Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1992, Side 26
34
FÖSTUDAGUR 27. MARS 1992.
Afmæli
Svenir Haraldsson
Sverrir Haraldsson, sóknarprestur
í Steinholti í Borgarfirði eystra, er
sjötugurídag.
Starfsferill
Sverrir fæddist á Hofteigi í Jökul-
dal en ólst upp í Mjóafirði. Hann
lauk stúdentsprófi frá MA1945 og
embættisprófi í guðfræði frá HÍ1954.
Með námi og að námi loknu stund-
aði Sverrir kennslu, blaðamennsku,
þýðingar og önnur ritstörf. Hann
varð sóknarprestur í Desjarmýrar-
prestakaUi 1963 og stundakennari
við Grunnskóla Borgarfjarðar frá
1964.
Sverrir var formaður barnavernd-
arnefndar 1965-78, um skeið próf-
dómari viö Bama- og unglingaskóla
Borgarfjarðar og stofnandi og fyrsti
formaður Leikfélagsins Vöku á
Borgarfirðieystra.
Eftir Sverri hafa komið út þijár
ljóðabækur, auk þess sem hann hef-
ur ort ljóð og skrifað greinar í blöð
og tímarit. Þá hefur hann þýtt marg-
ar bækur. Honum vom veitt rithöf-
undarlaun 1953 og 1983 og hann
hlaut viðurkenningu frá Tón-
menntasjóði kirkjunnar 1983.
Fjölskylda
Sverrir kvæntist 25.6.1966 Sigríði
Ingibjörgu Eyjólfsdóttur, f. 30.7.
1921, húsmóður og bókaverði viö
Lestrarfélag Borgarfjarðar. Hún er
dóttir Eyjólfs Hannessonar, hrepp-
stjóra, símstjóra og póstafgreiðslu-
manns að Bjargi í Borgarfirði, sem
lést 27.2.1978, og Önnu Helgadóttur
húsmóður sem lést 27.11.1988.
Alsystir Sverris var Svava Har-
aldsdóttir, f. 1.2.1920, d. 16.1.1991,
hjúkrunarfræðingur í Reykjavík.
Hálfbróðir Sverris var Eggert Egg-
ertsson, f. 14.8.1909, d. 11.2.1969,
gjaldkeri í Reykjavík.
Foreldrar Sverris voru Haraldur
Þórarinsson, f. 14.12.1868, d. 15.7.
1960, prestur á Hofteigi og í Mjóa-
firði, og Margrét Jakobsdóttir, f.
11.7.1884, d. 30.7.1957.
Ætt
Bróðir Haralds var Kristján, afi
Angantýs Einarssonar, fyrrv. skóla-
stjóra á Raufarhöfn. Haraldur var
sonur Þórarins, b. og trésmiðs á
Efri-Hólum í Laxárdal, Benjamíns-
sonar, b. í Akurseli, Þorsteinssonar,
b. í Hafrafellstungu, Þorsteinssonar,
b. á Staðarlóni, Þorsteinssonar,
bróður Skíða-Gunnars, langafa
Gunnars á Ljótsstööum, föður
Gunnars rithöfundar.
Móðir Haralds var Vilborg Sigurð-
ardóttir, hálfsystir Ingveldar, móð-
ur Amar Arnarsonar skálds. Vil-
borg var dóttir Sigurðar, b. á Svína-
felli í Hjaltastaðarþinghá, Jónsson-
ar.
Bróðir Margrétar var Stefán,
kaupmaður og útgerðarmaður á
Fáskrúðsfirði. Margrét var dóttir
Jakobs, b. á Brimnesi í Fáskrúðs-
firði, Péturssonar, b. á Oddsstöðum
á Sléttu, Jakobssonar, alþingis-
manns á Breiðumýri, Péturssonar.
Móðir Péturs var Þuríður Jónsdótt-
ir, umboðsmanns á Breiðumýri, Sig-
urðssonar. Móðir Jakobs á Brim-
nesi var Margrét, systir Þórarins,
afa Gunnars Gunnarssonar skálds.
Margrét var dóttir Hálfdánar, b. á
Oddsstöðum á Sléttu, bróður Stef-
áns, langafa Einars Benediktssonar
skálds. Hálfdán var sonur Einars
Árnasonar, prests á Sauðanesi, og
konu hans, Margrétar Lárusdóttur
Schevings, systur Jórunnar, ömmu
Jónasar Hallgrímssonar skálds.
Móðir Margrétar Jakobsdóttur
var Ólöf Stefánsdóttir, prests á Kol-
freyjustað, Jónssonar, prests á
Krýnastöðum, bróður Helgu, ömmu
Stephans G. Stephanssonar. Jón var
sonur Guðmundar, b. á Krýnastöð-
um í Eyjafiröi, Jónssonar, bróður
Benedikts Gröndals, yfirdómara og
skálds, afa Benedikts Gröndals
Sverrir Haraldsson.
skálds. Móðir Stefáns var Margrét,
systir Einars, afa Einars Benedikts-
sonar skálds. Margrét var dóttir
Stefáns, prests á Sauðanesi, Einars-
sonar. Móðir Stefáns var Margrét
Lárusdóttir Scheving, systir Jór-
unnar, ömmu Jónasar Hallgríms-
sonar. Móðir Margrétar var Anna,
systir Benedikts, langafa Sigurðar
Nordals. Anna var dóttir Halldórs
Vídalíns, klausturhaldara á Reyni-
stað. Móðir Halldórs var Hólmfríður
Pálsdóttir Vídalíns, lögmanns í
Víðidalstungu. Móðir Páls var Hild-
ur Arngrímsdóttir lærða, Jónsson-
ar.
Geirþrúður Charlesdóttir
Geirþrúður Charlesdóttir aðalgjaid-
keri, Urðarvegi 6, ísafirði, er sextug
ídag.
Starfsferill
Geirþrúður er fædd á ísafirði. Eft-
ir nám í gagnfræðaskóla vann hún
við verslunar- og skrifstofustörf og
einn vetur var Geirþrúður við nám
í Húsmæðraskólanum Ósk á
ísafirði. Geirþrúður starfaði m.a. í
Bókaverslun Jónasar Tómassonar í
meira en tvo áratugi. Hún er núna
aðalgjaldkeri hjá Sýslumannsemb-
ættinuáísafirði.
Geirþrúður var bæjarfulltrúi í tólf
ár og hefur gegnt mörgum störfum
fyrir ísafjarðarkaupstað. Hún var
t.d formaður barnavemdarnefndar
í áratug, átti sæti í skólanefnd
grunnskólans og menningarráði til
fjölda ára og er nú formaður þeirra
nefnda.
Geirþrúður er einn af stofnendum
Sjálfstæðiskvennafélags ísafjarðar
og var formaður þess í mörg ár og
er nú varaformaður Kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum.
Geirþrúður hefur verið félagi í
Sunnukómum frá 1946, unnið að
málefnum kirkjunnar og er formað-
ur Kvenfélags Isaíjarðarkirkju.
Geirþrúður er félagi í Oddfellow-
reglunni.
Fjölskylda
Geirþrúður giftist 12.12.1953 Jóni
B. Guðjónssyni, f. 21.10.1929, jám-
smíðameistara en nú húsverði í
Stjórnsýsluhúsinu á ísafirði. For-
eldrar hans voru Guðjón D. Brynj-
ólfsson og Guðrún Jónsdóttir.
Börn Geirþrúðar og Jóns: Ólöf, f.
14.8.1953, læknaritari við Heilsu-
gæslustöðina á ísafirði, maki Jó-
hannÁ. Gíslason matreiðslumeist-
ari, þau eiga þrjú börn, Jón Geir, f.
14.11.1975, Tuma Þór, f. 16.3.1978,
og Maríu Guðbjörgu, f. 2.1.1980;
Guðjón Davið, f. 3.11.1956, auglýs-
ingateiknari, maki Brynja Mar-
geirsdóttir, nemi, þau eiga tvö böm,
Geröi, f. 17.12.1984, og Geirþrúði
Ásu, f. 16.3.1987; Guðrún, f. 27.1.
1960, söngkona og nú við nám á ítal-
íu, maki Jóhann Bjarni Pálmason,
nemi.
Bróðir Geirþrúöar er Guðbjöm, f.
3.7.1938, umdæmisstjóri ílugvafia á
Vestfjöröum, maki Sigrún Jóhanns-
dóttir, fóstursonur þeirra er Rúnar
ÖmRafnsson.
Foreldrar Geirþrúðar: Charles
Bjarnason, f. 10.3.1906, vegaverk-
stjóri, ogkona hans, Ólöf Jónsdótt-
ir, f. 8.5.1904, en þau eru bæði látin.
Ætt
Meðal föðurbræðra Geirþrúðar er
Matthías Bjarnason alþingismaður.
Charles var sonur Bjarna, vega-
verkstjóra á ísafirði, Bjarnasonar,
b. á Hraunshöfða í Öxnadal, Kráks-
sonar. Móðir Bjarna var Sigríður,
Guðmundsdóttir, b. á Brún í Svart-
árdal, Jónssonar. Móðir Guðmund-
ar var Ingiríður, systir Ingibjargar,
langömmu Jóns Pálmasonar alþing-
isforseta, fóður Pálma á Akri. Ingi-
ríður var dóttir Guðmundar ríka,
Geirþrúður Charlesdóttir.
b. í Stóradal, Jónssonar, b. á Skegg-
stöðum, Jónssonar, forföður Skegg-
staðaættarinnar.
Móðir Charlesar var Auður, dóttir
Jóhannesar, b. á Nolli á Svalbarðs-
strönd, Guðmundssonar. Móðir
Auðar var Guðbjörg Björnsdóttir,
b. í Pálsgerði á Höfðaströnd, bróður
Guðrúnar, móður Hákarla-Jörund-
ar, langafa Jónasar Bjarnasonar,
fyrrv. forseta Náttúrulækningafé-
lags íslands.
Ólöf var dóttir Jóns, trésmiðs á
Kirkjubæ í Skutulsfirði, Bjarnason-
ar og Guðbjargar Jónsdóttur,
vinnumanns í Ytri-Hjarðardal í Ön-
undarfirði, bróður Bjama á Tanna-
nesi, föður Ingimars Bjarnasonar,
útgerðarmanns í Hnífsdal. Jón var
sonur Jóns, b. á Narfanesi, Jónsson-
ar. Geirþrúður tekur á móti gestum
á afmælisdaginn í Oddfellowhúsinu
á ísafirði kl. 18-20.
Til hamingju með af-
mælið 27. mars
80 ára
50 ára
Pálina Ingimarsdóttir,
Hafnargötu 18, Siglufíröi.
75 ára
Anna Einarsdóttir,
Fossvöllum 1, Hlíðarhreppi.
Þórunn Bjornsdóttir,
Urðarteigi 27, Neskaupstað.
Njnls-
Sigurður
son,
Mavanesi 23,
Garðabæ.
Eiginkona hans er
Guðný Þorsteins-
dóttir,
Þau taka á móti
gestum á afmælis-
daginn f Efstaleiti
14 (Breiðahlik) í
Revkjavík kl. 17—19.
Laufey dörgensdóttir,
Básenda 10, Reykjavík.
Preben Willy Nielsen,
Stafnesvegi 1, Sandgerði.
Margrét Margeirsdóttir,
Hólmgarði 2b, Kefiavík.
Úlflúldur Geirsdóttir,
Brúarhóli 2, Mosfelisbæ.
Einar Ólafsson,
Hraunbæ 160, Reykjavík.
Guðmundur Jónasson,
Heiðarholti 42a, Keflavík.
Aðalsteinn Sigurjónsson,
Höfðavegi 15, Vestmannaeyjum.
Guðrún Elsa Erlendsdóttir,
Höfðabraut 3, AkranesL
40 ára
Skafti Jónsson,
Ásmundarstöðum 2, Öxarfjarðar-
hreppL
Þór Aðalsteinsson,
Heiðargerði 2, Reykjavik.
Baidur Bjarnason,
Klapparstíg 1, Reykjavík.
Garðar S. Ásbjörnsson,
Túngötu 3, Vestmannaeyjum.
Leifur Franzson,
Háaleitisbraut 123, Reykjavík.
Hanna Sigurðardóttir,
Breiðvangi 11, Hafnarfirði.
Tryggvi Eyþórsson,
Akurhraut 10, Njarðvík.
Knútur Ámason,
Fomhaga 21, Reykjavík.
Valgerður Sveinbjörnsdóttir,
Esjubraut 2, AkranesL
Hörður Kristinsson,
Flúðaselí 12, Reykjavík.
Sólveig Jóhannesdóttir,
Bfstahjalla ic, Kópavogi.
Guðný Sólveig Sigurðardóttir,
Veisuseli, Hálshreppi.
Reynir Ölafsson.
Miðvangi 10, Hafharfirði.
Pétur Steinþórsson,
Fannafold 167, Reykjavik.
Andlát
Ólafur Halldórsson
Ólafur Guðmundur Hafidórsson,
fyrrv. skrifstofustjóri Gjaldheimt-
unnar í Reykjavík, til heimihs að
Tjamargötu 10 C, Reykjavík, lést á
öldrunardeild Landspitalans, Há-
túni 10 B, þann 15.3. sl. Hann var
jarðsunginn frá Dómkirkj unni í
gær.
Starfsferill
Ólafur fæddist í Reykjavík 21.10.
1913 og ólst þar upp á Njálsgötunni.
Hann hóf ungur störf hjá verslun-
inni Edinborg og vann þar um skeið
en síðan hjá Mjólkurfélagi Reykja-
víkur. Árið 1937 hóf hann störf á
skrifstofu borgarsfjórans í Reykja-
vík þar sem hann starfaði þar til
Gjaldheimtan var stofnuð 1962.
Hann var þá ráðinn afgreiðslustjóri
Gjaldheimtunnar en varð síðar
skrifstofustjóri Gjaldheimtunnar.
Því starfi gegndi hann þar til hann
náði hámarksaldri borgarstarfs-
manna en sinnti eftir það hluta-
starfi allt til ársins 1988.
Ólafur lék knattspyrnu með Fram
á sínum yngri árum, fyrst með yngri
flokkunum og síðan með meistara-
flokki á fjórða áratugnum. Hann
sinnti stjórnarstörfum hjá Fram,
var fulltrúi félagsins í stjóm Knatt-
spyrnuráðs Reykjavíkur 1944-45 og
1949-53. Þá var hann formaður
Fram 1942^3.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 1935 Guðrúnu
Hildi Nielsen. Hún er dóttir hjón-
anna Kristjáns Friöriks Nielsen
stórkaupmanns og Guðrúnar Bene-
diktsdóttur húsmóður.
Dætur Ólafs og Guðrúnar eru
Hildur, f. 17.8.1935, gift Pétri M.
Gestssyni, starfsmanni hjá Skelj-
ungi hf., og eiga þau þrjú böm, og
Guðrún, f. 4.6.1941, gift Birni Helga-
syni, bifreiðastjóra hjá Hjálpar-
tækjabankanum, og eiga þau eitt
barn.
Nú eru tvær systur Ólafs á lífi,
Sigríður og Guðríður. Systkini Ól-
afs: Guðmundur Kristinn, f. 23.7.
1895, d. 2.12. sama ár; Högni, b. og
verkstjóri í Reykjavík, kvæntur
Fanneyju Jónsdóttur Egilsson; Sig-
riður Kristín, f. 7.1.1898, d. 7.4.1964,
var gift Oddi Björnssyni, afgreiðslu-
manni á Akranesi; Guðmundur, f.
9.8.1900, d. 13.2.1986, Útsölustjóri
hjá ÁTVR í Reykjavík og formaður
Fram, var kvæntur Ágústu Jó-
hannsdóttur; Guðmundur Valdi-
mar, f. 31.3.1903, d. 18.10.1904; Sig-
ríður, f. 20.6.1907, húsmóðir í
Reykjavík og ekkja eftir Stefán
Þórðarson sjómann; Sigurður, f. 7.5.
1910, d. 24.12.1982, kaupmaður í
Reykjavík og formaður Fram, var
kvæntur Kristínu Þorláksdóttur;
Guðríður, f. 4.11.1911, gift Lúðvík
Thorberg Þorgeirssyni, kaupmanni
í Reykjavík og fyrrv. formanni
Fram.
Foreldrar Ólafs vom Halldór
Högnason, b. á Skálmholtshrauni á
Skeiðum og síðar verslunarmaður í
Reykjavík, og Andrea Katrín Guð-
mundsdóttir frá Hömrum í Gnúp-
verjahreppi, húsfreyja.
Ætt
Halldór var sonur Högna, b. í
Skálmholtshrauni í Flóa, Jakobs-
sonar.
Andrea var dóttir Andreu Katrín-
ar Guðmundsdóttur, b. á Urriða-
fossi, Ámundasonar og konu hans,
Olafur Guðmundur Halldórsson.
Kristínar Andrésdóttur, b. og
hreppstjóra í Syöra-Langholti,
Magnússonar, alþingismanns í
Syðra-Langholti, Andréssonar.
Móðir Andrésar var Katrín Eiríks-
dóttir, b. og dbrm. á Reykjum á
Skeiðum, Vigfússonar, forfóður
Reykjaættarinnar.