Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1992, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1992, Blaðsíða 32
F R ÉTTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn-Auglýsingar-Áskrift-Dreifing: Símí 632700 FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992. Forritið Louis: Sótt um einka- leyfiídag „Við höfum eingöngu verið aö sýna stóru tölvufyrirtækjunum á borð við IBM, HP, Apple og Microsoft pappíra um Louis en á mánudag munum við fara út með forritið sjálft og það er það sem þessi fyrirtæki hafa verið að bíða eftir,“ segir Grímur Laxdal, markaðsstjóri Softis hf. í dag verður lögð inn í Bandaríkj- unum umsókn um einkaleyfi á Louis forritinu. „Það tekur ár að biða eftir einkaleyfinu en um leið og umsóknin hefur verið lögð inn fær forritið fulla vemd.“ -J.Mar - sjá einnig bls. 5 Þorlákshöfn: Bát bjargað stutt frá landi Björgunarsveitarmenn frá Þor- lákshöfn björguðu 10 tonna báti, Þór- eyju SK, sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna á miðvikudagskvöld. At- vikið varð út af svokölluðu Bjargi á milh Selvogs og Keflavíkur. Báturinn var stutt frá landi þegar netin festust í skrúfunni. Óskað var eftir hjálp úr landi. Björgunarbátur Slysavamafélagsins í Þorlákshöfn, Draupnir, sigldi að Þóreyju og tók hana í tog. Farið var með bátinn til hafnar þar sem kafari losaði veiðar- færin úr skrúfunni. -ÓTT Handtók þjóf Tveir piltar voru staðnir aö verki við innbrot á Hótel Borg um þrjúleyt- ið í nótt. Þeir höíðu farið inn um glugga baka til þegar næturvörður varð var við grunsamlegar manna- ferðir innanhúss. Vörðurinn náði að handsama annan piltanna áður en lögregla kom á vettvang. Hinum tókst að flýja í burtu. Piltarnir hafa síendurtekið komið við sögu afbrotamála að sögn lög- reglu. -ÓTT Eldur í gámabíl Eldur kviknaði í ruslagámi ofan á gámabifreið við hús Odda við Höfða- bakka skömmu fyrir miðnætti í gær- kvöldi. Slökkviliðið í Árbæ kom fljót- lega á staðinn og var strax ákveðið aö færa gámabílinn. Honum hafði verið lagt við hliðina á tanki með 2.000 lítrum af olíu í. Um íjórar mínútur tók að slökkva eldinn. Skemmdir urðu ekki teljandi en grunur leikur á að um íkveikju sé að ræða að sögn lögreglunnar. -ÓTT LOKI Jón fer þá bara í saltfisk- söluna þegar hann hættirípólitíkinni! stoi purnar ■ ■ ■ oKKar tromp - finnum að það er á brattann að sækja, segir Grétar Örvarsson „Okkur hefur gengið mjög vel á neðstu sætum í spám veðbanka snjailar að koma sér á framfæri. æfingum og erum vel undirbúin með lagið Nei eöa já. „Svíar spá Mér sýnist að þjóðir eins og Malta, fyrir útsendinguna annað kvöld. okkur neðsta sæti en við látum það Austurríki og Júgóslavía fái mestu Það verður síðan að koma í Ijós ekki á okkur fá,“ sagði Grétar enn- athyglina enda er þeim þjóöum hvort stelpunum tekst að sjarma fremur. _ spáð efstu sætunum," sagði Grétar. dómnefndir þjóðanna upp úr skón- íslendingar héldu blaðamanna- „Þetta verður hörð keppni enda um. Það er okkar tromp,“ sagði fund í gærkvöldi undir röggsamri mörg góð lög að berjast og sam- Grétar Örvarsson Stjórnarmaður í stjórn Jakobs Magnússonar. Um keppnin er hörð. Viö munum gera samtali við DV i morgun. 250 manns sóttu fundinn þar sem okkar besta annað kvöld enda er Úrslit söngvakeppni Evrópu- boðið var upp á íslenskan mat og það dómnefndanna að vejja,“ sagði stööva fara fram annað kvöld í vín. „Þessi fundur tókst mjög vel Grétar Örvarsson. Málmey í Svíþjóö. Stjórnin hefur en við fmnum að það er á brattann -ELA ýmist lent í toppbaráttu eöa í að sækja. Sumar þjóðir eru býsna Jóni Baldvini tókst vel upp i saltfisksölu á Spáni þegar hann átti þar leið um ásamt framkvæmdastjóra SÍF. Á myndinni eru hann og Bryndis Schram með dönsku knattspyrnuhetjunum Michael Laudrup og Klaus Berggren en þær hittu þau í Barcelona. DV-mynd GTK Veðrið á morgun: Norðlæg átl og kaldi Á morgun verður norðlæg átt, kaldi norðanlands og aust- an í fyrstu en annars hægari. Léttskýjað verður sunnanlands og vestan og minnkandi él norð- anlands. Fremur svalt verður í veðri. Veðrið í dag er á bls. 36 Ríkisstofhanir: Starfsmönn- um fækkar Ef marka má 3 fyrstu mánuði árs- ins virðist ætla að takast að halda útgjöldum ríkisstofnana innan þeirra marka sem þeim voru sett á fjárlögum. „Ég er í engum vafa um að það er óttinn við að sérstakir tilsjónarmenn verði settir yfir þær stofnanir sem fara fram úr fjárlagaveitingum sem veldur þessu,“ sagði Karl Steinar Guðnason, formaður ijárlaganefndar Alþingis, í morgun. I umræðum um ríkisreikninginn, á Alþingi í gær, kom fram að árið 1989 hafi 230 stofnanir á vegum ríkisins farið fram úr fiárveitingum. „Það hefur verið þannig allt þar til nú að stofnanir ríkisins hafa farið fram úr fjárveitingum, nánast eins og þeim hefur sýnst. Og það hefur ekkert verið gert í máhnu fyrr en ákveðið var síðastliðið haust að setja tilsjónarmenn yfir þær stofnanir sem fara fram úr fjárveitingum," sagði Karl Steinar. Mjög hefur dregið úr yfirvinnu hjá stofnunum ríkisins það sem af er af árinu. Þá virðist sem þaö markmið ríkisstjómarinnar að fækka ríkis- starfsmönnum um 600 á þessu ári æth að takast, ef marka má tölur fyrstuþriggjamánaðaársins. S.dór Bílvelta á Eskif irði Ökumaður velti bíl á Eskifirði í gær. Ökumaðurinn ætlaði að taka beygju við Hátún en það tókst ekki betur en svo að bíhinn valt og stór- skemmdist. Það þurfti kranabíl til að flytja hann af vettvangi. Ökumaö- urergrunaðurumölvun. -ÁTH Saltfisksala til Spánar: Jón Baldvin liðkaði fyrir „Vegna óvissunnar um skipulag á saltfisksölunni í haust hafa kaupend- ur á Spáni haldið að sér höndum undanfarnar vikur. Eftir fundinn með Jóni Baldvini er hins vegar kominn gangur í viðræðurnar. Heimsókn okkar tfl Spánar virðist því ætla að skfla árangri," segir Sig- urður Haraldsson, framkvæmda- stjóri SÍF. Sigurður fór með Jóni Baldvini til Portúgals í síðustu viku tfl að fylgj- ast með undirskrift á EES-samningn- um, en samninginn segir hann mjög mikilvægan fyrir íslenska saltfisk- iðnaðinn. Eftir undirskriftina hafi þeir Jón Baldvin ákveðið að bregða sér tfl Barcelona á Spáni til að kynna sér markaðinn og ræða við saltfisk- kaupendur. Sú ferð hafi gengiö von- umframar. -kaa ÞRÖSTIIR 68-50-60 VANIR MENN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.