Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1992, Qupperneq 28
36
FÖSTUDAGUR 27. MARS 1992.
Memung______________
Sinfóníutónleikar
Sinfóníuhljómsveit íslands hélt tónleika í Háskóla-
bíói í gærkvöldi. Stjórnandi var Petri Sakari en ein-
leik á simbalom lék Marta Fábián frá Ungverjalandi.
Á efnisskránni voru verk eftir Frans List, György
Ranki, George Enescu og Zoltan Kodaly.
Eins og sjá má af þessari upptalningu var áherslan
á tónlist frá Austur-Evrópu á þessum tónleikum og
flest verkinaf því tagi sem kenna má við þjóðlagatónl-
ist. Tvær Ungverskar rapsódíur eftir Liszt voru flutt-
ar, no. 3 í D dúr og no. 2 í c moll. Hvorugt verkanna
getur talist til hágæðatónlistar en sú síðari er þó ágæt-
lega heppnaö verk og útsetningin glæsileg. Rúmensk
rapsódía eftir Enescu er í svipuðum stíl og anda þótt
þjóðlögin séu hér rúmensk en ekki ungversk eins og
hjá Liszt. Fomtnilegasta verkið var Konsertino fyrir
simbalom, strengi og slagverk eftir Ranki. Verkið virð-
ist vera ritað með nokkuð fijálsu tónamáll en stefja-
meðferð og form síðrómantískt í anda. Þá mátti heyra
óm frá Bartok í bakgrunni þótt stíllinn væri hvorki
eins sjálfstæður eða heiidstæður og hans. Simbalom
er að mörgu leyti athyglisvert hljóðfæri. Það virðist
búa yfir töluverðum möguleikum til styrkbrigða og
litbreytinga en hentar trúiega betur sem bakgrunns-
eða undirleikshijóðfæri heldur en til einleiks með
hljómsveit.
Síðasta verkið á tónleikunum var Háry Janos svíta
Kodalys sem er einnig byggt á ungverskum þjóðlögum.
Þetta er að mörgu leyti vel gert verk en leið fyrir það
að þessu sinni að vera síðast í svo langri röð þjóðlaga-
verka. Það er eins með ungversk þjóðlög og málmgjöll-
in, áhrif þeirra eru í öfugu hlutfalli við það hve oft
þau heyrast.
Flutningur hijómsveitarinnar var svolítið misjafn.
Stundum var hægt að fá það á tiifinninguna aö hljóm-
sveitarmönnum þætti viðgangsefnin ekki nógu mikil-
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
væg. Margt hljómaði þó vel og ýmsir einstakir hljóm-
sveitarmenn fengu tækifæri til að sýna færni sína í
einleiksstrófum. Meðal þeirra sem skiluðu því sérlega
glæsilega var Sigurður I. Snorrason, klarínettleikari.
Einleikur Fábíáns á simbalommið var mjög góður eft-
ir því sem þekking gagnrýnanda DV á þessu hljóðfæri
nær til en hún takmarkast við reynsluna af þessum
tónleikum ef frá eru talin eitt skipti eða tvö sem gagn-
rýnandanum gafst færi á að heyra í hljóðfærinu á
knæpum í Búdapest fyrir mörgum árum.
Andlát
Stefán Rafn Sveinsson fræðimaður
er látinn.
Helgi Sveinsson lést í Ástralíu 24.
mars. Minningarathöfn verður aug-
lýst síðar.
Jón Helgi Jónsson rennismíðameist-
ari, Kveldúlfsgötu 3, Borgamesi,
andaðist í Sjúkrahúsi Akraness þann
24. mars.
Sigurjón Guðmundsson, Stóra-
Saurbæ, Ölfusi, lést í Sjúkrahúsi
Suðurlands þann 25. mars sl.
lestur og tónlist flutt. A sunnudag kl. 14
verður sænsk bamakvikmynd kl. 14 og
kl. 16 fjallar Stlg Tomehed um sænska
sagnaskáldið Vilhelm Moberg.
Tívolí opnað
um helgina
Tívolí í Hveragerði verður opnað með
pomp og prakt nú mn helgina. Opið verð-
ur allar helgar í apríl, mn páskana og
sumardaginn fyrsta. Kynntar verða ýms-
ar spennandi nýjungar. Nefna má 2 ný
vélknúin tæki, hryllingsbúðina, endur-
bættan speglasal, nýjar þrautir í skot-
bökkum, nýjungar í veitingum og nýjar
skreytingar. Hveraportið er söiumarkað-
ur fyrir notað og nýtt sem verður alla
sunnudaga í maí-ágúst.
Fyrirlestrar um siðfræði
Rosalind Hursthouse, prófessor hjá Open
University í Bretlandi, heldur tvo fyrir-
lestra á vegum Siöfræðistofnunar. Laug-
ardaginn 28. mars kl. 15 heldur hún fyrir-
lestur í Odda, stofu 101, og nefnist hann
„Ný siðfræði í anda Aristótelesar".
Þriðjudaginn 31. mars heldur hún fyrir-
lestur á sama stað sem hún nefnir „Um
siðfræði lækninga". Rosalind er deildar-
forseti heimspekideildar Open Univer-
sity þar sem hún hefur kennt heimspeki
og samið kennslubækur um árabil. Auk
bókarinnar Beginning Lives hefur hún
birt ritgerðir í ýmsum greinum heim-
spekinnar, þar á meðal rökfræði og um
réttlætiskenningar.
Myndgátan hér að ofan
lýsir athöfn.
Lausn gátu nr. 290:
Ferúr
böndunum
Jardarfarir
Halldór Ólafsson, sem andaðist í
Þrándheimi 11. mars sl., verður
jarösunginn frá Hólskirkju í Bolung-
arvík laugardaginn 28. mars kl. 14.
Tilkyimingar
Flóamarkaður Krýsu-
víkursamtakanna
Krýsuvíkursamtökin verða með flóa-
markað í Undralandi, markaðstorgi,
Grensásvegi 14, laugardag og sunnudag.
> Opið kl. 12-18. Állt mögulegt á boðstólum,
gjafavara, matvara, notað og nýtt. Allt
mjög ódýrt.
Afmælishátíð Vináttufélags
íslands og Kúbu
Vináttufélag Islands og Kúbu fagnar því
um þessar mundir að tuttugu ár eru liðin
síðan félagið var stofnað. Af því tilefni
verður efnt til afmælisfagnaöar í MÍR-
salnum, Vatnsstíg lOb, Reykjavík, laug-
ardaginn 28. mars. Hátíðin hefst með
borðhaldi kl. 20 en húsið verður opnað
kl. 19. Fyrr um daginn, kl. 14, verður
aðalfúndur félagsins haldinn, einnig í
MÍR-salnum.
Námskeið og samkoma
hjá Veginum
Dagana 28.-30. mars verður Johnny
Carlsson frá Sviþjóð gestur safnaðarins.
•* Johnny er velþekktur og vinsæll prédik-
ari á Norðurlöndum og er einn aðalkenn-
ari biblíuskólans „Livets Ord“ í Uppsöl-
um. Hann kennir á námskeiði hjá Vegin-
um laugardagitm 28. mars nk. um „Guð-
dóminn". Samkoma verður um kvöldið
kl. 20.30. Einnig kemur hann til með að
tala á samkomum félagsins sunnudaginn
29. mars.
Laugardagskaffi
Kvennalistans
LaugardagskafB Kvennalistans verður
að venju haldið að Laugavegi 17,2. hæð,
kl. 11. Kristín Bjamadóttir, lektor í hjúkr-
unarfræði, flytur erindi um þróun hjúkr-
unarstarfsins í gegnum tíðina og veltir
upp spumingum um hvemig yfirstand-
* andi niðurskurður í heilbrigðiskerfinu
kemur til með að hafa áhrif á líf kvenna.
Allir velkomnir. Aðgangur er ókeypis og
hægt er að kaupa kaffi og morgunverð á
vægu verði.
Sænsk bókavika í
Norræna húsinu
Á sunnudag lýkur sænsku bókavikunni
sem staðið hefúr yfir 1 Norræna húsinu.
' I dag kl. 13.15 heldur Lennart Hagerfors
fyrirlestur um sænskar bókmenntir á 9.
áratugnum.Á laugardagskvöldið kl. 20.30
verður kvöldvaka þar sem verður upp-
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Spilað verður og dansað í kvöld, föstu-
dagskvöld, að Auðbrekku 25 kl. 20.30. Ný
3ja kvölda keppni. Húsið öllum opið.
Fundir
Styrktarfélag vangefinna
Aðalfundur félagsins veröur haldinn í
Bjarkarási mánudaginn 30. mars nk. kl.
20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur
mál. Kaffiveitingar.
Páskaföndurfundur
Vélprjónasambands íslands verður hald-
inn laugardaginn 28. mars. Hefst hann
kl. 13 í húsi Armanna, Dúgguvogi 13.
Félag Snæfellinga og
Hnappdæla í Reykjavík
Aðalfundur félagsins verður haldinn í
Naustinu (uppi) laugardaginn 4. apríl kl.
5 sd. Snæfellingakvöld á eftir í Naustinu.
Borðapantanir í síma 17759. Mætum öll
og njótum góðra veitinga og samveru.
Tapað firndið
Læða tapaðist frá
Lynghálsi
Svört læða tapaðist fyrir ca hálfum mán-
uði frá Lynghálsi. Hún var ómerkt. Hafi
einhver séð hana eða veit hvar hún er
niðurkominn þá vinsamlegast hringi
hann í síma 45661.
Fyrirlestrar
Ásatrúarfélagið
kynnir
Fyrirlestur í Stúdentakjallaranum laug-
ardaginn 28. mars kl. 15. Viðfangsefni
verður: Skímismál sem ljóð eða hluti af
helgisiðum norrænna manna. Dr. Terry
Gunnell kynnir þetta viðfangsefni en það
er hluti af doktorsverkefni hans sem fjall-
ar um fomnorræna helgileiki. Allir
áhugamenn, lærðir sem leikmenn, em
velkomnir. Aðgangur er ókeypis.
Leikhús
í
)J
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
M-hátið á Suðurnesjum:
RÍTAGENGUR
MENNTAVEGINN
eftir Willy Russel
Þýöing: Karl Ágúst Úlfsson.
Leikstjóri: María Kristjánsdóttir.
Leikmynd og búningar: Guðrún Sig-
riður Haraldsdóttir.
Lýsing: Björn Bergsteinn Guð-
mundsson og Páll Ragnarsson.
Leikarar: Arnar Jónsson og Tinna
Gunnlaugsdóttir.
Frumsýning í samkomuhúsinu i
Sandgerði
sunnudaglnn 29. mars kl. 20.30.
2. sýning i Festi, Grlndavík, fimmtu-
daglnn 2. apríl kl. 20.30.
3. sýnlng í Stapa, Ytrl-Njarövik,
föstu-
daginn 3. april ki. 20.30.
4. sýning í Glaöheimum, Vogum,
laugardaginn 4. apríl kl. 20.30.
Miðapantanir i sima 11200, að-
göngumiöaverð kr. 1500.
STÓRA SVIÐIÐ
ELÍIVl HELGA' GUÐRIÐUR
eftir Þórunnl Sigurðardóttur
íkvöldkl. 20.
Fá sæti laus.
3. sýn. fimmtud. 2. april kl. 20.
Fá sæti laus.
4. sýn. föstud. 3. april kl. 20.
Fá sætl laus.
5. sýn. fös. 10. april kl. 20.
Fá sæti laus.
6. sýn. lau. 11. april kl. 20.
EMIL
ÍKATTHOLTI
eftir Astrid Lindgren
Lau. 28.3. kl. 14, uppselt, sun. 29.3.
kl. 14ogkl. 17.
UPPSELT ER Á ALLAR SÝNINGAR
TIL OG MEÐ MIÐ. 29.4.
MIÐAR ÁEMILÍ KATTHOLTISÆK-
IST VIKU FYRIR SÝNINGU, ELLA
SELDIR ÖDRUM.
Menningarverðlaun DV
1992:
RÓMEÓ OGJÚLÍA
eftir William Shakespeare
Lau. 28.3. kl. 20, lau. 4.4. kl. 20, flm.
9.4. kl. 20.
Siðustusýningar.
LITLA SVIÐIÐ
KÆRA JELENA
eftir Ljudmilu Razumovskaju
Sun. 29.3. kl. 20.30, uppselt.
UPPSELT ER Á ALLAR SÝNINGAR
TIL OG MEÐ MIÐ. 29.4.
Miðasalan er opin frá kl. 13-18
alla daga nema mánudaga og
fram að sýningum sýningar-
dagana. Auk þess er tekiö á
móti pöntunum I sima frá kl. 10
alla virka daga.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
GRÆNA LÍNAN 99-6160.
HÓPAR 30 MANNS EÐA FLEIRI
HAFI SAMBAND i SÍMA11204.
LEIKHÚSGESTIR, ATHUGIÐ:
ÓSÓTTAR PANTANIR
SELJAST DAGLEGA.
EKKIERUNNTAÐ HLEYPA
GESTUM í SALINN EFTIR AÐ
SÝNING HEFST.
MIÐARÁKÆRU JELENU
SÆKIST VIKU FYRIR SÝNINGU
ELLA SELDIR ÖÐRUM.
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ
ÉG HEITIÍSBJÖRG,
ÉG ER UÓN
eftir Vigdísi Grimsdóttur
Lau. 28.3. kl. 20.30, uppselt, sun.
29.3. kl. 20.30, uppselt, þri. 31.3. kl.
20.30, uppselt, mlð. 1.4. kl. 20.30,
uppselt, lau. 4.4. kl. 20.30, uppselt,
sun. 5.4. kl. 16, örlá sætl laus, og
kl. 20.30, uppseit.
Sala er hafin á eftirtaldar sýnlngar:
Þrl. 7.4. kl. 20.30, laus sætl, mlð. 8.4.
kl. 20.30, laus sæti, sun. 12.4. kl.
20.30, laus sætl, þrl. 14.4. kl. 20.30,
laus sæti, þri. 28.4. kl. 20.30, laus
sætl, mið. 29.4. kl. 20.30, laus sætl.
EKKIER UNNT AÐ HLEYPA
GESTUM INN ÍSALINN
EFTIR AÐ SÝNING HEFST.
MIÐAR A ÍSBJÚRGU SÆKIST VIKU
FYRIR SÝNINGU ELLA SELDIR
ÖÐRUM.
Farandhópur á vegum
Þjóðleikhússins:
ÁHORFANDINN í
AÐALHLUTVERKI
- um samsltípti áhorfandans og
leikarans eftír Eddu Björgvins-
dóttur og Gísla Rúnar Jónsson.
Fyrirtæki, stofnanir og skólar,
sem fá vfija dagskrána, hafi sam-
band í síma 11204.
íslandsklukkan
eftir Halldór Laxness
Frumsýnlng i kvöld kl. 20.30.
Laugard. 28. mars kl. 20.30,
2. sýning.
Sunnud. 29. mars kl. 20.30.
Flmmtud. 2. april kl. 17.00.
Föstud. 3. april kl. 20.20.
Laugard. 4. april kl. 15.00.
Mlðasala er I Samkomuhúslnu,
Hafnarstræti 57. Miöasalan er opln
alla virka daga nema mánudaga kl.
14-18 og sýnlngardaga fram að sýn-
ingu. Greiðslukortaþjónusta.
Simi I miðasölu: (96) 24073.