Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Blaðsíða 22
 Sérstæð sakamál Rödd sakleysingjans Alison Carter. Dawn meðan móðir hennar var enn á lifi. Jess og Alison Carter höfðu verið hamingjusamlega gift í nokkur ár og litla dóttir þeirra, Dawn, var þeim mjög kær. Reyndar snerist lif þeirra að miklu leyti um hana. En skyndilega var endir bundinn á hamingjuna. Alsion lét lífið í slysi og Jess stóð einn eftir með dóttur- ina. Faðirinn einstæði var oft í vand- ræðum með aö sinna öllum skyldu- störfum sínum og þannig gekk það til í ár. En þá kynntist hann Miriam Phelps og fljótlega fór að birta til í tilveru hans. Ekki leið svo á löngu þar til Miriam fluttist heim til þeirra Jess og Dawn, en þau bjuggu í raðhúsi við Morris-stræti í smá- bænum Ongar í Essex á Englandi. Tók Miriam nú við móðurhlut- verkinu á heimilinu og varð í raun stjúpmóðir Dawn litlu. Næstu þrjú árin gekk allt vel en svo fóru þau Jess og Miriam að ríf- ast og er frá leiö urðu rifrildin tíð- ari og hvassari. Svo gerðist það kvöld eitt í október 1986 að þeim lenti heiftarlega saman og þegar rifrildið stóð sem hæst greip Jess um háls Miriam og herti að. Þegar hann sleppti takinu féll hún lífvana á gólfið. Honum varð svo ljóst að hún var dáin. Gripinn skelfingu Jess hefði ekki þurft að óttast harðan dóm hefði hann, þetta okt- óberkvöld 1986, hringt til lögregl- unnar og tilkynnt henni hvað gerst hafði. Hér var greinilega ekki um morð að yfirlögðu ráði að ræða, heldur afleiðingu ofbeldis sem hann hafði beitt hana æstur og reiður. Þar að auki hefði verið hægt að sýna fram á að Miriam bæri hluta sakarinnar því öllum vinum Jess og hennar var ljóst hve erfið hún hafði verið í umgengni. En í stað þess að íhuga málið í þeim tilgangi að komast að skyn- samiegustu niðurstöðunni varð Jess felmtri sleginn. Hann fór út, ók bílnum upp að húsinu og bar líkiö út í farangursgeymsluna. Þá gekk hann út í bílskúrinn, sótti skóflu og kom henni sömuleiöis fyrir í bílnum. Hann hafði í huga að aka til Blackmore, svæðis sem er um átta kílómetra fyrir utan bæinn. Jess vildi hins vegar ekki skilja Dawn eftir eina í húsinu. Hann gekk því upp á efri hæðina og inn til hennar þar sem hún svaf í her- bergi sínú. Hann tók hana upp og bar varlega niður stigann og út í bílinn. Hann reiknaði með að ef hún vaknaði yrði hún svo þreytt að hún sofnaði strax aftur. Þess vegna haíði hann ekki áhyggjur af því að taka hana með. Eftir áætlun Dawn reyndist líka vera þreytt. Þessi frísklega og málgefna stúlka sagði ekki orð á leiðinni og Jess taldi því víst að hún svæfi. Er kom- ið var til Blackmore hreyfði Dawn sig ekki. Jess fór út úr bflnum, tók líkið úr farangursgeymslunni og bar nokkuð frá. Síðan sótti hann skófluna og ekki leiö á löngu þar til hann hafði grafið líkið af Miriam Phelps. Það reyndist ekki mikill vandi aö skýra hvers .vegna Miriam væri ekki lengur á heimihnu. Vinir Jess höfðu lengi vitað hve slæmt sam- komulag hans og Miriam var orðið og þegar hann skýrði þeim frá því að þau hefðu rætt málið og orðið sammála mn að Miriam færi af heimilinu kom þeim það ekki á óvart. Reyndar þótti skýringin svo sennileg að enginn bar brigður á söguna. Þá létu sumir vinanna í Ijósi ánægju yfir því að svo skyn- samleg lausn skyldi hafa fundist á vandamálinu. Andrúmsloföð hefði Jess Carter. verið orðið svo slæmt.að vart hefði veriö hægt að réttlætá að hafa sex ára gamalt stúlkubam á heimilinu. Rólegurtími Enginn spurði um Miriam. Hún hafði ekki átt neina nákomna ætt- ingja svo enginn saknaði hennar. Þess vegna lenti Jess ekki í neinum vandræðum í nokkra mánuði. Ekki var hann þó með öllu áhyggjulaus vegna þess sem gerst hafði og sunnudaginn 3. janúar 1987 fannst honum aö hann þyrfti að sannfæra sig um að ekkert væri að óttast. Það fannst honum hann best geta gert með því að fara á staöinn þar sem hann hafði grafið Miriam til þess aö ganga úr skugga um að lík- ið hefði ekki fundist. Hann óttaðist mest að dýr hefðu rótað upp jörð- inni svo líkið hefði komiö í ljós. Tæknimenn lögreglu yrðu þá ekki lengi að komast aö því af hverri líkið væri og þá kæmist upp um hann. Aftur setti Jess Dawn í bílinn og síðan óku þau af stað til Blackmore. Jess til furðu sá hann að margir vom á ferli þama á svæðinu þenn- an fallega sunnudag. Kom hann varla bíl sínum fyrir á bílastæðinu. Hann fór sér hægt því hann ætlaði aðeins að ganga úr skugga um að ekki hefði verið hreyft við gröfinni. „ímyndunar- aflbama!" Þegar Jess gekk með Dawn í átt- ina til staðarins þar sem líkið lá grafið leit hún skyndilega á fóður sinn og sagði: „Var þaö héma sem þú grófst Miriam?" Jess brá mikið. Dawn hafði þá alls ekki verið sofandi í bílnum kvöldiö forðum. Hann leit í kring- um sig og sá eldri hjón sem vom aðeins í fárra metra fjarlæg. Það var greinilegt að þau höfðu heyrt það sem bamið hafði sagt. Jess reyndi að láta svo líta út sem hún hefði sagt eitthvað sem ekki væri ástæða til að taka alvarlega. Hann fór þvi að ræða um „ímyndunarafl bama“, en gekk síðan burt meö Dawn við hlið sér. Gömlu hjónin, herra og frú Whyte, gengu í öfuga átt, að bíla- stæðinu en á leiðinni ræddu þau það sem fyrir þau hafði borið. Síöan settust þau inn í bfl sinn og biðu þar uns Jess og Dawn komu og óku af stað. Þá skrifuðu hjónin hjá sér númerið á bfl Jess og óku síðan rakleiðis á næstu lögreglustöð. Auðvitað gat verið um að ræða saklaust „ímyndunarafl bams“. En hér gat líka annaö og alvarlegra verið á ferðinni. Þegar hjónin höfðu rætt málið viö lögregluna var kvaddur tfl rannsóknarlögreglu- maður og svo tekin skýrsla. Að því búnu fóm hann og félagar hans að gera fyrirspumir, svo lítið bar á. Vísbendingamar Fyrirspurnimar bám með sér að fyrir þremur mánuðum hafði Jess Carter búiö með Miriam Phelps, en svo hafði hún að sögn yfirgefið hann. Auðvitað gat það verið satt en rannsóknarlögreglumönunum fannst rétt að kanna máhð betur og meðal þess sem ákveðið var að líta á var svæðið þar sem Whyte- hjónin höfðu séð Jess og Dawn á gangi og heyrt dótturina leggja spuminguna furðulegu fyrir foður sinn. Tæknimenn vom sendir á stað- inn og ekki leið á löngu þar til líkið af Miriam Phelps hafði verið grafið upp. Þar eð vitað var af hvaða konu líkið væri fyndist það á annað borð höfðu rannsóknarögreglumenn- imir undirbúið sig á ýmsan hátt, meðal annars með því að leita til tannlæknis Miriam og fá tannkort hennar. Líkið var þegar í stað flutt til rétt- arlæknis og þegar hann tók að bera saman tannkortiö og tennurnar í líkinu sá hann strax aö það kom heim og saman við þær. Annaö staðfesti og líka að líkið var af Mir- iam. Þögn um hríð Þrátt fyrir allan undirbúninginn hafði rannsóknarlögreglan ekki skýrt opinberlega frá því að grunur léki á aö Miriam Phelps hefði verið myrt. Það kom Jess Carter því al- gerlega í opna skjöldu þegar hann var handtekinn, ákærður fyrir morö á sambýliskonu sinni. Vitnisburð Whyte-hjónanna, einn og sér, hefði góður verjandi getað gert ósannferðugan. Það hefði hins vegar orðið erfiðara að segja að það sem fannst í farang- ursrými bíls Jess renndi ekki stoð- um undir að hann hefði lagt líkið af Miriam í það. Engu að síður voru rannsóknarlögreglumennimir ekki alveg vissir um að þeir gætu sannað morðið á Jess. Málalok Það kom því þægilega á óvart, skömmu eftir að farið var að yfir- heyra Jess, að hann skyldi hætta að þræta fyrir að hafa framið morð- ið og játa það þess í stað á sig. Jafn- framt skýrði hann frá sambúð þeirra Miriam og hvemig hún hefði farið versnandi og loks endað með því að verða með öllu óþolandi. Margir vina þeirra Jess og Mir- iam voru nú yfirheyrðir og gátu þeir borið að Jess hefði skýrt rétt frá um ósættið á heimilinu sem skýrði að svo illa fór sem raun bar vitni. Nýlega var Jess látinn laus eftir aö hafa setið í fangelsi í fjögur ár. Ellefu ára dóttir hans og vinir hans tóku á móti honum þegar hann fékk frelsið en vinafólk hafði haft Dawn hjá sér á meðan hann sat inni. Hann hefur nú byrjað nýtt líf. Dómarinn leit svo á að Jess Cart- er hefði verið á valdi sterkra til- finninga þegar hann framdi morðið og að framkoma Miriam á heimil- inu hefði átt sinn þátt í þvi hvernig fór. En sögunni fylgir dálítill eftir- máli. Réttarlæknar komust ekki aðeins að því árið 1987 að Miriam hafði verið kyrkt heldur að því að ástæðan til þess að hún missti and- legt jafnvægi og hafði ekki fulla stjóm á tilfinningum sínum var æxh við heilann sem farið hafði sívaxandi og hefði að lokum orðið henni að aldurtila. En þá voru þeir það tillitssamir að segja Jess Carter ekki frá því.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.