Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1992, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1992.
3
_________________________Fréttir
Lækki Landsbankinn
ekki vexti hækka hinir
Vextir hafa lækkað mikið og gætu
haldizt nokkurn veginn, en einung-
is að uppfylltum ákveðnum skil-
yrðum. Vextir Landsbankans eru
enn þeir hæstu af bankavöxtum.
Ráðamenn í öðrum bönkum segja,
að Landsbankinn þurfi að lækka
sína'vexti hið snarasta, ella gangi
ekki annað en að hinir bankarnir
hækki vexti sína upp á það stig,
sem Landsbankavextir eru á.
Lækkun fyrir 1. júní?
Yfirleitt gera bankamenn ráð fyr-
ir frekari vaxtalækkunum 11. maí.
Þá gæti verið, að Búnaðarbankinn
lækkaði vexti sína um nálægt hálfu
prósentustigi og Landsbankinn
kynni að lækka vexti sína um ná-
lægt eitt prósentustig. Eftir það
yröu vextir bankanna nær hinir
sömu. Búnaðarbankinn hafði verið
lægstur síðan í nóvember, þar til
1. maí aö íslandsbanki varð lægst-
ur. Á undan Búnaðarbankanum
höfðu sparisjóðirnir verið með
lægstuvextina.
Samkvæmt viðtölum við menn
hjá íslandsbanka er nauðsynlegt,
að Landsbankinn lækki vexti sína
nú í þessum mánuði, eigi menn í
öðrum bönkum ekki að fara að
ókyrrast. Samkeppnisstaða bank-
anna skekkist, verði Landsbankinn
áfram mun hærri en hinir. En í
Landsbankanum benda menn á,
hversu mikið tapast af skuldum um
þessar mundir, á tíma gjaldþrota,
og staða bankans er ótrygg.
Þannig þarf að uppfyÚa ákveðin
skilyrði í þessu efni, eigi lækkun
bankavaxtanna fylblega að stand-
ast. En fleira kemur til og snýr að
ríkisfjármálunum. Bankamenn
segja, að vextir á verðbréfamarkað-
inum muni halda áfram að hjaðna,
verði ekki vonbrigði með ríkisfjár-
málin. Fari ríkisfiármálin „í vit-
leysu“, standist þessi lækkun raun-
vaxta ekki. Það var ríkið, sem hélt
raunvöxtunum svo háum sem þeir
voru. Nú stendur ríkið fyrir lækk-
un raunvaxta á verðbréfamarkaði
niður í 6,5 prósent á spariskírtein-
um. Aðrir fylgdu strax á eftir þess-
ari lækkun ríkisins „með hand-
afli“.
Markaðurinn var tilbúinn
Markaðurinn var tilbúinn til aö
mæta þessari vaxtalækkun, þótt
hún væri gerð „með handafli".
Bankamenn segja, að þeir hafi nú
bara gert það, sem þeir „hefðu gert
hvort eð er“. Markaðsaðstæður
voru þær, verðbólga nær engin, að
vextir hlutu að halda áfram að
lækka. Ríkið hefði getað lækkað
vexti á spariskírteinum löngu fyrr
vegna markaðsaðstæðna. En menn
Sjónarhom
f Jtl \ >■
Haukur Helgason
Grafið sýnir ársígildi hækkana
lánskjaravísitölu í hverjum mánuði
ársins, fyrir og eftir kjarasamning-
ana. Vaxtabreytingar banka og
sparisjóða nú byggjast á þessari
spá Seðiabankans.
vildu hafa einhveija vaxtalækkun
til að bjóða sem skiptimynt í kjara-
samningunum. Ríkið hefur borið
ábyrgð á raunvöxtunum, og verði
meira skikk á ríkisfiármálunum en
var í fyrra hlutu raunvextir að
lækka nú. Þetta er undir stjórn rík-
isfiármálanna komið. Menn í fiár-
málaheiminum treysta sem stend-
ur á þá yfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar, að hún stuðh að lækkun
raunvaxta á grundvelh frjálsra
markaðsvaxta, stöðugleika í geng-
is- og verðlagsmálum og meira
jafnvægis en áður í opinberum fiár-
málum. Ríkisstjómin segir í yfir-
lýsingu vegna kjarasamninganna,
að nú sé stefnt að því, að öll lánsfi-
áröflun til húsnæðiskerfisins verði
smám saman með útgáfu markaðs-
bréfa í stað beinna samninga milh
ríkisvalds og lífeyrissjóða. Einnig
er stefnt að því að hefia bráðlega
sölu óverðtryggðra ríkisverðbréfa
með frjálsu útboði. Þá fengjust
markaðsvextir fyrir óverðtryggða
pappíra. Þá er ætlunin að koma í
veg fyrir, að lífeyrissjóðimir hafi
samráð eða beiti samtakamætti á
lánsfiármarkaðiniun.
Ekki skiptir minna máh sú
stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinn-
ar, að dregið verði úr lánsfiárþörf
opinberra aöha, sem hafði haldið
uppi raunvöxtunum. Tryggt verði,
að útgáfa húsbréfa og önnur fiár-
öflun til húsnæðislánakerfisins og
opinberra sjóða raski ekki jafnvægi
á lánamarkaðnum eins og gerðist
í fyrra. - Ríkið lofar sem sé bót og
betrun. Gangi það ekki eftir, fehur
raunvaxtalækkunin um sjálfa sig.
Italtrike þrihjól, Ciao kr. 3.300,
Lucy 10" kr. 4.200 og 12" kr. 4.400
Símar 35320
68 88 60
Ármúla 40
Uiamond Kocky 20", E gira, Shimano SIS. vönduð fjalla-
hjól með ðtakabremsum og ilgjörðum.
Verð aðeins kr. 18.900, stgr. 17.995.
Diamond Nevada 24", 18 gira, Shimano SIS, vönduð
fjallahjól með átaksbremsum og álgjörðum.
Frábært verð kr. 21.000, stgr. 19.950.
Diamond Nevada 28", 18 gira, Shimano SIS, vönduð
fjallahjól með átaksbremsum og álgjörðum.
Frábært verð kr. 22.000, stgr. 20.900.
Kreditkort og greiðslusamningar, sendum í póstkröfu.
Vandið valið og verslið í Markinu -
þar sem þjónustan er i varahlutum og viðgerðum.
Irerslunin
Diamond Explosíve 26", 21 girs, Shimano 200 GS útbún-
aöur, glæsilegt fjallahjól, krómstál i stelli.
Frábært verð kr. 32.900, stgr. 31.255.
Diamond Rocky 16" fjallahjól með fótbremsu og brett-
um.
Frá 5 ára, kr. 12.900, stgr. 11.938
Diamond Sahara 26", 18 gira, Shimano SIS, vönduð
dömufjallahjól með átaksbremsum og álgjörðfm.
24" verð kr. 21.000, stgr. 19.950
26" verð kr. 22.000, stgr. 20.900.
Diamond Adventure 26", 21 girs, Shimano 200 GS útbún-
aður, glæsilegt fjallahjól, krómstál i stclli.
Frábært verð kr. 32.900, stgr. 31.255
Highlander. dömu- og herra-fjallahjól frá V-Þýskalandi
með brettum, bögglabera, Ijósum o.fl.
20" án gira kr. 17.200, stgr. 16.340
20" 3 gira kr. 20.800, stgr. 19.760
24" 3 gira kr. 22.400, stgr. 21.280
24' 18 gíra Shimano SIS kr. 27.400, stgr. 26.030
Highlander 26" v-þýsk fjallahjól með brettum, Ijósum,
bögglabera, standara og girahlif. Herra- og dömuhjól.
Án gira kr. 22.100, stgr. 20.995.
3 gira kr. 26.900, stgr. 25.555.
18 gira Shimano SIS, kr. 28.900, stgr. 27.455.
21 girs Shimano 100, kr. 33.900, stgr. 32.205.
Vivi Uno barnahjól m/hjálpard., 2 litir.
Frá 3 ára, 12‘/i" kr. 8.650, stgr. 8.217
Frá 4 ára, 14" kr. 9.750, stgr. 9.262
Eurostar v-þýsk stúlknahjól, 2 litir.
Frá 6 ára, 20' kr. 16.300, stgr. 15.485
Frá 8 ára, 24" kr. 16.900, stgr. 16.054
Eurostar v-þýsk dömuhjól. 2 litir.
26" og 28" án gira, verð frá kr. 16.900, stgr. 16.054
26" og 28", 3 gira, verð frá kr. 21.700, stgr. 20.615
Vivi fjallahjól með hjálpardekkjum.
Frá 3 ára, 12'/i' kr. 10.900, stgr. 10.335
Frá 4 ára, 14", verð frá kr. 11.400, stgr. 10.830
Eurostar v-þýsk barnahjól, 2 litir.
Frá 5 ára, 16" og 18" kr. 12.400, stgr. 11.780