Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1992, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1992.
5
Fréttir
Hallbjöm Hjartarson fær útvarpsleyfi:
Ætlar að
útvarpa
kántrítónlist
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég er kominn meö leyfl frá út-
varpsréttarnefnd í hendurnar og ef
allt gengur eftir hef]ast þessar út-
sendingar um mánaðamótin júní og
júlí,“ segir Hallbjörn Hjartarson,
kántrísöngvari á Skagaströnd, en
hann hefur nú fengið leyfi til að hefja
útvarpsrekstur í sumar.
Hallbjöm sagði í samtali við DV
að leyfið næði til útsendinga um allar
Húnavatnssýslur og til Stranda og
yrði um sérhæfða útvarpsstöð að
ræða sem myndi einungis útvarpa
kántrítónlist, auk fréttatengdra þátta
og auglýsinga.
Hallbjöm sagðist ekki síst hugsa til
ferðamanna með þessum útvarps-
rekstri enda væri stefnan að ferða-
langar gætu stillt á útvarpsstöðina
hans þegar þeir ættu leið um útsend-
ingarsvæðið og gætu þá notið þess
sem stöðin hans hefði upp á að bjóða
og þá næðust sendingamar einnig
yfir flóann til Stranda.
„Ég ætla líka að opna Kántríbæ
aftur um næstu mánaðamót og þá
get ég sagt við mína gömlu vini og
kunningja: „Líttu inn því þú ert vel-
kominn," sagði Hallbjöm.
Prentverk Odds Bjömssonar:
Áhugi á þrotabúinu
- Landsbankinn annast reksturinn fram í júlí
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyii:
„Það hafa aðilar, og það fleiri en
tveir, sýnt áhuga á að kaupa fyrir-
tækið, en þaö má segja að þau mál
séu á frumstigi," segir Eiríkur Jó-
hannsson hjá Landsbanka íslands á
Akureyri en hann hefur með að gera
hugsanlega sölu á þrotabúi Prent-
verks Odds Björnssonar sem varð
gjaldþrota fyrir skömmu.
Landsbankinn, sem er aðalkröfu-
hafi á hendur fyrirtækinu, yfirtók
rekstur fyrirtækisins og hefur skuld-
bundið sig til að reka fyrirtækið fram
í júlí. Eiríkur Jóhannsson sagði að
ef ekki tækist að selja fyrirtækiö inn-
an þess tíma yrði rekstrinum haldið
áfram. Það væri verið að taka inn
ný verkefni í fyrirtækið og rekstur-
inn væri óbreyttur frá því sem áður
var. „Við höldum áfram rekstrinum
þar til fyrirtækið selst," sagði Eirík-
ur.
f'JM-ársALA
MYNDBANDSTÖKUVELAR
RICOH: R-831,8 mm, 3 lux, 8xzoom. 1,1
kg. Áður: Kr. 69.950 stgr. Nú: Kr. 59.590
stgr.
RICOH: R-67, 8 mm, Hi-Fi stereo, 4 lux-
8xzoom, 0,590 kg. Áður: Kr. 74.950 stgr.
Nú: Kr. 64.950 stgr.
MITSUBISHI: CX-4, VHS-C, m/stabilizer,
5 lux-8xzoom, Hi-Fi stereo, 0,590 kg.
Áður: Kr. 84.950 stgr. Nú: Kr. 69.950stgr.
MITSUBISHI: CX-1, VHS-C, 5 lux-8-
xzoom, 0,590 kg. Áður: Kr. 74.950''stgr.
Nú: Kr. 59.950 stgr.
MITSUBISHI: C-35, S-VHS, 6xzoom,
0,950 kg. Áður: Kr. 99.950 stgr. Nú: Kr.
79.950 stgr.
OLYMPUS: VX-500, VHS-C, 8xzoom, 3
lux, m/ljósi. Áður: Kr. 69.950 stgr. Nú:
Kr. 59.950 stgr.
MYNDBANDSTÆKI
ANITECH: 6002 HQ. Áður: Kr. 26.950
stgr. Nú: Kr. 24.950 stgr.
GEISLASPILARAR
TEC: Tec 2913 m/fjarstýringu, 3 bit. Áð-
ur: Kr. 15.500 stgr. Nú: Kr. 11.950 stgr.
YAMAHA CDX-450, S-Bit Plus, m/fjar-
stýringu. Áður: Kr. 21.950 stgr. Nú: Kr.
15.950 stgr.
ÞETTA FÆRÐU HVERGI NEMA Í HLJÓMCO
Afborgunarskilmálar
YAMAHA ÚTVARPSMAGNARI
RX-450, 200 vött, m/fjarstýringu. Áður:
Kr. 24.950 stgr. Nú: Kr. 19.950 stgr.
YAMAHA KASSETTUTÆKI
KX-250. Áður: Kr. 21.950 stgr. Nú: Kr.
17.950 stgr.
YAMAHA PLÖTUSPILARI
T-230, hálfsjálfvirkur. Áður: Kr. 12.950
stgr. Nú: Kr. 8.950 stgr.
YAMAHA HATALARAR
NS-23, 120 vött. Áður: Kr. 15.500 stgr.
Nú: Kr. 12.500 stgr. Parið.
YAMAHA MINI ÚTVARP
200 vött, 2x100 vatta hátalarar, fjarstýr-
ing. Ótrúleg hljómgæði. Áður: Kr. 33.950
stgr. Nú: Kr. 19.950 stgr.
TEC FERÐAKASSETTUTÆKI
M/GEISLASPILARA
TEC 893, 30 vött. Áður: Kr. 19.950 stgr.
Nú: Kr. 16.950 stgr.
SUNPAK VIDEOTÖKU-LJÓS
Áður: Kr. 9.950 stgr. Nú: Kr. 5.950 stgr.
NINTENDO SJÓNVARPSLEIKTÆKI
með 3 leikjum og stýripinna. Áður: Kr.
15.950 stgr. Nú: Kr. 9.950 stgr.
VÖNDUÐ VERSLUN
HUÓMCO
FÁKAFENI 11 - SÍMI 688005
Þetta skilti gaf tii kynna að bannað
væri að vera með hunda á svæðinu.
Málað hefur verið yfir myndina af
hundinum. DV-mynd BG
Mála yf ir
hundaskilti
Borið hefur á því aö málað hefur
verið yfir skilti í Gróttu sem banna
umferð með hunda.
„Við erum að reyna að vernda fugl-
inn en fólk fer ekki eftir banninu.
Grótta er alveg lokuð frá 1. maí til
.1. júlí,“ segir Guðjón Jónatansson,
eftirlitsmaðuríGróttu. -IBS
, SPARNEYTINN, RENNILEGUR,
RUMGOÐUR, TRAUSTUR OG ÖRUGGUR
Skoda Favorít 1992 - skemmtilega ódýrí
Skoda Favorit er glæsilegasti og vandað-
asti bíll sem Skoda-verksmiðjurnar hafa
framleitt til þessa. Nú eiga Þjóðverjar
hlut í verksmiöjunum enda ber bíllinn
þess greinileg merki; Skoda hefur öðlast
mun evrópskara yfirbragð og eiginleika
en áöur. Þrátt fyrir það færðu nýjan
Skoda Favorit á sama verði og gamall,
notaður bíll fæst á, eða frá aðeins
498.500 krónum. Það eru góð og
skynsamleg kaup í nýjum og glæsilegum
Skoda Favorit. Ef þú ert í bílahug-
leiðingum skaltu skoða Skoda Favorit,
- áður en þú gerir nokkuð annað.
NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600
JOFUR