Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 25. MAl 1992. 15 Blekkileikur ferðaseljendanna Töfrar Mið-Evrópu eru miklir og gefst hér einstakt tækifæri til að dvelja á mörgum fegurstu stöðunum á þessum slóðum. Löndin sem farið verður um eru Tékkóslóvakía, Ungverjaland, Austurríki og Þýskaland. Fararstjóri verður Þórir í Guðmundsson fréttamaður. Hann er þaulkunnugur á þessum slóðum og dvaldist ; m.a. I Prag um það leyti sem járntjaldið var að falla. ; Verð með hóHu faeði: 137.100 kr. Við bætast skattar og gjðld 2.850 kr. Hvers vegna ekki að gefa bara upp eina endanlega töiu? Fyrst eftir að söluskattur var upp tekinn hér á landi bar nokkuð á því að seljendur vöru eða þjónustu gæfu upp verð án söluskatts. Einna lengst héldu byggingavöruverslan- ir í þennan ósið - mig minnir að Húsasmiðjan hafi orðið til þess að kveða hann endanlega niður. Enn í dag eru tvenns lags fyrir- tæki haldin þeirri undarlegu áráttu að gefa ekki upp endanlegt sölu- verð vöru sinnar eða þjónustu. Þetta eru annars vegar þeir sem selja ferðalög en hins vegar þeir sem selja nýja bíla. Þó hefur sú gleðilega þróun orðið núna alveg síðustu vikurnar að nokkur bíla- umboð að minnsta kosti eru farin að gefa upp endanlegt verð á nýju bílunum sínum en ekki verð fyrir utan atriði sem eru óhjákvæmileg eða ómissandi. Ég hef rökstudda von um að bílaumboðin muni öll auglýsa endanlegt verð bíla sinna innan skamms, ekki bara hluta af verðinu, og það er vel. Er hægt að sleppa við aukagjöld? En ferðaaðOamir gera í því að auglýsa villandi verð. Sunnudag- inn 17. maí tók ég til aö mynda eft- ir 5 auglýsingum í Mogganum um utanlandsferðir. Úrval-Útsýn var þar fremst í blaði og auglýsti sólar- tiiboð til Mæjorku, ódýrast kr. 46.835 fyrir tvo - að visu stjörnu- merkt, og sfjarna í svona auglýs- ingum þýðir að böggull fylgi skammrifi. Enda var það svo. í lúsarletri neðst í auglýsingunni kom í ljós að þetta glæsilega verð var vantahð um 3.450 krónur. Ferðin kostar sem sagt ekki kr. 46.835 á manninn fyr- ir tvo í tveggja herbergja íbúð í tvær vikur heldur kr. 50.285. Eða KjaHaiinn Sigurður Hreiðar ritstjóri er hægt að sleppa við þessar 3.450 krónur sem eru svokölluð fost aukagjöld? Hvaöa skrípaleikur er þetta? Hvaö varðar kaupanda vöru um hvað eru föst aðalgjöld og hvað eru fost aukagjöld? Það sem máli skipt- ir er að þetta eru fost gjöld sem verður að greiða. Hvers vegna er þá verið aö þessum skollaleik? Er það bara til að geta slegið því upp með 90 punkta letri að svoddan ferð kosti innan við 50 þúsund krónur? Allir í einum báti Þótt Úrval-Útsýn hafi verið tekið hér sem dæmi er það ekki af því að sú ferðaskrifstofa sé öðrum verri. Aiit er á sama báti í þessu efni - ferðaskrifstofur, flugfélög. Þá komu Flugleiðir í Mogga með Rheinland-Pfalz og létu sig muna um að leggja saman allar tölur í endanlegu verði. Heföu þó sloppiö undir 30 þúsund kallinum. Næst Samvinnuferðir-Landsýn með hvorki meira né minna en „hjarta Evrópu“ meö Þóri Guðmundssyni fréttamanni, kr. 137.100. „Við bæt- ast skattar og gjöld, 2.850,- kr.“ - Hvers vegna í ósköpunum ekki að bæta því við bara strax og gefa upp eina, endanlega tölu? Aftur Samvinnuferðir, og nú til írlands, án flugvaUarskatta, for- faUagjalds og innritunargjalda sem eru kr. 2.850 fyrir fuUoröinn á ís- landi og kr. 700 á írlandi. Af hverju ekki, góöu menn, að leggja þetta saman fyrir okkur fiflin, viðsldpta- vinina, og gefa okkur það í einni tölu? Hægt að sýna enn lægri tölur Síðasta ferðaauglýsing í Mogga þennan sunnudaginn var frá Flug- leiðum, um flug og bíl á frábæru verði, sett upp í laglegt tíglamynst- ur þar sem hver nefndur lending- arstaður átti sinn tígul. En neðst í auglýsingunni er tílgreindur flug- vaUarskattur í hinum ýmsu lönd- um sem ekki er innifalinn í upp- gefnu veröi þangað og þaðan. Hvers vegna ekki, ágætu Flug- leiðir? Er þetta eitthvað sem við getum vikið okkur undan að borga? Ef svo er, þá hvemig? Ef ekki, hvers vegna er þá til að mynda hlutdeUd hvers sætis þotunnar í eldsneytiskostnaði ekki dregin frá uppgefnu verði og þess getiö neðan- máls að hún sé ekki innifalin? Þá gætuð þið sjálfsagt sýnt okkur enn lægri tölur með stóra letrinu. Viðskiptavinir hafðir að fíflum 18. maí kom DV með sitt vikulega ferðablað. Þar var sama uppi á ten- ingnum. Flugferðir-Sólarflug aug- lýsir „aUtaf lægstu verðin" og getur þess neðanmáls að flugvaUargjöld og forfaUagjöld séu ekki innifalin í uppgefnu verði. Ekki einu sinni nefnd krónutalan. Ferðaskrifstofa Reykjavíkur býður feröir tíl Lon- don og tekur fram að flugvaUar- skattur, kr. 1.250, sé ekki innifal- inn. AUs auglýsir stórborgir í Evr- ópu en að flugvaUargjöld og for- faUatrygging séu ekki innifalin. Ferðaskrifstofa Reykjavíkur aftur; nú með Benidorm - „ekki innifalið flugvaUarskattur og gjöld 3450,- fyrir fuUorðna, 2250,- fyrir börn.“ Það sem eftir stendur er að það er verið að hafa okkur viðskipta- vinina að fiflum. Það er verið að veifa framan í okkur agni, ginna okkur til að narta í krókinn í trausti þess að við bítum endanlega á og látum ekki þessa „auka“- þúsundkalla ekki fæla okkur frá aö kokgleypa. Um leiö þykjast þess- ar stofnanir líklega vera að skjóta keppinautunum ref fyrir rass með því að sýna lægri tölu. En þegar öllu er á botninn hvolft er ekki vist að lága sýndartalan sé nokkru hag- stæðari en sú sem í upphafi er gef- in heldur hærri - og stenst. Ef allir keppinautar hættu þess- um blekkUeik sætu þeir aftur við sama borð, eins og þeir gera núna með ósönnum verðtölum. En þeir myndu hætta að gera lítið úr okkur viðskiptavinunum. Ég er viss um að sá sem ríður á vaðið með því að gefa upp endanlegt alvöruverð tapar ekki á því þegar til lengri tíma er Utið - síður en svo. Sigurður Hreiðar ritstjóri „Hvað varðar kaupanda vöru um hvað eru föst aðalgjöld og hvað eru föst aukagjöld? Það sem máli skiptir er að þetta eru föst gjöld sem verður að greiða.“ Vísvitandi kerf isvandi íslendingar virðast aUtaf þurfa að finna sér blóraböggla ef skórinn kreppir í málum landsins. Áður höfðum við Dani í þetta hlutverk og gátum kennt þeim um aUt. Núna sitjum við hér uppi með okkur sjálf og þá verður að finna einhvern inn- lendan hóp í hlutverk þjóðarmeins- ins. Einu sinni voru það kommúnist- ar, síðan verkafólk og síðustu ár hafa bændur verið taldir upplagðir í hlutverk blóraböggulsins. Þessa dagana er agnúast út í námsmenn því að bændur duga ekki lengur sem orsök aUra meina eftir að í ljós kom að „sovéska aðferðin" í land- búnaðarmálum er jafnvel í trássi við stjórnarskrána. Lágkúrulegt innlegg í skóla lærði ég um neanderdals- manninn sem bjó í helU en núna læri ég í fjölmiðlum um náms- manninn. Námsmaður, hvemig maður er nú það? Hvað þýðir þetta orð, námsmaður, sem sumir menn fussa yfir í pirringi og fyrirUtningu í íjölmiðlum þessa dagana. „Náms- maður", er það eitthvað sérstakt afbrigði innan tegundarinnar „homo sapiens“? Námsmaður situr ekki í helh, heldur situr að svikráðum og svík- ur út fé, samviskulaus skratti, hættulegur velferðarþjóðfélagi á norðurslóð. Er það þess vegna sem menntamálaráðherra íslenska lýð- veldisins segist vilja fækka náms- mönnum? Er íslenski námsmaður- inn kannski „tegund í útrýmingar- hættu“? Yoko Ono ætti líklega að fá þá aUa utan til að taka af þeim afsteypu áður en fyrirbærið deyr KjaUarinn Unnur Karlsdóttir námsmaður ina til að tvístra hópnum. - Þeir fara ekki í kröfugöngur sem ergja stjómvöld svo að þau þurfa stöðugt að vera að ganga á táragasbirgðir landsins. Nei, hér er allt með kyrrum kjör- um og táragas lögreglunnar hefur ekki veriö hreyft síðan landið gekk í Nató. Eru námsmenn kannski ívið of prúðir? Einhver hlýtur ástæöan að vera fyrir því aö starfs- maður Lánasjóðs íslenskra náms- manna leyfir sér að koma fram í útvarpi með vafasamar og Ula rök- studdar yfirlýsingar um skort á heiðarleika námsfólks í landinu. Slíkar æmmeiðingar út í óskil- greindan hóp fólks eru ekki aðeins helber ósvífni heldur fremur lág- kúrulegt innlegg í umræðuna um Lánasjóð íslenskra námsmanna. „Einhver hlýtur ástæðan að vera fyrir því að starfsmaður Lánasjóðs íslenskra námsmanna leyfir sér að koma fram 1 útvarpi með vafasamar og illa rök- studdar yfirlýsingar um skort á heiðar- leika námsfólks í landinu.“ út, verður upprætt. íslenskir námsmenn eru dag- farsprútt og vel upp ahð fólk ef marka má að í fréttuni heyrist aldr- ei talað um stúdentaóeirðir á ís- landi. Þeir kasta ekki bensín- sprengjum að alþingishúsinu né setjast að á Austurvelli, torgi hins íslenska friðar, og ógna svo and- legri heilsu stjómvalda að þau neyðast til að senda víkingasveit- Yfi rlýsing formanns stjórnar LÍN Tilefni þessarar greinar er yfir- lýsing Gunnars Birgissonar, for- manns stjómar Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna, í hádegis- fréttum Rikisútvarpsins 5. maí síð- astliðinn. Þar heldur hann því fram aö stór hluti námsfólks vanáæth árstekjur sínar vísvitandi til að komast yfir vaxtalausan aukapen- ing. Til að tryggja afgreiðslu náms- láns á réttum tíma að hausti þarf nemandi að skha inn, fyrr um sum- arið, áætlun um árstekjur sínar. Eins og orðið teKjuáætlun felur í sér er þetta einungis áætlun um tekjur yfir árið en ekki endanlegar tölur. Margt getur valdið því að næsta ómögulegt er að sjá fyrir hveijar árstekjumar verða ná- kvæmlega. Mér þætti aha vega mjög gaman að hitta þann laun- þega eða atvinnurekenda, já eða alþingismann, sem treystir sér til að vita upp á hár í byrjun ágúst hveijar tekjur hans verða fram að áramótum sama árs! Ef námsmaður vanáætlar tekjur sínar svarar lánasjóðurinn því með því að lækka greiðslur til hans sem þvi nemur. Ef lánasjóðurinn of- reiknar lán innheimtir hann þau innan skamms tíma frá því að þau vom greidd út? En nei, þessar upp- lýsingar koma ekki skýrt fram hjá Gunnari Birgissyni, enda ekki sá boðskapur sem hann vildi koma í fjölmiðla heldur var það svikafýsn námsmanna. Er Gunnar Birgisson orðinn slík- ur sjáandi að hann sjái í gegnum holt og hæðir og inn í höfuðskeljar námsfólks sem fær greitt úr LIN? Þaö hlýtur að vera að hann búi yfir einhveijum ofurmannlegum skynjurum. Eða finnið þið ein- hveija aðra líklega skýringu á því að hann treystir sér til að koma fram í útvarpi og dæma stóran hóp af fólki sem óprúttna svindlara? Ég vona að námsmenn þurfi ekki að þola fleiri slíkar yfirlýsingar úr herbúðum lánasjóðsins heldur fái að njóta sannmæhs. Umræðan um námsfólk og lánasjóðinn á að vera málefnaleg en ekki fóður fyrir æsi- fréttir og slagorðahasar. Unnur Karlsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.