Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Blaðsíða 52
Frjálst,öháð dagblað
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1992.
Veöriöámorgun:
Þurrtog
léttskýjað
en svalt
Á morgun veröur vestan- og
norðvestangola eða kaldi. Víðast
verður þurrt og léttskýjað. Fremur
svalt í veðri.
Veðrið 1 dag er á bls. 68
LOKI
Gall ekki við hrossahlátur
við matborðið?
DV kemm- næst út mánudaginn 4.
maí.
Smáauglýsingadeild DV er opin í
dag til kl. 22, lokað verður á morgun,
1. maí og laugardaginn 2. maí.
Síminn er 632700.
Þao litur helst út fyrir að stóðhesturinn Kveikur frá Miðsitju hafi ekki gert annað um dagana en snæða á veitingahúsum. Stjórn hestamannafélagsins
Fáks bauð honum til málsverðar á A. Hansen í Hafnarfirði i gær. Matreiðslumeistar staðarins útbjuggu sérstakan rétt fyrir Kveik, vitamínbætta gras-
köggla, skreytta með agúrkum og tómötum, og snæddi Kveikur matinn sinn stilltur og prúður í fasi. Fákur fagnar 70 ára afmæli sínu um helgina og efnir af
þvi tilefni til mikillar hátíðar i Reiðhöllinni í Víðidal. Þótti stjórn félagsins við hæfi að bjóða Kveik til ærlegs málsverðar áður en hátiðahöldin hefjast því
hann er einn frægasti stóðhestur landsins og mun hann heiðra afmælishátiðina með nærveru sinni. Til borðs með Kveik sitja eigandi hans, Jóhann
Þorsteinsson, Viðar Halldórsson, formaður Fáks, og eiginkona hans, Ragna Bogadóttir, Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Fáks, og eiginkona
hans, Bergljót Vilhjálmsdóttir, Vilhjálmur Karl Haraldsson og tvíburasysturnar Hulda og Lilja Jónsdætur. Sjá nánar bls. 31. DV-mvnd BG
Flugmálastjóri:
Meirihlutimælir
með Þorgeiri
Meirihluti Flugráðs, þeir Skúli
Alexandersson, Leifur Magnússon
og Birgir Þorgilsson, mæla með Þor-
geiri Pálssyni prófessor í stöðu nýs
flugmálastjóra í stað Péturs Einars-
sonar sem sagt hefur starfi sínu
lausu.
Minnihluti Flugráðs, alþingis-
inennirnir Sighjöm Gunnarsson og
Árni Johnsen, mæla með Hauki
Haukssyni aðstoðarflugmálastjóra.
Samgönguráðherra veitir stöðuna
innanskamms. -S.dór
Trilla frá Seyðisfirði „strandaði" á
Kringlumýrarbraut um klukkan hálf-
átta i gærkvöldi. Flutningabíll var
að flytja bátinn þegar hjól á dráttar-
vagni brotnaði undan. DV-mynd S
Byssuþjófurjátaði
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii
Maður á fertugsaldri játaði við yfir-
heyrslur hjá rannsóknarlögreglunni
á Akureyri í gær að hafa stolið sjö
skotvopnum úr byssusafni í bænum
sl. mánudag. Hann vísaði lögregl-
unni á skotvopnin.
Matareitruní
sólarlandaferð
Fjögur ungmenni voru flutt með
sjúkrabílum til Reykjavíkur í fyrri-
nótt eftir að hafa fengið matareitrun
í sólarlandaferð á Costa del Sol á
Spáni. Þau vom að koma með flug-
vél Flugleiða frá Malaga. Að sögn ■
íslensks læknis, sem aðstoðaði ung-
mennin, var ekki um alvarleg veik-
indatilfelliaðræða. -ÓTT
Veit ekki hver stendur
í liósum loqum nsest
Hlédís Sveinsdóttir, DV, tos Angeies:
Ástandið hér í Los Angeles er
ömurlegt. Allir sitja stifir fyrir
framan sjónvarpið og eru búnir að
vera það frá því klukkan 18 í kvöld.
Ég veit ekki hver stendur í ljósum
logum næst.
Þessi úrskurður kom eins og
þmma úr heiðskím lofti og allir
eru sammála um að hér er óréttlát-
ur dómur á ferð. Fylkisstjórinn,
Pete Wilson, lýsti því yfir að málið
yrði rannsakað frekar, sérstakri
nefhd verði komið á til að rannsaka
hvort hér hati borgaralegur réttur
verið fótum troðinn. : ;V';;'
Það var ólýsanleg stund þegar
þeir gerðu þessi úrslit heyram
kunn. Fólk brast í grát í borgimii
dkir neyðaróstand mina. Eld-
bjarmi er yfir borginni þegar htið
er í suðurátt og bmnalykt í lofiinu.
Ikveikjurnar em að færast nær og
nær þar sem ég bý, í Westwood
fyrir norðan þar sem ástandið er
versL
Nú loga um 150 eldar um alla
borg, þar af 50 stóreldar þar sem
heilu götuiengjuraar síanda í ljós-
um logum. Ástandið á örugglega
eftir að versna enn. Kaffihús þar
sero við sátum á í morgun er
bmnnið til kaldra kola núna.
Þyrlur era á stöðugu sveimi fyrir
utan gluggana og lögreglan fær
ekki \<ið neitt ráðið. Búiö er að leita
eftír aöstoð frá San Francisco og
þjóövarðliðið hefur verið kallað út.
Stórhættulegt er að vera á ferli,
ráöist er á bíla og fólk er dregið út
og lamið í klessu. Það hefur gripið
um sig algjört æði, Slökkviliðið
reynir að stemma stigu við eldun-
um, skotiö er á slökkviliðsmenn og
einn brunabíll er þegar brunninn
til kaldra kola. Það hefur veriö sett
á útgöngubann í aliri borginni frá
og með seint í nótt að íslenskum
tíma og það er algjört hemaðará-
stand í borginni.
Þetta kemur til með að auka
spennuna milli svartra og hvítra í
borginni og þar með skapa töluvert
hættuástand. Spennan er nú nóg
fyrir. Þetta er ömurlegt.
og myndir á bls. 10
oz É*T25 • 2
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá f síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Ritstj órn-i \uglýsingar - Áskrift - Ðreifing: Sími 63 J 2700
^0»eiLAsr00/
ÞRÖSTIIR
68-50-60
VANIR MENN