94,3 - 89,8
Vítanýting: Magnús Matthíass. 78,1%
Fráköst: Magnús Matthíasson 7,8
Einar Þorvaröarson:
„Sigrum í dag
með 7 mörkum“
„Þaö eina sem hægt er aö segja er að hér ríkir mikið óvissuástand,"
sagði Einar Þorvarðarson, aðstoðarþjáfari íslenska liðsins, þegar DV bað
hann um að spá í spilin fýrir daginn í dag.
„Ég hef aldrei lagt það í vana minn að spá um úrslit leikja í tölum en
ætli við vinnum ekki ísrael með tíu marka mun, ég segi 27-20. Ef það
nægir okkur til að leika um bronsverðlaunin munum við mæta Sviss.
Þar mun eitt mark ráða úrslitum en ég segi að við vinnum 18-17,“ sagði
Einar Þorvarðarson.
SK/Innsbruck
Jón Hjaltalín Magnússon:
„Ég leyfi mér
aðspá 28-17“
„Við verðum að setja markið á tíu marka sigur gegn ísrael, að vinna
hveijar sex mínútur með einu marki,“ sagði Jón Hjaltalín Magnússon,
formaður HSÍ, við DV í gær.
„Ég leyfi mér að spá ellefu marka sigri, 28-17. Síðan reikna ég með að
Danir vinni Norðmenn með fjórum mörkum. Danir yrðu þá með 16 mörk
í plús en við 21. Það dugir til að spila um bronsverðlaunin og ég spái því
að þar mætum við Austurríkismönnum og við vinnum þá í jöfnum leik,
19-17,“ sagði Jón Hjaltalín Magnússon.
-SK/Innsbruck
Það ræðst í kvöld hvort ísland verður með á HM í Svíþjóð á næsta ári:
ísland vinnur stórt“
- segir besti leikmaður Dana í B-keppninni, Erik Veje Rasmussen
Stefán Kristjánsson, DV, Innsbnick:
Það ræðst í kvöld hvort íslenska landsliðið í
handknattleik nær því markmiði sínu að hafna
í einu af efstu sætunum í B-keppninni hér í
Austurríki. íslenska liðið mætír liði ísraels í
dag klukkan þrjú og menn eru misjafnlega
bjartsýnir á góð úrsht í leiknum.
Danir og Norðmenn leika í kvöld klukkan
sjö og það verður því ekki fyrr en eftir þann
leik sem það verður ljóst hvort íslensku leik-
mennimir hafi náð takmarki sínu hér.
„ísland vinnur ísrael
með 10-12 marka mun“
„Ég er viss um að íslendingar vinna ísraels-
menn með svona 10 til 12 mörkum. En að sjálf-
sögöu munu ísraelsmenn berjast eins og ljón
eins og þeir hafa gert í öllum leikjum sínum,“
sagði Erik Veje Rasmussen, fyrirliði danska
landsliðsins í samtali við DV í gær. Hann ætti
að þekkja ísraelsmennina vel því ísrael sigraöi
Danmörku sem kunnugt er fyrr í B-keppninni
með eins marks mun, 23-22. „Ég held að það
verði mjög erfitt fyrir okkur að komast í A-
keppnina. Þetta verður mjög erfiður leikur hjá
okkur gegn Norðmönnumen auðvitað getum
við unnið þá með góðum leik,“ sagði Erik Veje.
„Undarlegasta mark
sem ég hef séð“
„Ég hef aldrei séð aimað eins mark og jöfnun-
armark okkar gegn íslendingum. Þetta er það
brjálæðislegasta mark sem ég held að skorað
hafi verið í handbolta og ég efa að nokkru sinni
verði skorað annað eins mark í handbolta.
Þetta er undarlegasta mark sem ég hef séð á
mínum ferli,“ sagði Erik Veje Rasmussen sem
leikur sinn síðasta landsleik fyrir Dani á
sunnudag þegar leikið verður um sæti. Og að
hans sögn munu fimm aörir leikmenn í danska
liðinu leika kveðjuleik sinn þá.
Mikil taugaveiklun
Eftir samtöl viö leikmenn íslenska landsliðsins
og forráðamenn liðsins er greinilegt að mikil
taugaveiklun er í gangi og menn mjög spenntír
fyrir leikinn gegn ísrael í dag. Ef litíð er rauns-
ætt á möguleika íslenska liðsins þá eru þeir
ekki miklir eins og liðið hefur því miður leikið
hér. íslensku leikmennimir hafa engan vegið
náð sér á strik og eins hefur hreint ótrúleg
óheppni elt liðið. Það gerist ekki á hverjum
degi að lið tapi þremur stigum á jafnmörgum
sekúndum í heimsmeistarakeppni en þeirri
staðreynd hafa íslendingar mátt kyngja.
Löng bið eftir úrslitum
Það er ljóst að eftír leik íslands og ísrael í dag
verðum við að bíða úrslitanna í leik Noregs
og Danmerkur. Norðmenn munu hvíla nokkra
leikmenn fyrir úrslitaleikinn á sunnudag sem
leikið hafa með liðinu hingað til en allir bestu
leikmenn Norðmanna verða þó með gegn Dön-
um í kvöld. Þýskir dómarar dæma leik íslands
og ísraels en spænskir dómarar dæma leik
Noregs og Danmerkur.
Keflavlk - KR1-0:
Vöm Keflavík*
ur réð úrslitum
-þegar Suöumesjaliðið vann KR, 80-75
Ægir Már Karason, DV, Suðumesjum:
„Þetta var mjög erfiður leikur en varn-
arleikurinn var mjög góður hjá okkur og
mikil barátta í liðinu. Áhorfendur voru
frábærir og studdu okkur mjög vel. Leik-
urinn á laugardag verður mjög erfiður og
við lítum á hann sem úrslitaleik og hugs-
um ekki um það að við eigum þriðja leik-
inn til góða,“ sagði Jón Kr. Gíslason, þjálf-
ari og leikmaður Keflavíkinga, við DV eft-
ir sigur þeirra á KR, 80-75, í fyrsta leik
liðanna í undanúrslitum íslandsmótsins í
körfuknattleik í gærkvöldi.
Leikurinn var mjög jafn allan tímann
nema hvað Keflvíkingar virtust ætla að
taka hann í sínar hendur undir lok fyrri
hálfleiks þegar þeir gerðu 14 stíg í röð og
voru 50-39 yfir í hálfleik. En KR-ingar
komu grimmir til síðari hálfleiks og jöfn-
uðu fljótt og eftír það var leikurinn æsi-
spennandi. Keflvikingar voru sterkari
undir lokin, komust þá yfir og létu foryst-
una ekki af hendi.
„Svæðisvöm Keflvíkinga kom okkur
nokkuð á óvart í kvöld en við þurfum að
laga þá hluti sem fóm úrskeiðis fyrir leik-
inn á laugardag. Sérstaklega hirtu Kefl-
víkingar of mörg sóknarfráköst og fengu
því oft tvö til þrjú færi í sama upphlaupi.
Þetta er alls ekki búið ennþá, við komum
grimmir til leiks á laugardaginn og gefum
aUt í þann leik,“ sagði Birgir Guðbjörns-
son, þjálfari KR-inga.
Keflvíkingar eru komnir á skrið aftur
eftir lægð undir lok deildakeppninnar.
Varnarleikur þeirra var gríðarlega góður
og geröi útslagið í leiknum. Veiki hlekkur
liðsins var sá að það náði ekki að fylgja
eftir þeirri góðu forystu sem það náði í
fyrri hálfleik. Jón Kr. Gíslason lék mjög
vel og átti meðal annars 11 stoðsendingar
á félaga sína og gerði þrjár þriggja stiga
körfur á lokamínútunum. Jonathan Bow
var gríðarlega sterkur og er að koma til á
ný. Eins spiluðu Nökkvi Már Jónsson og
Albert Óskarsson vel og Albert er að ná
sínu gamla formi.
KR-liðið er á ágætri siglingu en saknaði
þess að Páll Kolbeinsson lék lítið með og
virtust KR-ingar vera að hvUa hann fyrir
næsta leik. Sóknarleikur KR-inga var ekki
nógu agaður og þeir stundum of fljótfær-
ir. Bestu menn þeirra vom David Grissom
og Guðni Guðnason. Láms Ámason var
sterkur og gerði sín 15 stig úr þriggja stiga
skotum og Hermann Hauksson og Axel
Nikulásson léku einnig ágætlega.
ísland í B-keppninni
Mörk Islands
samanlagt:
g Langskot
□ Gegnumbrot
S Horn
H Lína
□ Hraðaupphlaup
Markaskorarar:
Varin skot:
Sigurður Sveinsson
Valdimar Grímsson
Geir Sveinsson
Sigurður Bjarnason
Bjarki Sigurðsson
Héðinn Gilsson
Konráð Olavsson
Júlíus Jónasson
Gunnar Gunnarsson
Gunnar Andrésson
Birgir Sigurðsson
Kristján Arason
20/6
17/7
12
10
10
10
10/1
9
6
5
3
2
Bergsveinn Bergsveinsson 38/1
Guðmundur Hrafnkelsson 31
Keflavík
KR
(50) 80
(39) 75
6-2,8-9,16-18,26-24,30-33,34-34,
48-34, (50-39), 52^1, 52-51, 58-51,
58-58, 63-65, 68-67, 73-71, 76-73,
80-75.
Stig Keflavíkur: Jonathan Bow
23, Jón Kr. Gíslason 18, Nökkvi
Már Jónsson 18, Albert Óskarsson
8, Hjörtur Harðarson 6, Guðjón
Skúlason 4, Kristinn Friðriksson 3.
Stig KR: David Grissom 23, Láms
Ámason 15, Axel Nikulásson 13,
Guðni Guðnason 11, Hermann
Hauksson 11, Óskar Kristjánsson
2.
Fráköst: Keflavík 40, KR 36.
Bolta tapað: Keflavík 11, KR 18.
Bolta náö: Keflavík 14, KR 4.
Stoðsend.: Keflavík 23, KR 10.
3ja stiga körfur: Keflavík 7, KR 8.
Dómarar: Helgi Bragason og
Leifur S. Garðarsson, ágætir,
hefðu mátt dæma meira í teigun-
um.
Áhorfendur: 856.
ÍR-stúlkur unnu
ÍR vann nauman sigur á Grindavík, 70-64, í
1. deild kvenna í körfuknattleik í Seljaskóla í
gærkvöldi. ÍR var yfir í hálfleik, 32-28. Grinda-
víkurstúlkurnar komu á óvart með frammi-
stöðu sinni. Þær hafa verið í stöðugri sókn í
vetur og eru á mikilli uppleið. Linda Stefáns-
dóttir var allt í öllu hjá IR og skoraði 25 stig.
Hjá Grindavík var Anna Dís Sveinbjömsdóttir
best í jöfnu liði og skoraði 21 stíg. -ih/VS
Þrenna Guðna
Guðni Grétarsson skoraði þrjú mörk þegar
KR vann ömggan sigur á Leikni, 5-0, í B-riðli
Reykjavíkurmótsins í knattspymu í gærkvöldi.
Einar Þór Daníelsson, sem KR fékk frá Grinda-
vík fyrir skömmu, og Heimir Guöjónsson gerðu
hin mörkin. Næstí leikur í mótínu veröur 1.
apríl en þá mætast ÍR og Ármann í A-riöli.
-VS
Sportstúfar
Fjölmennustu glímumót
sem haldin hafa verið
hér á landi fara fram á
Akureyri um helgina,
nánar tiltekiö í íþróttaskemmunni.
Á laugardaginn kl. 15 hefst gmnn-
skólamót GLÍ þar sem keppt verður
í 14 flokkum og eru keppendur 122.
Á sunnudaginn kl. 9 hefst Lands-
flokkaglíman þar sem keppt er í 14
aldurs- og þyngdarflokkum og
verða keppendur um 120 talsins.
Keppni fullorðinna fer fram á laug-
ardaginn kukkan 15.
Broddi og Árni enn
í ólympíusætunum
" "» Miðað við styrkleikalista
Alþjóða badmintonsam-
/] bandsins, sem gefinn
var út fyrir skömmu,
eru áfram miklar líkur á því að
Broddi Kristjánsson og Árni Þór
Hallgrímsson komist á ólympíu-
leikana í Barcelona. Broddi hefur
hækkaö úr 62. sætí í 56. sæti í einl-
iðaleik en hann og Árni Þór hafa
lækkað úr 26. í 33. sætí í tvíliöaleik.
Fimm atvinnumenn með
gegn ísraelsmönnum
* Landsliðið í knattspyrnu
íl\ heldur til ísrael þann 6.
//, apríl og leikur vináttu-
leik gegn ísraelsmönn-
um þann 8. Fimm atvinnumenn
verða með, þeir Amór Guðjohnsen,
Þorvaldur Örlygsson, Sigurður
Grétarsson, Guðni Bergsson og
Eyjólfur Sverrisson. Aðrir í hópn-
um eru Birkir Kristinsson, Friðrik
Friðriksson, Einar Páll Tómasson,
Atli Helgason, Kristján Jónsson,
Baldur Bjamason, Kristínn R.
Jónsson, Valur Valsson, Arnar
Grétarsson, Rúnar Kristinsson og
Ormarr Örlygsson en Ormarr lék
síðast með landsliöinu í ágúst 1990.
Andri skorinn upp
Miðvallarleikmaðurinn knái úr
FH, Andri Marteinsson, verður
fjarri góðu gamni í ísrael. Hann
kviðslitnaði á dögunum og gekkst
undir uppskurð í gær. Talið er að
hann verði frá æfingum í 5-6 vikur.
Valur vígir nýjan gras-
völl Færeyinga
Valsmenn mæta færeyska lands-
liðinu í knattspymu á sunnudag-
inn og fer leikurinn fram á hinum
nýja þjóðarleikvangi Færeyinga í
Tóftum. Það verður vígsluleikur
Færeyinga við erlent lið á þessum
nýja grasvelli. Valsmenn leika síð-
an gegn færeysku meisturunum
KÍ í Klakksvík á þriðjudaginn.
Sérferð á úrslita-
leikina í Vínarborg
Samvinnuferðir-Land-
sýn efna til sérferðar á
úrslitaleikina í B-keppn-
inni í handbolta í Vínar-
*
borg á sunnudaginn. Flogið verður
til Salzburg á morgun, laugardag,
og ekið þaðan til Vínarborgar þar
sem gist verður fram á mánúdag.
Á mánudaginn verður ekið áleiðis
til Amsterdam með gistingu hjá
Köln en á þriðjudaginn verður flog-
ið heim frá Amsterdam. Verð í
þessa fer er kr. 39.900 miðað við
staðgreiðslu. Innifalið í verði er
aðgöngumiði á aUa leikina á
sunnudag, flug, gisting og akstur.
íslandsmet í keilu
Jón Helgi Þórðarson bætti eigið
íslandsmet í keilu í fyrrakvöld.
Hann fékk 1221 stig í sex leikjum á
íslandsmóti einstaklinga en gamla
metið var 1220 stig.
Stefén Kristjánsson, DV, htnsbntdc
Leikur Islands og Isra-
els í dag er níundi
landsleikur þjóðanna
frá upphafi og er ísrael
ein þeirra þjóða sem viö höfum
sjaldnast leikið gegn. íslendingar
hafa sigrað í fimm leikjum, ísra-
elsmenn í einum leik og tvívegis
hafa þjóðimar gert jafhtefli.
ísraelsmennirnir hafa
vinninginn i B-keppni
íslendingum hefur gengið afleit-
lega gegn ísraelsmönnum í B-
keppnum. Árið 1979 fór B-keppn-
in fram á Spáni og þá varð jafh-
tefli, 21-21. ísraelsmenn unnu
síðan stórsigur á íslendingum í
B-keppninni í Frakklandi 1981,
19-25. í þriðja skiptið sem þjóð-
imar mættust í B-keppninni, í
Hollandi 1983, varð jafntefli 22-22.
ísraelsmenn eru þvi sýnd veiði
en ekki gefin þrátt fyrir að ís-
lenska landsliðiö hafi unniö stóra
sigra gegn því ísraelska í síðustu
leikjum þjóðanna en síðast léku
þjóðirnar áriö 1987 og þá sigraði
Island 29-22 i Noregi.
„Ólíklegt að ég
leiki með FH“
- segir Héömn Gilsson
Steön Kristjánsson, DV, Innsbnick:
„FH-ingar hafa talað við mig varð-
andi það að ég spilaði með þeim í
úrshtakeppninni heima á íslandi. Ég
á hins vegar eftir að leika með
Dússeldorf í tveimur bikarkeppnum
í Þýskalandi þannig að þetta verður
að teljast óhklegt," sagði Héðinn
Gilsson i samtah við DV í gær.
„Ef þetta fer þannig að við töpum
og dettum út eiga Dússeldorf og FH
eftir að ræða saman. Ég hef ekki trú
á að forráðamenn Dússeldorf fari að
fetta fingur út í þaö að ég spih með
Erum að fara Krísu
víkurleiðina heim
- segir Kristján Arason sem er bjartsýnn
Stefin Kristjánsson, DV, hmsbrudc
„Ég held að við eigum góða mögu-
leika á því að tryggja okkur sæti í
A-keppninni en það má kannski
segja að við séum að fara Krísuvíkur-
leiðina heim,“ sagði Kristján Arason
í samtah við DV.
„Við verðum að reyna að gleyma
leik Dana og Norðmanna sem verður
síðar um kvöldið. Við eigum að ein-
beita okkur að leiknum gegn ísrael
og reyna aö skora eitt mark í einu.
Það er mjög mikilvægt að menn fari
ekki að reyna að skora tvö mörk í
sömu sókninni."
Boltinn verður að ganga betur
Kristján sagði ennfremur við DV:
„Það setur á okkur mikið álag að
þurfa að leika fyrsta leikinn af þrem-
ur. Við vitum þá ekki hvað við þurf-
um að vinna Isrel stórt eh að sjálf-
sögðu munum við reyna aö vinna eins
stóran sigur og hægt er. Númer eitt
er að sigra í leiknum og númer tvö
að vinna með sem mestum mun. Þaö
hefur hins vegar hitt og þetta verið
að í sóknarleiknum í þessari keppni.
Við verðum að láta boltann ganga
miklu betur og hætta þessum éílífu
niðurstungum. Þetta gengur vonandi
betur gegn ísrael en gegn Danmörku
og menn eru að reyna að hífa upp
hausinn," sagði Kristján Arason.
ísland A- eða B-þjóð kl. 20.15?
Gífurleg spenna verður í dag þegar
síðustu leikirnir í milhriðhnum fara
fram en þaö verður ekki ljóst fyrr
en á níunda tímanum í kvöld hvem-
ig þetta aht saman fer, en leik Dan-
merkur og Noregs lýkur um klukkan
20.15 og þá fyrst hggur fyrir hvort
ísland verður A- eða B-þjóð.
Ef ísland kemst áfram og keppir
um bronsverðlaunin mætir hðið
annaðhvort Sviss eða Austurríki
klukkan tvö að íslenskum tíma í
Vín.
Ef aht fer norður og niður þá leikur
ísland við Finnland um 5.-6. sætið í
keppninni í Bad Vöslau, bæ í ná-
grenni Vínar, klukkan tíu á sunnu-
dagsmorgun.
Iþróttir
FH og ef Dússeldorf gæfi leyfi hefði
ég mjög gaman af þvi að fara ný í
FH-búninginn. En eins og ég segi þá
tel ég ekki miklar hkur á að af þessu
verði. En ef þetta gerist þá gerist
þetta mjög snöggt og jafnvel bara á
einum degi,“ sagði Héðinn Ghsson.
Það styttist í úrslitakeppnina í 1.
deildinni og vissulega yrði það mikih
styrkur fyrir FH-inga að fá Héðin
Gilsson til hðs við sig. En th þess að
svo verði þarf Dússeldorf að detta
fljótlega út úr bikarkeppnunum í
Þýskalandi.
Innsbruck
Steíán Kristjánsson, DV, Innsbradc
Danskir blaðamenn
hafa haldið því fram
hér aö ef Ðönum tekst
ekki að komast í A-
keppnína í Svíþjóö á næsta ári,
sé komiö að pndalokum hand-
knattleiksins i Danmörku. Þeir
vhja meina að ef allt fari á versta
veg í kvöld muni áhugi fyrir
íþróttinni snarminnka í heima-
landi þeirra.
*
„Þaðverðaáframtil
línur í Danmörku“
Þegar mirrnst var á þetta við Erik
Veje Rasmussen, fyrirhða danska
landsliðsins, í gær sgði hann:
„Ðanskir blaðamnn hafa oft sagt
eitthvað í þessum dúr en ahtaf
erum við að spila handbolta. Og
þaö er alveg öruggt mál að þrátt
fyrir aö okkur takist ekki að kom-
ast í A-keppnina mun veröa leik-
inn handknattleikur áfram í Dan-
mörku. Það verða enn th vellir
og nóg af línum á þeim,“ sagði
Erik Veje og brosti.
Svisslendingar og
Finnar settu met
Það var ekki mikið skoraö í leik
Finnlands og Sviss í hinum
milhriöhnum í leik þjóðanna í
fyrrakvöld. Sviss sigraði 14-16
eftir að staðan í leikhléi haföi
verið 10-12, Sviss í vil. Síðustu 25
mínútur leiksins voru aðeins
skoruð sex mörk og af þeim skor-
uðu Svisslendingar aðeins tvö.
Er þetta met í litilli markskorun
hér í B-keppninni.
Verður Erik Hajas
ekki með Svíum?
„Við urðum fyrir miklu áfahi
þegar Erik Hajas, einn okkar
besti leikmaður, handarbrotnaði
á dögunum og það er ekki víst
aö hann geti leikið með okkur í
handknattleikskeppni ólympiu-
leikanna í Barcelona," sagði
Bengt Johansson, landsliðsþjálf-
ari Svía, í samtah við DV hér í
Innsbruck. Sviar eru að fara i
gang með undirbúning sinn fyrir
ólympíuleikana.
Nýr völlurfyrir
ísknattleikinn
Það verður í nógu aö snúast hjá
starfsmönnum ólympíuhallar-
innar hér í Innsbruck eftir að
B-keppninni lýkur í kvöld, Strax
eftir síöasta leikinn veröur hafist
handa við að rífa handboltavöh-
inn og gera allt klárt fyrir heims-
meistaramótiö í ísknattleik sem
hefst hér í byijun apríl.
Lyftuferðin stað-
festi drauminn
Mikh hjátrú ríkir á meðal íslend-
inganna sem hér eru og gildir þá
einu hvort um er að ræða leik-
menn, þjálfara, fararstjóra eða
blaðamenn. Einn fararstjóra ís-
lenska liösins dreymdi nóttína
fyrir leikinn gegn Danmörku að
ísland fengi 8 stig í milhriölinum.
Th að fá drauminn staðfestan fór
hann um morguninn í lyftuna og
ýtti á hnapp númer 8. Ef lyftan
kæmist upp á 8. hæö án þess aö
stöövast á leiðinni gengi draum-
urinn upp. Lyftan fór rakleitt á
8. hæð en íslendingar gerðu jafn-
tefli við Dani.
Þrjár rjúpur og sumir
alltaf í sömu fötum
Enn um hjátrú manna sem tekið
getur á sig hinar margbreytileg-
ustu myndir. Einn íslending hér
dreymdi fyrir leikinn gegn Dön-
um að hann hefði verið viö skot-
veiðar og fengiö þrjár ijúpur.
Viökomandi var fljótur að koma
þessu í samband við þrjá íslenska
sigra i milhriðlinum en nú er ljóst
að það gengur ekki upp. Það
skyldi þó aldrei þýða að islenska
liðið fengi þrjú stig eftir leikina í
milhriðlinum?