Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Side 8
8
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1992.
LífsstíU
DV kannar verð 1 matvöruversl unum:
íslenskar agúrkur
á hagstæðu verði
Neytendasíða DV kannaði að þessu
sinni verð í eftirtöldum verslunum;
Bónusi Hafnarfirði, Fjarðarkaupi
Hafnarfirði, Hagkaupi Kringlunni,
Kaupstað í Mjódd og Miklagarði við
Sund.
Bónusbúðimar selja sitt grænmeti
í stykkjatali á meðan hinar saman-
burðarverslanimar selja eftir vigt.
Til þess að fá samanburð þar á milli
er grænmeti í Bónusi vigtað og um-
reiknað eftir meðalþyngd yfir í kíló-
verð.
Að þessu sinni var kannaö verð á
gúrkum, sveppum, grænum vínberj-
rnn, gulri papriku, hvítkáli, banön-
um, gulrótum, Uncle Ben’s hrís-
grjónum, 907 g, 1 kg af ýsuflökum,
Botaniq þvottaefni, 2,3 kg, kók í 1,5
lítra flöskum og 1,5 kg af Þykkvabæj-
ar frönskum.
Nú em allar búðimar í könnuninni
komnar með íslenskar gúrkur og það
sem meira er, þær em á hagstæðu
verði. Þær kosta 121 í Bónusi, 193 í
Það borgar sig fyrir neytandann að bera saman verð því að munur á hæsta og lægsta verði getur farið yfir 100%.
Miklagarði, 198 í Kaupstað, 199 í
Hagkaupi og 299 í Fjarðarkaupi.
Hæsta og lægsta verð
Munur á hæsta og lægsta verði er
töluverður eða 147%. Sveppir eru á
lægsta verðinu í Miklagaröi. Þar var
kílóverðið 387 en var 441 í Bónusi,
568 í Hagkaupi, 578 í Kaupstað og 585
í Fjarðarkaupi. Þar er munur á
hæsta og lægsta verði 49 af hundraði.
Munur á hæsta og lægsta verði á
grænum vínberjum er 106%. Lægsta
verðið var að finna í Miklagarði, 96
krónur en það var 99 í Fjarðarkaupi
og 198 í Kaupstað og Hagkaupi. Græn
vínber fengust ekki í Bónusi. Gul
paprika var á hagstæðasta veröinu í
Bónusi, 378 krónur kílóið en kostaði
399 í Fjaröarkaupi, 465 í Hagkaupi
og 486 í Kaupstað. Hún fékkst ekki í
Miklagarði en munur á hæsta og
lægsta verði er 29 af hundraði.
Hvítkál var fyrsta flokks í öflum
verslunum. Verðið var 24 krónur í
Miklagarði, 31 í Bónusi, 37 í Kaup-
stað, 39 í Hagkaupi og 47 í Fjarðar-
kaupi. Munur á hæsta og lægsta
verði er þar 96%. Bananar vom
langódýrastir í Miklagarði þar sem
kílóverðið var 57 krónur. Það var 105
í Bónusi, 113 í Kaupstað og 125 í Hag-
kaupi og Fjarðarkaupi. Muniuinn á
hæsta og lægsta verði er 119%.
Munur á hæsta og lægsta verði á
gulrótum er 7ýaf hundraði en verðiö
var lægst í HagkauDi, 49 krónur.
Rétt á eftir komu Bónus með 52 krón-
ur, Mikligarður með 56 krónur kg,
síðan Kaupstaður með 79 og Fjarðar-
kaup 89 krónur. Uncle Ben’s hrís-
gijón fengust aðeins í tveimur versl-
unum í 907 g stærö. Verðið var 107
krónur í Hagkaupi og 172 í Bónusi
en munurinn á þessum tveimur
verðum er 61 af himdraði.
Ýsuflak með roði var á kílóverðinu
388 í Miklagarði, 390 í Bónusi, 445 í
Hagkaupi, 455 í Kaupstað og 465 í
Fjarðarkaupi. Munur á hæsta og
lægsta verði er 20 af hundraði. Bot-
aniq þvottaefni fékkst ekki í Mikla-
garði en var á 432 krónur pakkinn í
Bónusi, 454 í Fjarðarkaupi, 539 í Hag-
kaupi og 586 í Kaupstað. Munur á
hæsta og lægsta verði reynist þar
vera 36 af hundraði.
Kók í 1,5 lítra flöskum kostar 179 í
Kaupstað, 184 í Hagkaupi og 186 í
Fjarðarkaupi en fengust ekki í Bón-
usi né Miklagarði. Athygli vekur að
kók í 2 lítra flöskum var í öllum
verslunum á lægra verði en 1,5 lítra.
Munur á hæsta og lægsta verði er
aðein 4%. Þykkvabæjar franskar
fengust ekki í Miklagarði í 1,5 kg
pakkningum en vom á 355 í Bónusi,
385 í Hagkaupi, 415 í Fíarðarkaupi
DV-mynd Hanna
og 482 í Kaupstað. Munur á hæsta
og lægsta verði er þar 36 af hundraði.
-ÍS
Verðlag almennt
á niðurleið
Það er greinilegt af línuritum vik-
unnar á grænmeti og ávöxtum að
verðlag er almennt á niðurleiö þó að
lækkunin sé mismikil eftir tegund-
um. Verö á grænmeti lækkar oft þeg-
ar hallar að sumri.
Meðalverð banana hefur lækkað
jafnt og þétt frá því í febrúar þó að
sú þróun sé hæg. Meðalverðið var
120 krónur í febrúar en er nú komið
niður í 105 krónur. Meðalverð
grænna vínbeija hefur lækkað mun
hraöar og er nú ekki nema rúmlega
helmingur þess sem það var í lok
febrúar. Þá var það 270 krónur en
stendur nú í 148 krónum.
Meðalverð á sveppum hefur verið
nokkuð stöðugt undanfama mánuði
en er þó heldur á leið niður á við.
Meðalverðiö var 570 krónur á kflóið
í byijun marsmánaðar en er nú rétt
fyrir ofan 500 króna markið og gæti
jafnvel farið undir það ef áfram held-
ur sem horfir. Meðalverð á gúrkum
hefur veriö sveiflukennt undanfam-
ar vikur. Það var 330 krónur í lok
febrúar, fór niður í 270 um miðjan
mars, aftur upp lyrir 300 krónumar
í byrjun aprfl en er nú komið niður
í 202 krónur.
Mesta athygli vekur hversu meðal-
verð á gulri papriku tekur miklum
breytingum. Það var rétt um og yfir
300 krónur eftir áramótin, stökk síð-
an upp í tæpar 700 krónur en er 432
krónur nú, tæpum mánuði síöar.
Meðalverð hvítkáls hefur verið neyt-
endum hagstætt síðustu mánuði. Það
hefur verið rokkandi í kringum 50
krónur á kflóið en hefur nú komist
niður í 36 krónur.
-ÍS
Sértilboð og afsláttur
r
1
Mikligaröur við Sund er með
útsæðiskartöflur af fjórum teg-
undum á sértilboði, Tegundirnar
gullauga og rauðar em seldar á
96 krónur kílóiö og premier eöa
amasonkartöflur á 153 króna
kílóverði. Þær eru seldar í 5 kg
pakkningum. Einnig eru á sértil-
boði í versluninni appelsínur sem
kosta 57 krónur kflóið, nauta-
hakk á 533 krónur og London
lamb á 804 krónur kflóiö.
í Kaupstað í Mjódd era í gangi
sértflboö á Rynkeby appelsínu-
safa sem er á 99 kr. lítrinn, Frón
matarkexi, z2 kg, sem kosta 92
krónur, Bmk vanillu- eða súkk-
ulaðikexi, 250 g, á 89 og 8 rúllur
af Tapir salernispappír sem kosta
199 krónur pakkinn.
I Hagkaupi í Kringlunni era blá
vínber á hagstæöu kílóveröi, 198
krónur. Ennfremur Bolands te-
kex, 200 g á 35 krónur, Heinz tóm-
atsósa, 575 ml, á 89 krónur og
Kjarna appelsinumarmelaði, 400
g á aðeins 99 krónur.
í Fjarðarkaupi er búið aö laskka
mjög verð á Gillette Sensor rak-
vélinni sem kostar nú aðeins 150
krónur. í gangi era sömuleiðis
tilboösverð á allar tegundir Re-
ach tannburstum sem kosta 126
krónur stykkiö, Bella eldhúsrúll-
ur kosta 2 saman i pakka á 98
krónur og Brink kremkex með
súkkulaði- eða vanfllubragði, 400
g, á 66 krónur pakkinn.
Greinilegt er á sértilboðum í
Bónus að sumarið er í nánd.
Hunts barbeque sósa er á 136
krónur, 3 tegundir, grillkol, Wall
Mart eða Giant, í 4,53 kg pokum
eru á 279 krónur og bama-jogg-
inggallar eru seldir á 799 krónur
í fjórum stærðum. Ennfremur
vora straubretti á tilboðsverði,
1.599 krónur.