Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1992, Page 8
8
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992.
Skólastjórastaða
Skólastjórastaða við grunnskólann í Skútustaða-
hreppi er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. júní.
Uppl. veitir formaður skólanefndar, Stefán Þórhalls-
son, í síma 96-44285 og í vinnusíma 96-44181.
Félags- og tómstundastarf aldraðra
hjá Reykjavíkurborg
Sumarferðir og orlof
Hinar árlegu sumarferðir ásamt orlofsdvöl að Löngu-
mýri hafa verið skipulagðar og tímasettar.
Allar nánari upplýsingar með dagsetningum birtast
í Fréttabréfi um málefni aldraðra sem sent verður um
þessar mundir til Reykvíkinga, 67 ára og eldri.
Pantanir og upplýsingar í síma: 68 96 70 og 68 96
71 frá kl. 9-12 frá og með 25. maí.
Öldrunarþjónustudeild
Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS
©
Þátttaka Tryggingastofnunar í
tannlæknakostnaði barna og unglinga
Nýr samningur milli Tryggingastofnunar og Tann-
læknafélags íslands hefur tekið gildi. Sjúkratrygging-
arnar greiða nú fyrirbyggjandi meðferð barna 15 ára
og yngri að fullu. Fyrir aðrar tannlækningar þessa
aldurshóps (þó ekki Reykjavíkurbarna 6-15 ára) er
85% kostnaður endurgreiddur nema fyrir tannrétting-
ar, gullfyllingar, krónu- og brúargerð.
i Reykjavík greiða börn, 6-15 ára, 15% kostnaðar
hjá skólatannlækni samkvæmt gjaldskrá hans, sem
er 20% lægri en einkatannlækna. Fari þau til einka-
tannlæknis endurgreiðir Tryggingastofnun 68%
kostnaðar.
Fyrir 16 ára unglinga endurgreiðast 50% kostnaðar.
Tryggingastofnun ríkisins
Matgæðingur vikunnar
Gæs á grillið
„Eg bjó um tíma með frænda
mínum sem er lærður matreiðslu-
maður. Það var nú aðallega hann
sem plataöi mig út í þetta,“ segir
Lárus Hermannsson, tvítugur mat-
argerðarmaður í Hymunni í Borg-
arnesi.
Lárus ætlar að gefa lesendum
uppskrift að grillaðri gæs sem hann
prófaði sig áfram með sérstaklega
í tilefni þess að skorað var á hann
að vera matgæðingur vikunnar að
þessu sinni. Uppskriftin er ætluð
fyrir þrjá til fjóra.
Grilluð gæs
Tvær gæsabringur
Tvö bréf af beikoni
Salt og pipar eftir smekk
Beikoniö er steikt á pönnu þannig
að fái aðeins lit. Gæsabringumar
em kryddaðar og vafðar inn í bei-
konið. Síðan er álpappír settur utan
um sína hvora bringu. Pakkarnir
em settir á grillið og steiktir í 30
til 40 mínútur. Pökkunum er snúið
öðm hvora.
Láms býður upp á bakaðar kart-
öflur með gæsabringunum, salat
og sósu.
Salat
Kínakál, tómatar, kiwi, rauðlaukur
og vínber.
Grænmeti og ávextir skorið og
blandað saman.
í salatsósu notar Lárus majónes,
ananassafa (úr niðursuðudós eða
femu), ís úr ísvél og sykur. Magn
eftir smekk. Allt þeytt vel saman.
Lárus Hermannsson, matargerðarmaður í Hyrnunni i Borgarnesi.
Sósa
Smjörlíki, hveiti, vatn, kjötkraft-
teningar, bláberjasulta, rauðvín,
rjómi og sósulitur
Láms lætur lesendur um það að
ákveða hversu mikið af hveiju eigi
að fara í sósuna. Búin er til smjör-
bolla með því að bræða smjörlíki
og hræra hveiti saman við. Suða
er látin koma upp á vatninu og
smjörbollan þeytt saman viö. Kjöt-
kraftteningar settir út í, blábeija-
sulta, ijómi, sósulitur og pínulítið
rauðvín ef menn vilja.
Láms skorar á Jón Mýrdal Harð-
arson, matreiöslunema á Hótel
Borgamesi, að vera matgæðingur
næstu viku.
-IBS
Hinhlióin
Stefni á frægð og frama
- segir íslandsmeistari kvenna í vaxtarrækt
Margrét Siguröardóttir varð ís-
landsmeistari kvenna í vaxtarrækt
um síðustu helgi. Það var í fjórða
sinn sem Margrét varð íslands-
meistari, hún vann áður 1988,1989
og 1991 (var ekki með 1900). Mar-
grét byrjaöi að stunda vaxtarrækt
fyrir 6 áram. Þá hafði hún fengið
leið á að spila fótbolta og vildi prófa
eitthvað nýtt.
„Vaxtarræktin átti vel við mig frá
byrjun og því hélt ég áfram,“ segir
hún.
Margrét segir framtíðina bjarta í
vaxtarrækt kvenna þar sem æ fleiri
konur taki nú þátt í mótum. En
verða vaxtarræktarkonur ekki
varar við alls kyns fordóma í sinn
garð?
„Það er alltaf til fólk sem er að
fordæma mann, segir að við séum
ekkert kvenlegar, hálfgerðar karl-
konur. En mér finnst ég vera mjög
kvenleg. Hið kvenlega vaxtarlag
breytist ekki við vaxtarrækt þar
sem þú breytir ekki beinabygging-
unni sem ræður einna mestu um
útlitið. Annars tek ég fordóma ekk-
ert nærri mér, ef ég gerði það væri
ég löngu hætt þessu.“
Fullt nafn: Margrét Sigurðardóttir.
Fæðingardagur og ár: 6. maí 1966.
Maki: Enginn.
Börn Engin.
Bifreið: Engin, ég hef ekki tekið
bílpróf.
Starf: Leiðbeinandi í tækjasal hjá
júdódeild Ármanns.
Margrét Sigurðardóttir.
Laun: Ágæt.
Áhugamál: Vaxtarrækt og sætir
strákar.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur i lottóinu? Þijár.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Æfa og ferðast.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að liggja í leti.
Uppáhaldsmatur: Allur kínverskur
matur, sérstaklega ef hann er
sterkur.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dág? Rúnar Krist-
insson, KR-ingur.
Uppáhaldstímarit: Bodybuilder og
fleiri vaxtarræktarblöð.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð? Mel Gibson.
Ertu hlynnt eða andvíg rikisstjórn-
inni? Hlynnt.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Hún heitir Lenda Murrey,
heimsmeistari kvenna í vaxtar-
rækt í tvígang.
Uppáhaldsleikari: Robert de Niro.
Uppáhaldsleikkona: Goldie Hawn.
Uppáhaldssöngvari: Tina Tumer.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Dav-
íð Oddsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Bart Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: íþróttir
og tískuþættimir á Stöð 2.
Ertu hlynnt eða andvíg veru varn-
arliðsins hér á landi? Get ekki svar-
að þessari.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? FM 95.7.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Valdís
Gunnarsdóttir.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sig-
mundur Ernir Rúnarsson, hann er
bæði sætur og svo góður sjónvarps-
maður.
Uppáhaldsskemmtistaður: Ing-
ólfscafé.
Uppáhaldsfélag i íþróttum: Valur.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Ég stefni á frægð og
frama í vaxtarrækt.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Ég ætla til Mallorca í sumar
með foreldrum mínum og sy.stur,
Thelmu Björk.