Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1992, Side 18
18
LAUGARDAGUR 23. MAl 1992.
Veiðivon
Stangaveiði
í silungs-
vötnum
- kynning í Norræna húsinu á morgun
Um þessar mundir eru fyrstu sil-
ungsveiðivötnin að opna fyrir veiði-
skap. Þetta eru láglendisvötn en í
júni hefst veiðiskapur í vötnum sem
hærra liggja í landinu. Um og eftir
Jónsmessu má segja að fjallavötnin
séu langflest komin í gagnið. Ýmis-
legt er gert til að stuðla að því að
fólk fari í meira í silungsveiði og á
sunnudaginn verður haldin ráð-
stefna sem gæti ýtt undir þennan
veiðiskap til muna.
„Við eigum von á mörgum veiði-
mönnum í þessa kynningu um
stangaveiði í silungsveiðivötnum.
Þeim fjölgar sem stunda silungsveið-
ina og vötnin eru mjörg þar sem fisk
er að fmna hérlendis," sagði Rafn
Hafnfjörð í vikunni en kynning verð-
ur í Norræna húsinu á morgun frá
þrjú til sex um stangaveiði í silungs-
veiðivötnum. Á íslandi er að finna
um 1400 silungsvötn þar sem fisk er
að finna.
Kynningin hefst á því að Einar
Hannesson bíður gesti velkomna en
Einar, formaður samstarfsnefndar,
talar um stangaveiði í silungsvötn-
um. Síðan mun Gylfi Pálsson flytja
erindið silungsveiði, íjölskylduíþrótt
og útivera, Margrét Jóhannsdóttir
talar um silungsveiði og þá mögu-
leika sem Ferðaþjónusta bænda býð-
ur upp á, svo mun Kristján Guðjóns-
son ræða um fluguhnýtingar og síð-
an verður Rafn Hafnfjörð með lit-
skyggnur frá veiðum í vötnum og
segir frá skemmtilegum atburðum
úr veiðinni.
Utanhúss verður síðan ýmislegt að
gerast, þar verður kastkennsla við
tjömina og eru leiðbeinendur Kol-
beinn Grímsson og Þorsteinn Þor-
steinsson. Þarna verður líka kennd
verkun og meðferð á silungi og mun
Skúh Hauksson sjá um það.
Silungsveiði i vötnum hefur aukist hin seinni árin og silungurinn getur oft
verið skemmtilegri en laxinn á færi. Sérstaklega ef siiungurinn er vel vænn.
DV-mynd ÓG
í anddyri Norræna hússins munu
veiðiverslanir kynna veiði- og úti-
vistarbúnað.
Svona kynning er nauðsynleg því
silungsvötnin eru mörg og einhver
þeirra hafa að geyma væna fiska. En
fjöldi þeirra er lítið sem ekkert nýtt-
m-. Þessu mætti breyta á næstu
árum.
-G.Bender
Sjóbirtingsveiðin:
Eitt þúsund fiskar
þetta vorið
Þó veiðimenn reyni ennþá að setja í Grenlæknum. af fiski og þar er ennþá verið að
í sjóbirting þetta voriö er veiðin á Erfitt er að segja til um hvað vor- veiða, alla vega verið að reyna. Næst
enda. Það er ekki fyrr en í haust sem veiðin gaf mikið þetta árið en eitt koma Vatnamótin, Hraunið, Geir-
sjóbirtingurinn kemur og gefur sig. þúsund fiskar eru nærri lagi. Það var landsá og Baugsstaðaósinn.
Þessadaganaeruveiðimennaðbyija Þorleifslækurinn sem gaf langmest -G.Bender
Guðmundur Sigurðsson á Selfossi
landar fiski i Baugsstaðaósnum,
veiddum á flugu. DV-mynd Agnar
Þjóðar-
spaugÐV
Gamla konan
Gömul kona kom eitt sinn til
messu í lítilli sveitakirkju. Ekki
bar á öðru en hún jafnvel brosti
undir þrumandi dómadagsræðu
prestsins, öfugt við aðra kirkju-
gesti.
Á leiðinni út úr kirkjunni
spurði konan, sem setið hafði við
hlið hennar, hvernig í ósköpun-
um hún hefði getað verið svona
ánægð á svipinn á meðan prest-
uiinn útmálaði það sem bíði
þeirra með óbreyttu lífenti.
„0, það sem presturinn sagði
gerir mér bara ekkert til,“ svar-
aöi sú gamla. „Ég er bara gest-
komandi hér i sókninni og til-
heyri þvi allt öðrum söfnuði.“
Konurnar
Hilmar gamli var níræður. Á
afmælinu flykktist til hans fólk,
þar á meöal sóknarpresturinn,
séra Óskar. Þegar vel var liðið á
afmælið, settist prestur hjá af-
mælisbarninu og spurði:
„Hvað helduröu nú, Hilmar
minn, að mest hafl stuðlað að
því, að þú hafir náð svona háum
aldri?“
„0, þaö er nú kvenfólkið, prest-
ur góður," svaraði Hilmar gamli,
„Já, þú átt auðvitað viö móður
þína sálugu og eiginkonuna,1'
mælti presturinn.
„O, ekki eru þaö nú þær,“
stundi Hilmar.
„Þú átt þá væntanlega við dæt-
ur þínar?" spurði prestur því
næst.
„Nei, ahs ekki," gah viö t Hilm-
ari. „Það eru sko allar hinar, lags-
maður."
Fljótmæltur kaupmaður í
Reykjavík komst eitt sinn svo að
orði viö hóp viðskiptavína sem
biðu eftir afgreiðslu:
„Ég vona að þiö afsakið hvað
afgreíöslan gegnur seint núna en
hægri höndin mín hggur í rúm-
inu... með snúinn ökkla."
Finnur þú fímm breytingar? 155
Ég var staddur I nógrenninu fyrir algera tilviljun og þess vegna kem ég
nú svona snemma heim.
Nafn:........
Heimilisfang:
Myndimar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum liðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. verðlaun: SHARP stereo
ferðaútvarpstæki með kas-
settu að verðmæti kr. 6.380 frá
Hljómbæ, Hverfisg, 103.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verðmæti kr.
3.941.
Bækumar, sem eru í verðlaun,
heita: Á eheftu stundu, Falin
markmið, Flugan á veggnum, Leik-
reglur, Sporlaust. Bækumar em
gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú flmm breytingar? 155
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundrað
fimmtugustu og þriðju getraun
reyndust vera:
1. ingibjörg Guðmundsdóttir
Snomabraut 75, 105 Reykja-
vík.
2. Sigríður Hermannsdóttir
Helgafelh 11, 735 Eskifirði.
Vinningamir verða sendir
heim.