Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1992, Qupperneq 24
*r®4fttnf?iKá»v» - tfnftirVtfy
32
FÖSTUDAGUR 27. MARS 1992.
Menning
Graf íkverk úr Völuspá
Sýningarsölum flölgar enn í borginni og nýverið
bættíst enn einn í þann vísi að listanýlendu sem er
að myndast við Skólavörðustíginn. Þar opnaði einn
fyrstí sýningarsalur Reykvíkinga, Mokka, og þar er
nú einnig starfræktur sýningarsalur í fymim húsi
Jóhanns Eyfells við númer 3a, Gallerí 11. Á það skal
bent hér að ágætri sýningu Ráðhildar Ingadóttur er
þar nú lokið en Guömundur Rúnar Lúðvíksson opnar
á laugardag, 28. mars. Nýi salurinn heitir hins vegar
G 15 og er í húsi númer 15 við sama stíg. Listafólk
ætti að þekkja þar til því áður var þar til húsa hstvöru-
verslun. Nú hefur gullsmiður innréttað húsið smekk-
lega og sýningarsal í kjahara. Þar er aht vel úr garði
gert, þó salurinn sé að vísu ekki stór - og ekki stækk-
ar veggrýmið við gluggana sem snúa út að götunni.
Þeir veita þó salnum skemmtilega vídd með dýpt sinni.
Annars er lýsing vönduð - dagsbirtuhalógen í rennum
í lofti. Grétar Reynisson reið á vaðið með sýningu í
þessum snotra sal, en nú er þar komin Ragnheiður
Jónsdóttir með sjö grafíkverk.
Hreyfing og heild
Ragnheiður verður að teljast meðal okkar helstu
graflkhstamanna og hafa henni hlotnast margvíslegar
viðurkenningar. Á hðnu ári var hún á meðal sýnenda
við opnun Islandsgaherís þeirra Hohendinga og sýndi
þar m.a. mynd unna upp úr hughrifum af Völuspá.
Nú sýnir hún í G 15 sjö slíkar myndir, unnar sem
ætíngar. Það er sterkur hehdarsvipur yfir þessum
myndum. Líkt og í teikningum Ragnheiðar á síðustu
árum er um mikla hreyfingu að ræða í myndfletinum.
Textinn gefur hstakonunni tílefni tíl átaka: „Grjót-
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
Ragnheiður Jónsdóttir.
björg gnata,/en gífr rata“ (mynd 1) og „Vindöld, varg-
öld,/áðr veröld steypisk" (mynd 4). Askur Yggdrasils
skelfur og „sígr fold í mar“ uns „Sér hon upp
koma/öðru sinni/jörð ór ægi/iðjagræna...“
Látleysi og átök
Ragnheiður túlkar þennan klassíska íslenska texta
á látlausan hátt. Efnið, miðihinn, ræður ferðinni að
mestu og útkoman er áhrifarík „kvikmynd" af átökum
sem eru e.t.v. fyrst og fremst átök anda hstamannsins
við efnið og Völuspá þjóðar á endanum einungis þeim
póstmóderníska thgangi að vera skírskotun th gróinna
gilda. Áður fyrr var mun meiri þjóðfélagsádeilu að
finna í verkum Ragnheiðar. Hún lagði m.a. kvennabar-
áttu hð með verkum sínum, þó oft væru þau blönduð
háði á næsta súrrealískan hátt. Hinn mergjaði samr-
uni aðferða; ætingar, mjúkgrunns og akvatintu er enn
th staðar en útfærslan hefur öðlast um einfaldari blæ.
Og hinn samhverfi minnisvaröasvipur sem Ragnheið-,
ur hefur ástundað á síðustu árum lifir í þessum Völu-
spármyndum meðfram því að kvika teikninganna er
komin inn í ferh ætíngarinnar. Einfaldari myndsýn
virðist láta Ragnheiði vel og sýning hennar er með
þeim heildstæðustu á árinu. Það hefði þó ekki sakað
að hafa seríuna lengri og leggja þar með meira í sýiúng-
arskrá. En þá hefði húsnæðinu vísast verið ofboðið.
Sýningu Ragnheiöar lýkur sunnudaginn 5. apríl.
Curtis Stigers - Curtis Stigers:
Hreint ekki amaleg byrjun
Curtís Stígers er ný stjama í poppinu sem skinið hef-
ur skært að undanfomu bæði austanhafs og vestan með
lög eins og I Wonder Why sem komst langleiðina á topp-
inn vestanhafs og lagið Yor’e All That Matters to Me sem
hefur notið mikhla vinsælda á útvarpsstöðvum hérlend-
is upp á síðkastíð. Bæði þessi lög er að finna á fyrstu
plötu Stigers sem ber einfaldlega nafn hans sjálfs.
Stigers er 25 ára gamall Bandaríkjamaður sem sver
sig mjög í ætt við söngvara á borð við Michael Bolton
og minnir mig líka svolítíð á Southside Johnny; hefur
kraftmikla og fjölbreytta rödd með hrjúfum tón. Hann
hefur aha burði th að ná langt því hann er bæði góður
söngvari og lagasmiður; semur níu af ellefu lögum á
plötunni auk þess sem hann leikur listavel á saxófón.
Tórhist Stigers finnst mér vera í anda þeirra sem
nefndir vom áðan, Michaels Boltons og Southside
Johnnys; popp með hæfilega grófri áferð blandað soul-
tónlist, en sjálfur segist hann vera undir áhrifum frá
Donald Fagen, Elvis Costeho og Joni Mitcheh. Hvað
um það, uppskriftín er engin nýjung og Stígers fetar
engar nýjar slóðir en heldur sig á öruggum miðum
og aflar vel.
Það sem gerir það að verkum að hann skarar fram
úr öllum þeim mýgrút af söngvurum sem notast við
sömu uppskrift eru fyrst og fremst mjög frambærileg-
ar tónsmíðar; á plötunni er hvergi veikur blettur, lög-
in renna thtölulega áreynslulaust í gegn enda meló-
Hljómplötur
Sigurður Þór Salvarsson
dísk og grípandi og svo syngur phturinn fantavel. Þá
skemmir ekki fyrir að aðstoðarmennirnir eru einvala
lið; margir gamhr rebbar, þar á meðal eins og þeir
Danny Kortchmar, Michael Landon og Jeff Porcaro.
Curtis Stígers getur óhikað klappað sjálfum sér á
bakið fyrir þessa fyrstu plötu sína.
Móðir og dóttir. Victoria Abril og Marisa Paredes
Háum hælum.
hlutverkum sinum i
Háskólabíó - Háir hælar: ★★ !/2
Ósköp venjuleg
ur Almodovar
Háir hælar (Tacones Lejanos) er
níunda kvikmynd Pedro Almodo-
vars í fullri lengd. Aðeins tvær þær
síðustu; Konur á barmi taugáfahs
og Atamé, eru að einhveiju marki
þekktar utan Spánar og hafa þessar
kvikmyndir gert Almodovar
heimsþekktan og fært hann í hóp
þeirra leikstjóra sem eru mest
skapandi í dag. Pedro Almodovar
gerir Háa hæla undir nokkrum
þrýsingi. í fyrsta skipti bíður heim-
urinn spenntur eftir mynd frá hon-
um og fylgst hefur verið náið með
gerð myndarinnar frá upphafi. Við
shkar aöstæður stendur leikstjóri
oft ekki undir þeim miklu vonum
sem gerðar eru til hans og það verð-
ur að segjast um Háa hæla að hún
stendur ekki undir fyrirfram vænt-
ingum.
Háir hælar er dramtísk mynd.
Hinn beittí og frumlegi húmor, sem
hefur verið eitt aðaleinkenni
Almodovars, er að vísu í bakgrunn-
inum í einstaka atriðum, sérstak-
lega í atriði innan fangelsis-
múranna en Almodovar er fyrst og
fremst að segja okkur sögu af móð-
ur og dóttur og erfiðu sambandi
þeirra á mhli sem einkennist af
öfund, aðdáun, afbrýðisemi og
hatri.
í byrjun fylgjumst við með
Rebeccu (Victoria Abrh) á flugveh-
inum í Madrid þar sem hún er að
BRUÐAR
Þessar upplýsingar verða birtar í DV á fimmtudegi fyrir
brúðkaupið og þurfa að berast í síðasta lagi á þriðjudegi.
gjöfin
NAFN BRÚÐHJÓNA:
KENNITALA: HUN
I I I I
I I I I
HANN
I I I I
I I I I
HEIMILISFANG/ SÍMI_
VÍGSLUSTAÐUR-
DAGUR/TÍMI___
BORGARALEG VÍGSLA/PRESTUR_
NÖFN FORELDRA______________
X
SENDISTTIL
ÞVERHOLTI 11, 105 REYKJAVÍK.
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
taka á mótí móður sinni sem er að
koma th borgarinnar eftír fimmtán
ára fjarveru. Leiftur úr fortíðinni
eru sýnd þar sem kemur fram að
móðir hennar er fræg stjama og
að uppeldi Rebeccu gerir það að
verkum að hún getur varla talist
eins og börn eru flest.
Þegar Rebecca loks hittir móður
sína (Marisa Paredes) fær áhorf-
andinn það á tilfmninguna að ekki
er alit eins og það á að vera milli
þeirra, enda kemur I ljós að
Rebecca hefur gifst Manuel, göml-
um elskhuga móður sinnar sem
skildi hana eftir í sárum fyrir
mörgum árum. Móðirin er komin
heim til að halda tónleika í Madrid
og jafnvel setjast þar að. Tveimur
dögum áður en tónleikarnir eiga
að hefjast fmnst Manuel myrtur og
dularfullur dómari Dominguez
(Miguel Bose) telur mæðgurnar
grunsamlegastar.
Eins og við var að búast frá
Almodovar er morðið sjálft ekki
aðalatriöið í atburðarásinni sem á
eftir kemur heldur samband
mæðgnanna. Báðar finna þær fyrii*
sektarkennd gagnvart hvor ann-
arri og reyna að fmna það sem glat-
ast hefur. Þá hefur Dominguez
ótrúlega mikinn áhuga á Rebeccu,
■ ekki aðeins í sambandi við morðið
sem hann virðist hafa af yfirskyni
th að geta hitt hana.
Þótt Háir hælar standist ekki
samanburð við Konur á barmi
taugaáfahs þá er myndin vel gerð
og kemur söguþráðurinn stundum
skemmtilega óvart. Victoria Abrh,
sem lék í Atamé, og Marisa Paredes
eru góðar leikkonur sem ná upp
góðum samleik. Tvískipt hlutverk
Miguel Bose er erfitt og er á mörk-
unum að hann ráöi við það.
Háir hælar er langdýrasta kvik-
mynd sem Pedro Almodovar hefur
gert hingað th og var mun dýrari
en Konur á barmi taugaáfalls og
Atemé th samans. Eins og oft vhl
verða skha þeir peningar sér ekki
í meiri gæðum. Þrátt fyrir að mað-
ur sakni frumlegheita frá Almodo-
var þá verður ekki neitað að Háir
hælar er hehsteypt kvikmynd sem
segir magnþrungna sögu og er fátt
í tilfinningalífi persónanna sem
Almodovar nálgast ekki.
HÁIR HÆLAR (TACONES LEJANOS)
Leikstjóri og handritshöfundur: Pedro
Almodovar.
Kvikmyndun: Allredo Mayo.
Tónlist: Ryuichi Sakamoto.
Aöalhlutverk: Victoria Abril, Marisa Pa-
redes og Miguel Bose.